Morgunblaðið - 03.07.1998, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Gamalt veiðarfærahús
í Eyjum fær nýtt hlutverk
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
HÓPUR unglinga í Eyjum framan við húsið sem þau vinna
nú við að standselja og lagfæra.
í SETUSTOFU hússins.
Fjölbreytt
listahátíð á
Seyðisfírði
Seyðisfirði - Listahátíðin „Á Seyði
98“ stendur sem hæst um þessar
mundir. Auk fjölda myndlistarsýn-
inga sem nú eru í gangi verður tölu-
vert um að vera á næstu vikum.
Götuleikhús hefur verið í undirbún-
ingi alla þessa viku undir stjórn Guð-
jóns Sigvaldasonar leikstjóra og
munu börn og fullorðnir fara með
leikhús sitt út á götu um næstu helgi.
Hljómstefna listahátíðarinnai'
verður einnig um næstu helgi. Þar
hittist á fjórða tug tónlistarmanna og
ber sama bækur sínar (nótnabækur),
æfír saman tónlist af öllum gerðum
og kynnir síðan útkomuna fyrir
áhorfendum. Þannig gefst tónlistai'-
mönnum tækifæri til þess að kynn-
ast persónulega og kynnast mismun-
andi tónlistarstefnum og stílum auk
þess sem almenningur getur átt von
á óvenjulegri skemmtun. A sama
tíma verða myndverk leikskólabama
til sýnis almenningi. Þai' er um að
ræða afrakstur samkeppni sem fór
fram í tengslum við „Kariinn í tungl-
inu hátíðina" - menningardag barna
sem haldinn var 21. júní. Verkin sem
börnin gerðu eru m.a. úr fiskimjöls-
pokum, fiskikössum og tómum um-
búðum.
Enn er mikið líf í kringum Eyþór
Þórisson hótelhaldara á Hótel Snæ-
felli á Seyðisfirði. Að þessu sinni er
það hvorki meira né minna en heil
víkingahátíð sem hann er með á
prjónunum og verður hún helgina
3.-5. júní. Hann hefur þegar látið
reisa stórt samkomutjald og verið er
að reisa víkingatjöld meðfram Lón-
inu við hótelið. Dansleikir verða í
tjaldinu bæði kvöldin þar sem Vík-
Blönduósi - Blönduósingar fagna þvi
laugardaginn 4. júlí að tíu ár eru liðin
frá þvi bærinn fékk kaupstaðarrétt-
indi. Ymislegt verður á dagskrá á af-
mælisdaginn og má þar m.a. nefna
listsýningu, grillveislu og dansleiki.
Þetta er þriðja árið í röð sem hald-
ið er upp á merkisafmæli á Blöndu-
ósi. í fyrra var fagnað 100 ára afmæli
brúar yfir Blöndu og árið 1996 var
fagnað 120 ára verslunarafmæli á
Blönduósi.
Formlega var afmælishátiðin sett í
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
EYÞÓR Þórisson hótelhaldari á
Hótel Snæfelli á Seyðisfirði að
útskýra víkingahátíðina.
ingasveitin leikur. Hátíðin er með
svipuðu sniði og víkingahátíðin í
Hafnai'firði og unnin í samstarfi við
þá sem hana halda.
Þjálfaðir bardagamenn munu sýna
víkingabardaga og víkingahöfðingi
verður sendur í sína hinstu fór á
brennandi báti úti í Lóninu. Þá verð-
ur völva á staðnum og handverks-
menn sýna færni sína og hafa muni til
sölu. Matur verður að hætti land-
námsmanna, heilsteikt lömb og svo
framvegis. Skemmtiatriði verða á
kvöldvöku við varðeld fyrir alla ald-
urshópa fram eftir kvöldi þá daga
sem hátíðin stendur og mikil flug-
eldasýning verður á laugardagskvöld-
inu. Leikhópurinn Regína verður á
staðnum og ósvikinn navahóindíáni.
Eyþór segir hátíðina hafa verið í und-
irbúningi í tæplega hálft ái’. Hann
segist hvergi banginn þar sem öll að-
staða á Seyðisfirði sé hin besta, tjald-
stæði og gistirými næg. Ekki síst seg-
ir hann jákvæð viðbrögð bæjaryfir-
valda, sýslumanns og lögreglu hafa
verkað hvetjandi á sig.
gær þegar jafnaldrar Blönduósbæjar
gróðursettu tré við Brúarland í til-
efni tímamótanna. Aðal hátíðarhöldin
verða svo á laugardaginn og verður
dagskrá fjölbreytt. Boðið verður upp
á útsýnisflug, leiktæki verða fyrir
börn á tjaldstæðinu og þar verða
einnig hestar til stuttra útreiðartúra.
Hrönn Vilhelmsdóttir opnar
textíllistsýningu í Blönduóskirkju.
Grillveisla verður við Sveitasetur og
dansleikur með hljómsveitinni Sixtís
verða í félagsheimilinu um kvöldið.
Vestmannaeyjum - Gamalt veiðar-
færahús Isfélags Vestmannaeyja við
Hilmisgötu hefur nú fengið nýtt
hlutverk. Húsið, sem er gamalt
timburhús, var nánast fullt af alls
konar drasli. Hefur það staðið nær
ónotað um árabil og neglt hafði ver-
ið fyrir alla glugga á því.
Andrés Sigurvinsson og Asta Guð-
mundsdóttir, sem séð hafa un undir-
búning 25 ára goslokaafmælishátíðar
í Eyjum, fengu þá hugmynd að nýta
mætti húsið undir einhvers konar
menningarstarfsemi og fá því eitt-
hvert hlutverk í miðbænum. Leituðu
þau eftir því við Sigurð Einarsson,
framkvæmdastjóra Isfélagsins, að
hann lánaði húsið undir einhverja
starfsemi og brást hann vel við hug-
myndinni og hefur lánað húsið í
a.m.k. sex mánuði til reynslu.
Andrés sagði i samtali við Morg-
unblaðið að hugmyndin um notkun á
húsinu gengi út á að nýta það á sam-
bærilegan hátt og Hitt húsið í
Reykjavík. Hann hafi því fengið
ungliðadeild Leikfélags Vestmanna-
eyja í lið með sér og hafi þau stofnað
götuleikhús sem verður með aðstöðu
í húsinu. Hann sagði að þau hefðu
ákveðið að nefna staðinn Húsið og
þar yrði auk ýmissa uppákoma, svo
sem leiklistar og tónlistar, félagsað-
staða fyrir unglinga þar sem þeir
gætu komið saman og átt eitthvert
athvarf. Unglingar úr vinnuskólan-
um hafa séð um að hreinsa út úr
húsinu en auk þess hefur hópur ung-
linga unnið að því í sjálfboðavinnu
að gera húsið upp. A neðri hæð
hússins er salur þar sem komið hef-
ur verið fyrir litlu sviði en á efri
hæðinni er setustofa.
Andrés sagði að Vestmannaeyja-
bær hefði stutt myndarlega við þessa
hugmynd og hjálpað til að gera hana
að veruleika með því að leggja til
starfskrafta og efni í ýmsar lagfær-
ingar. Hann sagði að með því að lag-
færa húsið og koma einhveiju lífi í
það væru slegnar margar flugur í
einu höggi. Menningarstarfsemi í
bænum væri lyft upp, útlit hússins
breyttist og af því hlytist fegrun um-
hverfis og unglingar fengju samastað
fyrir sig. Þetta væri því afar gott mál
sem hrint væri af stað.
Mikill áhugi meðal unglinga
Hópur unglinga var við störf í
húsinu þegar Morgunblaðið kom þar
við og var mikill áhugi fyrir verkinu.
Allir voru á þönum enda á húsið að
takast í notkun á goslokaafmælinu
um helgina. Hrund Sigurðardóttir
og Hafdís Víglundsdóttir eru nokk-
urs konar leiðtogar í vinnuhópnum
og sögðu þær að vel hefði gengið.
Allir væru jákvæðir þessari tilraun
og hefðu stutt hana. Þau sögðu að
fyrirtæki og verslanir í Eyjum hefðu
veitt þeim aðstoð á ýmsan hátt við
lagfæringar á húsinu, svo sem með
því að gefa málningu og ýmsa muni
til að fegra húsið. Þær sögðu að ekki
væri búið að fullmóta hvernig staðið
yrði að rekstri hússins á næstunni,
en líklega yrði komið á fót einhvers
konar ráði eða stjórn sem bæri
ábyrgð á rekstrinum og hefði yfir-
umsjón með honum.
Andrés sagði að hann hefði trú á
að sá hópur sem stæði að þessu
framtaki ætti eftir að láta að sér
kveða í menningarlífinu. Hann
sagði að mikill áhugi væri fyrir
þátttöku í starfsemi götuleikhúss-
ins og nú þegar væru um 20 ung-
menni á fullu við að æfa gang á
stulltum og að spúa eldi vegna þátt-
töku í götuleikhúsinu, en það verð-
ur með uppákomumr víðsvegar um
bæinn um helgina í tilefni af gos-
lokaafmælinu.
Afmælishátíð þriðja
árið í röð á Blönduósi
3100
hektara
friðland
án búfjár
í Jökuldal
og Hlíð
Vaðbrekka, Jökuldal -1 tilefni
sextíu ára afmælis Skógræktar-
félags Austurlands var lokað
friðlandi alls um 3.100 hektarar
að stærð á Jökuldal og í Hlíð á
Norðurhéraði. Friðlandið sem er
girt af liggur neðan þjóðvegar
utan frá Biskupshól við Ketils-
staði í Hlíð upp að Teigará við
Hjarðargrund á Jökuldal.
Athöfn þessu til staðfestingar
var haldin við Brúarásskóla síð-
astliðinn laugardag. Þar fluttu
ávörp Orri Hrafnkelsson, for-
maður Skógræktarfélags Aust-
urlands, og Arnór Benediktsson,
oddviti Norðurhéraðs. Því næst
kveiktu þeir Orri Hrafnkelsson
og Sveinn Sveinsson frá Vega-
gerðinni á rafmagnsgirðingunni
sem lokar af svæðið. Vegagerðin
greiddi efni í girðinguna en
FJÖLDI manns tók þátt í gróðursetningunni.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
ORRI Hrafnkelsson, formaður Skógræktarfélags Austurlands, og
Arnór Benediktsson, oddviti Norðurhéraðs, kveiktu á rafmagns-
girðingurmi sem lokar af svæðið.
girðingin lokar einnig af svæðið
meðfram veginum fyrir búfé og
eiga vegirnir á þessu svæði að
vera fjárlausir héðan í frá til
hagræðis fyrir vegfarendur.
Yfírlýsing hefur verið undir-
rituð af þeim bændum sem eiga
land í friðlandinu þar sem þeir
skuldbinda sig til að halda land-
inu búíjárlausu frá vori þar til
snjóa tekur og girðinguna fenn-
ir í kaf. Bændurnir ætla síðan að
liólfa niður friðlandið og nota
ýmist til skógræktar, land-
græðslu eða beitar eftir atvikum
en neðan vegar í friðlandinu er
nokkuð af túnum bænda og pen-
ingshús í nokkrum mæli.
Eftir athöfnina gekkst Skóg-
ræktarfélag Austurlands fyrir
ferð um utanverðan Jökuldal og
Hlíð þar sem svæðið var skoðað
og gróðursettar nokkrar plönt-
ur.