Morgunblaðið - 26.04.1998, Síða 48

Morgunblaðið - 26.04.1998, Síða 48
^48 SUNNUDAGUR 26. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ BG FUFZÞA Mtö 'A Pvi KOTTUM SKULI þyK7A GAMAN A£> &ANO - Tommi og Jenni Ferdinand Smáfólk UUHAT I THINK l'LL DO T0DAY 15 TAKE 50ME MONEY OUT OF MY C0LLE6E TRU5T FUNRAN0 60 BUYA POéL^ ^YOU pon'tVT^ HAVEA LL C0LLE6E TRU5T FUNDV^ ^ JJÍ I . ' . j.\ 3-Zl 'PLEA5E V ^ERE PA55THE/ ALLOUT 6RAPE 0P6RAPE , JELLV., UELLV.. HOU) CAN ANVONE NOT HAVE A 006, A COLL66E TRU5T FUNP ANP 6RAPE JELLY ? Það sem ég held að ég geri í dag er að taka út dálítið af peningum úr skólastyrktar- sjóðnum mínum og kaupa VÁund ... Þú átt ekki neinn skólastyrktarsjóð? Ekki það? Viltu gjöra svo vel að rétta mér greipsult- una ... Greipsultan er búin... Hvernig getur nokkur ekki átt hund, skólastyrktarsjóð eða greipsultu? BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 MIKILVÆGT er að lokum samræmdra prófa sé fagnað með fullorðn- um, s.s. foreldrum, starfsmönnum félagsmiðstöðva eða kennurum, segir í greininni. Lok sam- ræmdra prófa Frá Soffíu Pálsdóttur: ÞRIÐJUDAGINN 28. aprfl er síð- asta samræmda próf 10. bekkinga í grunnskólum landsins. Síðastlið- in ár hafa lok samræmdra prófa einkennst af fréttum um drukkna unglinga í Kringlunni og í miðbæ Reykjavíkur. Félagsmiðstöðvar Iþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur, í samstarfi við grunnskóla Reykjavíkur og for- eldrafélög þeirra, munu stuðla að því að unglingar í 10. bekk fagni prófalokum á annan máta. Skipu- lagaðar hafa verið dagsferðir og lengri ferðir þar sem viðfangsefn- in eru skemmtileg og þroskandi s.s. skíðaiðkun, siglingar og sund. Einnig er dagskrá í félagsmið- stöðvum ITR frá hádegi fram á kvöld. Félagsmiðstöðvar ÍTR vinna að forvörnum meðal barna og unglinga, einkum með því að bjóða upp á félags- og tómstunda- starf sem unglingamir hafa áhuga á og taka virkan þátt í. A ung- lingsárunum er vinahópurinn ung- lingnum mjög mikilvægur og er því nauðsynlegt að bjóða ungling- um uppá aðstöðu til að hitta vini sína og samfagna þessum áfanga. En mikilvægt er að lokum sam- ræmdra prófa sé fagnað með fuU- orðnum s.s. foreldrum, starfs- mönnum félagsmiðstöðva eða kennurum. Niðurstöður nýjustu kannana á vímuefnaneyslu ung- linga sýna að aukning er á tóbaks- , áfengis- og fíkniefnanotkun með- al unglinga. Auðvelt er að nálgast þessi efni og mikið er í boði. I fé- lagmiðstöðvum ITR er unnið 1. og 2. stigs forvarnarstarf þ.e. að reyna að koma í veg fyrir að vímu- enfaneysla hefjist og að vinna gegn neyslu eftir að hún hefst. Það er gert með fræðslu um hætt- una samfara neyslu vímuefna; með því að hafa áhrif á viðhorf unglinganna gagnvart ávana- og fikniefnum; hafa áhrif á atferli unglinganna þannig að þeir hafni neyslu ávana- og fíkniefna en kjósi fremur heilbrigðan lífsstfl. Leitarstarf, foreldrarölt og Mið- bæjarathvarf eru þeir starfsþættir sem aukist hafa á undanförnum áram. Þetta starf byggir á víðtæku samstarfi ITR, lögreglu, Félags- málastofnunar og foreldrafélaga. Markmiðið er að vinna gegn óæskilegri útivist og hópamyndun- um og afla upplýsinga um ungling- ana í hverfum borgarinnar. Leitar- starfið fer fram í hverfunum og miðbænum en starfsmenn félags- miðstöðvanna fara um hverfin og kanna aðstæður. Mörg foreldrafé- lög í skólum borgarinnar standa fyrir foreldrarölti um helgar og er það mjög mikilvægur þáttur í þessu öryggisneti. Miðbæjarat- hvarf er starfrækt í samvinnu við Félagsmálastofnun og lögreglu en þangað era unglingar færðir eftir að leyfilegum útivistartíma lýkur. Næstkomandi þriðjudag verður leitarstarf félagsmiðstöðvanna starfrækt ásamt Miðbæjarathvarfi líkt og verið hefur um helgar. Von- ir standa til að sem flestir 10. bekkingar kjósi að skemmta sér og fagna prófalokum innan vébanda félagsmiðstöðva, skóla og foreldra- félaga. Til að svo megi verða þurfa allir sem áhrif geta haft á unglinga að beita sér fyrir því að þeir minnist þessara tímamóta á heilbrigðan hátt. SOFFÍA PÁLSDÓTTIR, æskulýðsfulltrúi ÍTR. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.