Morgunblaðið - 26.04.1998, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
SUNNUDAGUR 26. APRÍL 1998 5 7
*
REYKJAVÍKUR
LJÓSMYND Immu prýðir auglýsingaplakat fyrir Stuttmyndadaga Reykjavíkur.
Leitib tilboða
ÁVALLT TIL Á LAGER
Klæðningin
sem þolir
íslenska
veðráttu
Blátt
Ver ðlaunamyndir
á hátíð í Svíþjóð
STUTTMYNDADAGAR
Reykjavíkur verða haldnir 27.
til 28. maí og rennur skila-
frestur í keppnina út 18. maí.
„Það hafa þegar borist nokkr-
ar myndir,“ segir Rúnar Rún-
ar, sem er framkvæmdastjóri
keppninnar ásamt Rebekku
Ragnarsdóttur. „Svo hafa
margir haft samband við mig
og greint mér frá því að þeir
ætli að skila inn myndum.“
Hann segir að úrslitakvöldin
verði í Tjarnarbíói, en auk
sýninga á myndunum sem ber-
ist í keppnina verði fyrirlestr-
ar og stuttar kynningar á ís-
lenskum myndum sem eru í
framleiðslu.
„Þær myndir sem lenda í
verðlaunasætum verða sýndar
í Ríkissjónvarpinu og siðan
verða þær og einnig nokkrar
aðrar myndir valdar til að
keppa fyrir Islands hönd á
kvikmyndahátíð í Stokkhólmi,
sem haldin er á vegum Félags
ungra kvikmyndagerðar-
manna á Norðurlöndum.“
Einnig verða peningaverð-
laun í boði og verða 200 þús-
und fyrir 1. sæti, 100 þúsund
fyrir 2. sæti og 50 þúsund fyrir
þriðja sætið.
MYNPBONP
/
Ast í kross
Aðalleikarinn
(The Leading Man)___________
Spennuniynd
★★★
Framleiðandi: Bertil Ohlsen/Paul
Raphael. Leikstjóri: John Duigan.
Handritshöfundur: Virginia Duigan.
Kvikmyndataka: Jean-Francois
Robin. Tónlist: Edward Shearmur.
Aðalhlutverk: Jon Bon Jovi, Anna
Galiena, Lambert Wilson og Thandie
Newton. 96 mín. Bretland. J&M
Entertainment/Skífan. Útgáfud: 6.
apríl. Myndin er bönnuð börnum
yngri en 12 ára.
FELIX Webb leikritaskáld er yfir
sig ástfanginn af ungu leikkonunni
Hilary, sem leikur aðalhlutverkið í
leikritinu sem er verið að setja upp
eftir hann. Hann vill alls ekki særa
eiginkonuna með því að fara frá
henni og lætur því slag standa þeg-
ar Hollywoodstirni, sem einnig er í
uppfærslunni, býst til að draga
hana á tálar.
Þetta er einstaklega vel heppnuð
sjónvarpsmynd sem kemur á óvart.
Hún heldur manni
hugföngnum allan
tímann og er svo
sannarlega ófyrir-
sjáanleg.
Persónusköpun-
in er mjög sann-
færandi og leikur-
inn látlaus og
kraftmikill, sem á
stóran þátt í innlif-
un áhorfendanna. Lambert Wilson
sem leikur leikritaskáldið er mjög
virtur leikari í Frakklandi, og
Anna Galiena, sem er eiginkona
hans, er ein vinsælasta leikkona
ítah'u. Bon Jovi er fullkominn í
hlutverki Hollywoodgúmmítöffar-
ans sem leikur á hið virta leikrita-
skáld. Thandie Newton er sann-
færandi í sínu hlutverki og einstak-
lega augnayndi í þokkabót.
Skemmtileg og spennandi saga
úr hversdagslífinu þar sem deilt er
á sjálfselsku í ástarmálum, og sýnt
fram að þeir sem eru snjallir á bók-
ina eru ekki alltaf jafnsnjallir þeg-
ar á að takast á við lífið sjálft.
Hildur Loftsdóttir
www.mbl.is
Hátíðarbúningur íslenskra /
karlmanna hefur notið mikilla
vinsælda frá því farið var að
framleiða hann. Færst hefur í vöxt
að íslenskir karlmenn óski að
klæðast búningnum á tyllidögum
svo sem við útskriftir, giftingar,
17. júní, opinberrar athafnir
hérlendis og erlendis og við öll,x
önnur hátíðleg tækifæri.
Hátíðarföt m/vesti kr. 22.900
Skyrta m/klút....kr. 4.500
Næla..............kr. 2.500
Hátíðarföt m/öllu kr. 29.900
Stærðir 46—64
Pantanir óskast sóttar
Sendum í póstkröfu
herradeild, Laugavegi, sími 511 1718,
herradeild, Kringlunni, sími 568 9017.
■í
HÁTÍÐARBÚNINGUR
ÍSLENSKRA KARLMANNA