Morgunblaðið - 26.04.1998, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 26.04.1998, Blaðsíða 28
 28 SUNNUDAGUR 26. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ Fyrirlestur og námskeið KANADÍSKI myndlistarmaðurinn Lucy Pullen frá Halifax, Nova Scotia, heldur fyrirlestur um eigin verk í Barmahlíð, Skipholti 1, mánudaginn 27. apríl kl. 12.30. Hún dvelur um þessar mundir í gesta- vinnustofunni í Straumi. Námskeið í vatnsiitamálun Skissugerð úti og inni. Kennd verður meðferð vatntslita og vatns- litapappírs, reynt að fá fram gagn- sæi litanna án þess að þeir verði óhreinir og farið verður í mynd- byggingu og formfræði. Kennari er Torfi Jónsson og kennt verður í húsnæði MHÍ í Laugarnesi mið- vikudaginn 20. maí og föstudaginn 22. maí kl. 18-22 og laugardaginn 23. maí kl. 10-16. ---------------- Kvöldvaka með Steinunni og Carli LISTA- og menningarfélagið Dægradvöl á Álftanesi heldur áfram að kynna skáld „fyndnu kyn- slóðarinnar“ í íslenskum skáldskap og býður upp á djass en í kvöld sunnudagskvöld kl. 20.30 verður skáldskapur og djass í Haukshús- um, litla bláa húsinu við sjóinn. Það er Steinunn Sigurðardóttir sem er gestur Dægradvalar að þessu sinni og Carl Möller flytur djass, en hann hefur meðal annars samið tónlist út frá ljóðlist Stein- unnar. ------♦-♦-♦----- Tönleikar Peter Máté falla niður ÁÐUR auglýstir tónleikar Peter Máté í Digraneskirkju 27. apríl nk. falla niður vegna veikinda. Næstu tónleikar í Kópavogi verða 4. maí í Digraneskirkju. Þá leika Unnur María Ingólfsdóttir á fíðlu og Miklos Dalmay á píanó. H0FUNDAR VITJI HANDRITA Dómnefnd Verðlaunasjóðs ísienskra barnabóka hefur lokið störfum og valið verð- launahandrit í samkeppni um íslensku barnabóka- verðlaunin 1998. Nefndin hefur skýrt viðkomandi höfundi frá niðurstöðu sinni en úrslit verða tilkynnt opinberlega í lok sumars, um leið og verðlaunabókin kemur út. Dómnefnd biður aðra þátttakendur í sam- keppninni um að vitja hand- rita sinna sem fyrst til Vöku- Helgafells, Síðumúla 6. Þar eru þau afhent gegn því að nefnt sé nafn handrits og dulnefni höfundar. Verð- launasjóðurinn þakkar góða þátttöku í samkeppninni. ________LISTIR Tvöfalt EIN af vatnslitamyndum, akvarellum, Gunnlaugs Stefáns Gíslasonar. MYNDLIST Sverrissalnr Hafnarborg/ Listhúsið Fold OLÍA-VATNSLITIR/ VATNSLITIR GUNNLAUGUR ST. GÍSLASON Opið alla daga frá 12-18. Lokað þriðjudaga í Hafnarborg. Aðgangur 200 krónur í allt húsið. Til 27. apríl. Frá 10-18 virka daga, 14-18 laugar- daga og 14-17 sunnudaga í Fold. Að- gangur ókeypis. Til 5. maí. ÞAÐ gerist sjaldan að listamenn hafi tvær sýningar í gangi svo til samtímis í Reykjavík og Hafnar- firði, en er ekki óþekkt á öðrum hvorum staðnum, einkum á sjálfu höfuðborgarsvæðinu. Hér kemur Gunnlaugur Stefán Gíslason ekki einasta listunnendum á óvart held- ur líka staðarhöldurunum, sem vissu minnst um hina sýninguna fyrr en skömmu áður en báðar opn- uðu dyr sínar. Tiltektin kann að vera umdeilan- leg með tilliti til listhúsanna, en hins vegar er ekkert nema gott um slika framkvæmdasemi að segja og eðlilegt að listamenn hafi öll spjót úti um kynningu listar sinnar á þessum tímum, oft var þörf en nú nauðsyn. Gunnlaugur er Hafnfirðingur í húð og hár og kannski mætti er svo er komið nefna þennan sérstaka myndstfl sem hann og fleiri Gaflar- ar hafa lagt út af á undanförnum árum, Hafnfirsku. Er þá um að ræða að viðkomandi fangi sérstök sjónarhom úr Firðinum, geri það mjög frjálslega og með ýmsum brögðum tækninnar, áhrifamætti sterkra andstæðna og hvellra ljós- brota. Um er að ræða óformlega meðhöndlun þess sem fyrir auga ber með aðstoð hugarflugsins, en án þess að hið óformlega sé dýrkað á sértækan hátt líkt og í „art infor- mel“ er sumir hérlendir fræðingar nefna, formleysumálverk, sem get- ur strangt séð ekki staðist. Regla í frjálsri mótun eða óformlegheit þurí'a ekki að vera formleysa, nema þau gangi of langt og verði hrein ókurteisi, jafnvel dónaskapur, og það er svo margt heillandi við óformlegan framgangshátt, sem er kjarninn í óformlega málverkinu. Þannig eru til mörg stig af óform- legheitum ekki síður en formleg- heitum, en ekki einungis tvo and- stæða og órokkanlega póla. Undan- fari stílbragðanna, er svo það sem menn hafa lengi nefnt, artistíska kennd, á fagmáli, og á við leikandi létt en jarðtengd vinnubrögð mettuð skynrænni kynngi, póesíu, eins og við sjáum hjá Kjarval, en þó í öðrum búningi. Og eins og vinnubrögð áhrifastefnunnar koma fram í mál- verki 200 árum áður en hún varð að afmörkuðum stflbrögðum sem fengu heitið impressjónismi, voru óform- leg vinnubrögð til í málverki löngu áður en þau voru einangruð og hlutu stílheitið, art informel. Þetta er sem sagt hinn skjalfesti og bókaði bakgrunnur vinnubragða Gunnlaugs Stefáns, og hafa verið viðvarandi í myndum hans um ára- bil, eða allt frá því að hann kynntist myndheimi ameríska málarans Andrews Wyeth fyrir rúmum tveim áratugum. Wyeth er einnig einn nafnkenndasti vatnslitamálari þeirra vestra, eins og mörgum mun kunnugt, vinnur að auk mikið í tempera ásamt því að nota svo- nefnda dry-brush tækni með vatns- litum. Er hér að sjálfsögðu átt við akvarelluna. Málið er þó, að það er allnokkur munur á umhverfinu í Chadds Fords í nágrenni Boston svo og Maine þar sem Wyeth dvel- ur á sumrin, og Hafnarfirði og ná- grenni. Einnig er nokkur munur á upplagi og stílbrögðum málaranna, sem ganga þó út frá svipuðum for- sendum í útfærslu mynda sinna. Má finna nokkra hliðstæðu í Turn- er, van Gogh og svo Kjarval. Með fáum undantekningum ein- kenna mjúk og óformleg vinnu- brögð sýninguna í Sverrissal, sem síður er hægt að heimfæra við bestu hliðar Gunnlaugs og varð ég satt að segja fyrir nokkrum vonbrigðum, því ég geri meiri kröfur til þessa listamanns. Skynjaði einhverja deyfð í myndskipaninni, sem ekki er mér að skapi. Ljósbrigðin og fersk- leikinn eru til staðar en eitthvað af- gerandi skortir í myndheildirnar. Helst voni það myndir eins og Homið (1), Brot (5), Oltin (10) og Norðankaldi (21) sem vöktu athygli mína íyrir mótuð vinnubrögð, einnig ber að nefna myndirnar Kista og Eyðing (6 og 7) fyrir tær- leikann sem er grunntónn þeirra. Ekki heppilegastur samanburður að hafa pastelmyndir Louisu Matthíasdóttur á efri hæðinni, þar sem einfaldleikinn ríkir ásamt strangri myndbyggingu. En telst þó nokkuð fráleitur vegna þess að menntunarlegur bakgrunnur Lou- isu er annar og meiri. Sýningunni í listhúsinu Fold gefur Gunnlaugur samheitið Árstíðir, sem á vel við, og hér kveður við annan tón í útfærslu myndanna. Sallaklárt má vera að vatnsliturinn, akvarellan, er sá mið- ill sem Gunnlaugur á helst erindi í miðað við þessar tvær sýningar. Og i þegar hann er á alvarlegri nótunum : og byggir upp markvissar form- heildir Iflct og í myndunum, Hamra- borgin (4), Hrauntunga (5), Gamli kofinn, III og IV (10 og 11) og Sker (19), og öðrum er svipa til þeirra kenni ég bestu hliðar listamanns- ins. Veigurinn er hér helstur, að myndirnar tapa engu af ferskleika sínum við þessi nákvæmu vinnu- brögð nema að síður sé, og það er listin mesta. Bragi Ásgeirsson Stórsveit Reykjavíkur á Suðurnesjum STÓRSVEIT Reykjavíkur heldur tónleika á vegum tónlistai-skólanna í Keflavík og Njarðvík á sal Fjöl- brautarskóla Suðumesja, þriðjudag- inn 28. apríl kl. 20.30. Stórsveit Reykjavíkur var stofnuð árið 1992 að frumkvæði stjórnand- ans Sæbjörns Jónssonar. Stórsveit Reykjavíkur skipa 18 hljóðfæraleikarar og á tónleikunum verður efnisskráin fjölbreytt, m.a. lög eftir Bob Minzter og Bob Brok- meyer. Einnig flytur sveitin gamla slagara. Einsöngvari með Stórsveit- inni að þessu sinni er Tena Palmer frá Kanada og syngur hún m.a. lögin What kind of fool am I og Almost like being in love, Ellý Vilhjálms söng inn á geislaplötu sveitarinnar 1995. Lag- ið verður flutt á tónleikunum til heið- urs Ellý. Tónleikamir gilda til tón- leikasóknar hjá nemendum TK og TN. Aðgangseyrir er 800 kr. en 400 kr. fyrir nemendur TK og TN. STYRKUR TIL TÓNLISTARNÁMS Minningarsjóður um Jean Pierre Jacquillat mun á þessu ári veita tónlistarfólki styrk til framhaldsnáms erlendis á nœsta skólaári 1998-1999. Veittur er styrkur að upphæð kr. 500.000. Umsóknir með upplýsingum um námsferil og framtíðaráform sendist fyrir 25. maí nk. til formanns sjóðsins: Arnar Jóhannssonar, pósthólf 3372, 123 Reykjavík. Umsóknum fylgi hljóðritanir, raddskrár frumsaminna verka og/eða önnur gögn sem sýna hæfni umsækjanda. Heilinn stækkar við hljóðfæraleik London. Reuters. ÞÝSKIR taugasérfræðingar hafa komist að því að æfingar á hljóð- færi bæta ekki aðeins frammistöðu hljóðfæraleikara, heldur stækka þær svæðið í heilanum sem vinnur úr hljóði. Sérfræðingar við háskól- ann í Miinster komust að því að hljóðnámssvæðið í heilaberkinum er að jafnaði um 25% stærra í tón- listarmönnum en þeim sem ekki leggja stund á hljóðfæraleik. Þá leiddu ramisóknir þeirra í Ijós að því yngri sem menn eru þegar þeir byrja að spila á hljóðfæri, því stærri verður þessi hluti heilans og kaim það að útskýra hvers vegna sumir ungir tónlistarmenn ná fram- úrskarandi árangri á hljóðfæri sitt. Þýsku sérfræðingarnir segja að þar sem tónlist myndi flóknari hljóð en venjuleg umhverfishljóð, þurfi fleiri taugafrumur til að flytja þau skilaboð f heilanum og að starfsemi frumnanna sé samræmdari en ann- ars. Þessi rannsókn styður fyrri rannsóknir sem sýna fram á mun á þeim hlutum heilans sem stýra vinstri og hægri hendi hjá þeim sem leika á strengjahljóðfæri. Er svæðið í heilanum sem stýrir hreyf- ingu vinstri handar mun stærra en það sem stýrir hægri hendi, þar sem vinstri höndin breytir tóninum með því að þrýsta á strengina en sú hægri stýrir einungis boganum. Þá benda bandarískar rannsókn- ir til þess að börn sem hefja tónlist- arnám á unga aldri, kunni að vera greindari en önnur börn, þar sem geta þeirra til að taka á móti upp- lýsingum og vinna úr þeim aukist við tónlistarnámið. Listaklúbbur Leikhúskjallarans Valin ljóð úr Stúlku SÉRSTÖK dagskrá verður næst- komandi mánudagskvöld, 27. apr- fl, í Listaklúbbi Leikhúskjallarans helguð ljóðum íslenskra kvenna. Helga Kress, prófessor í al- mennri bókmenntafræði, mun fjalla um einkenni á ljóðum kvenna, ritdóma um þau og við- tökur. Hún tekur sérstaklega fyr- ir lítt þekktar skáldkonur og skáldkonur frá síðari hluta 19. aldar fram til ársins 1970. Dag- skráin er meðal annars unnin upp úr nýútkominni bók Helgu, Stúlku, sem er úrval ljóða ís- lenskra kvenna frá árunum 1876 til 1995. Skáldkonurnar Ingibjörg Har- aldsdóttir og Vilborg Dagbjarts- dóttir lesa valin ljóð úr Stúlku. Ásgerður Júníusdóttir, mezzó- sópran, syngur en hún vinnur um þessar mundir að plötu sem inni- heldur lög samin við ljóð eftir ís- lenskar konur og mun Smekk- leysa gefa hana út. Lögin sem Ás- gerður flytur í Listaklúbbi leik- húskjallarans eru Vísur Vatns- enda-Rósu í útsetningu Jóns Ás- geirssonar, Kvöldvísa eftir Huldu við lag Eyþórs Stefánssonar og Ég lít í anda liðna tíð eftir Höllu Eyjólfsdóttur frá Laugarbóli, við lag Sigvalda Kaldalóns. Iwona Jagla leikur undir á píanó. Dag- skráin hefst kl. 20.30 en húsið verður opnað kl. 19.30. Miðasala fer fram við innganginn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.