Morgunblaðið - 26.04.1998, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 26.04.1998, Blaðsíða 26
26 SUNNUDAGUR 26. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR wili wÉf é Wf wm SJjM ■ ‘iP jjgú,. J ÍM0' \ B m. • . 'r — \ m Morgunblaðið/Jón Svavarsson Börn verðlaunuð fyrir skáldskap VERÐLAUN voru veitt í smá- sagna- og ljóðasamkeppni fyrir börn sem nokkur almennings- bókasöfn efndu til í tilefni af degi bókarinnar og er helguð minn- ingu Halldórs Laxness. Þátttak- endum í samkeppninni var skipt í þijá aldurshópa, sex til níu ára, tíu til tólf ára og þrettán til sex- tán ára. Á annað þúsund verka bárust. Urval þeirra er birt í þremur heftum sem bera heitin Náttúrubörn, Ævintýrabörn og Nútímabörn og inniheldur hvert þeirra sögur og ljóð. í kynningu segir: „Það er greinilega mikill áhugi á skáld- skap meðal barna og unglinga og þau virðast óhærdd við að spreyta sig á ólíkum formum. Sum ljóðin eru borin uppi af mögnuðum stemmningum, önnur einkennast af knöppum myndum; þarna eru frásagnarkennd ljóð og jafnvel hið meitlaða form hækunnar skýtur upp kollinum. Efnisval smásagnanna reyndist af ýmsum toga. Ævintýri og nátt- úrustemmningar voru nokkuð áberandi, ekki síst hjá yngri börnunum. Alvara lífsins var einnig ríkjandi og meðal annars er fjallað um einsemd, einelti, vináttu, vímuefni, sorg og dauða. Efnisval kom dómnefndinni all- mikið á óvart og sýnir ljóslega að börn á grunnskólaaldri eru hugs- andi manneskjur og sorglega vanmetin af þeim sem telja sig eldri og þroskaðri." f hverjurn aldursflokki voru veitt þrenn verðlaun. Fyrstu verðlaun fyrir ljóð hlutu Unnur Helgadóttir, níu ára, Arnhildur Hálfdánardóttir, tíu ára, og Magnús Sveinn Jónsson, fimmtán ára. Fyrstu verðlaun fyrir smásög- ur hlutu Sjöfn Hauksdóttir, sjö ára, Sigríður Soffía Níelsdóttir, tólf ára, og Aldís Ásgeirsdóttir, fimmtán ára. Allir verðlaunahaf- ar fengu bók frá Vöku-Helgafelli og Parker-penna frá Parker-um- boði S.H. Egilssonar. Verðlaunaafhendingin fór fram í Norræna húsinu sumar- daginn fyrsta. Sýndargrjót ' á Mokka MYNDLIST Mokka INNSETNING EGILL SÆBJÖRNSSON Opið alla virka daga frá 10:00 til 23:30, og á sunnudögum frá 14:00 til 23:30. Aðgangur ókeypis. Til 28. aprfl. SÝNDARVERULEIKI er eitt af þessum tískuorðum sem fylgt hafa tölvubyltingunni. En orðið er notað frekar frjálslega og ekki er alltaf ljóst hvað við er átt. Ég skil það svo að sýndarveruleiki sé mynd sem er þeim eiginleikum gædd að hún sýnist vera af ein- hverju sem er raunverulegt, en er það ekki, og oft er það svo að áhorfandinn ræður nokkru um það hvernig þessi „veruleiki“ birtist honum. Sýndai-veruleiki er því alls ólíkur raunsæi, þar sem reynt er að nálgast á sem trúverðugastan hátt þann raunveruleika sem við þekkjum utan mynda. Sýndar- veruleiki er aðeins til innan mynda. Pælingamar í kringum hug- myndina um sýndarveruleika eru útgangspunkturinn iýi'ir sýningu Egils Sæbjörnssonar, en hann nálgast viðfangsefnið á nokkuð óvenjulegan hátt, því á sýningunni er alls ekki að finna tölvulendur leikjaframleiðenda, eins og við mætti búast þegar sýndarveru- leika ber á góma, heldur myndir af dæmigerðu íslensku grjóti. Sýn- ingin er samsett annars vegar úr 16 litljósmyndum af einum og sama mosavaxna steininum sem stendur úti í móa, og hins vegar röð þessara sömu kyrramynda á sjónvarpsskjá, sem flett er ört í gegnum og verða að hreyfimynd. Ljósmyndunum er raðað hringinn í kringum salinn í Mokka, þannig að hægt er að snúa sér í hring og sjá steininn frá öllum sjónarhorn- um, en þegar við stöndum frammi fyrir skjánum þá hringsnýst steinninn og við stöndum kyrr. Ef hægt er að kalla þessar myndir vísi að sýndai’veruleika þá er hann mjög „low-tech“, miðað við það sem gengur og gerist í stafrænt ræktuðum heimum. En er íslenskt grjót sýndarveru- leiki? Maður skyldi nú ekki ætla það. Grjótið er greinilega vísun í íslensku landslagsímyndina og með því mætti ætla að Egill sé að benda á skyldleika með hefð- bundnum landslagsmyndum og lendum sýndarheima. Málverk Kjarvals sýndarveruleiki? Tölvu- heimar framlenging af hefðbundn- ari myndmiðlum? Og áður en við vitum af þá erum við farin að leika okkur með þá hugsun að ekkert sé til í reynd, aðeins sýnd. Hér er ríkulegt efni til að moða úr og bitastæðara en sýningin gef- ur tilefni til að ætla. Ef Egill fylgir þessum pælingum eftir þá er aldrei að vita nema að skemmtileg- ir hlutir gætu komið út úr því, en þessi sýning ein og sér stendur varla undir þeim. Egill hefur þó áttað sig á því að það er erfítt að láta innsetningar sem þessar ganga upp á Mokka, og hann er ekki að leggja meira á útfærsluna en rýmið leyfir. Varla er árið liðið siðan Egill lauk skóla en þetta er þó önnur einkasýning hans. Það sem er sameiginlegt með þeim verkum sem ég hef kynnst frá Agli eru efnistökin, en hann bygg- ir öll sín verk upp á hugmyndarík- um og gjarnan skoplegum myndröðum, og með þeim hefur honum á skömmum tíma tekist að vekja bæði forvitni og væntingar. Gunnar J. Árnason [ \ i I: I í I I I Barnabókaverðlaun fræðsluráðs FRÁ verðlaunaaíliendingunni. Morgunblaðið/Golli Besta íslenska fræðibókin FÉLAG bókasafnsfræðinga veitti hina árlegu viðurkenningu fyrir bestu íslensku fræðibókina árið 1997, miðvikudagin 22. april, annars vegar fyrir börn og hins vegar fyrir fullorðna. í flokki íslenskra fræði- bóka fyrir fullorðna var bókinni Hagskinnu, sögulegar hagtölur um ísland, ritstýrt af Guðmundi Jóns- syni og Magnúsi S. Magnússyni og gefin út af Hagstofu íslands, veitt viðurkenning. I hópi fræðibóka fyrir börn stóðst engin frumsamin íslensk fræðibók gefin út 1997 þær kröfur sem gerð- ar eru til fræðibóka fyrir börn og þess vegna verður engin bók til- nefnd af nefndarinnar hálfu þetta árið. Aðeins einu sinni hefur verið hægt að veita viðurkenningu í þess- um flokki en það var bókin Blóm okkar eftir Stefán Aðalsteinsson, sem bókaútgáfan Bjallan gaf út árið 1992. Ástæða er til að vekja athygli á því að engin íslensk fræðibók fyrir börn hefur staðist þær kröfur sem gerð slíkra bóka krefst að mati Fé- lags bókasafnsfræðinga. Megintilgangur félagsins með því að veita viðurkenningu fyrir bestu frumsömdu íslensku fræðibók hvers árs er að vekja athygli á mikilvægi þess að gera fræðibækur vel úr garði, hvort sem um er að ræða fræðibækur fyrir böm eða full- orðna, almenning eða sérfræðinga. BARNABÓKAVERÐLAUN fræðsluráðs Reykjavíkur voru veitt í tuttugasta og sjötta sinn miðviku- daginn 22. apríl og fyrir frum- samda bók hljóta að þessu sinni rit- höfundamir Þórarinn og Sigrún Eldjám fyrir bókina Halastjarna. Þórarinn skrifaði textann en myndlistarkonan Sigrún mynd- skreytti. Það er mat dómnefndar að textinn og myndimar spOi og sterkt saman að rétt sé að þau Þór- arinn og Sigrún njóti bæði verð- launanna. Þórarinn hefur skrifað fjölmarg- ar bamabækur og flestar þeirra em myndskreyttar af systur hans Sigrúnu. AUk þess hefur hann skrifað verk fyrir fullorðna og fengist við þýðingar bóka, leikrita og ljóða. Sigrún hefur einnig verið mjög afkastamikil við að skrifa og mynd- skreyta bækur fyrir böm. Éftir hana liggja hátt í tveir tugir barna- bóka þar sem hún er ýmist höfund- ur texta og/eða mynda. Halastjama er ljóðabók með 20 ljóðum sem em fallega mynd- skreytt. Ljóðin fjalla á litríkan hátt um lífíð og tilveruna og hafa yfir sér ævintýrablæ. Útgefandi er Forlagið. Þýðingarverðlaunin fær að þessu sinni Þorgerður S. Jömnds- dóttir fyrir þýðingu sína á bókinni Ævintýri nálfanna Flóttinn, eftir Terry Pratchett. En Terry Pratehett er breskur höfundur. Bækur hans hafa ekki áður verið þýddar á íslensku. Ævintýri nálfanna er um líf nálfa sem eru smáar lífverur, fremur skammlífar. Sagan segir frá lífs- baráttu nálfsins Magna sem undir- býr flutning til að freista betra lífs og lendir þá í nálfasamfélagi sem trúir því að ekkert sé til fyrir utan þeirra samfélag. Lífsreynsla Magna og fjölskyldu ermikilvægt þegar nálfasamfélagið þarf að leggja á flótta úr sínum gamal- grónu heimkynnum. Þorgerður er nemi í Myndlista- og handíðaskólanum en hefur áður lokið BA-prófi í heimspeki. Ævin- týri nálfanna er fyrsta bókin sem hún þýðir. Útgefandi bókarinnar er Mál og menning. Núverandi úthlutunarnefnd var skipuð af skólamálaráði Reykjavík- ur haustið 1994 og í henni sitja; Hulda Ólafsdóttir formaður, Helga Kjaran og Kristrún Ólafsdóttir. Útgefendur sem leitað var til létu nefndinni góðfúslega í té bæk- ur og alls bámst 64 barna- og ung- lingabækur, þar af 42 framsamdar og 22 þýddar. Þær bækur sem til álita koma miðast við útgáfuárið 1997. Samkvæmt úthlutunarreglum fræðsluráðs skulu veitt tívþætt verðlaun. Annars vega rfyrir frum- samda bók og hins vegar fyrir þýð- ingu. Úr mörgum góðum bókum var að velja. Nefndin var samdóma í niðurstöðum sínum. Vortónleik- ar Tónlistar- skóla Kópavogs | NÚ standa yfir vortónleikar Tónlistarskóla Kópavogs og fara þeir fram í sal skólans að Hamraborg 11. Tónleikar nemenda á efri stigum verða þriðjudaginn 28. apríl kl. 18. Fimmtudaginn 30. apríl kl. 20 verða kammertónleikar með samleik nemenda á ýmis hljóðfæri. Laugardaginn 2. maí kl. 11 verða tónleikar þar sem eingöngu koma fram nemendur í píanóleik og verð- ur efnisskráin fjölbreytt. Aðgangur að tónleikum tónlistarskólans er ókeypis. Úr fókus á . Nelly’s Café í SÝNINGIN „Úr fókus“ var I opnuð á Nelly’s Café, mánu- daginn 20. apríl sl., en hún er liður í forvarnarátakinu „20,02 hugmyndir um eiturlyf". Að þessu sinni er það myndlistameminn Egill Tóm- asson sem sýnir og er um að ræða ljósmyndir teknar á Pol- aroidvél. Sýningunni lýkur mánudag- inn 27. apríl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.