Morgunblaðið - 03.07.1998, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1998 39
<
1
i
i
1
i
i
i
i
!
Í
i
4
i
i
1
4
4
1
4
i
4
4
4
4
4
4
+ Þorvaldína
Gunnarsdóttir
var fædd í Húsavík
á Borgarfirði eystra
12. desember 1910.
Hún lést á St. Jós-
efsspítala 22. júní
siðastliðinn. For-
eldrar liennar voru
hjónin Ragnheiður
Stefánsdóttir frá
Teigaseli á Jökuldal
og Gunnar Jónsson
frá Háreksstöðum í
Jökuldalsheiði, oft-
ast kenndur við
Fossvelli.
Þorvaldína var níunda í röð-
inni af fjórtán systkinum en
þrettán þeirra komust til full-
orðinsára. Af þeim eru þrjú á
lífi: Stefán, f. 1901, Bergþóra, f.
1912 og Sigrún, f. 1917. Látin
eru: Jónína f. 1899, d. 1989,
Ragnar, f. 1902, d. 1967, Þórdís,
f. 1903, d. 1995, Guðný, f. 1905,
d. 1984, Helgi, f. 1906, d. 1988,
Aðalsteinn, f. 1909, d. 1988,
Karl, f. 1914, d. 1988, Baldur, f.
1915, d. 1998 og Hermann, f.
Tengdamóðir mín, Þorvaldína
Gunnarsdóttir, sem jarðsett verður
í dag, var algjör andstæða hinnar
margumtöluðu tannhvössu tengda-
móður. Hún var einstaklega tillits-
söm í umgengni og mild í orðum og
athöfnum. Öll þau 30 ár sem við
þekktumst varð okkur ekki sundur-
orða eitt einasta sinn. Umgengumst
við þó ekki aðeins á stórhátíðum
heldur reglulega allt árið um kring.
Árið 1985 fórum við Guðrún með öll
bömin í fimm vikna ferð um Dan-
mörku og skipuðust mál svo að Þor-
valdína fór með okkur í þessa ferð,
en hana hafði þá lengi langað að
fara aftur um Danmörku, þar sem
hún dvaldist ung við nám í vefnað-
arft-æðum. Atti hún góðar minning-
ar um Danmerkurdvölina og var
það mér mikil ánægja að geta stuðl-
að að því að hún fengi tækifæri til
að rifja þær upp. Þorvaldína var á
þessum tíma 75 ára og líkamlega
heilsan alls ekki fuligóð. Þrátt fyrir
það var hún enginn eftirbátur hinna
yngri í ferðadugnaði og svo góð
voru samskiptin að ekki féll eitt
styggðaryrði í þessari löngu ferð.
Þó líkamleg heilsa Þorvaldína væri
ekki góð mörg seinni árin var hún
ávallt fullsjálfbjarga og tápleg hvar
sem hún kom og sínu góða andlega
atgervi og fjöri hélt hún óskertu út
ævina. Ég efast ekkert um að Þor-
valdína, sem og aðrir gengnir, lifir
með okkur áfram en hvort sem það
er rétt eða rangt munu minningarn-
ar um hana verða mér til ánægju
um alla framtíð.
Skúli Th. Fjeldsted.
1920, d. 1951.
Hinn 5. október
1940 giftist Þor-
valdína Þór Jó-
hannssyni rafvirkja,
f. 7. september 1905
á Möðruvöllum í
Eyjafirði og settust
þau að í Hafnar-
firði. Þór lést 30.
desember 1953.
Börn þeirra eru:
1) Ragna Gunnur, f.
3. maí 1941, gift
Olafi Bjarna Bergs-
syni. Þeirra synir
eru: Þór, Bergur,
Þorvaldur og Gunnar. 2) Skúli,
f. 31. maí 1943, kvæntur Hrafn-
hildi Sigurbjörnsdóttur. Dætur
þeirra eru: Ina, Björg og Ragn-
heiður. 3) Guðrún Bergþóra, f.
3. ágúst 1948, gift Skúla Th.
Fjeldsted. Þeirra börn eru:
Jónína, Kjartan og Þóra. Barna-
börnin eru 10 talsins.
Útför Þorvaldínu fer fram frá
Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í
dag og hefst athöfnin klukkan
13.30.
sokkum og vettlingum sem sann-
kallað listahandbragð var á.
Hún bar hag okkar barnabarn-
anna ávallt fyrir brjósti, fylgdist
með okkur af áhuga og studdi okkur
í því sem við tókum okkur fyrir
hendur í lífinu, enda leituðum við
ósjaldan til hennar þegar mikið lá
við. Það sama var að segja um ástúð
hennar og áhuga á barnabarnaböm-
unum en hún naut þess að hafa þau
í kringum sig.
Nú er komið að kveðjustund og
við þökkum henni Inu ömmu fyrir
samverustundirnar. Megi hún hvíla
í friði.
Nú legg ég augun aftur
ó, Guð þinn náðarkraftur
mínverivömínótt.
Ævirstmigaóþértaka
mér yfir iáttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Þýð. S. Egilsson.)
Ég fel í forsjá þína
Guð faðir sálu mína
því nú er komin nótt.
Um ijósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(M. Joch.)
Barnabörn.
Elsku amma mín. Ég vildi að ég
hefði getað verið hjá þér og kvatt
þig að lokum. En þó að ég sakni þín,
þá veit ég að þér líður vel á himnum
hjá Guði og það átt þú mest allra
skilið. Þótt ég fái ekki að sjá þig aft-
ur, býrð þú alltaf í hjartanu mínu.
Þóra Fjeldsted.
Enn saxast á systkinahópinn
stóra sem kerindi sig við Fossvelli á
Jökuldal. Og nú er hún horfin sú
sem fegurst var, Þorvaldína Gunn-
arsdóttir - Ina frænka mín. I albúm-
inu heima þegar ég var barn var
mynd af henni sem ég fékk aldrei
nóg af að horfa á. Þar brosir ung
stúlka sakleysislega til ljósmyndar-
ans - og þó stafar frá henni kvenleg-
um þokka. Hún er með heklað sjal á
öxlunum og perlufesti um hálsinn,
en ekki var það skartið sem heillaði
mig og ekki blikandi björt augun.
Nei, það sem laðaði mig að þessari
mynd var hárið. Stórir liðir upp af
enninu og fest með grannri spennu
neðst í vinstri vanga. Mikið hár og
þykkt - og liðað.
Þegar ég fór til hárgreiðslukonu
fyrir ferminguna til að fá
permanent, eins og þá var skylda og
þótti boða sjálfsögð endalok léttúð-
ar æskunnar og upphaf kvalafullra
fullorðinsára, þá hafði ég með mér
myndina af ínu frænku og sýndi
hárgreiðslukonunni og bað hana að
gera mig svoleiðis. Henni fannst í
orði kveðnu alveg fráleitt árið 1957
að herma eftir hártísku frá því um
1930, en líklega hefur aðalástæðan
fyrir tregðunni verið sú að hún sá
ekki að mitt rennislétta lina hár
gæti nokkum tíma orðið jafnlifandi,
þykkt og ástríðufullt og hárið á ínu
frænku. Ég bað hana samt um að
reyna og dapurlegan árangurinn
má sjá ef einhver eintök em enn
varðveitt af fermingarmyndunum af
mér.
ína frænka átti líka sérstakan
stað í hjarta fjölskyldu minnar
vegna þess að hún opnaði hús sitt af
eðlislægu örlæti íyrir okkur þegar
við fluttum suður árið 1953 og höfð-
um engan samastað. í heilt sumar
finnst mér við hafa búið hjá henni í
litla húsinu við Hraunstíg í Hafnar-
firði. Þar bjuggu þá þau hjónin, og
Þór bóndi hennar mikið veikur,
böm þeirra þrjú og við þrjú og þó
var enn rúm fyrir unga konu sem
var að bylta hugmyndum Hafnfirð-
inga um bamsfæðingar, Huldu
Jensdóttur ljósmóður. Mér fannst
þetta mikið hús og merkilegt allt
sem gerðist þar og mætti lengi una
sér við minningar. Hér skal aðeins
nefnt í viðbót að ína frænka rækt-
aði kál í garðinum sínum og lét mig
borða það. Henni þótti á sinn kurt-
eislega hátt svo sjálfsagt að henni
væri hlýtt að maður gerði það.
ína var falleg kona og fjarskalega
nett, smekkleg í klæðaburði og ein-
staklega háttprúð. Hún var kurteis
kona í fornum skilningi og væn en
hafði líka góða kímnigáfu, einstak-
lega hýrt bros og smitandi hlátur.
Vissulega var hún orðin gömul kona
og fannst hún hafa lifað nógu lang-
an dag, en við höfum samt leyfi til
að sakna hennar sárt. Með henni er
fallin enn ein stoðin úr undirstöðu
fjölskyldunnar sem einu sinni var
svo stór og sterk. Börnum hennar,
tengdabörnum og bamabömum
sendum við innilegar samúðar-
kveðjur.
Silja Aðalsteinsdóttir.
ÞOR VALDINA
G UNNARSDÓTTIR
Elsku amma og langamma, um
leið og við kveðjum þig viljum við
þakka fyrir allar samverustundim-
ar með þér. Guð blessi minningu
þína.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir aUt og allt.
(V. Briem.)
Þorvaldur og fjölskylda.
Okkur langar að minnast hennar
Inu ömmu. Oll eigum við góðar
minningar um hana. Um heimsókn-
ir til hennar, gönguferðir og ferða-
lög með henni en þá sagði hún okk-
ur gjarnan bæði þjóðsögur og sögur
af skemmtilegum atburðum er hún
var að alast upp. Alltaf tók hún okk-
ur af hlýhug og gestrisni og enginn
fór svangur frá henni ömmu, enda
slógu boilurnar, pönnukökurnar og
ananasfrómasinn öllu við.
Hún amma var mikil hannyrða-
kona og sjaldan sáum við hana
öðravísi en með prjónaskap eða út-
saum í höndunum. Hún sá alltaf um
að allir í fjölskyldunni ættu nóg af
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR ÓLAFSSON,
Hlíðarvegi 3,
ísafirði,
sem lést á heimili sínu aðfaranótt laugar-
dagsins 27. júní, verður jarðsunginn frá
ísafjarðarkirkju laugardaginn 4. júli kl. 11.00.
Guðbjörg Sigrún Valgeirsdóttir,
Kristján Guðmundsson, Guðfinna Skúladóttir,
Valgeir Guðmundsson,
Ólafur Guðmundsson,
Einar K. Guðmundsson,
Sigurður R. Guðmundsson,
Hildur G. Bæringsdóttir,
Steinunn M. Arnórsdóttir,
Aðalbjörg Pálsdóttir,
Jóna Guðmundsdóttir,
Ólöf Minný Guðmundsdóttir,
Ingibjörg S. Guðmundsdóttir, Guðmundur S. Ásgeirsson,
Birgir Már Guðmundsson, Nína E. Sandberg,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær móðir mín, amma og langamma,
KRISTJANA ÞORKELSDÓTTIR,
Vesturgötu 7,
lést á Landspítalanum að morgni fimmtu-
dagsins 2. júlí.
Skúli Einarsson,
Ingifríður R. Skúladóttir, Guðmundur Gunnarsson,
Árni Einar Skúlason,
Einar Jón Skúlason,
Alexía Ýr Magnúsdóttir,
Guðmundur Dór Guðmundsson,
Einar Kristján Guðmundsson,
Hrafnkell Kristján Guðmundsson.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
GUÐMUNDUR HANSSON
fyrrverandi vörubifreiðastjóri,
Skúlagötu 40,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju í dag,
föstudaginn 3. júlí, kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á
Krabbameinsfélagið eða Hjartavernd.
Elsa D. Helgadóttir,
Halla Guðmundsdóttir, Gunnlaugur H. Gíslason,
Hans B. Guðmundsson, Steinunn Njálsdóttir,
Friðjón Guðmundsson, Karen Emilsdóttir,
Snorri Guðmundsson, Lilja Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför móður minnar,
tengdamóður og ömmu,
ÁSGERÐAR ÞÓRÐARDÓTTUR,
Flúðaseli 80,
Reykjavík.
Kristjana Kjartansdóttir, Rúnar Grímsson
Kjartan Rúnarsson, Ásgeir Rúnarsson,
Óskar Rúnarsson, Atli Rúnarsson, Daði Rúnarsson.
+
Innilegar þakkir færum við öllum sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður
og afa,
BIRGIS ÓSKARSSONAR,
Kópalind 8,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarþjónustu
Karitas.
Ragnheiður Ögmundsdóttir,
Ögmundur Birgisson, Margrét H. Pétursdóttir,
Knútur Birgisson, Anne Mette Vinther,
Óskar Ögri Birgisson,
Birgir Heiðar Birgisson
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
GÍSLA SKARPHÉÐINS SIGURÐSSONAR,
Stapa.
Guð blessi ykkur öll.
Vandamenn.
+
Þakka auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
mannsins míns,
HARÐAR BJARNASONAR.
Margrét Hjálmarsdóttir.