Morgunblaðið - 11.07.1998, Blaðsíða 19
MORGUNB LAÐIÐ
VERIÐ
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
KANADÍSKIR eftirlitsmenn komu á dögunum um borð í Eyborgu EA
til að skoða tilskilda pappíra og kanna gæði rækjunnar.
Veiðarnar á
Flæmingjagrunni
hafa gengið vel
____________________________LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1998 1 9
ERLENT
Tekist á um hlutverk nýs alþjóða stríðsglæpadómstóls SÞ
Dregur tímaþröng
úr gildi samningsins?
New York. Reuters.
Aflinn mun meiri
og rækjan betri
en í fyrra
ALLS hafa íslensk skip sem verið
hafa við rækjuveiðar á Flæmingja-
grunni á þessu ári landað og til-
kynnt um rúmlega 1.800 tonna afla,
og hafa veiðarnar upp á síðkastið yf-
irleitt gengið mun betur en á sama
tíma í fyrra. Þrjátíu íslensk skip
fengu úthlutað rækjukvóta á Flæm-
ingjagrunni, en íslensk stjórnvöld
settu 6.800 tonn sem leyfílegan há-
marksafla fyrir íslensku skipin árið
1998. Sami hámarksafli var settur
árið 1997 og þá veiddu íslensk skip
samtals 6.300 tonn. Núna sem
stendur eru sex skip með leyfi til
veiða á Flæmingjagrunni.
Samkvæmt upplýsingum frá
Fiskistofu hefur Svalbarði SI landað
mest íslensku skipanna, eða 725,874
tonnum. Húsvíkingur ÞH hefur
landað 364,165 tonnum, Eyborg EA
hefur landað 89,483 tonnum og Pét-
ur Jónsson RE hefur landað 306,538
tonnum. Þá hefur Stakfell ÞH til-
kynnt 180 tonna afla og Lómur HF
hefur tilkynnt 150 tonna afla.
Mun betra en í fyrra
Magnús Jónasson, hjá Siglfirðingi
hf. á Siglufírði sem gerir Svalbarða
út, segir að veiðar skipsins hafi
gengið mjög vel. Svalbarði væri nú í
fimmtu veiðiferð sinni, en skipið
hefði þurft að koma inn í slipp í tvo
daga fyrir rúmum hálfum mánuði
þar sem skrúfuhringur hefði
skemmst. Svalbarði hefur landað í
Harbour Grace á Nýfundnalandi.
„Þetta hefur verið mjög gott, en á
úthaldsdag hefur aflinn verið íúm
sjö tonn af mjög góðri rækju sem er
mjög gott þegar allt er talið með
eins og siglingin frá Islandi. Hann
verður að minnsta kosti einn túr í
viðbót við þennan sem hann klárar í
endaðan júlí. Þetta er líka spurning
um kvótann. Þetta hefur gengið
mun betur en í fyrra, en bæði er
rækjan mun betri og einnig hefur
fengist meira magn. Afurðaverðið er
þokkalegt en mætti auðvitað alltaf
vera hærra,“ sagði Magnús.
Einar Svansson, framkvæmda-
stjóri Fiskiðjusamlags Húsavíkur,
sem gerir Húsvíking út, sagði að
skipið hefði landað afla sínum eftir
fyrsta túrinn í ár um miðjan júní og
hefði hann gefið 70 milljónir króna.
Öðrum túr Húsvíkings á Flæm-
ingjagrunni lýkur svo 22. júlí.
„Þetta hefur gengið þetur en í
fyrra, en maður veit svo sem ekkert
hvað það heldur. Á þessum tíma er
þetta yfirleitt besti tíminn þarna, en
svo fer rækjan í skelskipti í ágúst-
september og óvissa hvað gerist, en
þetta virðist vera allt önnur líffræði í
þessu þarna heldur en hér heima.
Maður veit ekkert hvað hefur áhrif á
þessa veiði núna, hvort það er ein-
hver hiti eða hvað, og þetta getur
allt saman breyst og orðið öðruvísi
munstur á þessu. En þetta hefur
gengið ágætlega það sem af er og
það er ekkert hægt að kvarta yfir
því,“ sagði Einar.
------------------
Soffanías
Cecilsson hf.
kaupir Sigur-
borgu HU
ÞRÖSKULDAR ehf., dótturfyrir-
tæki Soffaníasar Cecilssonar hf. í
Grundarfirði hefur keypt togbátinn
Sigurborgu HU frá Hvammstanga.
Með skipinu fylgir um 1.000 tonna
þorskígildiskvóti. Sigurborg HU
hefur verið gerð út á rækju og segir
Sigurður Sigurbergsson, útgerðar-
stjóri Soffaníasar Cecilssonar hf.,
að svo verði áfram til að byrja með
en tíminn verði að leiða í Ijós hvað
verði gert í framhaldinu.
Soffanías Cecilsson hf. gerir nú
út tvo báta auk Sigurborgar HU;
Grundfirðing SH og Sóley SH. Sig-
urður segir að með kaupunum á
Sigurborgu HU sé um hreina viðbót
að ræða í kvóta og þau séu til þess
fallin að efla fyrirtækið enn frekar.
Sigurborg SH er 200 brúttórúm-
lesta stálskip, smíðað í Hommelvik í
Noregi árið 1966 og yfirbyggt árið
1977. Afhending skipsins verður 24.
júlí nk.
KOFI Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna (SÞ), telur
hættu á að tímaþröng samninga-
manna á ráðstefnunni um stofnun
alþjóðlegs stríðsglæpadómstóls Sa-
meinuðu þjóðanna muni leiða til
málamiðlana sem gætu dregið úr
gildi samningsins. í bréfi til
Giovanni Conso, forseta ráðstefn-
unnar, lýsir aðalritari SÞ áhyggj-
um sínum af framgangi mála en
einnig von sinni um að þátttakend-
ur sýni samningsvilja í verki og
komi á fót sterkum og sjálfstæðum
stríðsglæpadómstóli.
„Dómstóllinn verður að fram-
fýlgja réttlæti í verki en ekki þjóna
stundarhagsmunum. Hann verður
að vernda hagsmuni þeirra sem
minna mega sín og sýna svo ekki
verði um villst að samfélag þjóð-
anna er ekki samviskulaust," segir
Kofi Annan í bréfinu.
Dómstóll
til frambúðar
Fulltrúar 160 rikja sitja ráð-
stefnuna í Róm. Þeim ber að skila
drögum að samkomulagi um stofn-
un alþjóðlegs stríðsglæpadómstóls
eigi síðar en 17. júlí næstkomandi.
Dómstólnum er ætlað það hlutverk
að sækja einstaklinga til saka sem
grunaðir eru um stríðsglæpi, þátt-
töku í þjóðarmorði eða aðra alvar-
lega glæpi gegn mannkyni.
ÞINGINU í Slóvakíu tókst ekki að
kjósa nýjan forseta í tveimur at-
kvæðagreiðslum á fímmtudag og
ljóst er því að landið verður án þjóð-
höfðingja í að minnsta kosti mánuð
til viðbótar.
Slóvakía hefur verið án forseta
frá 2. mars þegar Michal Kovac lét
af embættinu. Þetta hefur valdið
ráðamönnum í Bandaríkjunum og
Evrópusambandinu miklum
áhyggjum og þeir hafa gagnrýnt
Vladímír Meciar, forsætisráðherra
Oryggisráð Sameinuðu þjóðanna
kom á fót sérstökum dómstólum
árin 1993 og 1994 svo að hægt væri
að sækja stríðsglæpamenn í Jú-
góslavíu og þátttakendur í þjóðar-
morðinu í Rúanda til saka. Nú er
hins vegar í íyrsta sinn gerð til-
raun til þess að stofna stríðsglæpa-
dómstól til frambúðar.
Bandaríkjastjórn vill að lögsaga
dómstólsins sé afmörkuð og skýr.
David Scheffer, fulltrúi Banda-
ríkjastjórnar á ráðstefnunni, segir
hana aðeins geta samþykkt að lög-
saga dómstólsins nái yfir þjóðar-
morð en þá tæki hann ekki til
glæpa gegn mannkyni eða stríðs-
glæpa.
Hann segir það einnig gnind-
vallarspurningu sem svar verði að
finnast við hvort dómstóllinn eigi
að geta sótt til saka ríkisborgara
landa sem ekki hafa staðfest samn-
inginn um alþjóða stríðsglæpadóm-
stólinn. Bandaríkjastjóm geti ekki
samþykkt lögsókn á hendur þegn-
um ríkja sem ekki fallast á lögsögu
slíks dómstóls.
Lögsagan verði víkkuð
Fulltrúi Suður-Kóreu telur hins
vegar að útvíkka eigi lögsögu dóm-
stólsins þannig að þótt sakboming-
ar séu ríkisborgarar landa sem
ekki viðurkenna dómstólinn, nái
lögsagan til þeirra í þrenns konar
Slóvakíu, iyrir að misnota þau völd
sem forsetaembættið á að fara með.
Þingið hefur gert alis tíu tilraunir
til að kjósa nýjan forseta og var
næst því að takast það í síðari at-
kvæðagreiðslunni á fimmtudag.
Eina forsetaefnið, Otto Tomecek,
sem stjórnin tilnefndi, skorti þá að-
eins fjögur atkvæði til að ná kjöri,
en til þess þurfti hann þijá fimmtu
atkvæðanna. Samkvæmt stjómar-
skránni þarf næsta atkvæðagreiðsla
að fara fram innan mánaðar.
tilvikum: Ef fórnarlömbin em rík-
isborgarar landa sem staðfest hafa
samninginn, ef sakborningarnir
era í haldi í aðildarlöndum hans og
ef glæpimir hafa verið framdir inn-
an landamæra ríkja sem era aðilar
að samningnum.
Fulltrúi Bandaríkjastjórnar seg-
ir það í hæsta máta óvenjulegt að
teygja sáttmálasvæðið þannig að
það nái til rikja sem ekki hafi stað-
fest samninginn.
Gagnrýni
maunréttindasamtaka
Hópur 60 ríkja á ráðstefnunni,
sem kenndur er við einhug, styður
stofnun sterks og sjálfstæðs dóm-
stóls, sem hafi vald til þess að
sækja stríðsglæpamenn til saka án
tillits til staðfestingar samnings-
ins. Innan þessa hóps eru flest
Evrópuríki, Kanada, Ástralía, Suð-
ur-Afríka og mörg ríki Suður-Am-
eríku.
Mannréttindasamtök hafa einnig
gagnrýnt Bandaríkjastjóm harð-
lega fyrir að tala máli ríkja sem
hyggist ekki undirrita samninginn.
I þeim flokki era Kína, Indland,
Pakistan, Irak, Líbýa, Kúba og
Súdan.
Talsmenn mannréttindasamtaka
segja afstöðu Bandaríkjanna að-
eins munu leiða til þess að engan
verði hægt að draga fyrir dóm
nema að ríkisstjórn í heimalandi
viðkomandi hafi staðfest samning-
inn og þar með sé í raun allt bit úr
stríðsglæpadómstólnum.
Repúblikanar
andvígir
Litlar líkur era taldar til þess að
samningurinn um alþjóða stríðs-
glæpadómstólinn verði samþykkt-
ur í öldungadeild Bandaríkjaþings
en þar era repúblíkanar í meiri-
hluta. Hins vegar má gera ráð fyrir
því að Bill Clinton, forseti Banda-
ríkjanna, undirriti samninginn en
láti það bíða eftirmanns síns að
senda hann öldungadeildinni til
staðfestingar.
1
Auglýsing varðandi breytingu á Sérstaklega skal bent á viða- miklar breytingar á 23. grein
lögum nr. 76/1970 um lax- og laganna, sem setur flutningi á seiðum til fiskræktar og á
silungsveiði með síðari breytingum fullvöxnum fiski úr eldisstöðv- um og hafbeitarstöðvum til
stangveiði verulegar skorður. Flutningur á fiski til stangveiði
Þann 18. júní síðastliðinn gengu í gildi breytingar á lög- er háður undanþágu til tveggja
um um lax- og silungsveiði nr. 76/1970, sem fluttu éra, sem byggir á faglegu mati
meginábyrgð á stjórnsýslu veiðimála frá landbúnað- varðandi áhrif framkvæmdar-
arráðuneyti til embættis veiðimélastjóra. Eftir breyting- innar á lifríki vatnasvæðisins
una ber aðilum að snúa sér beint til veiðimálastjóra og er oft háö skilyröum. Þeir
varðandi umsóknir og frágang eftirfarandi erinda: sem hyggja á slíkar fram- kvæmdir á árinu 1999 skulu
■ undanþágur, sem veita má samkvæmt ákvæðum laganna ■ heimild til töku á klakfiski sækja um það til veiöimála- stjóra með minnst 6 mánaða fyrirvara til að fullnægja mól- skotsfresti og tryggja eölilegan
■ veiðiskírteini vegna fiskrannsókna i ám og vötnum framgang málsins.
■ heimild til flutnings á hafbeitar- og eldisfiski til veiða Nánari upplýsingar eru veittar
■ gerð fiskræktaréætlunar hjá embætb veiðimálastjóra, Vagnhöfða 7,
■ heimild til byggingar fiskvegar og eftirlit með fram- 112 Reykjavík,
kvæmdinni Sími : 567 640D,
■ heimild til efnistöku og mannvirkjagerðar í og við ár Slmbréf : 567 8850
og vötn
■ útgáfa rekstrarleyfa fyrir fiskeldis- og hafbeitar-
stöðvar
■ skipun veiðieftirlitsmanna : ffiUK
■ skil é lögboðnum skýrslum og gögnum um veiði, Landbúnaðarráðuneytið
fiskrækt og fiskeldi Embætti veiðimálastjóra
Slóvakía enn án forseta
Bratislava. Reuters.