Morgunblaðið - 26.04.1998, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 26.04.1998, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 26. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Helgi S. Guðmundsson segir reglur spurningu um traust Þetta er ekki eins slæmt og ég hélt, Kjartan minn. Laxaskíturinn fer alveg ef maður skrúbb- ar bara nógu fast og lengi... ■yryrw,' GRUNNTEIKNING af sundlaugarsvæðinu í Grafarvogi, *...T . ' -1... yllli Sundlaug í Grafarvogi brátt opnuð STEFNT er að því að ný útisundlaug í Grafarvogi verði opnuð 3. maí næst- komandi, en næsta haust verður tekin í notkun þar innisundlaug sem aðallega er ætluð til sundkennslu. Utilaugin er 12,5 x 25 metrar að stærð og við hana tengist grunn vað- laug fyrir smábörn. Að auki verða þrír heitir pottar við laugina, þar af einn nuddpottur. Innilaugin sem tekin verður í notkun í haust verður 8,5 x 12,5 metrar að stærð, og að sögn Erlings Þ. Jóhannes- sonar, íþróttafulltrúa hjá íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkurborgar, er á áætlun að byggja síðar eimbað og úti- sturtur við útisundlaugina. Sundlaugamannvirkin eru við íþróttahúsið í Grafarvogi og verða þau hluti af fþróttamiðstöðinni í Grafar- vogi. Undirbúningur að smíði sundlaug- anna hófst 1996 og er áætlaður bygg- ingarkostnaður 365 milljónir króna. Morgunblaðið/Árni Sæberg UNNIÐ er af fullum krafti við frágang útilaugarinnar sem opn- uð verður í næstu viku. Stærsta vegagerðarrannsókn í heimi 4572 mælitæki grafín í jörðu Björn Birgisson MINNESOTARÍKI í Bandaríkjunum er um þessar mundir í gangi stærsta vegarannsóknar- verkefni í heimi. Dr. Björn Birgisson, sem starfar við Minnesotaháskóla, hefur að undanfömu unnið við rannsóknarverkefnið sem nefnist í Minnesota Mn/ROAD. Hann verður með fyrirlestur um verk- efiiið á Hótel Loftleiðum næstkomandi miðvikudag, þann 29. apríl. „Þetta er mjög umfangs- mikið verkefni sem er til tuttugu ára eða lengur. Um fjörutíu manns starfa við það en verkefnið er hannað af vegasérfræðing- um frá ýmsum stofnunum í Minnesotaríki svo og al- ríkisstofnunum í Bandaríkjun- um.“ Bjöm segir að verkefnið safni 30 megabætum af vegamæling- argögnum á hverjum degi, 365 daga á ári. „Þær upplýsingar fá síðan alríkisstjómin, ríkisstjóm- ir víðsvegar að í Bandaríkjunum og aðrir sem starfa að rannsókn- um víðsvegar í heiminum.“ - Hvað er aðallega veríð að rannsaka? „Við erum að rannsaka áhrif umferðar- og öxulþunga ásamt umhverfislegum áhrifum, s.s. veðurfari, úrkomu, frosti og þíðu á mismunandi vegagerðarefni og vegahönnun." Bjöm bendir á að byggður hafi verið sérstakur vegur fyrir þetta verkefni, svokallaður 1-94, og sá vegur er hluti af aðalvega- kerfi fylkisins. „Það era 4.572 mælitæld graf- in í jörðu í yfir 40 mismunandi vegategundum á þessum vegi. Sumir veghlutar era malbikaðir, aðrir þaktir steinsteypu, mis- munandi þykkt lag er á veghlut- um og gerð vegaundirlags er mismunandi." - Hefur verkefnið þegar skilað árangri? „Þó að erfitt sé að slá fram ná- kvæmum tölum þá er álitið að verkefnið skili þegar um 5.000.000 dolluram á ári í sparn- að til Minnesotaríkis en það samsvarar ... íslenskra króna. Þessi spamaður er fenginn með því að hafa lengt endingartíma- bil nýrra vega um að meðaltali 5%. Fram til þessa hefur í óbein- um skilningi verið tekið tilllit til umferðarlags og öxulþunga við vegahönnun og þá aðallega sem byggt er á á reynslu. Þá hefur mótstaða í vegi líka óbeint verið tekin inn í útreikninga. Nú eram við búin að þróa upp nýja aðferð við hönn- un vega sem byggist á því að taka umferðarlag, öxul- þunga og mótstöðu vegagerðar- efnis beint í hönnun vega. Þetta þýðir að samsvörun verður betri milli raunveralegs endingartíma og þess endingartíma sem gef- inn er upp í hönnuninni. Því er hægt að skipuleggja kostnað vegna viðhalds og verkefna bet- ur en áður.“ - Hafið þið ekki líka þróað að- ferð til að ákvarða þyngdartak- markanir þegar frost er að fara úrjörðu? „Jú. Við höfum þróað nýjar aðferðir til að ákvarða öxul- þungatakmarkanir á vegum þeg- ► Björn Birgisson er fæddur á Hólmavík árið 1962. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan- um í Hamrahlíð árið 1982. Hann lauk BS prófí í byggingarverk- fræði og stærðfræði frá Háskól- anum i Norður-Dakota. Bjöm lauk MS prófi í byggingarverk- fræði árið 1991 frá Cornellhá- skólanum í New York og lauk síðan doktorsprófi frá Minnesotaháskóla árið 1996. Björn starfaði sem ráðgjafí á verkfræðistofu með námi í Minnesota og sinnir nú rann- sóknarstöðu við Minnesotahá- skóla. Þar stjórnar hann m.a. ýmsum MN/Road rannsóknar- verkefnum. Eiginkona Björns er Grace Lai tölvufræðingur. ar frost er að fara úr jörðu. Það er mjög mildlvægt að geta spáð með sem mestri nákvæmni fýrir um hvenær þyngdartakmarkana er þörf. Ef þær era settar á vegi of snemma eða teknar af vegum of seint á vorin þá getur það haft töluverðan kostnað í fór með sér. Það þarf þá að flytja vörar og hráefni lengri leið en ella. Ef þyngdartakmarkanir era settar of seint á vorin eða teknar af of snemma geta vegir skemmst veralega sem þýðir aukinn kostnað vegna viðhalds, umferð- artafa eða skemmda á ökutækj- um.“ - Hafíð þið unnið þessar rann- sóknir í samstarfí við önnur lönd? „Við eram í sambandi við rannsónarhópa um heim allan, til dæmis í Finnlandi, Svíþjóð, Danmörku og núna á íslandi. Við höfum til dæmis þróað nýjar og betri aðferðir við hönnun og viðhald á malarvegum í sam- vinnu við vegagerðina í Finnlandi. Helming- ur af vegakerfinu hér í Bandaríkjunum er malarvegir og því eru þeir mikilvægur þátt- ur í samgöngukerfinu hér. Þá erum við stöðugt að þróa sterkara og endingarbetra mal- bik og í þessu sambandi höfum við skoðað aðferðir við klæðn- ingu vega eins og fólk þekkir á þjóðvegum á íslandi.“ - Telur þú að íslendingar geti haft not af þessum niðurstöðum ykkar? „Það er enginn vafi á þvi að þessar niðurstöður má yfirfæra á íslenskar aðstæður og spara umtalsverðar fjárhæðir með að fara eftir þeim.“ „Hefur þegar skilað miklum sparnaði“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.