Morgunblaðið - 03.07.1998, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1998 2S
Atök
magnast
í Guinea
Bissau
BARDAGAR hafa nú breiðst
út fyi-ir höfuðborg vestur-Af-
iTkuríkisins Guinea Bissau,
þar sem borgarastríð hefur
geysað í þrjár vikur. Þúsundir
manna hafa flúið höfuðborg-
ina og hundruð þurfa nú að
hörfa lengi-a. Óttast er að
hungursneyð skelli á og far-
sóttir breiðist út meðal flótta-
mannanna.
Fagnar 50
ára afmæli
BRESKA heilbrigðisþjónust-
an á 50 ára afmæli í vikunni,
og lofaði Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, af því til-
efni stofnanda hennar, Ane-
urin Brevan, sem gegndi
embætti heilbrigðisráðherra
fyrir Verkamannaflokkinn.
Ríkisstjórn Blairs hefur ekki
tékist að efna það kosninga-
loforð sitt að stytta biðlista í
heilbrigðiskerfínu, og er
raunin reyndar sú að þeir
hafa lengst undanfarið ár.
Frakkar
fordómafullir
NÆRRI fjórir af hverjum tíu
Frökkum viðurkenna að þeir
séu haldnir kynþáttafordóm-
um, samkvæmt niðurstöðum
skoðanakönnunar sem dag-
blaðið Le Monde birti í gær.
Hlutfallið er rúmlega 20%
meðal Þjóðverja og Breta, en
Belgar teljast fordómafyllstir
allra Evi'ópubúa, þar sem
hlutfallið er 45%. Könnunin í
Frakklandi gaf til kynna að
ungt fólk hefði síður fordóma
í garð annarra kynþátta, en
bændur, verslunareigendur
og sölumenn eru aftur á móti
fordómafyllstir.
Stjórnar-
flokkar
tapa fylgi
FLOKKAR þeir er standa að
ríkisstjórn Kjell Magne
Bondeviks í Noregi tapa fylgi
samkvæmt skoðanakönnun
sem birtist í Dagsavisen.
Kristilegi þjóðarflokkurinn
hefur tapað 6,3% frá því í
febrúar, en nýtur þó meira
fylgis en í kosningunum á síð-
asta ári. Venstre fékk þá 4,5%
atkvæða, en mælist nú með
3,6% fylgi, og Miðjuflokkur-
inn, sem hlaut 7,9% atkvæða í
kosningunum, nýtur tæplega
6% fylgis nú. Verkamanna-
flokkurinn eykur hins vegar
fylgi sitt úr rúmlega 30% í
febrúar í 34,5% nú.
Nýr miðju-
flokkur
á Italíu
NYR miðjuflokkur, Bandalag
lýðveldishollra demókrata
(UDR), var formlega stofnað-
ur á Ítalíu í gær undir forystu
Francescos Cossigas. Þegar
hafa 46 þingmenn úr báðum
deildum ítalska þingsins
gengið til liðs við flokkinn.
ERLENT
Bush
í Berlín
GEORGE Bush, fyrrverandi for-
seti Bandaríkjanna, brosir til
ljósmyndara en hann var í
Berlín í gær viðstaddur þegar
svipt var hulunni af styttu til
minningar um fall Berlínar-
múrsins og gildi frjálsra sljórn-
málaskoðana.
Styttan er afsteypa af lista-
verki bandaríska listamannsins
Veryls Goodnight sem stendur
fyrir framan George Bush-bóka-
safnið í Texas.
Bush var forseti Bandaríkj-
anna 1989-1992 á þeim tíma
þegar Berlínarmúrinn féll og
Reuters
Akæru á hendur
Hubbel vísað frá
ALRÍKISDÓMARI í Was-
hington hefur vísað frá ákæru á
hendur Webster Hubbel, göml-
um vini Bills Clintons Banda-
ríkjaforseta, fyrir skattsvik og
gagmýndi meðferð Kenneths St-
arrs saksóknara á málinu.
Dómarinn komst að þeirri nið-
urstöðu á miðvikudag að Starr
hefði farið út fyrir valdsvið sitt
með því að ákæra Hubbel, en
saksóknarinn var upphaflega
skipaður til að rannsaka viðskipti
Clinton-hjónanna í Arkansas fyr-
ir rúmum áratug. Dómarinn úr-
skurðaði ennfremur að Starr
hefði svikið loforð um að veita
Hubbel friðhelgi fyrir ákæru.
Verði úrskurður dómarans
staðfestur fyrir áfrýjunarrétti er
ljóst að Starr getur ekki knúið
Hubbel til vitnisburðar sem gæti
skaðað forsetahjónin. Hubbel
hefur lengi sagt að hann viti ekki
til þess að Clinton-hjónin hafí
gerst sek um lögbrot.
fyrir
Hewlett
Packard
gæði!
ný HP Vectra VE
með Intel Celeron örgjörvanum
Intel Celeron er af nýrri kynslóð
örgjörva frá Intel sem er
þróaður af sama grunni og
Pentium II örgjörvinn.
celeron
• Intel Celeron 266 MHz örgjörvi
• 15" HP Ultra VGA hágæðaskjár
17“ HP 70 skjár fyrir 19.500 kr. til viðbótar
• 32 MB vinnsluminni
• 2,5 GB UATA harður diskur
• 2 MB skjákort
• Microsoft Windows 95
(Windows 98 eða NT 4,0 fáanleg)
• HP TopTools stjórnunar-
og eftirlitshugbúnaður
• Borð- og turnvélar fáanlegar
Nýja HP Vectra VE línan er einnig fáanleg með
Pentium II örgjörvanum í 266-400 MHz útgáfum
Þriggja ára ábyrgð*
“Hafið samband við viðurkennda söluaðila og
kynnið ykkur ábyrgðarskilmála Hewlett Packard
Tilboðsverð skv. rammasamningi Ríkiskaupa RK-3.02
Tilboðið gildir til 30. júlí 1998
OPIN KERFIHF
Höfðabakka 9
Tækniupplýsingar
Viðurkenndir söluaðilar:
Reykjavík: ACO hf., s. 562 7333 • Gagriabanki Islands, s. 581 1355
Akranes:Tölvuþjónustan, s. 431 4311 • Dalvík: Haukur Snorrason, s. 466 1828
Akureyri: EST lif., s. 461 2290 • Húsavilc EG Jónasson, s. 464 1990
Tölvaþjomista Austuriands: Egilsslöðum, s. 471 1111. • Höfn, s. 478 1111
Selfoss: TRS, s. 482 3184 • Kcflavík: Tölvuvaiöing ehf., s, 431 4040
m HEWLETT PACKARD