Morgunblaðið - 26.04.1998, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. APRÍL 1998 31
Þú kemst í góð efni hjá okkur!
, ■ .... .
■■ ' i'v' aSSSHteÉ
CSSS®
Voile f/l!
Toppurinn i dag! <
Litir: Grænt, jLL .
vínráutt, gult, blátt
og kremað. dpBÍj
breidd 150 sm, gjKI
100% polyester. BEjll
Verð pr. m.:
Rykktar pífur í stíl.
Verö pr. metra:
lalleg blúndumillistykki i eldhús
I*"* 09 tre™£199 . p, metra. I
B,e,dP 50 sm, »««• »“• U***^
Bveiod 60 sm, verð:
Rórnantiskt blúnduefni með englamunstri i
Breidd 150 sm, 100% polyester.
Verð.499,- pr. metra.
nSS® Mbímiúk poiyester satin efm ö
dokkqræ^'v,nrauu' ______
v,prö:690,-PnrneUa'
qmáratorg' ^ \ Skeifunni13 Noröurtanga3 Reykjavíkurvegi 72 Holtagörðum jlk
° _ i/An5t\lOQ\ i 108Reykjavík 600Akureyri 220 Hafnarflörður v/Holtaveg
200*°»,a ” l 568 7499 462 6662 565 5560 104Reykjavík
510 7000
588 7499
Arðsamur flutningarekstur erlendis
mun styrkja stöðu félagsins heima
fyrir og gera því kleift að bjóða við-
skiptavinum hagkvæma þjónustu
hvort sem er innanlands eða utan
AÐSENDAR GREINAR
NYK sem er eitt stærsta skipafélag í
heimi.
„Með þessum samningi tekur
MGH Ltd. og dótturfélög þess í
Lettlandi og Rússlandi að sér umboð
fyrir gámaflutninga NYK Line í
Lettlandi, Litháen og öðrum hlutum
Sovétríkjanna fyrrverandi sem nota
hafnimar Ríga, St. Pétursborg og
Klaipeta. NYK er að stækka mark-
aðssvæði sitt og hefur sett sér það
markmið að verða virkur þátttak-
andi í hinum ört stækkandi flutn-
ingamarkaði í Austur-Evrópu og ná
traustri fótfestu í löndum Sovétríkj-
anna fyrrverandi,“ segir Erlendur.
„Samningurinn er mikilvægur fyrir
dótturfélög Eimskips á þessu svæði
og styrkir verulega þá starfsemi sem
þegar fer þar fram.
Einnig gerði Eimskip samning við
norska flutningafyrirtækið Wilhelms-
sen A/S en það er eitt af öflugustu
skipafélögum í heimi og sérhæfir sig í
rekstri ekjuskipa og bflflutningafeija-
Wilhelmsen samsteypan annast
einnig gámaflutninga og aðra sér-
hæfða flutningastarfsemi á tilteknum
markaðssvæðum og hafa þeir undan-
farið verið að treysta sig í sessi á
rússneska flutningsmarkaðnum.
Með samningnum tekur MGH í
Rússlandi að sér umboðsmennsku
fyrir Wilhelmsen. Verkefni MGH
snúast fyrst og fremst að móttöku og
afhendingu innflutningsvara til við-
takenda á Moskvusvæðinu.
Þá hefur Eimskip gengið frá samn-
ingi við hollenska flutningafélagið I.
M. Interhavens um að annast um-
boðsþjónustu fyrir fyrirtækið í Sví-
þjóð og Rotterdam. Interhavens er
skipafélag í eigu hollenska flutninga-
félagsins International Muller BV í
Rotterdam en það hefur með höndum
fjölbreytta flutningastarfsemi og á
meðal annai-s 30% í ECT gámahöfn-
inni í Rotterdam, sem er ein stærsta
gámahöfn í heimi. Interhavens er að
hefja reglulegar áætlunarsiglingar
milli Gautaborgar og Rotterdam með
viðkomu í Hamborg, Antwerpen í
Belgíu og Felixtowe í Bretlandi.
Með samningnum við Interhavens
taka Eimskip í Gautaborg og MGH í
Bretlandi að sér umboðsmennsku
fyrir þessa flutninga á viðkomandi
svæðum. Siglingar hafa þegar hafist
og verða í byrjun á milli Gautaborg-
ar, Rotterdam, Hamborgar og
Gautaborgar. Tvö skip verða í fórum
og þrjár viðkomur í hverri viku.
Þessir samningar munu treysta
rekstur Eimskips/MGH á viðkom-
andi stöðum og skjóta fleiri stoðum
undir þá starfsemi sem fyrir er.“
Oguð vinnubrögð
Erlendur er spurður að því hvaða
þekkingu Eimskipsmenn búi yfir
sem geri þeim mögulegt að keppa á
þessum hörðu mörkuðum?
„Flest flutningskerfin innan fyrir-
tæksins hafa verið þróuð og mótuð í
langan tíma. Hafa þau reynst vel og
á þeim byggir félagið er það stofnar
til nýrra viðskipta erlendis. Vinnu-
brögð hjá Eimskip eru einnig mjög
öguð og má nefna að við byggjum á
ákveðnum markaðsáætlunum 1-3 ár
fram í tímann. Einnig leggjum við
mikla áherslu á hópvinnu en þannig
nýtum við best margþætta reynslu
þeirra sem vinna á hinum mismun-
andi mörkuðum hér heima og er-
lendis. Flutningamarkaður á Vestur-
löndum er mjög þróaður og þar hef-
ur byggst upp afar lífleg samkeppni.
Það sem við þurfum að gera til að
geta haldið áfram að vaxa er einfald-
lega að vera betri en keppinautamir
sem eru margir og öflugir.“
Er Eimskip að bjóða útlendingum
lægra verð en íslendingum á sams-
konar flutningum?
„Nei, íslenskir og erlendir aðilar
njóta sömu kjara á samskonar flutn-
ingum. Arðsamur flutningarekstur
erlendis mun styrkja stöðu félagsins
heima fyrir og gera því kleift að
bjóða viðskiptavinum hagkvæma
þjónustu hvort sem er innanlands
eða utan.“
Samskip hafa keypt sig inn í
flutningsfyrirtækið Bischoff Group.
Eru Samskip og Eimskip að keppa á
sömu mörkuðum úti í hinum stóra
heimi?
„Við þekkjum ágætlega þá mark-
aði sem Samskip eru á í Noregi,
Bretlandi og í Eystrasaltsríkjunum.
Væntanlega getur orðið einhver
samkeppni við Bischoff Group nú
sem endranær."
Islensk skipafélög hafa verið að
færa sig yfir á erlenda markaði, eru
einhver teikn á lofti um að erlend
skipafélög vilji sækja inn á íslenska
markaðinn?
„í flutningarekstri ríkir frjáls
samkeppni. Erlend flutningafyrir-
tæki bjóða nú þegar þjónustu sína á
íslenska markaðnum, til dæmis í
stórflutningum.“
Að lokum spyijum við Erlend
hvernig hann sjái framtíðina fyrir
sér?
„Við hjá Eimskip erum sífellt að
kanna áhugaverða kosti á flutninga-
sviðinu og vonandi ganga einhverjir
þeirra eftir. Hverjir þeir eru get ég
ekki látið uppi að svo stöddu. Okkar
markmið er að bæta sífellt þjónust-
una og afkomuna af starfsemi okkar
á erlendri grund.“
Konan, sem skrifar í
föstudagsblað DV,
þekkir náið fjármála-
sögu Alþýðubanda-
lagsins, segir Sverrir
Hermannsson, og
ætti því að vera vön
vænum tölum.
um sínum, ættu þau að vinda sér í
að gera grein fyrir stórfúlgu tapi,
sem Landsbanldnn mátti sitja uppi
með samkvæmt því sem haldið hef-
ur verið fram í opinberum umræð-
um, vegna viðskipta við Alþýðu-
bandalagið og reyndar í lokin vegna
beinna brigða þeirra manna sem í
fyrirsvari voru í kompaníinu, þar
með talinn Einar Karl Haraldsson,
samkvæmt því sem einnig hefur
verið haldið fram opinberlega.
Þjóðin bíður nefnilega öll eftir
svari. Og gefist ekkert svar verður
vafalaust krafizt opinberrar rann-
sóknar á þessum viðskiptum. Nið-
urstaðan af slíkri rannsókn kann að
leiða til þess að hjónin Steinunn og
Einar Karl gangi á ný til sængur og
breiði upp fyrir haus - án frekari at-
hafna.
Höfundur er fyrrv. bnnkastjóri.
Millj ónafelagið
í REYKJAVÍKURBRÉFI
sunnudaginn 19. apríl síðastliðinn
var ritað um viðskipti Alþýðubanda-
lagsins við Landsbanka Islands og
nefndar háar taptölur bankans, sem
undirritaður hefur ekki
tök á að staðfesta. En
með vöxtum hefði laus-
lega áætlað verið hægt
að kaupa fyrir fjárhæð-
ina dagsleyfi í Hrúta-
fjarðará í 500 ár.
Sem betur fer var
þessum milljónum sem
Morgunblaðið talar um
varið í miklu göfugra
skyni. Þeim var sem sé
varið til að gefa út blað
sem boðaði fagnaðar-
erindi kommúnismans
á íslandi. Það var ekki
Þjóðviljamönnum að
kenna þótt Sovét-fs-
land yrði ekki til. Þeir
lögðu sig í framkróka
og hefðu náð fullkomnum árangri ef
ísland hefði til dæmis verið við
austanvert Eystrasalt, en ekki hér
norður á hjara á áhrifasvæði helvít-
is amerísku heimsvaldasinnanna.
Konan, sem skrifar í föstudags-
blað DV, þekkir að sjálfsögðu náið
alla fjármálasögu Alþýðubandalags-
ins og Þjóðviljans, enda eiginkona
framkvæmdastjóra Alþýðubanda-
lagsins til margra ára, Einars Karls
Haraldssonar. Hún ætti þess vegna
að vera svo vön vænum tölum að
hún léti sér ekki í aug-
um vaxa einnar milljón-
ar króna kaup á veiði-
leyfum.
Steinunn Jóhannes-
dóttir kallar sig rithöf-
und í DV. Undirritaður
telur sig sæmilega les-
inn í íslenzkum nútíma-
bókmenntum, en á allt
ólesið eftir hana, nema
vikupistla hennar í
Þjóðviijanum á sínum
tíma, þar sem hún lýsti
einkum úthaldsmiklum
ástarleikjum þeirra
hjóna og leiddi dóttur
sína bemska til vitnis
um aðfarimar, ef ég
man rétt, sem ég man.
Enda auðvelt að fletta upp í Þjóð-
viljanum og ganga úr skugga um
sannleik þessara orða. Þetta hafa
sjálfsagt þótt framúrstefnuskrif og
frjálslyndi, þótt fastheldnum manni
á aðrar bókmenntir þætti nóg um.
En nú, þegar líklegt má telja að
þau hjón tími að gera hlé á armlög-
Sverrir
Hermannsson