Morgunblaðið - 03.07.1998, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1998 27
LISTIR
Ykt elding
Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir
rokksöngleikinn Grease í kvöld á stóra
--------------------j ---- ----—
sviði Borgarleikhússins. A þriðja tug leik-
enda fer með hlutverk í verkinu.
##
Orlygur Steinn Sigurjónsson fór á
rennsli og spjallaði við nokkra aðstand-
endur uppfærslunnar.
GREASE-GELLURNAR taka Iífinu létt og undir leðri strákanna má jafnvel finna ást og yl.
Rokksöngleikurinn
Grease segir frá bandarísk-
um stelpum og strákum á
táningsaldri í leit að sjálfum sér, í
heimi allsnægta með þvingandi
gildismat hinna fullorðnu hangandi
yfir sér. Þetta er á æskuskeiði
skyndibitastaðanna, gullöld átta
strokka kagganna og léttur keimur
Beatkynslóðarinnar svífur yfir
vötnum. Grease sýnir heim þar
sem unglingar eru orðnir neytend-
ur og markhópur í fyrsta skipti í
mannkynssögunni, en þó án sjálf-
stæðis. Það er því ekki undarlegt
að tilveran verði svolítið ruglings-
leg þegar í ofanálag þarf svo að
burðast með illviðráðanlega kyn-
hvöt og vaxtarverki.
Það eru þau Selma Björnsdóttir
og Rúnar Freyr Gíslason sem fara
með aðalhlutverkin í uppfærslu
Leikfélagsins. Rúnar Freyr er á
þriðja ári Leiklistarskólans og lék í
Hárinu og Jesus Christ Superstar.
Selma hefur leikið í Rocky Horror,
West Side Story, Hinu ljúfa lífi,
Meiri gauragangi og Augunum þín-
um bláu.
Sagan endalausa
I Grease leikur um tugur leik-
enda klíkuvini þeirra Sandyar og
Dannys og í æfingahléi í Borgar-
leikhúsinu settust nokkrir þeirra,
sem eru ýmist nýútskrifaðir leikar-
ar eða á lokaári í Leiklistarskólan-
um, niður með blaðamanni og tjáðu
upplifun sína á Grease. „Þetta er
sagan endalausa um unglingahóp,
sem gerist á ennþá skemmtilegri
tíma en var í upphafi áttunda ára-
tugarins, þegar Grease var skrif-
að,“ segir Jóhann G. Jóhannsson
leikari, sem leikur Sonny. „Þetta er
fyrst og fremst gleði og orka og
fjallar líka um vináttuna," segir Jó-
hanna Vigdís Arnardóttir leiklist-
arnemi, sem leikur Rizzo. „Þetta er
sterkur vinahópur, sem getur hrist
allt af sér og þótt þau sýni vænt-
umþykju sína á heldur grófan hátt
standa þau saman þegar á móti
blæs.“ Edda Björg Eyjólfsdóttir
leiklistarnemi minnir í þessu á
samfélagsboðin sem einstakling-
arnir þurfa að lúta í klíkunum
tveim. „Það eru vissar reglur í
klíku sem þarf að hlýða,“ segir
hún.
Rokksöngleikurinn Grease var
fyrirmynd kvikmyndarinnar sam-
nefndu sem sýnd var hérlendis árið
1978 með John Travolta og Oliviu
Newton-John í aðalhlutverkum.
Höfundar voru tveir, þeir Warren
Casey og Jim Jacobs, og var söng-
leikurinn frumfluttur í ársbyrjun
1971 í Chicago. Grease sló síðan í
gegn er hann var sýndur í New
York ári síðar. Hver annar en Ric-
hard Gere lék síðan Danny árið
1972 þegar söngleikurinn var tek-
inn til sýningar í London? Gere var
23 ára og óþekktur þá, en í annál-
um er upphaf frægðar hans rakið
til frammistöðunnar í Grease. Það
var því vel þroskað kassastykld
sem þau Travolta og Olivia Newton-
John lögðu lið í einni best sóttu
kvikmynd Bandaríkjanna nokki-um
ái-um seinna. Svo kom Grease-æðið
á Islandi en fáir höfðu hugmynd um
forsöguna. „Myndin fannst mér ná
andrúmsloftinu mjög vel sem um-
lukti unghngana á þessum tíma,“
segii- Hildigunnur Þráinsdóttir leik-
ari, sem leikur Frenchy, en tók und-
ir með félögum sínum um að stráka-
klíkan í upprunalega verkinu væri
annað og meira en bara nafnlausir
leðurjakkar sem snerust í kringum
Danny. „Það sem opinberaðist fyrir
mér þegar ég kom að söngleiknum
var að allar persónurnar voru fólk
af holdi og blóði sem átti sína sögu,
þannig að það er meira utan á bein-
unum í söngleiknum en í myndinni,"
segir Halldór Gylfason leikari.
„Myndin var líka bai’a gerð í kring-
um John Travolta á kostnað ann-
arra hlutverka," segir Jóhann.
„Travolta syngur lög sem voru ekki
skrifuð fyrir Danny og þú manst
varla eftir öðrum í klíkunni," segir
hann.
Ótrúlega skemmtileg glíma
Allir voru leikendurnir sammála
um að reynslan af söngleiknum Gr-
ease væri dýrmætur skóli með til-
liti til samhæfingar söng- og dans-
atriða. „Þetta er mikil nákvæmnis-
vinna og ótrúlega skemmtileg
glíma,“ segir Halldór. „Við slepp-
Morgunblaðið/Arnaldur
ÁTTA strokka kaggi, leðurjakkar og rokkað fram
í nóttina með Grease-gæjunum.
SÍGILD minni í Grease; vinátta, rifrildisstúss, ást,
drauniar, gleði og stuð.
um samt ekki við að ljá persónun-
um dýpt þótt formið heiti söngleik-
ur,“ bætir Hildigunnur við. „Per-
sónusköpunin er einstaklingsvinna
að miklu leyti, því stjórnendur
svona sýningar hafa í svo ótalmörg
horn að líta og þess vegna gefst lít-
ill tími til að fara með hverjum og
einum í hans persónu," segir Jó-
hann. Fleiri leikendur fara með
hlutverk í Grease, þau Vilhjálmur
Goði Friðriksson, sem leikur
Doody, Inga María Valdimarsdótt-
ir leikkona, sem leikur Marty, og
Nanna Kristín Magnúsdóttir, leik-
listarnemi á þriðja ári Leiklistar-
skólans, sem leikur Patty, að
ógleymdum Pálma Gestssyni leik-
ai-a og Eddu Arnljótsdóttur
leikkonu.
Grease felur í sér lieilan stíl
Grease í Borgarleikhúsinu er
fluttur á íslensku í þýðingu Vetur-
liða Guðnasonar. „Eg reyndi að
miða þýðinguna við talmálssnið,
sem lýtur oft að meiri málalenging-
um en í rituðum texta, og svo nota
ég slangur sem var í rauninni ekki
til á sögutíma Grease, rétt fyrir
1960, en hefur öðlast þegnrétt í ís-
lensku í dag,“ segir Veturliði. Titill
verksins heldur sér óþýddur í upp-
færslu Leikfélagsins en Veturliði
segir að ekki hafi komið til tals að
þýða „Grease" yfir á íslensku. „Það
var vegna þess að Grease felur í
sér heilan stfl og merkir svo margt
annað en bara brilljantín í hárinu,“
segir Veturliði og bendir á opnun-
arlag söngleiksins: Grease á sér
stað, á sér stund, á sér tísku/Grea-
se ervm við; það er stíllinn. „Aðal-
atriðið í mínum huga var að áhorf-
endur myndu sætta sig við þýðing-
una og þætti hún ekki hallærisleg,
þá er ég ánægður." Veturliði segist
hafa þm-ft að beita sig hörðu á
stundum við þýðinguna þegar kom
að því að reyna á þanþol íslensk-
unnar því hann segist vera nokkuð
fastheldinn að upplagi. „Þetta gat
verið svolítið dund, sérstaklega
þegar kom að söngtextunum, og
þótt ég sé ekki hagmæltur sjálfur
vona ég að rím og stuðlar hafi kom-
ið ágætlega út þegar það átti við.“
Leikstjórinn Kenn Oldfield hef-
ur samið dansana í verkinu og
aðrir listrænir stjórnendur eru
Randver Þorláksson aðstoðarleik-
stjóri, Ástrós Gunnarsdóttir að-
stoðardansahöfundur, Jón Ólafs-
son tónlistarstjóri, Elín Edda
Árnadóttir búningahönnuður,
Stígur Steinþórsson leikmynda-
hönnuður og Lárus Björnsson
ljósahönnuður.
Vefmynda-
sýning' í
Perlunni
ÞÝSKA veflistakonan Maria
Uhlig heldur sýningu á verkum
sínum í Perlunni og verður hún
opnuð laugardaginn 4. júlí kl. 19.
Frú Barbara Nagano, sendh’áðu-
nautur þýska sendiráðsins, flyt-
ur ávarp og opnar sýninguna,
sem Maria nefnir Non’æn áhrif,
en verkin hefur hún unnið eftir
mótífum írá Islandi og Norður-
löndunum. Meðal viðfangsefna
Mariu eru hreyfingar í náttúr-
unni, straumrennsli, hamrabelti
og hafóldur. Maria hefur einnig
unnið með og á rekavið, en
vefstíl sinn kallar hún „áhrifa-
mikinn ölduvef‘. Maria Uhlig er
meðlimur í listamannahópnum
Seltene Erden, sem hélt náttúru-
listaþing að Þingeyrum í Austur-
Húnavatnssýslu um miðjan júní
síðastliðinn. Sýningin í Perlunni
stendur til 2. ágúst.
35 verk í List-
húsi Ófeigs
RAGNA Sigrúnardóttir opnar
málverkasýningu í boði List-
húss Ófeigs á Skólavörðustíg 5
laugardaginn 4. júlí.
I kynningu segir: „Á sýning-
unni verða 35 verk, öll unnin í
olíu og er viðfangsefnið nálægð-
in við fortíðina og tengslin við
kynslóðirnar sem á undan
gengu.“
Þetta er 8. sýning Rögnu hér
á landi en hún hefur áður sýnt
meðal annars í Galleríi Fold,
Galleríi Greip, Ásmundarsal og
Listhúsi Ófeigs.
Ragna er menntuð í Banda-
ríkjunum og stundaði nám við
New York University og Cali-
fornia Institute of the Arts.
Sýningin stendur yfir til 31.
júlí og verður opin á verslunar-
tíma. Fyrstu sýningarhelgi
verður opið milli kl. 14 og 18 að
listakonunni viðstaddri.
Textílsýnin g
í Blönduós-
kirkju
HRÖNN Vilhelmsdóttir textíl-
hönnuður opnar sýningu á verk-
um siiium í Blönduóskirkju
laugardaginn 4. júlí kl. 15.
Hrönn er fædd árið 1961 og
stundaði nám við MHÍ textíl-
deild 1984-1986 og 1988-1990,
einnig í iðnhönnun 1990-1991.
Hrönn hefur haldið þrjár
einkasýningar og tekið þátt í
mörgum samsýningum.
Sýningin er opin á opnunar-
tíma kirkjunnar alla daga kl.
10-12 og 14-17. Sýningunni lýk-
ur 18. júlí.
Þorgerður
sýnir
í Kringlunni
ÞORGERÐUR Sigurðardóttir
opnar sýningu í Kringlunni á
morgun, laugardag. Sýningin
verður í sýningarrými Gallerís
Foldar og Kringlunnar á
annarri hæð gegnt Hagkaupi.
„Þorgerður sækir myndefni
sitt til miðaldalistar og í mynd-
um hennar eru minni úr kirkju-
list. Uglan er tákn viskunnar og
ljónið tákn valdsins og hún spyr:
Hvert stefnir valdið án viskunn-
ar?“ segir í kynningu.
Þorgerður er fædd árið 1945.
Hún stundaði myndlistarnám
við Myndlista- og handíðaskóla
Islands og Myndlistaskóla
Reykjavíkur. Hún hefur haldið
fjölda einkasýninga og tekið
þátt í samsýningum hérlendis
og erlendis. Þorgerður hefur
fengið margar viðurkenningar
fyrir störf sín og verk hennar
prýða helstu söfn landsins.
Sýningin er opin á sama tíma
og Kringlan og lýkur 22. júlí.