Morgunblaðið - 03.07.1998, Page 50

Morgunblaðið - 03.07.1998, Page 50
50 FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ „Liðið sturlaðist^ YNGSTI maður í sveitarstjóm á Tálknafirði er aðeins tæplega tví- tugur og heitir Amar Geir Níels- son, efsti maður á lista Grágásar og skipstjóri á smábátnum Viktor- íu. Skipstjórinn var þó í landi þeg- ar Morgunblaðsfólk hitti hann á dögunum, því þá hafði verið bræla í nokkra daga og hann var að vinna við dyravörslu á veitingastaðnum Hópinu á Tálknafirði. Baráttumál að uppræta spillingu og auka makaval Grágás er nýtt afl sem bauð í fyrsta sinn fram til sveitarstjómar á Tálknafirði á liðnu vori og náði einum manni inn. Hann er raunar eini nýi maðurinn í sveitarstjórn að þessu sinni. Meðalaldurinn á lista Grágásar er 21-22 ár, að sögn Am- ars Geirs. Meðal þeirra baráttumála sem Grágás setti á oddinn fyrir kosn- ingarnar var aukið makaval í byggðarlaginu. Einnig lögðu Grá- gásarmenn áherslu á að uppræta spillingu. „Liðið sturlaðist," segir hann um viðbrögðin við því. Þá vom umhverfismálin í brennidepli en Arnar telur Tálknfirðinga aftar- lega á merinni hvað þau varðar. Þegar skipað var í nefndir á vegum sveitarfélagsins að kosningum loknum kom aðeins varamannssæti í sorpnefnd í hlut Grágásar. Það er efsti maður listans ekki sáttur við og segir það raunar vera í athugun hvort sú ákvörðun standist lög. Aðspurður hvort hann sjái fyrir sér margra ára setu í sveitarstjóm segir Arnar Geir að hann nenni ekki að hanga þar of lengi, en hins vegar stefni Grágás að framboði á landsvísu í næstu alþingiskosning- um. Hann segir helstu baráttumál- „Þessi er með skotgati, það hafa komist list- fræðingar í hana“ „PRESLEY var minn maður. Með allri virðingu íyrii- Bítlunum þá stóð ég aldrei neitt á öndinni yfir þeim, þó að þeir væm jafnaldrar mínir,“ segir söngvarinn og safnarinn Jón Ki\ Olafsson um leið og hann leiðir gesti um hús sitt, Reynimel á Bfldu- dal, þar sem fágæt eintök gamalla íslenskra hljómplatna, ljósmyndir og málverk af tónlistarmönnum og hinar margvíslegustu gersemar era upp um alla veggi. Hann kveðst hafa mjög breiðan tónlistarsmekk, en er þó ekki kominn í rappið, að eigin sögn. Hann dregur fram merkilega plötu með Ragnari Bjamasyni, í gullramma á bak við gler. A plöt- unni er gat, svo ljóst er að hún á ekki eftir að fara aftur undir nálina til spilunar. Þennan merka grip fékk Jón Kr. frá safnara í Hafnar- firði. „Þessi er með skotgati, það hafa komist listfræðingar í hana,“ segir hann íbygginn en skýrir það ekki frekar. Ætlar ekki suður að sjá RoIIingana Meðal þeirra listamanna sem era mest áberandi í safni Jóns Kr. era þau Ellý Vilhjálms, Haukur Morthens, Hallbjörg Bjarnadóttir og Ragnar Bjarnason, svo ein- hverjir séu nefndir. Víða má einnig sjá myndir af Jóni sjálfum með helstu átrúnaðargoðunum. Ahuga- svið hans einskorðast ekki við ís- lenska tónlistarmenn. Hann minn- ist þess með glampa í auga þegar hann fór á tónleika með Louis Armstrong. „En fyrst ég lét ekki í kvöld laugardag 4. júlí laugardag 11. júlí kl. 20.00 kl. 20.00 kl. 20.00 nokkar sæti laus föstudag 10. júll kl. 20.00 Sýningar hefjast kl. 20.00. Ósóttar pantanir seldar daglega. Miðasala simi 551 1475. Opin alla daga kl. 15-19. Simapantanir frá kl. 10 virka daga og frá kl. 13 um helgar. Stóra svið kl. 20.00 ÞJONN I SUPUNNI Mið. 15/7 fors.örfá sæti Fim. 16/7 frum. uppselt Lau. 18/7 2. sýn. uppselt Sun. 19/7 3. syn. uppselt Rm. 23/7 4. syn uppselt Fos. 24/7 5. syn. örfá sæti Lau. 25/7 6. syn. örfá sæti Kl. 20.00. Miðasalan opin 12—18. áéTLEIKFÉLAGljlé REYKJAVÍKURJ® BORGARLEIKHUSIÐ eftir Jim Jacobs og Warren Casey. Frumsýn í kvöld fös. 3/7, uppselt Lau 4/7, uppselt, sun. 5/7, örfá sæti laus, fim. 9/7, nokkur sæti laus, fös. 10/7, lau. 11/7, fim. 16/7. Skoðið GREASE vefinn www.mbl.is Miðasalan er opin daglega frá kl. 13—18 og fram að sýningu sýningardaga. Símapantanir virka daga frá kl. 10. Greiðslukortaþjónusta. Sími 568 8000 fax 568 0383. Simi í miðasölu 530 30 30 í kvöld! „Örtónleikar“ með Möggu Stínu. Lög af nýja geisladiskin- um! lau. 4/7 kl. 22—2 laus sæti Matseðill sumartcmleika Indverskur grænmetisréttur að hætti Lindu, borinn fram með fersku salati og ristuðum furuhnetum. Eftirréttur: „Óvænt endalok". Miðasalan opin alla virka daga kl. 15-18. Miðap. allan sólarhringinn í s. 551 9055. Netfang: kaffileik@isholf.is FOLK I FRETTUM Morgunblaðið/Árni Sæberg ARNAR Geir Níelsson bregður sér í ýmis hlutverk. Hann er skipstjóri að aðalstarfi auk þess sem hann er yngsti sveitarstjórnarmaðurinn á Tálknafirði - en hér sést hann í hlutverki dyravarðar á Hópinu. in verða að koma kvótakerfinu fyr- ir kattarnef, laga samgöngur á Vestfjörðum og kynna Vestfirði verða af því að taka bankalán til að fara og sjá Ellu Fitzgerald, þá held ég að ég fari nú ekki suður að sjá Rollingana!“ Jón Kr. hermir gjarnan eftir vin- um sínum í tónlistarbransanum, sem ferðamannastað. Hver veit nema pilturinn skjóti upp kollinum á Alþingi Islendinga innan tíðar? ekki síst Ragnari nokkrum Bjarna- syni. Um leið og gengið er út úr húsinu að lokinni skoðunarferð og út í garð í rjómablíðu heyrist i Jóni: „Þetta er „næs“ - eins og hann Raggi myndi segja.“ MYNDBOND Sannsögu- leg sjón- varpsmynd Móðir okkar var myrt (Our Mother’s Murder) Sjónvarpsdrama ★ Framleiðsla: John L. Roman. Leik- stjórn: Biil L. Norton. Handrit: Ric- hard DeLong Adams. Aðalhlutverk: Holly Marie Combs, James Wilder, Roxanne Hart, Sarah Chalke og Jon- athan Scarfe. lengd nu'n. Bandansk. CIC myndbönd, júní 1998. Bönnuð börnum innan 16 ára. HÉR kemur enn ein sjónvarps- gerðin af athyglisverðu sakamáli, breytt, bætt og löguð að smekk bandarískra áhorf- enda. Þegar hin auðuga Anne Scripps Douglas (Roxanne Hart) er yfirgefin af eigin- manni sínum finn- ur hún sér elsk- huga sem er miklu yngri en hún sjálf. Þótt honum takist að blekkja mömmu sér eldri dóttirin strax fé- gráðugan úlf undir sauðargæranni og verða þau samstundis svarnir óvinir. Skömmu eftir brúðkaupið varpar illmennið af sér gæratetrinu og fer að beita móðurina hryllilegu ofbeldi. Það er lítið um þessa mynd að segja, því hún er að flestu leyti mjög venjuleg sjónvarpsmynd. Leikur er þokkalegur, eins og myndbandsupp- takan sem rofin er af slæmum klipp- ingum ætluðum fyrir auglýsingahlé. Hetja myndarinnar er upphafin af söguþræðinum og sett fram sem al- fullkomin dóttir sem setur velferð móður sinnar í öndvegi. Það er því óskiljanlegt að ógeðfelld atburðarás- in skyldi enda þar sem titill myndar- innar gefur til kynna, með morði Anne. Guðmundur Ásgeirsson. Morgunblaðið/Ámi Sæberg ÞAÐ kennir ýmissa grasa í eldhúsinu hjá Jóni Kr. Ólafssyni, söngvara og safnara á Bíldudal. Hér heldur hann á plötu með Hallbjörgu Bjarnadótt- ur, með hinni kunnu Vorvísu: „Vorið er komið og grundirnar gróa ...“ FOSTUDAGSMYNDIR SJONVARPSSTOÐVANNA Stöð 2 ► 21.00 Barnfóstrufélagið - The Baby-Sitters Club (‘95) Ungpí- ur kynnast ástinni og fleiru sem henni fylgir, á heitu sumri á Nýja Englandi. IMDb: 7,8. Sýn ► 21.00 Þó hún sé byggð á hressilegum og efnismiklum doðranti James Clavell, er Höfuð- paurinn - Tai Pan, (‘86) innantóm mynd um átök milli Evrópubúa og Kínverja í Hong Kong á fyrri hluta aldarinnar. Leiðindi í kjól og hvítt.Ar Sjónvarpið ► 21.35 Fjölskyldu- myndin Clover, (‘96)er byggð á skáldsögu eftir Dori Sandes um unga blökkustúlku í Suðurríkjun- um, sem verður hornreka er faðir hennar fellur frá. Góðir leikarar, Elizabeth McGowern og Ernie Hudson fara með aðalhlutverkin, ásamt Zeldu Harris, og IMDb gef- ur 7,0. Stöð 2 ► 22.40 Halle Berry er jafn fögur og Chuck karlinn faðir henn- ar er góður rokkari - en því miður jafn ómöguleg leikkona. Annars er allt vont við þessa, eina langverstu mynd síðasta árs. Kona ríka manns- ins - Rich Man’s Wife, (‘96) Vz er 100% tímasóun. Sýn ► 23.05 Hún er hvorki fugl né fiskur, spennumyndin I þátíð - Past Tense, (‘94), en státar af bærilegum leikuram. Einkaspæjarinn/rithöf- undurinn Scott Glenn flækist inní snúið morðmál þar sem koma við sögu lögreglumaðurinn Anthony LaPaglia og Lara Flynn Boyle. Sag- an er þvæluleg og leikstjóm Grame Cliffords í flestu ábótavant. Kom út á myndbandi. ★★ Stöð 2 ► 0.15 1941, (‘71). Sjá um- sögn í ramma. Sýn ► 0.55 Hryllingsmyndin Skar- kárinn - The Entity, (‘81), hefði get- að gerst í íslenskum afdal á öldinni Skotið útí bláinn Fyrsta gamanmyndin hans Stevens Spielbergs, 1941, (‘79), (Stöð 2 ► 0.15), verður ekki tal- in með hans betri myndum, en er engu að síður forvitnileg íyrir ýmsar sakir. I fyrsta lagi kostaði hún morð fjár, í öðra lagi er hún einn stærsti skellur kvikmynda- sögunnar, í þriðja lagi fyrstu mistök leikstjórans, sem gerir ekki mikið af slíku, og í fjórða lagi státar hún af úrvalsmann- skap í hverju rúmi. Leikhópurinn er einkar áhugaverður, með John Belushi og Warren Oates innan- borðs, ásamt Dan Aykroyd, Lorraine Gray, Ned Beatty, Murray Hamilton, Tim Matheson, Toshiro Mifune, Ro- sem leið. Konu (Barbara Hershey) er margnauðgað af afturgöngu. Hreint ekki sem verstur hrollur. ★★‘/2. Stöð 2 ► Læknagrínið Grein 99 - bert Stack og Drakúla sjálfum, Christopher Lee. Semsagt há- karlar svamlandi innanum horn- sfli. Handritið skrifar enginn annar en Robert Zemeckis, kvik- myndatöku stjómar William A. Fraker og tónlistin er samin af John Williams. Utkoman engu að síður litlar ★★. Myndin, sem er í fimmaurakenndum yfirskot- marksfarsastíl, gerist í Los Ang- eles á tímum síðari heimsstyrj- aldarinnar, eftir að Japanir hafa bombaderað Pearl Harbour. Allt verður vitlaust í bænum. Inn- antómt en forvitnilegt á sinn hátt. Article 99, (‘92), er plöguð af óaðlað- andi aðalleikuram (Ray Liotta og Kiefer Sutherland), og dáðlitlu skop- skyni. ★14 Sæbjörn Valdimarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.