Morgunblaðið - 26.04.1998, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 26. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
*
GRENSÁSDEILD 25 ÁRA
ENDURHÆFINGAR-
og taugadeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur er 25 ára um
þessar mundir. Afmælis-
dagurinn er tengdur
komu fyrsta sjúklingsins
á deildina 26. apríl 1973.
Fyrstu vísarnir
Fyrsta vísinn að end-
urhæfingarstarfsemi á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur
má annars vegar rekja til
hjúkrunar- og endurhæf-
ingardeildar í Heilsu-
vemdarstöðinni í Reykja-
vík og hins vegar til ráðn-
ingar fyrsta sjúkraþjálf-
arans að Borgarspítalanum. Hjúkr-
unarspítali tók til starfa í Heilsu-
vemdarstöðinni árið 1955. Starf-
semin var aðallega bundin við smit-
sjúkdóma og almennar lyflækning-
ar. I desember 1967 fluttist þessi
starfsemi í nýbyggðan Borgarspít-
alann í Fossvogi og varð að lyflækn-
ingadeild spítalans. I Heilsuvemd-
arstöðinni hófst þá rekstur hjúkmn-
ar- og endurhæfingardeildar sem
var starfrækt þar til í desember
1996 að hún var lögð niður.
Fyrsti sjúkraþjálfari Borgar-
spitalans hóf störf í september
1969. Það var Kalla Malmquist nú-
verandi forstöðusjúkraþjálfari
SHR. Fyrsta sjúkraþjálfunarein-
ingin var staðsett í tumi spítalans.
Nýkomin sending af
mexikóskum
sveitahúsgögnum.
Nýbýlavegi 30 (Dalbrekkumegin),
sími 554 6300.
Stofnun Grensás-
deildar
Framkvæðið að
stofnun Grensásdeildar
áttu þeir Haukur Bene-
diktsson fyrram fram-
kvæmdastjóri Borgar-
spítalans og dr. Jón
heitinn Sigurðsson
borgarlæknir. Þeir
höfðu gert sér grein
fyrir því að bráða- og
slysaspítali eins og
Borgarspítalinn gæti
ekki verið án endur-
hæfingarlækninga. Það
væri ekki nóg að veita
bráðaþjónustu heldur væri nauð-
synlegt að beita nútímalegum með-
ferðarúrræðum til hjálpar þeim sem
sjúkdómur eða slys höfðu skilið eft-
ir fatlaða eða lamaða. Markmiðið
væri ekki aðeins að koma fólki í
gegnum bráðaveikindi heldur
einnig að stuðla að því að það kæm-
ist aftur heim til sín og út í lífið á
nýjan leik væri þess nokkur kostur.
Húsnæðið
Grensásdeildin er nefnd eftir
staðsetningu sinni uppi á Grensásn-
um í Reykjavík. Útsýni er fagurt til
allra átta enda er Grensásinn jafn-
hár Öskjuhlíðinni. Arkitektar húss-
ins vora þeir Sigurjón heitinn
Sveinsson og Þorvaldur Krist-
www.mbl.is
Ásgeir B. Ellertsson
Hyundai Grandeur
Tii sölu Hyundai Grandeur árgerð 1992, V6 3000, 205 hö sjálf-
skiptur. Ekinn aðeins 65 þús km. Sá eini sinnar tegundar á landinu.
Glæsilega útbúin bifreið með; ABS, spólvörn, rafstýrðri miðstöð
með ioftkælingu, fullkomnum hljómflutningstækjum með geisla-
spilara, miðstöð og hljómflutningstæki stillanleg úr aftursæti,
kælihólf, o.fl. Verð 1.790.000
Bifreiðar& landbúnaðarvélar notaðirbílar
Suðurlandsbraut 14, sími 575 1230/575 1200
*
A Grensásdeild kemur
til endurhæfíngar
þyngsti sjúklingaefni-
viðurinn. Ásgeir B. Ell-
ertsson reifar hér sögu
deildarinnar, en hún er
25 ára um þessar
mundir.
mundsson. Þama vora lengi vel
tvær sjúkradeildir með alls 60 rúm-
um og 10 dagvistunarplássum. Af
ýmsum ástæðum eins og spamaði,
hjúkrunarfræðingaskorti, marg-
breytilegum ákvarðanatökum og
svo framvegis hefur rúmum fækkað
og era nú 32. Helmingur rúma er
rekinn á fimm daga granni þannig
að sjúklingar fara heim um helgar.
Hinn hluti sjúklinga er ófær til
heimferðar vegna sjúkdómsástands
eða fötlunar. 28 rúm standa ónotuð í
dag. Fyrirhugað er að efla og auka
starfsemina á ný og verður þá hús-
næðið aftur nýtt til fulls.
A Grensásdeild er einnig
taugarannsóknastofa, einingar í
iðju-, sjúkra- og talþjálfun, félags-
ráðgjöf og taugasálfræði. 1985 var
tekin í notkun meðferðarlaug á
staðnum, arkitektar Magnús Guð-
mundsson og Þorvaldur Krist-
mundsson. Hún er 10x17 metrar og
með tveimur heitum pottum og
ljósabekkjum. Nokkrir þingmenn
og borgarfulltrúar vora í farar-
broddi um byggingu laugarinnar og
má þar einkum nefna Eggert G.
Þorsteinsson, Einar Agústsson, Jó-
hann Hafstein, Magnús Kjartans-
son og Albert Guðmundsson sem þá
sat í borgarstjórn.
Sjúklingarnir
Um 14.000 sjúklingar hafa leg-
ið á Grensásdeild í gegnum árin.
Stór hópur hefur einnig komið
þangað í sjúkraþjálfun án innlagnar
á deildina. Yngsti sjúklingurinn var
5 ára telpa sem fékk mænuskaða
eftir umferðarslys og sá elsti 105
ára kona með heilabilun. Hjá !4
sjúklinga er ástæða innlagnar af-
leiðingar ýmiss konar slysa, hinir
komu inn vegna sjúkdóma. Flestir
koma frá öðram deildum SHR.
Stærsti hópurinn er af Reykjavík-
ursvæðinu en sjúklingar era
hvaðanæva af landinu.
Starfsemin
Starfseminni má læknisfræði-
lega skipta í tvennt, í endurhæfing-
arlækningar og taugalækningar.
Stór hluti þeirra sjúklinga sem til
SHR leita era með einkenni frá
stoð- og taugakerfi. Fæmiskerðing
er oft áberandi hjá þeim og því eðli-
legt að endurhæfingarlækningar
sjúkrahússins hafi einkum beinst að
þessum hópi fólks.
Starfsemi deildarinnar er tals-
vert frábragðin öðram endurhæf-
ingarstofnunum í landinu. Á deild-
ina kemur til endurhæfingar
þyngsti sjúklingaefniviðurinn.
Flestir þarfnast sjúkrahúsvistar all-
an sólarhringinn er þeir koma á
deildina. Ákveðin verkaskipting
hefur myndast milli endurhæfingar-
stofnana hér á suðvesturhluta
landsins. Grensásdeild hefur til
dæmis ekki tekið að sér endurhæf-
ingu hjarta- og lungnasjúklinga og
fleiri hópa sem Reykjalundur sinn-
ir. Þjálfimarþáttur endurhæfingar,
sérstaklega sjúkraþjálfun, er aftur
á móti veittur sjúklingum hinna
ýmsu deilda SHR á bráðastigi og
einnig á göngudeildargrunni eftir
þörf hverju sinni.
Vegna fjölþættra einkenna
sjúklinga og flókinna vandamála
þeirra næst besti árangur í grein-
ingu, mati, meðferð og endurhæf-
ingu með góðri samvinnu margra
sérhæfðra starfsstétta. Auk lækna,
hjúkranarfræðinga og sjúkraliða
starfa við deildina sjúkraþjálfarar,
iðjuþjálfar, talmeinafræðingur, fé-
lagsráðgjafar og taugasálfræðingur.
Náin samvinna er við sérfræðinga
sjúkrahússins á hinum ýmsu svið-
um. Aðkeypt er aftur á móti vinna
stoðtækjasmiða. Þess má geta að
fyrsti hjúkranarfræðingur, Sólrún
Ragnarsdóttir, sem réðst að deild-
inni fyrir 25 áram er þar enn að
störfum.
Hjá líkamlega fötluðum ein-
staklingi skiptir gerð fötlunarinnar,
sálarlegt ástand og félagslegs staða
sjúklings svo og tímaþáttur miklu
að því er varðar endurhæfingar-
horfur og árangur. Þess vegna þarf
endurhæfing að hefjast sem fyrst
og í beinum tengslum við nýtfikom-
inn sjúkdóm eða slys. Þyngstu end-
urhæfingarsjúklingamir þarfnast
sólarhringsrúma á sjúkrahúsi.
Strax og færi gefst er farið heim um
helgar. Framhaldið er svo endur-
hæfing á dagdeild eða á göngudeild-
argranni. Samfella í öllu endurhæf-
ingarferlinu er nauðsynleg. Kann-
anir hafa sýnt það ótvírætt. Enginn
á að vera í sjúkrarúmi á stofnun
nema ástand viðkomandi krefjist
þess.
Mænuskaðar og fjöláverkar
Allt frá stofnun Grensásdeildar
hefur á deildinni verið lögð áhersla
á þjónustu við sjúklinga er þurfa á
mikilli sérhæfðri endurhæfingu að
halda. Þekktust er deildin fyrir end-
urhæfingu þeirra sem lent hafa í al-
varlegum slysum. Allir þeir sem
hlotið hafa mænuskaða vegna slysa
koma á deildina til endurhæfingar
strax og bráðameðferð er lokið á
sjúkrahúsinu í Fossvogi. Hefur
þessi starfsemi verið til fyrirmynd-
ar og vel sambærileg við það besta
sem til þekkist. Sem betur fer er
hópur mænuskaddaðra ekki stór, þó
hafa um 120 mænuskaðar komið á
deildina frá því hún tók til starfa. Af
þeim hefur um helmingur orðið
hjólastólsbundinn. Þrátt fyrir þessa
fótlun lifa þeir nú hefðbundnu lífi
úti í samfélagi okkar sér og öðram
til gagns og ánægju.
r r r
BARNANAMSKEIÐ I JUNI
MÁLASKÓLAR í BRETLANDI
ALLIR KENNARAR SK<
qKKAR mal
MAÍMÁMCifCin í Dnm
MAINAMSKEIÐ I BOÐI
ÁHERSLA Á TALMÁL OG
UPPBYGGING ORÐAFORÐA
INNRITIIN STENDUR YFIR Í SÍMA 588 0303 eða 588 0305. HRINGDU OG FÁÐU FREKARI UPPLÝSINGAR
skólinn
Endurhæfing heilaskaddaðra
er oft erfið og tímafrek. Einstaka
sinnum verða þessir einstaklingar
ekki endurhæfðir nema að litlu
marld og þurfa á langvistun að
halda allt lífið. Oftast er þetta til-
tölulega ungt fólk. Þjónusta deildar-
innar við brotasjúklinga og þá sem
hlotið hafa fjöláverka eftir slys er
einnig kunn. Á deildina koma sjúk-
lingar eftir gerviliðaísetningar,
gigtarsjúklingar og fólk með ýmis
liða- og stoðkerfisvandamál.
Heilablóðföll og fleira
Á seinni áram hefur hluti
taugasjúklinga vaxið mjög í starf-
semi deildarinnar ásamt þjónustu
við aðrar deildir sjúkrahússins á því
sviði. í byrjun ársins 1991 tók deild-
in að sér að sinna bráðavöktum í
taugalækningum vaktadaga sjúkra-
hússins. Þá tók til starfa eina heila-
blóðfallseining landsins. Með til-
komu hennar hefur verið brotið
blað í meðferð heilablóðfallssjúk-
linga hérlendis. Hefur þetta skilað
sér vel bæði fyrir viðkomandi sjúk-
linga og þjóðfelagið í heild. Legu-
tími á sjúkrahúsinu hefur styst og
sjúklingar náð hámarksfæmi á
skemmri tíma en ella. Sjúklingar
með Parkinsonsveiki, miðtaugasigg
(MS), verkjasjúklingar og ýmsir
aðrir með einkenni frá heila og
taugakerfí koma á deildina.
Meðferðaráætlun
Þegar sjúklingur kemur til
endurhæfingar er mfidlvægt að
gera sér fljótt grein fyrir þeim
markmiðum sem stefnt er að og
gera áætlun um tímalengd endur-
hæfingarinnar og endanlegan
árangur í hverju tilfelli. Slík áætlun
gerir sjúklinginn raunsærri í af-
stöðu sinni í daglegu endurhæfing-
arstarfi og undirbúningi undir
hugsanlegar nýjar aðstæður. Áætl-
unin er einnig aðhald fyrir starfs-
fólk og undirbýr jarðveginn fyrir
útskrift með nægum fyrirvara. Á
Grensásdeild vinnur starfsteymið
vel saman. Til að fylgja markmiðum
eftir og hafa yfirsýn yfir gang mála
era haldnir fundir einu sinni í viku
hverri þar sem fulltrúar allra starf-
stétta hússins hittast og ræða um
hag sjúklinga. Þá er farið yfir stöðu
einstakra þátta endurhæfingarinn-
ar og jafnframt hugað að sálrænum
og félagslegum vandamálum, svo og
andlegum þörfum.
Sjúkdómar og slys geta haft í
för með sér veralegar breytingar á
lífsvenjum fólks. Með endurhæfing-
unni er reynt að lagfæra það sem
aflaga hefur farið að því marki sem
unnt er og bæta fyrir þá fötlun sem
orðið hefur með viðeigandi ráðstöf-
unum. Sem sé að koma viðkomandi
einstaklingi í eins gott ástand og
nokkur kostur er og hugsanlega að
kenna honum að lifa við ákveðna
fótlun.
Framtíðarhorfur
Hérlendis er allt gert og engu
til sparað til að lækna fólk er slasast
og þá sem fá bráðasjúkdóma. End-
urhæfingin er ekki síður mikilvæg
til að flýta bata, stytta dvöl á
sjúkrahúsi og aðstoða fólk við að
komast út í lífið á nýjan leik. Allt
þetta er til hagsbóta fyrir viðkom-
andi einstakling og þjóðfélagið í
heild. Því miður hefur starfsemi
Grensásdeildar verið á hálfum
dampi síðustu árin. Um helmingur
rúma deildarinnar hefur verið ónot-
aður. Á meðan bíða sjúklingar á
bráðadeildum sjúkrahúsanna í
Reykjavík endurhæfingar. Það er
mál að þessu linni. Stjóm Sjúkra-
húss Reykjavíkur hefur nú ákveðið
að efla starfsemina á Grensásdeild á
ný. Á 25 ára afmæli deildarinnar
verða tímamót. Breytingar verða á
starfseminni þannig að tvær sjálf-
stæðar deildir, endurhæfingardeild
og taugalækningadeild verða nú
reknar á Grensásnum í stað einnar
endurhæfingar- og taugadeildar.
Allt verður gert til þess að starf-
semin geti blómgast á nýjan leik
sjúklingum til heilla og þjóðfélaginu
til góðs.
Grensásdeild hefur átt marga
velunnara í gegnum árin. Margir
hafa stutt við bakið á starfseminni á
ýmsan hátt. Starfsfólk deildarinnar
kann þeim öllum bestu þakkir.
■4
FAXAFENI 10 108 REYKJAVÍK
Höfundur er dr. med. yfírlæknir