Morgunblaðið - 11.07.1998, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
KRAKKARNIR á kúasmalamótinu í Ilallgeirsey storkuðu öldum
Atlantshafsins á Landeyjasandi. í baksýn eru Vestmannaeyjar.
Morgunblaðið/Steinunn Ósk
HÚSFREYJAN á Halllgeirsey, Jóna Jónsdóttir, ásamt kúasmölunum
Lísu og Þórunni Oskarsdætrum.
Kúasmalamót
í Púkapytti
Hvolsvelli - Krakkarnir á
kúasmalamótinu í Hallgeirsey í
Austur-Landeyjum storkuðu öld-
um Atlantshafsins á Landeyja-
sandi. Mikið fjör er að láta öld-
urnar elta sig og blotnuðu sumir
á botninum.
Kúasmaiamótið í Hallgeirsey
var nú haldið í annað sinn og á
það er boðið gömlum kúasmölum
og vinnumönnum sem verið hafa
í vist á bænum og vinum og
vandamönnum þeirra heiðurs-
hjóna, Jónu Jónsdóttur og Jóns
Guðjónssonar í Hallgeirsey. Að
þessu sinni var mótið svo að
segja haldið í fjöruborði Atlands-
hafsins í svokölluðum Púkapytt.
Þar höfðu þau hjón, ásamt fjöl-
skyldunni, útbúið mikið hátíðar-
svæði, með langskála að hætti
fornmanna, ýmsum fígúrum bún-
um til úr trjám, blómum og fána-
borg. Farið var á fjöru og í leiki
að deginum og um kvöldið fór
fram spilamennska og dans að
hætti kúasmala.
Margir kúasmalanna hafa
fengið fyrstu kynni af tónlist og
spilamennsku hjá Jóni bónda.
Sjálfur leikur Jón af snilli á saxó-
fón og trommur og var árum
saman í danshljómsveitum.
Blíðskaparveður gladdi móts-
gesti sem voru á annað hundrað-
ið og á milli atriða heyjaði Jón
bóndi nokkur tún.
Kúasmalarnir voru á öllum
aldri, þeir elstu komnir á áttræð-
isaldur, en þeir höfðu verið í vist
hjá Guðjóni fóður Jóns, og þeir
yngstu á 10. ári.
Afmælismót
skáta í
Vestmannaeyjum - Afmælismót í
tilefni af 60 ára afmæli Skátafélags-
ins Faxa í Vestmannaeyjum hófst á
fímmtudagskvöld og stendur mótið
til sunnudags.
Mótið er haldið á félagssvæði
Faxa sunnan við flugvöllinn í Eyj-
um og hafa nú risið tjaldbúðir sunn-
an við hús félagsins. 250 til 300 þátt-
takendur verða á mótinu, þegar
flest verður, og koma þeir víðs veg-
ar að af landinu og einnig komu 18
skátar frá Danmörku á mótið.
Stanslaus dagskrá er alla dagana
frá átta á morgnana til ellefu á
Eyjum
kvöldin og geta þátttakendur valið
um þrjú mismunandi svið í dag-
skránni. í Spröngulandi kynnast
þau sprangi, sigi og öðrum slíkum
íþróttum. I Þrauta- og metalandi er
keppst við að leysa þrautir og setja
met í allkonar uppátækjum og í
Göngulandi er farið í margskonar
göngur um Heimaey auk þess sem
farið er í bátsferðir og fleira
skemmtilegt gert.
Á kvöldin eru svo kvöldvökur
með söng og leikjum og á laugardag
verður slegið upp balli á skátamót-
inu.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
TJALDBÚÐIRNAR á afmælismóti Skátafélagsins Faxa í Eyjum.
^Morgunblaðið/Sig. Fannar
STEFÁN Örn hótelstjóri með
ávísun á gistingu.
Ferðaþjónusta KÁ
Suðurlandi
Sex þúsund
gistiávísanir
gefnar út
Selfossi - Ferðaþjónusta KA, sem
rekur Hótel Selfoss, Gesthús á Sel-
fossi og Hótel Vík í Mýrdal, sendir
nú í júlímánuði út 6 þúsund ávísanir
á gistingu, hverja að upphæð kr.
1.500.
Ávísununum er dreift til við-
skiptavina 11-11 verslananna í
Reykjavík og Nóatúnsverslananna,
dagana 9.-11. júlí. Einnig í KÁ-
verslununum í Vestmannaeyjum.
Með þessum ávísunum vill Ferða-
þjónusta KÁ bjóða fólki að kynnast
þeirri þjónustu sem í boði er á ferða-
þjópustustöðum KA á Suðurlandi.
Ávísanirnar gilda í júlí til október
sem greiðsla inn á gistingu á Hótel
Selfossi, Gesthúsum og Hótel Vík í
Mýrdal, þó ekki með öðrum tilboð-
um sem í gangi kunna að vera.
Gestir gististaðanna á Selfossi,
Hótel Selfoss og Gesthúsa, fá frítt í
sund í Sundhöll Selfoss, frítt í golf á
Svarfhólsvelli sem er 9 holna völlur
og frítt í veiði á virkum dögum í
Laugá í Biskupstungum. Einnig
býðst gestunum afsláttur í kajak-
ferðir á Stokkseyri, í hestaferðir
með Eldhestum og í vélsleðaferðir á
Mýrdalsjökli. í Vík í Mýrdal útvegar
starfsfólk hótelsins gestum ýmsa af-
þreyingu og aðstoðar hópa við
skipulagningu afþreyingardagskrár.
RVDAB^
BLIKKSMIÐJA GYLFA ehf.
Hágæóa sænskt þakrennukerfi
úr plastisol húöuðu stáli.
Þakkantar - þaktúður ■
þakstál - loftræstingar:
Til í svörtu, hvítu,
rauðu og brúnu.
Mjög áferðarfallegt og
auðvelt í uppsetningu.
Gott verð
20%
afsláttur
10 ára ábyrgð.
Öll blikk- og járnsmíði.
Morgunblaðið/Anna Ingólfs
ÆVINTÝRAFERÐ í hestakerru með trúði í Lómatjarnargarði.
Unglingar skapa ævintýri
Egilsstaðir - Unglingar í vinnu-
skólanum á Egilsstöðum gera
meira en að tína rusl og raka
þetta sumarið. Ráðist var í
skemmtilega nýbreytni í vinnu-
skólanum; að bjóða bæði ferða-
fólki og bæjarbúum upp á
skemmtilega viðburði í sumar.
Á laugardögum í júlí verða
ævintýri fyrir börn í Selskógi
milli kl 10 og 12 en þar gefst
börnum tækifæri til þess að
búa til sitt eigið ævintýri, fara
í leiki, auk þess sem þeim
verður bent á ýmislegt for-
vitnilegt er tengist náttúrunni.
Alla miðvikudaga verða fjöl-
skyldudagar í Lómatjarnar-
garði á Egilsstöðum en mark-
miðið er að koma lífi í garðinn,
auka fjölbreytni í vinnuskólan-
um og nýta listhæfileika unga
fólksins í þágu ferðaþjónustu.
Þar verður boðið upp á sögust-
und fyrir börn, hóplistaverk,
hoppkastala, trambólín, nám-
skeið í notkun leirs o.fl.
Leikræn ijáning verður í há-
vegum höfð og reynt að sjá til
þess að allir hafi gaman af.