Morgunblaðið - 03.07.1998, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1998 47
BRÉF TIL BLAÐSINS
Ð en ekki D með striki
Frá Önnu S. Snorradóttur:
„MIKIÐ lifandis, heimsins ósköp“
(orðtæki gamallar vinkonu úr
Svarfaðardal) gladdist ég yfir leið-
ara Morgunblaðsins í morgun, 24.
júní, sem ber sömu yfirskríft og ég
geri að minni. Þar kemur fram ein-
hugur málsmetandi manna og sýn-
ir, að við verðum að standa vörð,
ekki aðeins um tunguna, heldur
hvern einasta bókstaf, eins og
dæmin sanna, og nú virðist úr því
skorið að minnasta kosti í svip, að
tungan hafi sigrað tæknina, svo er
Guði fyrir að þakka.
Þegar ég las fyrst umfjöllun í
blaðinu um það, að við myndum
þurfa að breyta Ð-inu okkar, vegna
tölvutækninnar og væntanlega líka
vegna erlendra samskipta, varð
mér að orði: „Eru þeir orðnir brjál-
aðir að láta sér detta annað eins í
hug!“ Areiðanlega hefir eitthvað
svipað komið upp í huga margra og
þá kannski líka spurningar: Hvað
næst? Hvernig endar þetta? Nei, í
þessum efnum þurfum við heldur
betur á allri okkar aðgæslu og
íhaldssemi að halda, og það læðist
að manni ótti um, að næst verði
reynt að þjarma að Þ-inu.
Eldspýturnar í Evrópu
Hamagangurinn, sem varð í Evr-
ópu, þegar umræðan stóð sem hæst
um það, hve margar eldspýtur ættu
að vera í einum stokki, skaut upp
kolli. Eg var á ferðalagi og stödd
einhvers staðar í álfunni, man ekki
hvar, en var ólæs á dagblöðin, svo
að ég keypti The Daily Telegraph
þennan tíma til að fylgjast með þvi
helsta sem var að gerast. Oftast læt
ég fyrirsagnirnar nægja, en ekki
alltaf. Þegar þessi „skemmtisaga"
um eldspýturnar hófst hjá Evrópu-
fólkinu í Brússel, las ég frásagnir
til enda, hló stundum þótt ég fyndi
fyrir alvörunni, sem að baki bjó:
Allir eins - allt eins, að öðrum kosti
skaltu út í kuldann.
Það má svei mér gá að sér, vera
nógu vakandi og ihaldssamur á sitt,
bregða helst ekki út af því góða og
gamla, sem hefir dugað lengi, nema
að augljós ávinningur sé fyrir land
og þjóð og að það sjái hvert manns-
barn. Eflaust verð ég skömmuð og
þetta kannski nefnt ofstæki, en mér
er alveg sama. Ræðuhöldin í Evr-
ópu stóðu dögum saman um það,
hve margar eldspýtur ættu að vera
í stokknum. Það voru Bretar sem
tregastir voru að samþykkja, vildu
fá að ráða þessu heima hjá sér. Þó
það nú væri! En þá var hrópað úr
ýmsum hornum: Allir eins - allt
eins - eitt land, sem heitir Evrópa.
Jafnmargar eldspýtur í öllum
stokknum!
Eg man ekki endalokin, senni-
lega farin burt.
Þótt einn bókstaíúr sé þúsund
sinnum dýrmætari en ein eldspýta,
kom þetta upp í hugann, þegar ég
heyrði fréttina og fann fyrir því,
hvemig stöðugt er verið að pota í
okkur og segja fyrir verkum. Von-
andi stöndum við á okkar rétti sem
er góður. Við erum eyland og vilj-
um eiga okkur sjálf, okkar letur og
allt sem íslenskt er.
ANNA S. SNORRADÓTTIR
Hofteigi 21,
Reykjavík.
ÍSLENSKI HLUTABRÉFASJÓÐURINN HF.
AÐALFUNDARBOÐ
Aðalfimdur ÍSLENSKA HLUTABRÉFASJÓÐSINS
verður haldinn föstudaginn 10. júlí 1998 kl. 17.00
í Sunnusal Hótels Sögu.
Dagskrá: ti Skýrsla stjórnar
ti Staðfesting ársreiknings
n Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna
11 Ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað
félagsins á liðnu reikningsári
ti Tillaga um heimild til stjórnar um kaup
á eigin bréfum félagsins
ti Kosning stjórnar félagsins skv. 19. grein samþykkta
ti Kosning endurskoðenda félagsins skv. 26. grein samþykkta
n Þróun og horfúr á hlutabréfamarkaði. - Yngvi Harðarson,
hagfræðingur hjá Ráðgjöf og efnaltagspám ehf.
u Onnur mál
li
^ LANDSBRÉF HF.
rrn, — 'hstH-
SUÐURLANDSBRAUT 24. 108 REYKJAVIK, SIMI 535 2000, BREFSIMI 535 2001, landsbref.is.
LÖGGILT VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI, AÐILIAÐ VERÐBRÉFAÞINGIÍSLANDS.
Kœrar þakkir fœri ég öllum þeim, sem
fögnuðu með mér á sjötugsafmœli mínu 25.
júní sl. Eg þakka veglegar gjafir, skeyti og
aðrar kveðjur. En fyrst og fremst þakka ég
hlýhug og vináttu.
Björg F. Hansen.
etto
H J Á L M A R
Notaðu
heilann!
Notaðu
hjálm!
Þekking Reynsla Þjónusta
FÁLKINN
Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavfk • Sími 540 7000
Fax 540 7001 • Netf. falkinn@falkinn.is