Morgunblaðið - 03.07.1998, Qupperneq 30
30 FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1998 31 •
STOFNAÐ 1913
UTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
MENNTUN
KENNARA
HIN ALÞJÓÐLEGA TIMSS-könnun á kunnáttu grunn-
skólanemenda í stærðfræði og raungreinum leiddi ber-
lega í ljós að íslenskir nemendur standa illa í þeim fögum.
A undanförnum misserum hefur mikið verið rætt hvað sé til
ráða og í nýrri skólastefnu sem menntamálaráðherra
kynnti í vor er brugðist við þessu með aukinni áherslu á
raungreinakennslu. En eins og bent hefur verið á áður hér í
Morgunblaðinu hlýtur einnig og ekkert síður að vera mikil-
vægt að auka menntun kennaranna á þessum sviðum sem
og reyndar í öðrum kennslugreinum. Bent hefur verið á að
kennaranemar við Kennaraháskóla Islands sem hafa stærð-
fræði, náttúrufræði, móðurmál eða aðrar bóknámsgreinar
að aðalfagi taki aðeins 12,5 einingar í sérgrein sinni en
kennaranámið í heild er 90 einingar. Allir sjá að 12,5 ein-
inga nám getur ekki verið nægilega góður undirbúningur
fyrir kennslustarf í nokkurri grein.
I grein sem birtist í nýjasta tölublaði Skímu, tímarits
móðurmálskennara, ber Gunnar Þorsteinn Halldórsson
saman kennaramenntun hér á landi og í Svíþjóð með hlið-
sjón af móðurmáli og í ljós kemur gríðarlegur munur.
Sænskir kennaranemar, sem sérhæfa sig í kennslu móður-
máls fyrir eldri bekki grunnskóla, taka 65 einingar í móður-
máli og hafa þannig að baki meiri menntun í sænsku en
krafist er af íslenskukennurum í menntaskóla hér á landi. í
greininni kemur auk þess fram að kennaranám í Svíþjóð er
hálfu til einu og hálfu ári lengra en hér á landi eftir því
hvort stefnt er að kennslu á yngra eða eldra stigi grunn-
skólans og að þar er vægi uppeldisfræða minna en hér. Og
sérstaka athygli vekur að í Svíþjóð er meiri áhersla lögð á
menntun kennara í móðurmáli en hér; þar eru 15 móður-
málseiningar í kjarna miðað við 5 hér en þessar 5 einingar
veita hverjum útskrifuðum kennara hérlendis rétt til að
kenna móðurmál í öllum bekkjum grunnskólans. Allir sjá
að þetta er fjarstæða.
Eins og fram kemur í þessari athyglisverðu grein Gunn-
ars Þorsteins hefur nýskipað háskólaráð Kennaraháskóla
íslands nýlega samþykkt að haustið 1999 skuli tekið upp
fjögurra ára kennaranám. Vonandi ber skólinn gæfu til að
breyta áherslum sínum samfara því gæfuspori; það er for-
senda fyrir bættum skóla á Islandi að veldi uppeldis- og
kennslufræðinga verði hnekkt og menntun í kennslugrein-
um grunnskólans verði gefið aukið vægi.
ALDRAÐIR OG
SVEITARFÉLÖGIN
SÍÐUSTU 10 til 15 árin hefur mikið verið byggt af sér-
hönnuðum íbúðum fyrir eldri borgara, fyrst og fremst á
vegum byggingaverktaka, sem selja á frjálsum markaði.
Ólafur Jónsson, fyrrverandi formaður Landssambands
aldraðra, segir í grein hér í blaðinu í gær að þessar íbúðir
hafi „dregið úr og frestað þörfinni fyrir vistun aldraðra á
sjúkrastofnunum. Auk þess hafa þær bætt verulega að-
stöðu fyrir heimilishjálp og heimahjúkrun. Full samstaða
er hjá aðilum sem vinna að málefnum aldraðra um að efla
þá þætti enn verulega og draga með því úr þörfinni fyrir
vistun aldraðra á sjúkradeildum.“
Hins vegar gagnrýnir Ólafur Jónsson harðlega skort á
hjúkrunarrými fyrir aldraða á höfuðborgarsvæðinu, en þar
eru hundruð aldraðra á biðlistum eftir sjúkrarými. Órðrétt:
„Sveitarstjórnarmenn á höfuðborgarsvæðinu hafa komizt
upp með það allan síðasta áratug að vanrækja þennan mik-
ilvæga þátt í velferðarkerfinu að búa vel að öldruðum og
sjúkum ... Sveitarfélögin í nágrenni Reykjavíkur hafa bók-
staflega ekkert gert í heilan áratug til lausnar vanda þessa
fólks, sem byggði upp þessi bæjarfélög, en þarf nú aðstoð
samfélagsins ef heilsan bilar. Flest stærri sveitarfélög á
landsbyggðinni hafa þegar leyst þennan vanda og þar kem-
ur engum sveitarstjórnarmanni til hugar að vísa öldruðu
fólki á heilbrigðisráðuneytið þegar það getur ekki lengur
annast sitt heimili...“
Tillögur greinarhöfundar eru tvær: „I fyrsta lagi verði
öll málefni aldraðra flutt frá ríkisvaldinu til sveitarfélag-
anna með sama hætti og skólamálin. - í öðru lagi verði
Framkvæmdasjóður aldraðra afhentur óskertur til sveitar-
félaganna og gegni þar sínu upphaflega hlutverki, að
byggja upp sjúkradeildir og sambýli fyrir aldraða.“
Þessar tillögur eru allrar athygli verðar og þurfa að fá
vandaða skoðun og umfjöllun.
ÓLYMPÍULEIKARNIR í EÐLISFRÆÐI
Ekki bara
keppni
í dag verða settir Ólympíuleikarnir í eðlis-
fræði í Laugardalshöll. Leikarnir, sem nú
eru haldnir í 29. skipti, eru þeir fjölmenn-
ustu til þessa. Sigríður B. Tómasdóttir
ræddi við aðstandendur keppninnar og fyrr-
verandi og núverandi keppendur.
Morgunblaðið/Jjm Smart
ÞORDIS Eiríksdóttir skrifstofusljóri Olympíuleikanna og Viðar Agústs-
son framkvæmdastjóri.
TÖLVUVERIÐ í Ármúlaskóla, sem sérstaklega hefur verið útbúið fyrir
fararstjóra til að þýða verkefnin.
OLYMPÍULEIKARNIR
í eðlisfræði hófu göngu
sína í Póllandi árið 1967.
Þá tóku eingöngu fimm
þjóðir þátt í leikunum,
Pólverjar, Búlgarar, Tékkar, Ung-
verjar og Rúmenar. Síðan bættust
fleiri Austur-Evrópulönd við, en
fyrsta Vestur-Evrópuþjóðin til að
taka þátt í leikunum voru Frakkar
árið 1972. Árin 1973 og 1980 bauðst
engin þjóð til að halda Olympíuleik-
ana og féllu þeir niður þau ár. Það
eru þvi 29. leikarnir sem íslendingar
standa að.
„Þetta verða fjölmennustu Olymp-
íuleikarnir til þessa,“ segir Viðar
Ágústsson, framkvæmdastjóri leik-
anna. Alls er von á 56 keppnisliðum
frá jafnmörgum þjóðum, en hvert lið
hefur á að skipa fimm keppendum.
Með fylgdarliði er því von á um 500
manns hingað í tengslum við keppn-
ina. „Þátttakendur og fylgdarlið eiga
örugglega eftir að setja svip á borg-
ina,“ segir Þórdís Eiríksdóttir, skrif-
stofustjóri keppninnar. „Þátttakend-
ur koma hingað á fimmtudag og
dvelja hér í viku og af þeim tíma fara
eingöngu tíu tímar í keppnina sjálfa
og þó að hún sé vitaskuld það sem
þetta snýst um þá er svo margt ann-
að sem gerist í kringum þessa
keppni.“
Fjölbreytt dagskrá
fyrir utan keppni
Þegar dagskrá Olympíuleikanna
er skoðuð er ekki annað hægt en
taka undir með Þórdísi. Fararstjór-
um og þátttakendum er boðið í ýms-
ar skoðunarferðir, þó ekki endilega
saman, þar sem þeir mega ekki hitt-
ast allan tímann sem á keppninni
stendur. „Þetta gengur þannig fyrir
sig að fararstjórar fá afhent verkefni
daginn fyrir keppnisdag til að þýða
þau úr ensku, sem er það tungumál
sem verkefnin eru samin á. Við höf-
um komið upp tölvuveri í Fjöl-
brautaskólanum í Ármúla og fær
hver fararstjóri tölvu til umráða sem
hefur stafi tungumáls hans. Eftir að
fararstjórar hafa fengið afhent verk-
efnin mega þeir vitaskuld ekki hitta
keppnislið sitt þar til keppni er lok-
ið,“ segir Viðar.
Vítamínsprauta
á eðlisfræðikennslu
Keppt er í tveimur áföngum, laug-
ardaginn 4. júlí er keppt í kennilega
hlutanum og hafa keppendur fimm
tíma til að leysa verkefnin. Mánu-
daginn 6. júlí er svo keppt í verklega
hlutanum og hafa keppendur einnig
fimm tíma til að
leysa þau verk-
efni. Það tekur
svo tvo daga að
fara yfir verkefn-
in, en að kvöldi 8.
júli er fararstjór-
um kunngerð
stigagjöf dómara
fyrir úrlausn
verkefnanna. Á
fimmtudeginum
eru úrslitin kynnt fyrir þátttakend-
um á keppnisslitahátíð, sem haldin
verður í Háskólabíói.
Heildarkostnaður við Ólympíu-
leikana er 43 milljónir, þar af hafa
sex milljónir farið í kaup á tækjum
sem síðan verður dreift í framhalds-
skólana, og segir Viðar að aðstand-
endur keppninn-
ar vonist til að
þessi kaup virki
sem vítamín-
sprauta á eðlis-
fræðikennslu í
landinu. „Það að
halda þessa
keppni og að hafa
tekið þátt í henni
í gegnum tíðina
skilar sér inn í
framhaldsskólana að því leyti að
metnaður kennara og nemenda
eykst. Þetta er líka eitt af því fáa hér
á landi sem gert er til að leggja rækt
við afburðanemendur."
Ólympíuleikarnir eru einstak-
lingskeppni og er árangur þátttak-
enda reiknaður út eftir meðaltali
þriggja efstu þátttakenda í báðum
hlutum keppninnar. Verðlaun og við-
urkenningar eru veitt eftir þessu
meðaltali. Veitt eru gullverðlaun fyr-
ir yfir 90% árangur af besta árangri,
silfurverðlaun fyrir yfir 78% árang-
ur, bronsverðlaun fyrir yfir 65% ár-
angui' og viðurkenning fyrir yfir
50% árangur. „Þetta er auðvitað
keppni en er líka hugsað sem hvatn-
ing,“ segir Viðar.
Sjö verðlaun
til íslendinga
Islenskir þátttakendur hafa sjö
sinnum verið verðlaunaðir fyrir góð-
an árangur. Einn þeirra, Gunnlaug-
ur Briem, fékk bronsverðlaun en sex
hlutu viðurkenningu, m.a. Jón Ey-
vindur Bjarnason, sem tók þátt í
keppninni í fyrra og tekur þátt í ann-
að sinn nú í ár.
Viðar segir að þrátt fyrir að
keppnin sé opinberlega ekki liða-
keppni stelist fararstjórar yfirleitt til
að reikna út röð liðanna. Viðar, sem
hefur verið tengdur keppninni allt
frá því Islendingar tóku fyrst þátt í
henni, segir íslenska liðið yfirleitt
hafa verið í neðri sætunum. „Það er
ýmislegt sem kemur til, við erum
auðvitað mjög fámenn þjóð, sem er
kannski stærsti hluti skýringarinn-
ar, en svo má ekki gleyma að jafn-
greindir einstaklingar frá Islandi og
e.t.v. Bandaríkjunum eða Kína hafa
mismunandi aðstöðu þannig að Is-
lendingurnn hefur kannski lært eðl-
isfræði í eitt eða tvö ár en hinir í sjö
ár.“
Átta ára aðdragandi
Akvörðunina um að halda Ólymp-
íuleikana hér á landi má rekja allt
aftur til ársins 1990 þegar þáverandi
menntamálaráðherra, Svavar Gests-
son, tók þá ákvörðun að Island yrði
gestgjafi árið 1998. Það kom svo í
hlut Björns Bjarnasonar, núverandi
menntamálaráðherra, að skipa fram-
kvæmdanefnd sem hóf störf haustið
1996. I henni sitja auk Viðars og
Þórdísar þau Þorsteinn I. Sigfússon,
formaður, skipaður af menntamála-
ráðherra, Ásta Þorleifsdóttir frá fé-
lagi raungreinakennara, Ari Ólafs-
son frá Eðlisfræðifélagi Islands, Óm-
ar Einarsson frá ÍTR, Stefán Stef-
ánsson frá menntamálaráðuneytinu
og Sveinbjörn Björnsson frá Há-
skóla Islands og Orkustofnun.
Yfirmenn prófgei'ðar eru þeir Þor-
steinn Vilhjálmsson, prófessor í
eðlisfræði við H.I., og Ari Ólafsson
dósent í eðlisfræði við H.I., sá fyrr-
nefndi er yfir kennilega hlutanum en
sá síðarnefndi tilraunaverkefnunum.
Auk ofantalinna koma fjölmargir við
sögu undirbúnings leikanna og að
þeim á meðan á þeim stendur, m.a.
fær hvert lið leiðsögumann og koma
þeir úr röðum starfsmanna ITR nú í
sumar.
„Við mundum vilja sjá jafnvel enn
fleiri með,“ segir Þórdís. „Við höfum
t.d. í hyggju að hafa svokallaðan
gestgjafakvöldverð fyrir keppendur
nú á laugardagskvöld en það hefur
ekki gengið nægilega vel að fá fjöl-
skyldur til að taka að sér að bjóða
fólki heim. Það sem ég held að fólk
átti sig oft ekki á í sambandi við
þessa leika er hversu margt annað
en keppnin sjálf er í kringum þetta.
Eg fór á leikana í fyrra, þá nýráðin
starfsmaður þeirra, og það kom mér
í rauninni á óvart hvað þetta var allt
skemmtilegt."
Morgunblaðið/Jim Smart
MIKE er gagnagrunnsstjóri á
Olympíuleikunum hér.
Viðfangsefni
sem ögra
nemendum
EINN af þeim sem starfa við
Olympíuleikana hér er Mike Schulz
frá Bandaríkjunum. Mike kom
hingað um miðjan júní og vinnur
sitt starf í sjálfboðavinnu. „Eg var
sjálfboðaliði á Olympíuleikunum í
Kanada í fyrra og kynntist þá ís-
lenska fólkinu og ákvað að koma
hingað.“
Þegar sú ákvörðun hafði verið
tekin afréð Mike að læra íslensku.
„Ég var að hugsa um það í fyrra að
ég ætti að læra eitthvert annað
tungumál en ensku og svo þegar
kom í ljós að ég var á leið til Is-
lands þá tók ég mig til.“ Árangur-
inn lætur ekki á sér standa, því eft-
ir hálfs árs nám er Mike fær um að
halda uppi samræðum á íslensku.
Mike segir Ólympíuleikana gott
tækifæri fyrir þátttakendur til að
spreyta sig og hitta aðra nemendur
með svipuð áhugamál. „Það er
stundum erfítt fyrir þessa krakka
að fínna aðra að tala við, þetta er í
fyrsta skipti sem þau hafa tækifæri
til að hitta svona marga aðra með
svipuð áhugamál. Þarna fá þau
líka viðfangsefni sem ögra þeim.
Auðvitað taka keppendur þessu
misalvarlega, sumir koma til með
að hafa ánægju af ferðinni auk
keppninnar en sumir taka keppn-
ina mjög alvarlega."
Mike keppti á Ólympíuleikunum
fyrir hönd Bandaríkjanna árið
1992, þá átján ára. Hann hefur
haldið sig við eðlisfræðina síðan,
fór í BS-nám í MIT í Boston og er
nú í doktorsnámi í eðlisfræði í
Berkeley-háskóla í Kaliforníu. Mi-
ke, sem heldur af landi brott að
lokinni keppni, liefur hugsað sér
að koma aftur til íslands „þegar ís-
lenskan skánar“.
Jók áhugann á vísindum
KVENKYNS þátt-
takendur hafa alltaf
verið í miklum
minnihluta á
Ólympíuleikunum í
eðlisfræði. Þrjár
stúlkur hafa keppt
fyrir hönd íslands
og er Ásta K.
Sveinsdóttir ein
þeirra. Hún tók þátt
í Ólympíuleikunum
árið 1988 og 1989
og hafði reyndar fé-
lagsskap Helgu Þór-
hallsdóttur í fyrra
sldptið. Guðrún
Sævarsdóttir keppti
svo árið 1991.
„Þetta var mjög skemmtileg
reynsla,“ segir Ásta. „Ég kynntist
fólki sem ég hef haldið sambandi
við siðan og á fyrri Ólympíuleik-
unum stóð sú reynsla upp úr. Það
var nyög margt hæfileikaríkt fólk
þarna sem hafði áhuga á eðlis-
fræði og e.t.v. einhverju öðru, spil-
aði t.d. á hljóðfæri. Þetta fólk var
á fullu í þessum áhuga og mér
fannst mjög gaman að kynnast
því. Mér fannst mórallinn hér
heima gagnvart náminu ekki mjög
jákvæður, þannig að þessar ferðir
voi'u mjög örvandi
fyrir mig og juku
áhuga minn á vís-
indum yfirleitt."
Ásta segir að áður
en hún fór á Ólymp-
íuleikana í fyrra
skiptið hafí hún ekk-
ert spáð sérstaklega
í að færri stelpur en
sti'ákar hafa áhuga
eða sinna raungrein-
um. „Við vöktum
auðvitað athygli, ég
held að við höfum
verið fimm það árið,
þar af tvær frá fs-
landi. Það fylgdi
þessu viss pressa um
að standa sig vel.“
Þarf að hvetja stúlkur
til að læra raungreinar
Aðspurð hvort hún kunni ein-
hverja skýringu á því hve fáar
stúlkur leggja stund á raungrein-
ar segist Ásta viss um að þar sé
um samspil margra þátta að ræða.
„Þetta er eitthvert gildismat sem
síast inn, því á fyrri skólastigum
er enginn munur á kynjunum, -
frekar að stelpur standi sig betur
ef eitthvað er. Það hlýtur að vera
eitthvað undir yfirborðinu sem
hefur áhrif og það þarf að kanna
það. Til að breyta þessu tel ég að
þurfi að vinna markvisst á móti
straumnum eins og gert er t.d. í
MIT-háskólanum í Boston. Þar
hafa skólayfirvöld mótað stefnu
þar sem markvisst er unnið að því
að fá stúlkur í verkfræði með því
að fylgjast með efnilegum kven-
kyns nemendum um allt land og
hvetja þá til að sækja um.“
Ásta segjr fyrirmyndir auðvitað
líka mikilvægar stúlkum. Ásta og
stöllur hennar, þær Helga og Guð-
rún, ættu að vera ágætisfyrirmyndir.
Helga er verkfræðingur á Ál-
mennu verkfræðistofunni og Guð-
rún er í doktorsnámi í eðlisfræði í
Noregi. Ásta er hins vegar í dokt-
orsnámi í heimspeki í MIT í Boston
í Bandaríkjunum, en hún hefur
dvalið í Bandaríkjunum að mestu
leyti frá því hún lauk stúdentsprófi
áriðA989.
„Ég fór í stærðfræði í Brandeis-
háskólanum í útjaðri Boston en
bætti svo heimspeki við mig og út-
skrifaðist því með BA-próf í stærð-
fræði og heimspeki þaðan. Síðan
fór ég í mastersnám í Harvard í
heimspeki og er svo komin í dokt-
orsnám í Boston.“
Morgunblaðið/Þorkell
ÁSTA býr í Bandaríkjun-
um og kom mátulega
heim til að starfa við
Ólympíuleikana, en hún
hefur yfirumsjón með
leiðsögumönnum þeirra.
Skemmtilegasta námsgreinin
Morgunblaðið/Ai-naldur
TEITUR Arason, Jóel Karl Friðriksson, Jón Eyvindur
Bjarnason, Páll Melsted og Þorvaldur Arnar Þorvaldsson
samankoninir í æfingaaðstöðunni í Kennaraháskólanum.
FRÁ byijun júní hafa Jó-
el Karl Friðriksson, Þor-
valdur Arnar Þorvalds-
son, Jón Eyvindur
Bjarnason, Páll Melsted
og Teitur Arason legið
yfir eðlisfræðiverkefnum
til að undirbúa sig fyrir
Ólympíuleikana. Þeir fé-
lagar eru allir nemendur
Menntaskólans í Reykja-
vík nema Teitur sem er í
Menntaskólanuin á Akur-
eyri og var reyndar fjarri
góðu gamni þegar Morg-
unblaðið leit við í heim-
sókn.
Jóel Karl verður fyrir
svörum þegar spurt er
hvernig liðið æfir sig fyrir keppn-
ina. „Þessa dagana enim við fyrst
og fremst að æfa okkur í að leysa
gömul prófdæmi úr fyrri keppn-
um. Það gefst ekki beinlínis tími
til að læra eitthvað nýtt og melta
það svona rétt fyrir keppni.“ „En
munurinn á þessum dæmum og
þeim sem við fáumst við í skólan-
um er sá að þessi dæmi eru miklu
yfirgripsmeiri," segir Jón Eyvind-
ur. „Þau eru svona fimmtán sinn-
um þyngri," bætir Þorvaldur við
og segir dæmin vera á háskóla-
stigi og langt yfir framhaldsskóla-
mörkum.
Stefna allir á nám
í raungreinum
En hvað er svona skemmtilegt
við eðlisfræði? „Það er gaman að
skilja það sem er í kringum
mann,“ segir Þorvaldur og allir
eru þeir sammála um að eðlisfræði
sé skemmtilegasta námsgreinin í
skólanum. Strákarnir sverja þó
fyrir að það eina sem þeir ræði sé
eðlisfræði og eitthvað henni tengt.
Þeir stefna reyndar all-
ir á nám í raungreinum
og skyldum greinum. Jó-
el Karl, sem á eitt ár eft-
ir í menntaskóla, hefur
hug á nárni í stjarneðlis-
fræði. „Ég get ekki
ákveðið hvort ég á að
læra eitthvað hagnýtt
eins og verkfræði eða
fara í eðlisfræði," segir
Þorvaldur en hann lauk
stúdentsprófi í vor og
þarf því að taka þessa
ákvörðun fijótlega. Jón
Eyvindur hefur hins veg-
ar gert upp hug sinn,
ætlar í verkfræði og sdtti
reyndar um í Tæknihá-
skólanum í Kaupmannahöfn (DTU)
og er að bíða eftir svari.
Yngsti keppandi liðsins er Páll
sem er að helja þriðja ár í mennta-
skóla og hefur því ekki hafið form-
legt nám í eðlisfræði. „Ég var orð-
inn leiður á að biða eftir náminu
þannig að ég byrjaði bara að lesa
sjálfur," segir Páll. Þetta sjálfsnám
skilaði honum inn í keppnislið fs-
lands á Ólympíuleikunum og það
er ekki að spyrja að því að Páll
ætlar í eðlisfræði ásamt tölvunar-
fræði.
Reuters
ÖNNUR af tveim flugbrautum nýja alþjóðavallarins í Hong Kong. Jiang
Zemin, forseti Kína, vígði völlinn í gær og var mikið um dýrðir, ljóna-
dansarar sýndu listir sínar og bumbur voru barðar. Völlurinn er eitt af
mestu samgöngumannvirkjum í heimi.
Nýtt tákn
þjóðarstolts
Chep Lak Kok, alþjóðavöllurinn nýi í Hong
Kong er mikið mannvirki. Pekingstjórnin var
upprunalega á móti hugmyndinni, sem Bretar
áttu frumkvæði að, en þeir skiptu um skoðun
og nú er völlurinn talinn sameiningartákn
MIKIÐ var um dýrðir í
Hong Kong í gær þegar Ji-
ang Zemin, forseti Kína,
vígði við hátíðlega athöfn
nýjan og glæsilegan alþjóðaflugvöll
sem kenndur er við Chep Lak Kok á
Lantau-eyju. Völlurinn vai- lagður á
uppfyllingu og í nokkurri fjarlægð frá
aðalbyggðinni í borginni,- Kostnaður-
inn er að sögn Reuters áætlaður um
20 milljarðar Bandaríkjadollara, rúm-
Iega 1.400 milljarðai' króna og tók sjö
ára að fullgera völlinn.
Bretar, sem stjórnuðu Hong Kong í
156 ár, lögðu drög að vellinum 1989.
Þá vai- þegar búið að semja um yfir-
töku Peking-stjórnarinnar í Hong
Kong 1997 og deildu kommúnistar á
Breta fyrir að ætla að eyða svo miklu
fé í framkvæmdina. Sættir náðust og
nú eru völlurinn og framkvæmdir hon-
um tengdar álitin tákn þjóðarstolts og
sameiningar Kína og Hong Kong.
Dugir langt fram á 21. öld
Æðsti embættismaður í Hong
Kong, Tung Chee-hwa, sem stjórnvöld
í Peking skipuðu, flutti ávarp við at-
höfnina og sagði að mannvirkið væri
verkfræðiafrek.
„Alþjóðaflugvöllur Hong Kong mun
fullnægja þörfum íbúanna nú þegar
næsta öld er að renna upp. Hann
styrkir stöðu okkar sem miðstöðvai'
samgangna, verslunar, fjármála og
ferðaþjónustu á Kyrrahafssvæðum
Asíu,“ sagði Tung.
Raunveruleg starfsemi hefst á
mánudag en yfír helgina verður nauð-
synlegur búnaður fluttur frá gamla
vellinum á þann nýja. Um 10.000 far-
artæki, 70 prammar og 30 flugvélar
verða þá flutt 30 kílómetra leið á einni
nóttu. Skipulagið þarf að vera gott -
og síðan vona menn að ný og fullkomin
tækni á vellinum bregðist ekki þegar
starfsemin hefst á mánudag.
Gamli flugvöllurinn, Kai Tak, er í
Kowloon þar sem aðalþéttbýlið er og
hefur alls ekki nægt Hong Kong síð-
ustu árin, þrengslin og skortur á nú-
tímalegri aðstöðu hafa verið hemili á
þróun svæðisins. Flugmenn og farþeg-
ar sitja oft angistarfullir þegar lent er
á vellinum en umhverfis hann eru raðir
af íbúðarblokkum, vélarnai' skriða með
naumindum yfir þökin. Afkastageta
nýja vallarins er auk þess mun meiri
og rými til allrar þjónustu afar gott.
Þótt mannvirkið sé glæsilegt veldur
efnahagskreppan í Asíu því að óljóst
er hvort spádómar Tungs um gagn-
semi vallarins rætist jafn hratt og
menn vonuðu. Dregið hefur úr ferða-
lögum, flugfélög hafa fækkað ferðum
og vélum. Ferðamálasamband Hong
Kong gerh' ekki ráð fyrir aukningu
ferðamanna á árinu. Tímasetningin
hefði getað verið betri en þrátt fyrir
GAMALT OG NÝTT
Nýi alþjóðaflugvöllurinn er margfalt
stærri en völlurinn sem Hong Kong
hefur orðið að láta sér duga, Kai Tak.
■ Kai Tak ■ Chek Lap Kok
Farþegafjöldi 29,5 milljónir 35,0 milljónir
á ári (tölur 1996) (áætlun)
tifiiitiiiiii«iftiaiiiciiitiii
iitllitllliillifiliiiiillliiiiiliii
1,56 millj. lonn 3 miilj. lonn
Vörumagn (tölur 1996) (áætlun)
Flugbrautir e/n (3.393 m) tvær (hvor
þeirra 3.800 m)
Akstursbrautir 7,1 km 35,0 km
Farþegasvæði 66.000 m2 550.000 m2
Hlitli
1111111111111111111111111111111111111111111111111111111
Hlið 69 88
j-+'1 j- 4 ’hj-+++ j- 'FA 4-+++4+4- 4+
Stöðvar
224
Tollhlið 52 76
Farangurs- færibönd 6 12
Upplýsingaskjár 283 2.000
Farangurskerrur 3.500 5.600
Heimild: Hong Kong Airport Core Programme
utlendinga eftirlits 170
□BBQBQQCiaQEiQaDQBQ
□□□□□□□□□□□□EIQQQQQQ
þetta er enginn vafi á því að ánægja
ríkir í Hong Kong með nýja völlinn.
Að lokinni vígslunni sté Jiang for-
seti um borð í Boeing-breiðþotu kín-
verska flugfélagsins, Air China, og
varð þá fyrstur þjóðhöfðingja til að
nota sér völlinn er hann hélt heim á
leið til Peking. Nokkrum stundum síð-
ar lenti Bill Clinton Bandaríkjaforseti
á vellinum en hann lýkur Kinaferð
sinni í Hong Kong í dag.
Jiang gerði sér far um að vingast við
Hong Kong-búa, gekk um götumar og
heilsaði upp á börn og fullorðna í mann-
þrönginni í stórmarkaði, óformlega
klæddui'. Einnig heimsótti hann
sjúkrahús og rabbaði við aldraða sjúk-
linga.
En þótt Jiang legði sig fram heillaði
hann ekki alla. Hópur lýðræðissinna
elti forsetann um borgina, andmælti
kommúnistum og krafðist þess að
stjórnin viðurkenndi að blóðug árásin á
lýðræðisöflin á Torgi hins himneska^
friðai’ 1989 hefði verið mistök.