Morgunblaðið - 11.07.1998, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1998 15
AKUREYRI
Michael Jón Clarke lýkur starfsári
sem bæjarlistamaður
Býður bæjar-
búum til tónleika
MICHAEL Jón
Clarke býður bæjar-
búum og gestum til
tónleika í Safnaðar-
heimili Akureyrar-
kirkju kl. 17. á laug-
ardag, 11. júlí. Mich-
ael Jón hlaut starfs-
laun listamanns bæj-
arins á liðnu ári og
sagðist hann vilja
þakka þann heiður að
hafa verið valinn bæj-
arlistamaður með því
að efna til tónleik-
anna. Richard Simm
leikur með á píanó.
Á efnisskránni eru 20 íslensk
lög, en þeir Michael og Richard
eru nýlega komnir heim úr tón-
leikaför þar sem þeir fluttu sömu
efnisskrá. Héldu þeir tónleika í
vinabæjum Akureyrar, Vasterás
í Svíþjóð, Randers í Danmörku
og Narsaq á Grænlandi. „Þetta
er allt tónlist frá þessari öld,
þverskurður af því sem mér þyk-
ir fallegast," sagði Michael Jón.
Hann sagði að árið sem hann
var bæjarlistamaður hefði verið
mjög gott og gert sér kleyft að
gera ýmislegt. Norðurlandaferð-
in var hápunkturinn,
en þá kom hann fram
fyrir hönd bæjarins í
nokkur skipti við ým-
is tækifæri. Hann
hafði frumkvæði að
stofnun sönghópsins,
Voces Borealis, Norð-
urljósaraddanna en í
honum eru 14 söngv-
arar, m.a. nemendur
og kennarar úr Tón-
listarskóla Akureyr-
ar. Þá stjórnar Mich-
ael einnig fjórum
kórum og hann lék á
fiðlu með félögum í
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í
sýningu Leikfélags Akureyrar á
Söngvaseið.
Þá má nefna að Michael Jón
hefur ásamt Sigurlínu Jónsdótt-
ur, eiginkonu sinni, unnið að út-
gáfumálum, en félag þeirra,
Mikkólína, hefur gefið út tvö
hefti sem ætluð eru til tónlistar-
kennslu í grunnskólum og fylgir
með undirleikur á diski. „Ég
geri mér vonir um að þetta nái
mikilli útbreiðslu, en viðtökur
hafa verið góðar,“ sagði Michael
Jón.
Sumartón-
leikar á
Norðurlandi
SUMARTÓNLEIKAR á Norður-
landi hófu sitt tólfta starfsár með
fjölsóttum tónleikum um síðustu
helgi. Nú fer í hönd önnur tónleika-
helgin og munu tveir flytjendur
skipta henni með sér. Annars vegar
mun Pétur Jónasson gítarleikari
leika á tónleikum í Reykjahlíðar-
kirkju í Mývatnssveit í kvöld, laug-
ardagskvöld kl. 21 og hins vegar
flytur danski orgelleikarinn Karst-
en Jensen tónleika í Akureyrar-
kirkju á morgun, sunnudaginn 12.
júlí kl. 17.
Pétur mun flytja gítarverk eftir
Tárrega, Sor og Gonzáles í Reykja-
hlíðarkirkju en á tónleikum
Karstens verða flutt orgelverk eftir
dönsku tónskáldin Hartmann og
Madsen og frönsku tónskáldin
Lebégeu, Franck, Tournemire og
Widor.
Allir tónleikarnir standa í klukku-
stund án hlés og er aðgangur
ókeypis en tekið er við frjálsum
framlögum við kirkjudyr.
Messur
AKUREYRARKIRKJA:
Sumartónleikar á sunnudag
kl. 17. Kvöldmessa í kirkj-
unni kl. 21, Karsten Jensen
tekur þátt í athöfninni.
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Bænastund frá kl. 20 til 21 í
kvöld. Sunnudagaskóli fjöl-
skyldunnar á morgun, sunnu-
dag kl. 11.30. Þórir Páll Agn-
arsson predikar. Samkoma
kl. 20 á sunnudag, G. Theo-
dór Birgisson predikar.
Skrefið á miðvikudag kl.
17.15, unglingasamkoma kl.
20.30, vonarlínan, 462-1210,
uppörvunarorð úr ritning-
unni.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Messa í dag, laugardag kl. 18
og á morgun, sunnudag kl. 11
í kirkjunni við Eyrarlandsveg
26.
Aki Armann
skipaður
veiðistjóri
ÁKI Ármann Jónsson hefur verið
skipaður tO að gegna stöðu veiði-
stjóra.
Áki Ármann hefur starfað hjá
veiðistjóraembættinu írá 1. mars
1995 og hefur hann séð um uppbygg-
ingu og rekstur veiðikortakerfisins.
Hann lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum við Sund 1987 og B.S. prófi
í líffræði frá Háskóla íslands 1993.
Eftir nám vann hann m.a. á Keldum
við rannsóknir á sníkjudýrum í æðai-
fugli og fæðu æðarfugla en hann hef-
ur einnig unnið að uppsetningu og
þróun gagnagrunna fyrir fyii'tæki og
félagasamtök.
Gönguferð
um Oddeyri
GÖNGUFERÐ um Oddeyri undir
leiðsögn Hönnu Rósu Sveinsdóttur
safnvarðar við Minjasafnið á Akur-
eyri verður farin á morgun, sunnu-
daginn 11. júlí. Lagt verður upp frá
Gránufélagshúsunum við Strandgötu
kl. 14. Gengið verður um elsta hluta
Oddeyi’ar og saga byggðar og húsa
rakin. Gangan tekur um eina og
hálfa klukkustund og er leiðsögn á
íslensku. Þátttaka er ókeypis.
AKSJON
Laugardagur 11. júlí
21 .OOÞSumarlandið Þáttur fyrir
ferðafólk á Akureyri og
Akureyringa í ferðahug.
LANDIÐ
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
FLESTIR afkomendur Páls og Margrétar í Dalbæ ásamt mökum
sínum og nokkrum gestum við minnisvarðann.
MINNISVARÐINN sem
aflijúpaður var í Dalbæ.
Minnisvarði um ábúendur í Dalbæ
Hrunamannahreppi - Niðjamót
hafa færst mjög í vöxt á
undanförnum árum og þykja •
hinar bestu samkomur, þá hittist
gjarna frændfólk sem sést lítið
sem ekkert á öðrum tíma.
Nýlega var haldið niðjamót á
Flúðum og í Dalbæ hér í sveit og
þess minnst að 100 ár eru liðin
síðan Guðfinna Kolbeinsdóttir og
Guðmundur Guðmundsson hófu
búskap í Dalbæ og hafa
afkomendur þeirra búið þar
siðan.
I tilefni 100 ára afmælum Páls
Guðmundssonar og Margrétar
Guðmunsdóttur sem tóku við búi
Guðmundar og Guðfinnu í Dalbæ
komu afkomendur þeirra saman
við lund ofan við bæinn.
Afhjúpaður var áletraður
minnisvarði um þau Margréti og
Pál og þau Hróðnýju
Sigurðardóttur og Jóhann H.
Pálsson sem toku við búi af Páli
og Margréti sem létust á
sviplegan hátt í bílslysi 1987.
Afmælishátíð
í Skógum
Fagradal - Haldið var upp á 90
ára afmæli Búnaðarsambands
Suðurlands og 70 ára afmæli
Kvenfélagasambands Suður-
lands í Skógum und-
ir Eyjafjöllum nú ný-
verið.
Fjöldi manns af
Suðurlandi kom
þarna saman eina
dagstund og var ým-
islegt til skemmtun-
ar og mikið sungið,
borðað var grillað
lambakjöt og var
samkoman öll mjög
vel heppnuð.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
SUNGIÐ var við varðeld um
kvöldið og stjórnaði Arni Johnsen
söngnum.
FINNBOGI Gunnarsson, Tómas
Pálsson, Steinuim Þorbergsdóttir
og Ragnhildur Jónsdóttir létu sig
ekki vanta í afmælisfagnaðinn.
TILKYNNIN G UM SKRANIN GU SKULDABRÉFA
SAMHERJI HF.
kr. 300.000.000
Nafnverð:
Útgáfudagur:
Sölutímabil:
Grunnvísitala:
Einingar bréfa:
Gjalddagar:
Skráning:
Upplýsingar
og gögn:
Kr. Þrjúhundruðmilljónir 00/100
7. október 1996
7. október 1996 til 7. janúar 1997
Nvt. 178,4, október 1996
Kr. 5.000.000
Gjalddagar eru á sex mánaða fresti.
Fyrsti gjalddagi afborgana var 15. september 1997.
Síðasti gjalddagi afborgana og vaxta er 15. mars 2007.
Stjórn Verðbréfaþings íslands hefur samþykkt að taka
skuldabréf Samherja hf., 1 flokk 1996 til skráningar.
Skuldabréfin verða skráð 15. júlí 1998, enda verði öll
skilyrði skráningar uppfyllt.
Skráningarlýsing og önnur gögn sem vitnað er til
í skráningarlýsingunni liggja frammi hjá
Landsbanka íslands hf, Strandgötu 1, Akureyri eða
á skrifstofum Samherja hf., Glerárgötu 30 Akureyri.
SAMHERJI HF
L
Landsbanki
íslands
Strandgötu 1, 600 Akureyri, sími 460 4000, fax 460 4080, www.lais.is