Morgunblaðið - 26.04.1998, Blaðsíða 15
V|S / OISflH V1|AH
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. APRÍL 1998 15
Ef þú stefnir hátt þarftu
góða undirstöðu!
Allir eiga sér draum í lífinu, en til þess að
draumar okkar rætist þurfum við að hafa
áræði og úthald, eiga heilbrigða sál
í hraustum líkama.
Ef þú vilt hugsa vel um líkamann er nauðsynlegt
að huga að nægilegri lireyfingu og hollu mataræði
sem sinnir þörfum iíkamans fyrir rétt bætiefni.
Kalk er sérlega mikilvægt fyrir beinin, sem hafa
það hlutverk að halda okkur uppréttum, ekki
bara núna, heldur alla ævi.
Á unglingsárunum og allt fram að þrítugu eru
beinin að vaxa og þéttast. Rannsóknir benda til
þess að nægileg kalkneysla á yngri árum dragi
verulega úr hættunni á því að beinin verði stökk
síðar á ævinni.
Fáar fæðutegundir eru eins auðugar af kalki og
mjólkurvörur. Mjólk veitir þér góða undirstöðu
í lífinu.
Hcimilidir: T.M. Murray: „Calcium nutrition and osteoporosis,“ Canadian Medical Association Joumal, 1996; 155 (7).
B.L. Specker: „Evidence for an intcraction bctwecn calcium intake and physical activity on changes in lx>nc
mineral density.“ Journal of Bone and Mincral Research, 1996; 11 (10).
tvo
ADAG
- alla ævi!
ISLENSKUR MJOLKURIÐNAÐUR