Morgunblaðið - 03.07.1998, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1998 25
UMHVERFISVERND í BANDARÍKJUNUM
VERULEGUR árangur hefur náðst í að draga úr loftmengun frá bandarískum fyrirtækjum.
Erfiðlega hefur hins vegar gengið að draga úr mengun frá bifreiðum.
20x 20
Afmælishappdrætti SL
„Glaðningur með
gjaldeyrinum”
ÍSLAN DSBANKI
Þeir sem duttu í lukkupott Samvinnuferða-Landsýnar þann
20. júní sl. fá 5.000 kr. gjaldeyrisúttekt hjá íslandsbanka.
Gegn framvísun þessarar úttektar í íslandsbanka fá
vinningshafarnir mjúkt og vandað baðhandklæði.
Handklæðinu fylgir póstkort sem þú getur stílað á íslands-
kannski 10 þingmenn ljá honum at-
kvæði sitt.
Starfsmenn umhverfísnefndar
fulltrúadeildarinnar sögðust ekki
hafa neina trú á að reynt yrði að fara
með samninginn í atkvæðagreiðslu
fyrir þing- og forsetakosningarnar
árið 2000. Peir viðurkenndu að and-
staðan við samninginn væri mjög
mikil og ekki væri meirihluti fyrir
honum í þinginu nú.
Ved Nanda, prófessor við Háskól-
ann í Colorado og stuðningsmaður
Kyotosamningsins, segir að saga
Bandaríkjanna sýni að það sé breyti-
legt frá einum tíma til annars hvað
Bandaríkin séu viljug til að taka þátt
í alþjóðlegum samningum. Núna sé
mikil andstaða við slíka samninga
meðal stjórnvalda, en hann segist
þess fullviss að þetta muni breytast.
Hann bendir á að þegar umhverfis-
samtök tóku að notfæra sér
NAFTA-samninginn í baráttu sinni
fyrir umhverfisvernd í Bandaríkjun-
um hafi það valdið mikilli reiði meðal
áhrifamanna í landinu.
Samningurinn skuldbindur aðild-
arlöndin, Bandaríkin, Kanada og
Mexikó, til að setja vissar lágmarks-
reglur í umhverfismálum til að koma
í veg fyrir að þau geti í skjóli slakra
umhverfisreglna náð til sín fyrir-
tækjum og atvinnutækifærum. Ovin-
sældir NAFTA-samningsins í
Bandaríkjunum komi niður á stuðn-
ingi við Kyotosamninginn.
Umfangsmikil hreinsun
mengaðra svæða
Andstaða Bandaríkjastjómar við
að fallast á strangar takmarkanir á
losun gróðurhúsalofttegunda út í
andrúmsloftið í Kyotosamningnum
var fyrir marga sönnun þess að
Bandaríkin væru ekki tilbúin til að
leggja mikið á sig til að stöðva meng-
un í heiminum. Dr. Robert Rycroft
segir að Bandaríkin hafi almennt
slæmt orð á sér í umhverfismálum
og að þeir séu langt á eftir V-Evrópu
þar sem vitund fólks um nauðsyn
þess að fara vel með umhverfi sitt sé
miklu almennari en í Bandaríkjun-
um. Því verður samt ekki á móti
mælt að Bandaríkin gera margt vel í
umhverfismálum.
Líklega er hvergi í heiminum eins
mikil tæknikunnátta á þessu sviði.
Skýringin er m.a. sú að Bandaríkja-
menn virðast trúa afar sterkt á að
hægt sé að leysa öll umhverfisvanda-
mál með tæknilegum lausnum. Peim
virðist einnig ganga betur að leysa
afmörkuð staðbundin umhverfis-
vandamál en stór vandamál sem ná
til landsins alls eða umheimsins.
Bandaríkjamenn hafa t.d. tekið af-
ar fast á stórum erfiðum mengunar-
málum þar sem eiturefni og þung-
málmar hafa borist í jarðveg og
grunnvatn. A vegum Umhverfis-
stofnunar Bandaríkjanna (EPA) hef-
ur frá árinu 1980 verið í gangi um-
fangsmikið verkefni sem miðar að
því að finna slíka mengun og hreinsa
hana upp. Samkvæmt lögum ber fyr-
irtæki sem veldur mengun að standa
straum af kostnaði við að hreinsa
hana. Oft er ágreiningur um hver á
sökina og hefur EPA stundum þurft
að standa í langvinnum dómsmálum
til að fá mengunarvalda dæmda til
að greiða útlagðan kostnað. Sum fyr-
irtækin hafa orðið gjaldþrota áður
en mengunin var uppgötvuð og í öðr-
um tilvikum eiga stofnanir ríkisins,
ekki síst bandaríski herinn, sök á
menguninni. Alríkisstjórnin hefur
því þurft að bera um 25% kostnaðar-
ins.
Paula Estornell, verkfræðingur
hjá EPA, segir að þetta verkefni hafi
reynst stæiTa og umfangsmeira en
menn hafi gert ráð fyrir. í upphafi
hafi verið rætt um nokkur hundruð
mengunarstaði sem þyrfti að þrífa,
en þegar sé búið að greina 1.500 og
stöðugt fleiri staðir séu að finnast. I
mörgum tilfellum taki fjölda ára eða
jafnvel áratugi að ljúka hreinsun. A
sumum þessara svæða séu í dag golf-
vellir eða garðar. Arangurinn af
starfinu sé því greinilegur. Oft hafi
landeigandi náð að hagnast umtals-
vert á landinu eftir að hreinsun var
lokið.
Mikil mengnn
frá hernum
I nágrenni Denver í Colorado
voru tveir svona mengaðir staðir þar
sem unnið hefur verið að hreinsun í
bráðum áratug. A öðrum staðnum
var framleitt sinnepsgas og á hinum
var herinn með mjög mengandi
starfsemi sem m.a. tengdist fram-
leiðslu kjarnorkuvopna. Morgan
Smith, talsmaður Coloradoríkis,
segir að á sínum tíma hafi það verið
álit margra sérfræðinga að það yrði
ekki þorandi fyrir fólk að koma ná-
lægt þessum svæðum næstu hund-
rað árin, svo menguð hafi þau verið.
Þau hafi verið afgirt og enginn skipt
sér af þeim í mörg ár. A öðru svæð-
inu hafi þróast merkilegt fuglalíf
þrátt fyrir að það sé enn talsvert
mengað.
Glíman við alvarleg og erfið meng-
unarvandamál hefur leitt til þess að
Bandaríkin hafa þróað fullkomna
tækni á þessu sviði. í Denver er t.d.
mjög öflugur iðnaður á sviði meng-
unarvarna sem Smith segir að sé
mikilvægur hluti af atvinnulífi borg-
arinnar. Hann segist hafa verið að
benda forsvarsmönnum iðnaðarins á
að þeir verði að huga meira að út-
flutningi á þessari tækni. Hreinsun
mengaðra svæða í Bandaríkjunum
hafi skilað miklum árangri og vart sé
að búast við því að sala á tæknikunn-
áttu á þessu sviði aukist mjög mikið
innan Bandaríkjana.
Uppruna mengunar
leitað
Bandaríkin leggja mikla áherslu
á að finna þann sem á sök á meng-
uninni. Á vegum Umhverfisstofnun-
arinnar í Denver er rekin öflug
rannsóknarstofa, en eitt af megin-
hlutverkum hennar er að greina
mengunarsýni og finna hver á sök-
ina. Diana Love, forstöðumaður
EPA í Denver, segir að öll vinna
stofnunarinnar miðist við að málin
geti endað fyrir dómstólum og þess
vegna verði vísindamenn hennar að
vinna eins og lögreglumenn. Peir
verði að geta varið rannsóknarnið-
urstöðu sína fyrir dómstólum og
geta lagt fram sannanir fyrir öllum
niðurstöðum. Rannsóknarstofan
tekur m.a. að sér verkefni fyrir aðr-
ar stofnanir EPA, dómsmálaráðu-
neytið og’FBI.
Fyrir tveimur ánim setti Love á
stofn nýja deild við stofnunina sem er
skipuð sérfræðingum á sviði tölvu-
tækni. Hlutverk þeirra er að fara inn
í fyrirtæki sem eru til rannsóknar og
finna upplýsingar í viðkomandi tölvu-
kerfi sem getur komið að gagni við
rannsóknina. Paula Smith, deildar-
stjóri tölvudeildar, segir að fyrirtæki
reyni oft að leyna upplýsingum eða
afhenda rangar upplýsingar um
starfsemi sína. Tölvudeildin hafi náð
miklum ái-angri við að upplýsa brot á
umhverfisreglum, árangri sem ekki
hefði náðst ef menn hefðu ætlað sér
að fara eingöngu í gegnum prentuð
skjöl.
Brot á umhverfislögum
fyrir dómstólum
Það kemur Islendingi, sem ferðast
til Bandaríkjanna að kynna sér um-
hverfismál, á óvart hversu barátta
fyrir bættu umhverfi í Bandaríkjun-
um er að stórum hluta háð fyrir
dómstólum. Það er ekki bara að
EPA þurfi að elta mengunarvalda
með her lögfræðinga. Iðnfyrirtæki
fara oft í mál við EPA vegna reglu-
gerða sem stofnunin setur eða af-
skipta hennar af starfsemi þeirra.
Einstaklingar og umhverfissamtök
hafa á síðustu tveimur áratugum
lært að notfæra sér lögin og dóms-
kerfið í baráttu sinni fyrir betra um-
hverfi.
Við Háskólann í Colorado er starf-
andi sérstök deild sem kennir lög-
fræðingum umhverfisrétt og hvernig
best sé að standa að málum þegar
barist er fyrir umhverfið í dómssöl-
um. Deildin er stai-frækt í samvinnu
við samtökin Earthlaw, en það eru
samtök lögfræðinga sem taka að sér
mál fyrir umhverfissamtök. Lög-
fræðingarnir vinna ókeypis fyrir
skjólstæðinga sína. Á síðasta ári
unnu samtökin 24 mál og töpuðu
tveimur. Earthlaw tókst m.a. fyrir
dómi að stöðva skógarhögg í öllum
11 skógum í eigu ríkisins í New Mex-
ico og Arizona. Samtökunum tókst
einnig að notfæra sér ákvæði í
NAFTA-samningnum, sem skuld-
bindur Bandaríkin, Kanada og
Mexíkó í umhverfismálum, til að
grípa til aðgerða vegna vatnstöku í
Arizona sem var farin að hafa alvar-
leg áhrif á grunnvatnsstöðu.
Samtökunum tókst einnig að
stöðva skógarhögg á svæði, sem er
álíka stórt og New Jersey, vegna
áhrifa sem skógarhöggið hafði á lífs-
afkomu blettauglunnar, en hún er á
lista yfir dýr í útrýmingarhættu.
Mark Huges, forstöðumaður deild-
arinnar og meðlimur í Earthlaw, seg-
ir að lögfræðingar með sérþekkingu
á umhverfisrétti njóti mikillar virð-
ingar í Bandaríkjunum og mikil eftir-
sókn sé meðal ungra lögfræðinga eft-
ir að tileinka sér sérþekkingu á þessu
sviði. Ástæðan sé m.a. sú að með
sigri á þessu sviði geti menn haft
mikil áhrif á umhverfi sitt.
banka og sent frá sumarleyfisstaðnum þínum. Sá sem
sendir skemmtilegasta póstkortið vinnur helgarferð fyrir
tvo til Dublin í haust með Samvinnuferðum-Landsýn!
Þessir duttu I lukkupottinn þann
20. ]úni og fá sendan skemmti-
legan glaðning á næstu dögum!
Bknr. Nafn
136519 Lára Kemp
141210 Guðríður Sigurðardóttir
151249 Valdimar Davíösson
2527 Halla Ingólfsdóttir
143430 Rafn Magnússon
196163 Kristín Magnúsdóttir
136819 Einar Sigurðsson
186323 Rósa Matthíasdóttir
178029 Rósa Svansdóttir
250867 Jóhanna Þorleifsdóttir
158024 Sigurbjörg Sigurjónsdóttir
182792 Jóhannes Sigfússon
7206 Hrönn Róbertsdóttir
560512 Friðrik Sófusson
167010 Ólafur Ragnar Birgisson
554517 Bragi Guðmundsson
158046 Jóhannes Gunnarsson
184247 Haraldur Benediktsson
2952 Grettir Pálsson
171746 Jón Jóhannsson
Við erum við símann:
Virka daga frá kl. 9 - 22
Laugardaga frá kl. 12 -16
Sunnudaga frá kl. 16 -18
Bókunarsíminn er: 569 1010