Morgunblaðið - 26.04.1998, Blaðsíða 30
30 SUNNUDAGUR 26. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Byggjum á langri reynslu
VIÐSKIPri AIVINNULÍF
Á SUNNUDEGI
►Erlendur Hjaltason er fæddur í Reykjavík árið 1957. Hann
útskrifaðist frá Samvinnuskólanum á Bifröst árið 1978. Er-
lendur lauk cand.merc. námi í rekstrarhagfræði við verslunar-
háskólann í Kaujimannahöfn árið 1984. Hóf hann þá störf hjá
Eimskipafélagi íslands og hefur starfað þar síðan að undan-
teknum þrem árum þegar hann veitti húsgagnaverksmiðju
Kristjáns Sigurgeirssonar forstöðu á árunum 1987-1990. Hann
varð forstöðumaður utanlandsdeildar Eimskips árið 1990 og
tók við nýju starfí framkvæmdastjóra utanlandssviðs þegar
breytingar voru gerðar á sljórnskipulagi félagsins á síðast-
liðnu ári. Erlendur er kvæntur Aðalheiði Valgeirsdóttur mynd-
listarmanni og eiga þau tvo syni.
FLUTNINGABÍLL frá Eimskip á ferð í Færeyjum.
Eftlr Hlldí Einorsdóttur.
m UNDANFÖRNUM árum
/1 hefur Eimskip lagt áherslu
/ > á að efla starí'semi félags-
JL JLins erlendis. Tilgangurinn
með uppbyggingunni er að auka
vöxt félagsins og þróa betri flutn-
ingskerfi fyrir viðskiptavini okkar
og ná hagstæðari samningum," seg-
ir Erlendur þegar við ræðum við
hann um þróun starfseminnar er-
lendis. Erlendur er nýkominn frá
útlöndum en er tveim klukkutímum
síðar mættur á skrifstofu sína í
Pósthússtrætinu. Hann segir starf
sitt krefjast töluverðra ferðalaga en
hann fari utan að meðaltali tvisvar í
mánuði. „Það ánægjulega við þenn-
an rekstur er að hann hefur farið
fram úr vonum okkar en við höfðum
í upphafi sett okkur það markmið að
umsvifin erlendis yrðu 25% af um-
svifum félagsins árið 2000 en þau
voru 27% á síðastliðnu ári.“
Hver áætlið þið umsvifin árið
2000?
„Við erum enn að reikna," svarar
hann kíminn.
Eimskip rekur nú 22 starfsstöðv-
ar í ellefu löndum fyrir utan Island
og segir Erlendur starfsemina eink-
um felast í umboðsþjónustu við
skipafélög og flugfélög, flutnings-
miðlun og rekstri vöruhúsa og toll-
vörugeymslna. „Á síðastliðnu ári
nam velta starfseminnar erlendis
um fjórðungi af heildarveltu Eim-
skips eða 4.353 milljónum króna sem
er 49% aukning frá fyrra ári. Hjá
fyrirtækinu erlendis starfaði á síð-
astliðnu ári um þriðjungur af starfs-
mannafjölda Eimskips eða liðlega
370 manns, þar af voru um 10% Is-
lendingar.
Uppbyggingin erlendis hófst á ár-
inu 1982 en þá fóru fulltrúar félags-
ins til starfa hjá umboðsmönnum
Eimskips i Rotterdam, Felixtowe og
New York sem sáu um flutninga fyr-
ir fyrirtækið á þessum leiðum,"
heldur Erlendur áfram. „Á árunum
1982 til 1984 keypti Eimskip hlut í
ílutningafyrirtækjum erlendis, með-
al þeirra var MGH Ltd. í Bretlandi
og Grosse & Riedel í Þýskalandi.
Þessi starfsemi gekk það vel að við
ákváðum að stofnsetja okkar eigin
skrifstofu í Rotterdam í Hollandi og
síðar í Norfolk í Bandaríkjunum, í
Gautaborg í Svíþjóð og Hamborg í
Þýskalandi á árunum 1985 - 1986.
Undanfarin ár hefur Eimskip lagt
áherslu á að efla reksturinn á
heimamarkaði félagsins á Norðvest-
ur Atlantshafi sem nær frá Vestur-
Noregi til austurstrandar Norður-
Ameríku. Liður í því var að opna í
upphafi tíunda áratugarins skrif-
stofur í Færeyjum og á Nýfundna-
landi og síðar í Noregi og Boston í
Bandankjunum.
Flutningar á þessum leiðum hafa
gengið með ágætum, þó hefur hlut-
deild Eimskips í færeyska markaðn-
um stækkað mest en flutningar á
vegum félagsins til og frá Færeyjum
jukust um 20% á síðastliðnu ári frá
fyrra ári“, segir Erlendur. „Við höf-
um aukið þjónustuna við Færeyinga
jafn og þétt og erum nú með þrjár
skipakomur þar í viku en við teljum
okkur frumkvöðla í gámavæðingu í
Færeyjum. Þjónusta við fiskiskip í
Færeyjum hefur einnig aukist og
var landaður afli á athafnasvæði
Eimskips í Þórshöfn þriðjungi meiri
á árinu 1997 en árinu áður.“
Erlendur segir ástæðuna fyrir
því að Eimskip hóf siglingar til
Nýfundnalands vera þá að það
hentaði siglingakerfi þeirra og
reynslu að að hefja viðskipti á
Nýfundnalandi en félagið hefur
siglt til austurstrandar Bandaríkj-
anna í áratugi. „Frá Nýfundnalandi
flytjum við fisk og fískafurðir til
Evrópu og flytjum inn alls kyns
neysluvöru. Síðar jukum við þjón-
ustuna við Nova Scotia en þar er
einnig töluverð fískverkun. Þar rek-
ur meðal annarra SIF saltfiskverk-
smiðju og þaðan flytjum við fisk
einnig til Evrópu.
Hasla sér völl í Eystrasalts-
löndunum og Rússlandi
Árið 1996 hófum við frystiflutn-
inga milli Noregs, Norður-Ameríku
og Eystrasaltsríkjanna. Reksturinn
hefur gengið með ágætum en á síð-
astliðnu ári námu flutningar alls um
25 þúsund tonnum. Á þessari leið
höfum við verið að þjóna svipuðum
viðskiptahópum og á íslandi og
Nýfundnalandi þannig að við þekkj-
um vel þetta svið,“ segir hann.
í upphafi þessa áratugar keypti
Eimskip allt hlutaféð í flutningafyr-
irtækinu MGH Ltd. Fyrirtækið var
með skrifstofu í Ríga og þar með
hófst uppbygging á starfsemi Eim-
skips í Eystrasaltsríkjunum og
Rússlandi. Stofnaðar voni skrifstof-
ur í Tallin í Eistlandi, St. Péturs-
borg og Moskvu. Á þessu svæði er-
um við að bjóða svipaða þjónustu og
í Evrópu og þannig yfirfærum við
reynslu okkar til austurs. Við flytj-
um inn ýmsa neysluvöru en útflutn-
ingur er takmarkaður frá þessum
löndum nema á fáum afmörkuðum
vörutegundum.
Starfsemi Eimskips í Eystrasalts-
ríkjunum og Rússlandi hefur aukist
umtalsvert á þeim árum sem liðin
eru síðan félagið hóf starfsemi þar. I
lok síðasta árs segir Erlendur að
hafi starfað þar um 100 manns hjá
fyrirtækinu á þessu svæði. Einkum
hafi umsvifin aukist í Lettlandi þar
sem íyrirtæki Eimskips, MGH Riga
Sía, rekur flutningaþjónustu á
tveimur stöðum í höfuðborginni. „Á
haustmánuðum gekk fyrirtækið frá
samningum á kaupum á 5.500 fer-
metra vöruhúsi í Ríga. Með kaupun-
um nær þrefaldaði fyrirtækið að-
stöðu sína og hefur ný yfir að ráða
8.000 fermetra geymslu- og dreif-
ingaraðstöðu. Kaupin voru liður í
viðleitni fyrirtækisins til að koma til
móts við vaxandi eftirspurn eftir
vörugeymslu- og dreifingarþjónustu
í Eystrasaltsríkjunum. Auk vöru-
húsareksturs tekur starfsemi MGH
í Ríga til umboðsþjónustu fyi'ir
skipafélög ásamt rekstri flutnings-
miðlunar," segir Erlendur. MGH í
Ríga er að auki leiðandi í umboðs-
þjónustu fyrir erlend flugfélög í
Lettlandi og þjónar þar um helmingi
af allri flugfrakt. MGH í Ríga er nú
umboðsaðili fyrir þrjú flugfélög í
vöruflutningum og er Lufthansa
þeirra stærst."
Hvernig er að starfa í Eystra-
saltslöndunum?
„Það hefur verið mikil reynsla.
Flutningsmarkaðurinn þar hefur
verið í örri þróun. Á árunum 1990-
1994 var sífellt verið að breyta regl-
um og reglugerðum sem viðkomu
starfseminni. Nú er komið ákveðið
jafnvægi á umhverfið sem við störf-
um í.“
Hvernig er samkeppnin við önnur
flutningafyrirtæki á þessu svæði?
„Samkeppnin er mikil eins og er al-
mennt í þessum rekstri.“
Um miðjan þennan áratug keypti
Eimskip svo hlut í flutningsmiðlun-
arfyrirtækinu Gelders Spetra
Shipping BV í Rotterdam og eignað-
ist fyrirtækið að fullu árið 1996.
„Styrkur Gelders Spetra liggur í
umboðsmannakerfi sem nær um all-
an heim og reynslu og þekkingu á
svokölluðum NVOCC flutningum
(Non-Vessel Operating Common
carrier), segir Erlendur. Fyrirtækið
á engin flutningstæki en útvegar
flutninga hvort sem er á sjó, landi
eða í lofti á hagstæðustum kjörum.“
Flutningsgetan aðlöguð
markaðinum hverju sinni
Erlendur segir stærsta verkefni
Eimskips erlendis vera rekstur
skipafélagsins Maras Linija Ltd.
Eimskip hafi tekið þátt í enduiTeisn
félagsins árið 1996 og sé fyrirtækið
nú í meirihlutaeign Eimskips. Segir
hann fyrirtækið hafa flutt á síðast-
liðnu ári alls um 509 þúsund tonn á
milli Evrópu, Eystrasaltsríkjanna
og Rússlands sem sé 2% aukning
milli ára. „Með þátttöku í þessum
flutningum er Eimskip að styrkja
starfsemi félagsins utan heima-
markaðar og taka þátt í þeirri þróun
og uppbyggingu sem á sér stað í
Eystrasaltsríkjunum. Maras Linija
rekur 3-4 gámaskip í flutningum
milli Hollands, Bretlands og Dan-
merkur annars vegar og Lettlands,
Eistlands og Rússlands hins vegar.
Maras Linija er þriðja stærsta
skipafélagið sem hefur reglulegar
viðkomur í St. Pétursborg í Rúss-
landi og það stærsta í Ríga í Lett-
landi. Fyrirtækið býður einnig flutn-
ingaþjónustu til og frá Belgíu,
Portúgal og Spáni. Flutningakerfi
Eimskips og Maras Linija tengjast í
Hollandi og Danmörku. Dótturfyrir-
tæki Eimskips í Hollandi og Bret-
landi eru umboðsaðilar fyrirtækisins
á þeim mörkuðum.
Maras Linija er rekið af umboðs-
fyrii’tækinu Longship Ltd með að-
setur í Felixtowe í Bretlandi. Longs-
hip er alfarið í eigu Eimskips og
rekur fyrirtækið einnig skipafélagið
Kursiu Linija Ltd. Eimskip er ekki
eignaraðili að því. Skip Kursiu Lini-
ja sigla á milli Vestur-Evrópu, Lit-
háens og Rússlands."
Erlendur segir að tap hafi verið á
rekstri Maras Linija árið 1997 en
rekstrarafkoman nú sé betri miðað
við sama tíma í fyrra. „Markmið
okkar er að ná jafnvægi í þessum
rekstri á árinu.“
„Að undanförnu höfum við svo
verið að þróa flutninga á milli
Eystrasaltslandanna og Austur-
landa fjær og Bandaríkjanna en við
gerum það í samvinnu við önnur
flutningafyrirtæki," bætir hann við.
Hentar skipakostur félagsins vel
á þeim leiðum sem þeir eru í flutn-
ingum?
„Eins og málum er háttað nú þá
uppfylla þau þær kröfur og vænting-
ar sem gerðar eru til gámaflutninga.
En flutningsgetan er aðlöguð mark-
aðinum hverju sinni. Við hjá Maras
Linija breytum skipakosti eftii’ því
hver flutningurinn er. Auk þess þarf
að taka tillit til þátta eins og hafíss
og fleira.“
Á síðast ári keypti Eimskip um-
boðs- og flutningsmiðlunarfyrirtæk-
ið Andersson Shipping AB sem stað-
sett er í Helsingborg. Fyrirtækið er
þekkt á flutningamarkaði í Svíþjóð.
Anderson Shipping starfrækir rúm-
lega 3.000 fermetra vöruhús og
vöruflutningamiðstöð í Helsingborg
og hefur um 30 vöruflutningabifreið-
ir í áætlanaflutningum milli Suður-
Svíþjóðar og meginlands Evrópu.
Fyrirtækið er jafnframt umboðsaðili
ýmissa erlendra skipafélaga í Hels-
ingborg.
„Með kaupunum á fyrirtækinu er-
um við að styrkja stöðu okkar í
Skandinavíu. Við erum að tengja
Anderson Shipping inn í það flutn-
inganet sem við erum að byggja upp
í Evrópu, meðal annars undir
merkjum Gelders Spetra. Okkur
finnst Suður-Svíþjóð áhugavert
svæði, ekki síst vegna þess að verið
er að byggja brú þaðan og yfir til
Danmerkur og við það stækkar
þetta markaðssvæði."
Nýir landvinningar
Nýverið bættust fleiri skrautfjaðr-
ir í hatt Eimskipsmanna en þá gekk
MGH Ltd. frá umboðssamningum
við þrjú vel þekkt erlend skipafélög.
Eitt þeirra er japanska skipafélagið