Morgunblaðið - 26.04.1998, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 26.04.1998, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. APRÍL 1998 21 nefnd ríkisins í kjaramálum, sem var og er óeigingjarnt starf og ekki líklegt til vinsælda. Ai’ið 1984 var verkfallsárið mikla og jmsar kjara- deilur blossuðu upp. A fáum árum fékk ég því nasasjón af flestu því sem kemur upp hér í ráðuneytinu.“ Geir var kjörinn á þing árið 1987 og eftir eitt kjörtímabil á þingi kaus þingflokkur Sjálfsteeðisflokksins hann formann sinn. Ólafur G. Ein- arsson hafði gegnt því embætti í 11 ár og á undan honum Gunnar Thoroddsen, en þar áður hafði sú regla gilt að formaður Sjálfstæðis- flokksins væri jafnframt formaður þingflokksins. „Eg var sá eini sem stungið var upp á 1991, en óskaði eftir skriflegi’i atkvæðagreiðslu til að sjá svart á hvítu hver stuðningur þingflokksins væri. Ég fékk öll at- kvæði utan eitt og í Morgunblaðinu var því haldið fram að það hefði ver- ið mitt atkvæði. Ég get hins vegar upplýst hér að ég kaus sjálfan mig í þetta sinn.“ Geir sagði að ýmsar sviptingar hefðu verið innan þingfiokks Sjálf- stæðisflokksins þetta tímabil, en í heildina hefði þingflokkurinn þó verið nokkuð samstæður og það ætti enn frekar við núna. „Menn hafa auðvitað sínar skoðanir, en þeir eru þrátt fyrir það samtaka. Auðvitað ríkir alltaf viss samkeppni innan hópsins, en það kemur ekki í veg fyrir góða samvinnu.“ Sumir hafa haldið því fram að staða formanns flokksins, Davíðs Oddssonar, sé svo sterk að hann hafi tögl og hagldir í þingflokknum. Geir segir að það sé vissulega rétt að staða Davíðs sé sterk, en starf þingflokks byggist aldrei á einum manni. „Davíð þarf stundum að láta í minni pokann, þótt hann hafi ekki hátt um það. Sterk staða hans kem- ur auðvitað samþingmönnum hans til góða, en það er ekki síður mikil- vægt fyrir þjóðina alla að forsætis- ráðherrann hafí svo sterka stöðu.“ Geir segir að margt hafi breyst innan fjármálaráðuneytisins frá því að hann var þar aðstoðarmaður og flestar breytingar á vinnulagi séu til bóta. „Hér eru enn margir starfs- menn, sem ég kynntist sem aðstoð- armaður ráðhen’a. Ráðuneytisstjór- inn Magnús Pétursson og ritari ráð- herra, Ingibjörg Björnsdóttir, eru til dæmis gamlir kunningjar, Ind- riði Þorláksson, íýrrverandi for- maður samninganefndar ríkisins, er nú skrifstofustjóri tekju- og laga- sviðs og svo mætti lengi telja. Og svo er ég svo heppinn að aðstoðar- maður Friðriks, Steingrímur Ari Arason, verður hér áfram sem minn aðstoðarmaður. Hann er því í svip- uðum sporum og ég að verða að- stoðarmaður tveggja ráðherra. Ég er mjög ánægður að fá að starfa hér með þessu ágæta fólki." Stöðugleikinn mikilvægastur Þegar Geir er spurður hvort breytinga sé að vænta með nýjum manni á stól fjármálaráðherra gerir hann lítið úr því. „Fyrsta daginn í starfí urðu þær breytingar einar, að ég færði skrifborð ráðherra til. En í alvöru talað þá sagði ég þegar ég tók við að það yrði að sjálfsögðu ekki skipt um stjómarstefnu við það eitt að Friðrik Sophusson hætti sem fjármálaráðherra og ég tæki við. Ég byrja á því að fylgja eftir ýmsum frumvörpum forvera míns á þingi og sé ekki fram á neinar kúvendingar. Auðvitað verða áherslur mínar á einstök mál frá- brugðnar áherslum Friðriks þegar fram í sækir, en verkefni mitt er fyrst og fremst að viðhalda stöðug- leika í ríkisfjármálum." Fjármálaráðuneytið hefur þótt erfitt ráðuneyti og fyrirrennarar Geirs urðu ekki allir langlífír í starfi. Á þeim rúmu 20 árum frá því að hann kom heim frá námi hafa níu ráðherrar setið í fjármálaráðuneyt- inu og Friðrik Sophusson þeirra lengst, eða í sjö ár. „Fjármálaráð- herrar þurftu að berjast um á hæl og hnakka til að reyna að halda verðbólgu í skefjum og óstöðugleiki í efnahagsmálum helst í hendur við óstöðugleika í stjórnmálum. Þess vegna voru ör skipti í ráðherrastól og þarf að leita aftur á viðreisnarár- in til að fínna dæmi um álíka langa ráðherratíð og Friðrik á að baki, en þeir Gunnar Thoroddsen og Magn- ús Jónsson sátu báðir í um sex ár. Það er ólíkt þægilegra fyiir mig að setjast í þennan stól eins og ástand- ið er núna og framtíðarhorfur eru ágætar, en ég get auðvitað engu spáð um hversu lengi ég gegni þessu embætti." Nú á að búa í haginn fyrir framtíðina í umræðum um fjárlögin síðast- liðið haust kom fram það sjónarmið, að bætt staða ríkissjóðs gæfi færi á að skjóta styrkari stoðum undir rík- 'skerfið. Ýmsir mikilvægir útgjalda- flokkar gætu notið góðs af og þau verkefni væru brýnni en skatta- Davíð þarf stundum að láta í minni pokann, þótt hann hafi ekki hátt um það. Sterk staða hans kemur auðvitað samþingmönnum hans til góða. Fjármálaráð- herrar þurftu að berjast um á hæl og hnakka til að reyna að halda verðbólgu í skefjum og óstöðugleiki í efnahagsmálum helst í hendur við óstöðugleika í stjórnmálum. lækkanir. Geir segir að þessu við- horfí hafí mátt búast við. „Auðvitað telja margir að nú sé lag til að gera allt það sem hefur þurft að bíða á erfiðleikatímum. Ég er hins vegar sannfærður um að í góðæri eins og núna eigi að reka ríkissjóð með af- gangi, helst verulegum, greiða nið- ur skuldir og búa í haginn fyrh’ framtíðina. Þessi stefna skilar bætt- um hag allra þegar fram í sækir. Minni lánsfjárþörf ríkissjóðs hefur þau áhrif að eftirspurn eftir fjár- magni minnkar og það leiðir til lækkunar vaxta á almennum mark- aði. Það skapar ný sóknarfæri íyrir fyrirtæki og einstaklinga og skatta- lækkun hefur sömu áhrif, en síðasti áfangi þeirrar áætlunar sem nú liggur fyrir kemur til framkvæmda um næstu áramót. Það er lang skynsamlegast að ríkissjóður greiði niður sem mest af skuldum sínum og í raun er það sú einstök aðgerð sem skilar mestum árangi’i eins og staðan er nú.“ Önnun kafin hjón Eiginkona Geirs er Inga Jóna Þórðardóttir, viðskiptafræðingur og borgarfulltrúi í Reykjavík. Þau eru bæði önnum kafin, en Geir segir að það hafi þau verið frá því að þau hófu sambúð fyrir 15 árum, svo hið nýja embætti breyti ekki miklu í því efni. Snemma í sambúð þeirra störf- uðu bæði sem aðstoðarmenn ráð- herra, þegar Inga Jóna var aðstoð- armaður Ragnhildar Helgadóttur 1984-1987, fyrst í menntamálaráðu- neyti og síðar í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti. Geir segir að ekki hafi dregið úr vinnuálagi frá þeim tíma. „Við höfum hins vegar lært að skipuleggja tíma okkar vel og reynum að tryggja að annríki okkar komi ekki niður á bórnunum. Vinnan hér í ráðuneytinu er að vísu nokkuð frábrugðin þingmennsk- unni. Hérna er daglegur erill miklu meiri og ég get ekki raðað verkefn- um niður eftir því hvað best hentar mér sjálfum hverju sinni. Ég verð þó líklega minna á ferðum erlendis en ég hef verið á vegum þingsins og það kemur sér ágætlega fyrir fjöl- skyldulífið. Ég hef líka rejmt að venja mig af því að vinna í skorpum, eins og margra Islendinga er siður, enda vinnst mér betur ef verkefnin eru samfelld." Inga Jóna og Geir eiga dæturnar Helgu Láru, sem er fjórtán ára og nýfermd, og Hildi Maríu, átta ára. Inga Jóna átti fyrir soninn Borgar Þór Einarsson, sem er tæplega 23 ára og Geir dæturnar Iliu Onnu, sem er tvítug, og Sylvíu, sem er að verða 17 ára. „Eldri krakkarnir okkar eru uppkomið fólk og við er- um svo lánsöm að það er ágætt samband milli fjölskyldnanna sem að þeim standa. Mér þykir vænt um hve góður vinskapur ríkir milli okk- ar Ingu Jónu og Patriciu fyrrver- andi eiginkonu minnar, Eggerts eiginmanns hennar og þeirra barna.“ Les og syngur, ferðast og skokkar Frístundir gefast fjármálaráð- herrum sem öðrum og sínar stundir ætlar Geir að nota hér eftir sem hingað til í bókalestur, líkamsrækt, ferðalög og tungumálanám. Greini- lega af nógu að taka. „Ég les gjarn- an bækur um stjómmál, en ekki síð- ur skáldsögur. Þá hef ég lengi haft gaman af því að syngja, þegar tæki- færi gefst í góðra vina hópi. Hérna áður fyrr söng ég í Söngsveitinni Fílharmóníu og hef alltaf ætlað mér í karlakór, en ekki talið mig hafa tíma til. Ef ég gæti farið aftur í tíma og breytt einhverju í lífinu, þá myndi ég syngja meira og sennilega fara 1 eitthvert söngnám.“ Geir hefur gjarnan skellt sér upp á svið og tekið lagið með hljómsveit- um í ýmsum samkvæmum, en segir ástæðulaust að fjölyrða sérstaklega um þau uppátæki. „Ég hef gaman af að gera mér dagamun og þetta er hluti af því.“ Fjármálaráðherrann segist lík- lega vera bariton, en það sé ekki spurt að því þegar fólk sé að skemmta sér. Hann rifjar upp, að á aðstoðarmannsárum hans í fjár- málaráðuneytinu naut starfsfólk þar undirleiks Magnúsar Ingimai’s- sonar í samkvæmum, en hann er kvæntur Ingibjörgu ráðhen’aritara. „Magnús, sem er frábær músikant, lét þetta yfír sig gariga af stakri Ijúfmennsku. Það er ekki farið að reyna á það hvort hann sé enn sama sinnis, en það verður vonandi áður en langt um líður.“ Ráðherrann talar nokkur tungu- mál, þar á meðal norsku. „Ég lærði hana reyndar ekki af föður mínum, sem talaði ávallt íslensku, þótt hún væri á köflum bjöguð. Síðar ákvað ég að nýta mér skóladönskuna, hermdi svo framburðinn eftir Norð- mönnum og gat að lokum talað tungumál föður míns þokkalega. Sömu aðferð hef ég beitt gagnvart sænskunni. Ég bý enn að þýskunni sem ég lærði í menntaskóla, frönsku lærði ég líka þar og enn frekar í há- skóla í Bandaríkjunum og haustið 1988 fór ég til Ítalíu ýil að læra tungumál þarlendra. Ég varð að vísu að flýta mér heim áður en því námskeiði lauk, því þá slitnaði skyndilega upp úr ríkisstjórnarsam- stai’fí Sjálfstæðisflokks, Framsókn- arflokks og Alþýðuflokks, en ég hef bætt við ítölskukunnáttuna með því að fara fjórum sinnum á námskeið hjá Endurmenntunarstofnun Há- skólans. Þetta tungumálanám mitt hef ég ekki endilega hugsað sem fjárfestingu til framtíðar, en ég á auðvelt með að læra tungumál og hef mjög gaman af.“ Af öðrum tómstundaiðkunum ráðherrans er það helst líkams- ræktin sem tekur tíma. „Ég leyfi nágrönnum mínum að brosa að mér þegar ég skokka um hverfið og hef nokkrum sinnum hlaupið 10 kíló- metra í almenningshlaupum. Þar hef ég alltaf talið mig öruggan sig- urvegara í mínum þyngdarflokki. Svo hefur fjölskyldan ferðast tölu- vert, bæði innan lands og utan. Ki-akkarnir hafa viljað fara til út- landa og við höfum stundum látið það eftir þeim, en ég fæ æ nieiri áhuga á að ferðast um ísland. Ég vil líka helst hvergi annars staðar vera um hásumarið." Kriirin^; spænskunámskeið Spanisk.i fyrir byrjcndur 1: r Fimm vikna námskeið sérstaklega ætlað starfsmönnum fyrirtækja og einstaklingum. Mánudaga og miðvikudaga kl. 19.00-21.10 Námskeiðið hefst mánudaginn 27. apríl. VjLeiðbeinandi er Jesus Potenciano M.A. í málvísindum.______________/ Spænska fyrir byrjcndur 2 : r Fimm vikna námskeið sérstaklega ætlað starfsmönnum fyrirtækja og einstaklingum. Mánudaga og miðvikudaga kl. 16.30-18.40 , Námskeiðið hefst mánudaginn 27. apríl XLeiðbeinandi er Jesus Potenciano M.A. f málvísindum.____ Sérstök áhersla lögð á talmál. Nánari upplýkíngar og skráning v/ „ v , í sfma 5100 900 FJÓLMENNT ehf ojtSsmm. Laugavegi 103,105 Reykjavík, stmi 5100 900, fax 5100 901, netfang: brefask@ismennt.is BM FLUTNINGAR Ný m/ Nt 'símcmúmer Nú hafa tekið gildi ný símanúmer hjá BM Flutningum innval f eftirtaldar deildir: FLUGSVIÐ 569 8010 SJÓSVIÐ 5<Sp 8020 FJÁRMÁLASVIÐ 565) 8030 VDM/FRÍSVÆÐI 5Ö9 8040 VÖRUAFGREIÐSLA 5698045 HRAÐSENDINGAR 569 8050 TOLLASVIÐ 569 8060 IBM TRANSPORT LTD./ÝKV BM FLUTNINGAR EHF. - Alhliða flutningsmiðlun Holtabakka v/Holtaveg, 104 Reykjavík, sími 569 8000 Auglýsing frá yfirkjörstjórn Reykjavíkur um framboðslista Framboðsfrestur til borgarstjórnarkosninga í Reykjavík 23. maí 1998 rennur út laugardaginn 2. maí nk., kl. 12.00 á hádegi. Kosið er sameiginlega til borgar- stjórnar í Reykjavík og Kjalarneshreppi, sbr. iög nr. 17/1998 um sameiningu Kjalarneshrepps og Reykja- víkur í eitt sveitarfélag. Yfirkjörstjórn tekur á móti framboðslistum þann dag kl. 10.00 til 12.00 í fundarsal borgarráðs í Ráðhúsi Reykja- víkur, Tjarnargötu 11. Á framboðslista skulu vera að lágmarki 15 nöfn fram- bjóðenda og eigi fleiri en 30. Framboðslistum fylgi yfir- lýsing þeirra, sem á listunum eru, að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listana. Hverjum lista skal fylgja skrifleg yfirlýsing 160 meðmælenda hið fæsta og eigi fleiri en 320. Þá skal fylgja tilkynning um hverjir séu umboðs- menn lista. Gæta skal þess um öll framboð að tilgreina skýrlega fullt nafn frambjóðanda, kennitöiu hans, stöðu og heimili, til þess að enginn vafi geti leikið á því hverjir í kjöri eru. Greina skal fullt nafn og kennitölu með- mælanda. Yfirkjörstjórn Reykjavíkur Eiríkur Tómasson Guðríður Þorsteinsdóttir Jón Steinar Gunnlaugsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.