Morgunblaðið - 03.07.1998, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1998 43 r
þinni stuðning hinum megin frá.
Elsku Elsie! I huga okkar ertu
hetja. Þú hefur staðið eins og klettur
með Erni og barist áfram af ótrúleg-
um dugnaði. Hugur okkar og bænir
eru hjá þér og krökkunum.
Þar sem ekkert þiðnað getur,
þegar ríkir kaldur vetur:
liggur þú í líni mjallar -
langt fyrir ofan kreddrn- allar.
Leikur um þig lúðurhljómur;
landvættanna storma rómur.
Hringja þeir í hamradröngum
hátt og lágt með yfirsöngum.
Um þig tónar isju-kaldi
undir norðurljósa faldi.
Stök og þögul stjama um nóttu
starir til þín ffam að óttu.
Veg sinn fer um vetrarheiði,
vakir yfir þínu leiði;
um þig glóa elda lætur. -
Ofurhugi, góðar nætur!
(Guðm. Friðjónsson.)
Ómar og Brynja, Jóna og
Magnús, Sveinbjörn og
Svava, Þórdís og Sívar.
Það var að mig minnir árið 1991
sem Örn hóf störf í lögreglunni í
Keflavík en haðfi starfað í lögregl-
unni á Keflavíkurflugvelli frá 1987.
Þegar Örn kom til starfa í Keflavík
var hann settur saman á bíl í eftilit
sem byrjaði ekki glæsilega. Við kom-
um að ákveðnu máli þar sem ég var
sáttur við mína afgreiðslu á málinu
og lét þá skoðun sína óspart í ljós
bæði við mig og varðstjórann. Eftri
að hafa rætt afgreiðslu málsins þar
sem báðir komu sínum skoðunum á
framfæri kom aldrei hnökur á okkar
samstarf og ekki nóg með það heldur
tókst með okkur og fjölskyldum okk-
ar mikill vinskapur sem staðið hefur
alla tíð síðan.
Örn hafði mjög ákveðnar skoðan-
ir á lögreglustarfinu og sinnti því að
mikilli festu. hann var ekkert að
skafa utan af hlutunum þegar hon-
um þótti einhver ekki haga sér sem
skyidi. Það er óhætt að segja að fólk
það er hann hafði afskipti af hafi
brugðist misjafnlega við að heyra
hvað honum fannst um háttarlag
þess. Það vita þeir sem Örn þekktu
að það var ekki hans stíll að fara
eins og köttur í kringum heitan
graut. Ég og Örn vorum á sömu
vakt nærri allan þann tíma sem
hann starfaði í lögreglunni í Kefla-
vík. Undir það síðasta var hann orð-
inn það þróttlítill að hann hafði ekki
úthald í að standa næturvaktir
þannig að hann stóð dagvaktir. Örn
mætti til vinnu að minu mati lengur
en eðlilegt gat talist. Ég minnist
þess að þegar sjúkdómurinn upp-
götvaðist var hann settur í geisla-
meðferð. Ekki þótti honum ástæða
til að vera allan daginn frá vegna
þess, heldur fékk hann að skreppa
til Reykjavíkur þar sem hann fór í
geislana og mætti síðan að því loknu
aftur til vinnu og kláraði vaktina.
Það má vera að það hafi verið tillits-
leysi af minni hálfu fyrir tveimur ár-
um síðan að ég bað Örn að flísa-
leggja baðherbergi á heimili mínu.
Örn sagði já og flísalagði baðher-
bergið fái-veikur. Flísalögnin tók
hann reyndar nokkurn tíma en biðn
var rúmlega þess virði því að baðið
er sannkallað listaverk.
Örn var í mínum augum mikill
merkis maður. Hann var mjög
ákveðinn og lá ekki á skoðunum sín-
um varðandi menn og málefni.
Hann var fyrir utan að vera lög-
reglumaður lærður múrari og átti
eitthvað lítið eftir til að geta tekið
sveinspróf í húsasmíði. Það var
sama hvað hann tók sér fyrir hend-
ur, allt lét í höndum þessa manns.
Fyrir utan að vera áhugasamur um
starf sitt hafði Örn mikinn áhuga á
flugi og má segja að módelflug hafi
átt hug hans alian. Örn smíðaði sínar
flugvélar sjálfur og hafði útbúið sér
litla og snyrtilega aðstöðu í bílskúm-
um heima hjá sér þar sem hann
eyddi talsverðum tíma í smíðar og til-
raunir. Einnig hafði hann nokkurn
áhuga á skotvopnum og stundaði
skotveiðar í einhverju mæli.
Stórt skarð er höggvið í lögreglu-
lið Keflavikur þar sem svipmikill
persónuleiki er fallinn frá. Sagt er
að maður komi í manns stað, en mitt
álit er að enginn komi í stað Arnar.
Elsku Elsí og fjölskylda, sorg
ykkar og söknuður er mikill. Þess
óska ég og fjölskylda mín að algóður
Guð styðji ykkur og styrki um
ókomna tíð.
Magnús I. Jónsson.
Ég kynntist Erni fyrst fyrir rúm-
um 11 áram þegar fjölskyldan fluttist
í Grænás. Milli mín og Hildar tókst
mikill vinskapur og eftir það var ég
tíður gestur á heimilinu. Síðustu árin
voru heimsóknirnar ekki eins marg-
ar, en ávallt tók hann mér jafnvel
þegar ég hitti hann á götu.
Ég mun minnast hans sem mikils
baráttumanns sem var fylginn sér.
Elsku Hildur, Sæmundur og fjöl-
skylda, ég votta ykkur mína dýpstu
samúð. Guð veri með ykkur.
Kæri Örn ég kveð þig hér.
Drottinn er minn hirðir,
mig mun ekkert bresta.
A grænum grundum lætur hann mig
hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næóis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert iljt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býrð mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgi mér
alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég langa ævi
(23. Davíðssálmur.)
Ykkar vinkona
Berglind Leifsdöttir.
Fallinn er nú frá eftir langvarandi
baráttu við sjúkdóm, vinur okkar og
félagi, Örn Kjæmested. Okkui' langar
í fáum orðum að minnast hans og
þakka honum iyrir góð kynni sem
vörðu í alltof stuttan tíma. Erni
kynntist ég þegar ég byrjaði í lögregl-
unni í Keflavík og tókst með okkur
mikill kunningsskapur sem hélst alla
tíð. Eiginkonur okkar unnu einnig
saman á skrifstofu fyrirtækis hér í
bæ, þannig að samgangur var mikill.
Margar góðar minningar hrannast
upp þegar við látum hugann líða til
baka. Örn var mikill vexti og hraust-
menni. Hann vann mikið á milli vakta
við múi'verk og flísalagnir og liggja
eftir hann mörg góð verk. Oft vorum
við Örn tveir saman á eftirlitsferðum
og þótt áhugamálin væru ekki þau
sömu gátum við spjallað um allt og
ekkert tímunum saman. Einnig var
stundum setið í eldhúsinu á Gónhóln-
um í húsinu sem Örn byggði og
drukkið þar kaffi og þegið meðlæti
sem Elsie töfraði fram og hljómaði þá
jafnan mikill hlátur eftir einhverja
góða söguna. Oftar en ekki bar á
góma áhugamál Arnar sem tengdist
flugmódelum og flugi almennt.
Einnig var honum veiði hugleikin og
höfðum við ákveðið að fara saman
með fjölskyldur okkar í veiðitúr en
ekki varð af því. Síðasta sumar kom
hann ásamt Elsie og tveimur sonum
þein-a, Jón Oddi og Gunnari Emi, í
heimsókn til okkar í sumarbústað í
Hraunborgum. Þar skemmtum við
okkur vel saman en sjá mátti hvað
Örn var orðinn þjáður þá, en þó hafði
hann það af að keyra sjálfur báðar
leiðir.
Stai-fið var honum hugleikið og
hafði hann mikinn metnað til að
standa sig vel þar, sem og hann gerði.
Síðustu mánuði hans í starfi voru
honum erfiðir þar sem greinilegt var
að sjúkdómurinn dró úr honum mik-
inn mátt. Samt gat maður ekki annað
en dáðst að baráttuþreki hans og vilja
til að vinna bug á sínum veikindum
því hann leitaði alh'a leiða ásamt
Elsie til að fá bót meina sinna. Örn
var maður sem neitaði að gefast upp
og talaði hann mikið um það hvað
hann ætlaði að gera þegar hann stigi
upp úr veikindunum.
Ékki er hægt að láta hjá líða að
minnast á Elsie, kraft hennar og bar-
áttuþrek, en hún var Erni mikil stoð í
veikindum hans og dreif hann áfram
þegar honum fannst allir vegir lokað-
ir. Elsie, við höfum dáðst að krafti
þínum og jákvæðni og vonum að þú
haldir áfram að vera eins sterk og þú
hefur verið. Þú veist af okkur í næstu
götu og þú átt okkur ávallt að.
Elsku Elsie, börn og aðrir aðstand-
endur. Missir ykkar er mikill en góð-
ur guð styðji ykkur í sorg ykkar og
söknuði. Minningin um Örn mun lifa í
hjarta okkar sem hann þekktum.
Hrannar og María.
\
|ÉB|
sgs
- - JlSS
•jó^I í*53q gbí<b .ainL,
JM Jíitsson
• !0Ut5 54’ •
REIÐUFE
Þú átt greiða leið að reiðufé
í næsta banka eða hraðbanka!
Hraðbankar eru nú orðnir
yfir 150 á landinu öllu og er
að finna við helstu bankaútíbú
og innan seilingar við íjölmargar
verslunarmiðstöðvar.
Með VISA kortíð upp á vasann og
PIN-númerið* bakvið eyrað geturðu
því náð þér í skotsilfur í skyndi
hvenær sem þú þarft á að halda,
jafnt á afgreiðslutíma
BÓNUS OG ÁTVR
sem á kvöldin og um helgar.
L/EKKAÐ ÚITEKTARGJALD!
*PIN (Persónulegt InnsláttarNúmer) Hafðu strax samband við VISA eða
bankann/sparisjóðinn þinn ef þú þarft að fá PIN-númer þitt endurútgeöð.
Leggðu það síðan á minnið og haltu því leyndu fyrir öðrum.
Heimildir til úttektar með Almennu korti og Farkorti
eru bundnar við að 10.000 kr. á dag og 40.000 kr. á úttektartímabili
en mega vera helmingi hærri með Gullkorti.
VISA - GREIÐSLUÞJÓNUSTA SNIÐIN AÐ ÞÍNUM ÞÖRFUM!