Morgunblaðið - 03.07.1998, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1998 5 V*
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Háskólabíó sýnir dramatísku spennumyndina Twilight með Paul Newman, Susan
Sarandon og Gene Hackman í aðalhlutverkum. Leikstjóri myndarinnar er Robert Benton
sem hlaut á sínum tíma Oskarsverðlaunin fyrir Kramer vs. Kramer.
Utbruiminn
en til í tuskið
Frumsýning
HARRY Ross (Paul Newman) er
gamall og útbrunninn fyri-verandi
lögreglumaður og einkaspæjari í
Los Angeles sem ákveður að rétta
tveimur fornvinum sínum hjálpar-
hönd, en það eru hjónin Jack Ames
(Gene Hackman), sem eitt sinn var
fræg kvikmyndastjarna, og
Catherine (Susan Sarandon). Fyrr
en varir kemst Ross að því að hann
hefur dregist inn í hringiðu flókins
morðmáls, þar sem við sögu kemur
fjárkúgun, kynlífshneyksli og ýmis
önnur siðferðileg álitamál. Ross
hefur komið víða við í lífinu og
lengi barist við áfengissýki, en
innra með honum lifir alltaf þörfin
fyrir að komast að sannleikanum.
Hann er traustur og áreiðanlegur
og vinur vina sinna og því leggur
hann sig allan fram um að leggja
hjónunum lið þegar þau þurfa á að-
stoð hans að halda.
í Twilight liggja leiðir
Oskarsverðlaunahafans Paul
Newmans og leikstjórans og hand-
ritshöfundarins Robert Bentons
saman á nýjan leik, en þeir unnu
saman við gerð myndarinnar
Nobody’s Fool. Benton fékk á sín-
LEIKSTJÓRINN Robert Bent-
on og Paul Newman slá á létta
strengi við tökur á Twilight.
um tíma Óskarsverðlaunin bæði
fyrir leikstjóm og handrit sitt að
myndinni Kramer vs. Kramer, og
einnig hlaut hann verðlaunin fyrir
handrit sitt að myndinni Places in
the Heart. Eftir nám í kvikmynda-
gerð starfaði Benton hjá tímaritinu
Esquire um nokkurra ára skeið, en
fyrsta kvikmyndahandritið skrifaði
hann í samvinnu við David Newm-
an. Það var handritið að Bonny and
PAUL Newman leikur fyrrverandi einkaspæjara sem tekur þráðinn
upp á ný til að veita vinum sínum aðstoð.
HARRY Ross (Paul Newman) ræðir málin við Catherine Ames (Susan
Sarandon).
Clyde og í kjölfarið á mikilli vel-
gengni myndarinnar komust þeir
félagar á samning hjá Warner
Bros. þar sem þeir unnu að hand-
ritagerð. Frumraun hans sem leik-
stjóra var þegar hann gerði mynd-
ina Bad Company eftir eigin hand-
riti en Jeff Bridges fór með aðal-
hlutverkið í henni. Meðal mynda
sem Benton hefur gert síðan eru
The Late Show, Still of the Night
og Nadine.
Benton segist lengi hafa verið
heillaður af leynilögreglusögum, en
The Late Show með þeim Art Car-
ney og Lily Tomlin í aðalhlutverk-
um, sem Benton gerði fýrir 20 ár-
um, fjallaði einmitt um einkaspæj-
ara. „Einkaspæjarinn er rómantísk
borgarhetja sem einatt er í
klemmu milli hugsjóna og tor-
tryggni og samkvæmt hefðinni er
einkaspæjarinn flókin manngerð
sem alltaf hefur vakið hjá mér for-
vitni.“
Paul Newman á að baki glæsi-
legan feril í kvikmyndum og meðal
síðustu mynda hans auk Nobody’s
Fool eru The Hudsucker Proxy,
sem þeir Coen bræður gerðu, Mr.
and Mrs. Bridges, sem James
Ivory leikstýrði, Fat Man and
Little Boy og Blaze. Newman hef-
ur átta sinnum verið tilnefndur til
Óskarsverðlauna og árið 1985 hlaut
hann sérstök heiðursóskarsverð-
laun. Arið eftir hreppti hann svo
loksins Óskarinn fyrir bestan leik í
aðalhlutverki, en það var fyrir hlut-
verkið í myndinni The Color of Mo-
ney þar sem hann lék á móti Tom
Cruise.
Morgunblaðið/Stefán Stefánsson
Athafnasamt
ungt fólk
VERSLUNARMIÐSTÖÐVAR
skjóta upp kollinum um þessar
mundir og er Vesturbærinn í
Reykjavík þar ekki undanskilinn
þvf vísir að slíkri miðstöð er risinn
í kringum hverfisverslunina Kjöt-
borg á Ásvallagötu. Þar eru á
hverju horni ein eða tvær verslan-
ir af minni gerðinni, geta reyndar
varla verið minni enda er yfir-
byggingin í samræmi við það - far-
ið inn í Kjötborg og fenginn tré-
kassi að láni.
Margt er í boði, til dæmis tíma-
rit, greiður, bflar, blýantar og
fleira. Verðið er það lægsta í bæn-
um, hækkaði reyndar er leið á vik-
una því þá var búið að selja allt
það ódýrasta og farið að ganga á
dýrari leikföng og heimilishluti.
Sigrún og Hrönn settu upp
verslun um daginn og rann ágóð-
inn til PKU-barna en það eru börn
sem þola ekki ákveðinn mat, eru
með fæðuóþol. Bjartur og Hrafn-
kell, nokkru yngri en stelpurnar,
stofnuðu einnig verslun hinum
megin við hornið og ætluðu ekki
að nota ágóðann til að kaupa neitt
sem gæti skemmt tennurnar en
byssudót freistaði. f dyrunum
standa Kristján Jónasson kaup-
maður í Kjötborg og Jón Jónsson
heildsali.
NONAME
’ ■■■. COSMETICS .
‘Kynnitig
óiaiia Hrón„ jónsttói,ir Hel9a Sæunn föröunarfræöingur gefur
nonamcantiiiiír?1998 ráöleggingar i dag frá kl. 14-18
Sautján, laugavegi