Morgunblaðið - 03.07.1998, Blaðsíða 60
MeWitfd
-setur brag á sérhvern dag!
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
ÞAÐ vo'ru margir sem drógu
fram regnhlífar og regnkápur í
gær en þær hafa fengið að
liggja í skápum Reykvíkinga
undanfarið.
Tugir ábendinga um
peningaþvætti á ári
JÓN H. Snorrason, saksóknari og
yfirmaður efnahagsbrotadeildar rík-
islögreglustjóra, segir að ríkislög-
reglu berist árlega tugir ábendinga
um vafasöm viðskipti frá fjármála-
stofnunum. „Við fáum e.t.v. ábend-
ingar frá bönkum sem síðan eru
kannaðar. Við vinnum svo úr þessum
ábendingum og stundum komumst
við að frumbroti glæpsins, t.d. fíkni-
efnasölu."
Jón segir að enn sem komið er
hafí ekki verið ákært fyrir peninga-
þvætti hér á landi. „Það þýðir þó
ekki að ekkert sé um peningaþvætti
hér, því að ágóði af fíkniefnasölu,
Frumvarp um víð-
tækari iög fyrir
Alþingi í haust
skattsvikum og smygli nemur
hundruðum milljóna hér á landi á
ári og afrakstur þessara brota er
a.m.k. að hluta til þvættur hér á
landi með því að fjárfesta í húsum,
bflum og skuldabréfum. Með því er
ólöglegum ágóða komið í eign.“
Að sögn Johns Carlsens, sem
undanfarna daga hefur dvalið hér á
landi til að kanna íslenska kerfið og
peningaþvætti, er peningaþvætti
að færast frá bönkum til annars
konar fjármálastofnana og starf-
semi.
Til stendur að leggja nýtt frum-
varp um peningaþvætti fyrir Al-
þingi í haust. I því eru núverandi
lög víkkuð út, sérstaklega með tilliti
til starfsstétta sem geta tengst pen-
ingaþvætti eins og^ lögfræðinga og
endurskoðenda. I í'rumvarpinu
verður útfærð ábyrgð aðila, sem
koma að peningaþvætti, gagnvart
refsilögum.
■ Erfitt að meta/10
Jón Steinar Gunnlaugsson svarar
Halldóri Guðbjarnasyni
íviuiguiiuiauiu/rxi iiaiuui
ÞESSI hnáta á Tjarnarborg var ekki mjög sæl með rigninguna
enda ekki eins gaman að leika úti í rigningu og í sól.
Undirritun fylgir
ábyrgð á efninu
JÓN Steinar Gunnlaugsson hæsta-
réttarlögmaður segir málflutning
Haildórs Guðbjamasonar, fyrrver-
andi bankastjóra Landsbankans, um
að hann beri ekki ábyrgð á efni svar-
bréfs til viðsldptaráðherra sem hann
hafði undirritað ásamt öðrum banka-
stjóra, með ólfldndum. Þetta kemur
fram í svari Jóns Steinars sem birt
er í Morgunblaðinu í dag við bréfí
Halldórs, sem birtist í blaðinu í gær.
„Auðvitað er það deginum ijósara
að með undirritun bréfs, sem hefur
að geyma upplýsingar um stað-
reyndir máls, er tekin ábyrgð á efni
þess, bæði gagnvart móttakanda
bréfsins og einnig gagnvart þeim
aðila sem undirritað er fyrir, í þessu
tilviki Landsbanka Islands hf. Engu
máli skiptir hvort það er venja sem
stendur til þess að tveir bankastjór-
ar skrifí undir eða aðrar ástæður.
Með tveimur undirskriftum er verið
að treysta grundvöll bréfs. Hann
verður traustari fyrir þá sök að
tveir bankastjórar taka með nafn-
ritun sinni báðir ábyrgð á efninu.
Undirritanir þeirra geta engan ann-
an tilgang haft. Hvor þeirra um sig
ræður því hvort hann treystir hin-
um eða eftir atvikum þeim undir-
mönnum sem tekið hafa þær upp-
lýsingar saman sem í bréfi birtast.
Hann getur ekki dregið úr ábyrgð
sinni með því að upplýsa á eftir, að
hann hafí ekki kynnt sér sjálfur þá
upplýsingaöflun sem að baki bjó,“
segir Jón Steinar m.a. í svari sínu.
Regn í
Reykjavík
EFTIR mikla þurrkatíð á höfuð-
borgarsvæðinu fór að rigna í
gær. Sóldýrkendur eru væntan-
lega ekki alltof ánægðir en fyrir
marga boðar rigning betri tíð.
„Við erum hæstánægð með
rigninguna og vonum að hún vari
a.m.k. einn dag í viðbót,“ sagði
Guðný Olgeirsdóttir, yfirverk-
stjóri hjá Skrúðgörðum Reykja-
víkur. „Við höfum verið að bíða
eftir rigningu, gróðurinn var
orðinn svo þurr að hann var far-
inn að gulna. Við urðum líka að
hafa mjög marga starfsmenn í
vökvun. A móti kemur að nú
sprettur illgresið mun betur en
það er líka allt í lagi.“
Ásgeir Heiðar, leigutaki Laxár
í Kjós, tók undir með Guðnýju en
fannst þó ekki rigna nóg. „Við
þurfum miklu meiri rigningu en
þetta, það rignir heldur ekki eins
mikið hjá okkur og í Reykjavík,
því miður. Það rigndi í morgun
[gærmorgun] og hækkaði örlftið í
ánni og reyndar kom mjög mikið
af fiski í kjölfarið í Laxá, en
þetta er engan veginn nóg.“
„Eg hef verið svo hæstánægð
með sumarið til þessa að ég hef
ekkert saknað rigningarinnar,“
sagði Aðalheiður Helgadóttir
sem tínir ánamaðka og veiðir í
frístundum. „En það er auðvitað
gott að tína í rigningu og ég
stenst örugglega ekki mátið og
fer út að tína fljótlega. Það er
líka mjög gott að veiða í rigningu
þannig að ég kvarta ekki yfir
veðurbreytingum."
Rigningunni íylgir breyttur
klæðnaður og Fanney Lára Ein-
arsdóttir, verslunarstjóri 66 gráð-
ur norður/Max, sagði að það hefði
verið mikið að gera í gær. „Það
hefur farið mikið af regnfatnaði í
dag, margt fólk er á leiðinni út úr
bænum og lætur rigningu ekki
stöðva sig heldur Ijárfestir frekar
í útivistarfatnaði."
Davíð Oddsson forsætisráðherra um sameiginlegan gjaldmiðil Evrópuríkja
Afstaða endurskoðuð gangi
helstu viðskiptalönd í EMU
EKKI er talin ástæða til þess fyrir Islendinga að hafa áhyggjur af stofnun
Efnahags- og myntbandalags Evrópu, EMU, og upptöku nýrrar Evrópu-
myntar, evru eða evrós, hjá 11 Evrópuríkjum um næstu áramót, að mati
samráðshóps um áhrif Efnahags- og myntbandalags Evrópu á íslenskt
efnahagslíf sem skilaði áliti sínu í gær.
Gallar á meðferð sönn-
unargagna hjá lögreglu
34 ÁRA karlmaður var í gær sýkn-
aður af ákæru um innbrot í verslun-
ina Straumnes í Breiðholti, þar sem
honum var gefið að sök að hafa haft
á brott um átta hundruð þúsund
krónur. Dómarinn taldi meðferð
lögreglu á sönnunargagni, vind-
lingsstúfí sem fannst í versluninni,
mjög ábótavant.
Innbrotið var framið í júní í fyrra.
Starfsfólk verslunarinnar fann vind-
ling strax þegar verið var að
hreinsa til eftir innbrotið, þótt lög-
•regla hefði ekki fundið hann við
vettvangsrannsókn. Stubburinn var
settur í innsiglað umslag og sendur
rannsóknarstofu í réttarlæknis-
fræði en þegar hann kom þangað
hafði innsiglið þegar verið rofið.
Niðurstaða DNÁ-rannsóknar sýndi
fram á að yfirgnæfandi líkur væru á
að ákærði hefði reykt vindlinginn en
hann neitaði eindregið að hafa
framið innbrotið.
1 dóminum er því hafnað að vind-
lingurinn sé fullgilt sönnunargagn.
Gegn neitun ákærða sé ekki hægt
að sanna sekt hans.
■ Vörslu á sönnunargagni/11
í áliti samráðshópsins kemur
fram að áhrif myntbandalagsins,
sem verður til um næstu áramót,
geti orðið bæði jákvæð og neikvæð
fytár íslenskt efnahagslíf.
Helstu viðskiptalönd ekki með
Áhrifa breytinganna mun gæta
mest hjá fjármálastofnunum og
einnig hjá fyrirtækjum sem flytja
út vöi-ur til Evrópu. Helstu við-
skiptalönd Islands í Evrópusam-
bandinu, Svíþjóð, Danmörk og
Bretland, ætla ekki að verða með í
myntbandalaginu við stofnun þess.
Ef löndin hins vegar ganga í EMU
eftir árið 2002, sem búist er við að
gerist, þegar evran verður orðin
lögeyrir í þeim 11 löndum sem taka
sameiginlega upp gjaldmiðilinn, er
að sögn Davíðs Oddssonar forsætis-
ráðheiTa ástæða til að endurskoða
afstöðu íslands til EMU.
„Ef þessi ríki kæmu til með að
verða í myntbandalaginu snemma á
næstu öld þá má segja að þunginn í
okkar utanrfldsviðskiptum sem eiga
sér stað innan myntbandalagsins sé
orðinn helmingi meiri en við nú-
verandi aðstæður. Það er ljóst að ef
löndin ganga í myntbandalagið, þá
hefur stófnun þess gengið vel og
þar með er ástæða íyrir okkur að
endurskoða okkar afstöðu, það væri
heimskulegt að gera það ekki,“
sagði Davíð Oddsson.
Einhliða og tvíhliða
tengingar skoðaðar
Olafur Davíðsson, ráðuneytis-
stjóri og formaður samráðshóps-
ins, sagði að með þátttöku þessara
þjóða myndu hugsanlega verða
skoðaðar einhliða og tvíhliða teng-
ingar íslensku krónunnar við evr-
una. „Þá verður reynsla komin á
evruna og einnig komin reynsla á
hvernig Islendingum hefur gengið
að haga efnahagslífí sínu í nýju
umhverfi."
■ Áhrif einkum á/9
Lögfræðiálit virðist skrifað til
að þjóna málflutningi Halldórs
Jón Steinar gagnrýnir einnig
álitsgerð tveggja lögfræðinga, sem
unnin var að beiðni Halldórs, en
þeir komust að þeirri niðurstöðu að
þrátt fyrir meðundirritun Halldórs
undir bréfín beri hann ekki starfs-
lega ábyrgð á þeim mistökum sem
urðu við samantekt þeirra. Jón
Steinar bendir á að ef skilningur
lögfræðinganna tveggja væri réttur
fælist í því aðferð til að gera upplýs-
ingar í bréfi trúverðugar með nafn-
ritunum en hlaupa svo frá öllu sam-
an síðar, þegar í ljós er komið að
þær reynast rangar. Jón Steinar
segir að umrætt lögfræðiálit virðist
vera skrifað í því skyni að þjóna
málflutningi Halldórs.
■ Ekki hægt að hlaupast/12
Hitabylgja á
Austurlandi
SANNKÖLLUÐ hitabylgja
lagðist yfir austanvert landið í
gær. Hitamælir á lögreglustöð-
inni á Egilsstöðum sýndi 29,6
gráður um miðjan dag í gær í
forsælu. Kl. 22 í gærkvöldi var
hitinn enn 24 gráður og lá mist-
ur yfir öllu svo ekki sá til sólar.
Að sögn lögreglumanns á Seyð-
isfirði komst hitinn þar upp í 26
gráður.