Morgunblaðið - 11.07.1998, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
„Göngutíðin“ heftir för
„friðarlestarinnar“
Reuters
FLÓÐLJÓS lögreglunnar lýsa á Óraníumenn sem á fimmtudagskvöld gerðu áhlaup að varnarmúrum sem
hamla þeim leið niður Garvaghy-veginn í Portadown.
Afstaða manna vegna
*
skrúðgangna Oraníu-
manna á N-Irlandi hef-
ur alla vikuna verið að
harðna, segir Davíð
Logi Sigurðsson, og
sauð loksins upp úr á
fímmtudagskvöld.
DEILURNAR á N-írlandi
vegna skrúðgöngu Óran-
íumanna í gegnum hverfi
kaþólikka í Portadown
hörðnuðu mjög í fyrrinótt þegar til
óeirða kom milli þeirra rúmlega
tuttugu þúsund sambandssinnar,
sem flykkst hafa til Portadown til
að veita Óraníumönnum stuðning
sinn og lögreglu og hers sem reist
hafa varnarmúra til að hefta för
Óraníumanna.
Algert umsátursástand ríkir nú í
Portadown og er gert ráð fyrir að
fjöldi sambandssinna eigi enn eftir
að flykkjast á staðinn í dag og á
morgun og má því búast við enn
frekari átökum ef ekki tekst brátt
að leysa deiluna. Það er hins vegar
hægara sagt en gert úr því sem
komið er því afstaða deiluaðila hef-
ur harðnað með hverjum deginum
sem liðið hefur í þessari viku og því
ekki víst að árangur náist á neyð-
arfundi sem Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, hefur boðað til
í dag.
Sambandssinnar líta á þessa
baráttu sem grundvallarmál sem
verði að vinnast, réttur þeirra til að
ganga um götur N-Irlands og
halda í heiðri forna siði sé heilagur.
A móti er erfitt að sjá hvernig
hægt sé nú að hleypa Drumcree-
göngunni niður Garvaghy-veginn
Camilla var
hjá Karli
eftir dauða
Díönu
London. Reuters.
CAMILLA Parker Bowles,
ástkona Karls Bretaprins, fór
á fund hans skömmu eftir að
Díana prinsessa lést í bílslysi
í París í fyrra, að sögn
breska æsifréttablaðsins
Mirror í gær.
Parker Bowles hefur verið
sökuð um að hafa eyðilagt
hjónaband Karls og Díönu og
vinir hennar höfðu ráðlagt
henni að halda sig frá prins-
inum í að minnsta kosti hálft
ár eftir dauða prinsessunnar.
Mirror hefur eftir vinum
Parker Bowles að hún hafi
verið „algjörlega miður sín
vegna þessa hörmulega
slyss“ og farið til hans fímm
dögum eftir að Díana dó.
Ef marka má viðhorfs-
kannanir er mikil andstaða
meðal Breta við það að Karl
prins kvænist Parker Bowles
og að hún verði drottning.
Þetta kann þó að vera að
breytast þar sem breskir veð-
mangarar telja nú meiri Iík-
ur á hjónabandi þeirra og
hafa lækkað hlutfallið milli
vinnings og veðfjár úr 10/1 í
5/1.
án þess að reita velflesta kaþólikka
á N-írlandi til reiði. Myndu þeir
líta á það sem vísbendingu um að
sambandsinnar ráði enn öllu því
sem þeir vilja ráða á N-írlandi og
að kaþólikkar séu enn álitnir ann-
ars flokks íbúar hverra réttindum
er ávallt fómað þegar skerst í
odda. Kaþólikkar við Garvaghy-
veginn og víðar líta í raun á þetta
mál sem prófstein á einurð breskra
stjómvalda; ætla þau að halda til
streitu ákvörðun sinni um að banna
gönguna, og þannig virða óskir íbú-
anna, eða gefast þau upp fyrir hót-
unum Óraníumanna.
Eldfim ummæli
Óraníumanna
David McNarry, frammámaður í
Óraníureglunni, sagði í fyrradag að
Óraníumenn gætu „lamað n-írskt
þjóðfélag innan nokkuma klukku-
stunda" ef þeir kærðu sig um. Slík
ummæli teljast víst varla í anda
þess friðar sem menn fyrir einung-
is tveimur vikum eygðu á N-írlandi
og hafa þau reitt ansi marga til
reiði, ekki aðeins kaþólikka heldur
flesta málsmetandi stjórnmála-
menn. Þannig fordæmdi Gerry Ad-
ams, leiðtogi Sinn Féin, þau sem
„afar eldfim" en jafnframt reyndi
David Trimble, forsætisráðherra
og leiðtogi Sambandsflokks Ul-
sters (UUP) að draga úr vægi
þeirra.
Um Trimble hefur auðvitað
margt verið rætt og ritað á síðustu
FAST er lagt að Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, að fyrir-
skipa rannsókn á máli ráðgjafa
síns, Rogers Liddle, sem hefur ver-
ið sakaður um að hafa misnotað að-
stöðu sína.
Liddle var einn af stærstu hlut-
höfum Prima Europe, fyrirtækis
sem tekur að sér að hafa áhrif á af-
greiðslu mála á þinginu og var selt
öðru fyrirtæki á þessu sviði fyrir
hálfu ári. Ráðgjafinn kveðst hafa
sett hlutabréfin í vörslu óháðs fjár-
haldsmanns, sem engra hagsmuna
vikum og sem fyrr er staða hans
sem helsta stjórnmáiamanns sam-
bandssinna afar erfið. Hann komst
til valda í flokki sínum fyrir þrem-
ur árum sem harðlínumaður er
haldið hafði rétti Óraníumanna til
streitu að fá að ganga niður Gar-
vaghy-veg en í nýju embætti for-
sætisráðherra hefur hann þurft að
huga að vilja kaþólikka einnig og
hefur sáttafysn hans reitt (fyrrum)
stuðningsmenn í Portadown til
reiði.
Forsvarsmenn Óraníureglunnar
í Portadown hafa undanfarna daga
skákað í því skjólinu að óeirðirnar
séu ekki á vegum reglunnar og að
þeir harmi þær mjög. Óraníumönn-
um hlaut hins vegar að vera fulljóst
að þessi deila gæti orðið harðvítug
þegar þeir sögðust tilbúnir „til að
bíða til áramóta ef þörf kræfi“ eftir
því að fá að ganga niður Garvaghy-
veginn. Jafnframt hlýtur Óraníu-
reglan að bera einhverja ábyrgð á
þeim mannsafnaði sem kominn er
til Portadown, jafnvel þótt margir
þeirra séu ekki meðlimir í Óraníu-
reglunni og einungis komnir á
staðinn til að lýsa reiði sinni og láta
hana bitna á löggæslumönnum í
ólátum eins og þeim er geisað hafa
undanfama daga.
Nær hámarki
á mánudag
Umsátrið við Portadown hefur
nú staðið í tæpa viku og nær að öllu
óbreyttu hámarki á mánudag en
hefði að gæta, þegar hann hóf störf
fyrir Blair.
Francis Maude, talsmaður
íhaldsflokksins í fjármálum, segir
hins vegar að í ljós hafi komið að
„óháði fjárhaldsmaðurinn" væri
gamall samstarfsmaður Liddle í
stjórnmálunum, Matthew Oakes-
hott, og búi í næsta húsi, þannig að
þeir geti „rætt málefni Prima
Europe yfir girðinguna".
Ennfremur benda gögn fyiir-
tækisins til þess að hlutabréfin hafi
ekki verið sett í vörslu fjárhalds-
það er árlegur „þjóðhátíðardagur"
Óraníumanna í minningu Vilhjálms
af Óraníu, Hollendingins sem vann
bresku krúnuna af kaþólikkanum
Jakobi Stúart árið 1690 við Boyne-
ánna á írlandi. Þá fer einnig fram
önnur umdeildasta ganga reglunn-
ar, á eftir Drumcree-göngunni, í
gegnum hverfi kaþólikka við Or-
meau-götuna í Belfast.
„Göngunefnd" stjómvalda hefur
ákveðið að leyfa þá göngu og til-
raunir íbúanna til að fá þeirri
ákvörðun hnekkt fyrir dómstólum
reyndist árangurslaus í gær. Má
því búast við einhverri úlfúð þar
sem sjálfsagt verður heiftugri en
ella þar sem spenna vegna
Drumcree-göngunnar hefur magn-
að staðfestu beggja deiluaðila um
að gefa ekki eftir. Verða þá kaþ-
ólikkar væntanlega í sviðsljósinu ef
eða þegar kemur til óeirða.
Þeim er vissulega vorkunn sem
erfitt eiga með að skilja hvernig
íbúar N-írlands gátu fyrir tveim-
ur vikum verið að kjósa á nýtt
þing, samkvæmt svokölluðum
„friðarsamningi", en horfa nú enn
upp á óeirðir. Hitt hefur hins veg-
ar alltaf verið ljóst að hinn raun-
verulegi prófsteinn á friðarferlið á
N-írlandi yrði júlímánuður þegar
göngur Óraníumanna næðu há-
marki. Nú er því bara að bíða og
sjá hvort á einhvern ótrúlegan
hátt tekst að yfirstíga þennan
þröskuld sem heftir för „friðar-
lestarinnar."
mannsins fyrr en mánuði eftir að
Liddle hóf störf fyrir Blair. Maude
hefur því krafist opinberrar rann-
sóknar á málinu.
Blaðið Observer fullyrti á sunnu-
dag að Liddle hefði lofað blaða-
manni, sem villti á sér heimildir og
þóttist vera bandarískur kaup-
sýslumaður, að sjá til þess að hann
gæti rætt við ráðherra og háttsetta
embættismenn. Liddle neitaði
þessu og Blair kvaðst bera fullt
traust til ráðgjafans.
Yaxandi
spenna
vegna
Kýpur
BORÍS Jeltsín, forseti Rúss-
lands, ætlar að eiga fund með
Glafcos Clerides, forseta Kýp-
ur-Grikkja, á mánudag en vax-
andi spenna er vegna fyrirhug-
aðrar sölu Rússa á loftvarnaeld-
ílaugum til Kýpur. Rússneski
herinn hefur að undanförnu
verið að þjálfa grískættaða,
kýpverska hermenn í meðferð
eldflauganna en búist er við, að
þær verði afhentar á næstu
mánuðum. Tyrkneska stjórnin
hefur lýst yfir, að telji hún eld-
flaugarnar vera ógnun við ör-
yggi Tyrkja og Kýpur-Tyrkja
muni hún hugsanlega beita
valdi til að koma í veg fyrir upp-
setningu þeirra. Auk þess yrði
fjölgað í tyrkneska herliðinu á
eynni en henni var í raun skipt á
milli þjóðarbrotanna 1974.
Kviknaði í
hreyfli
FARÞEGAÞOTA frá American
Airlines nauðlenti á flugvelli í
San Juan á Puerto Rico í fyrra-
dag með annan hreyfilinn log-
andi. Um var að ræða Airbus
A300 og var hún nýkomin á loft
frá San Juan á leið til Miami
þegar í hreyflinum kviknaði.
Var þá lent aftur og farþegun-
um, 242 talsins, skipað að yfir-
gefa vélina um neyðardyr.
Meiddust þá nokkrir lítilsháttar.
Indverjar
þversum
ATAL Behari Vajpayee, for-
sætisráðherra Indlands, sagði í
gær á þingi, að indverska
stjórnin myndi ekki beygja sig
fyrir kröfum vestrænna ríkja
um að hún undirritaði skilyrðis-
laust samninginn um bann við
kjarnorkutilraunum. Sagði
hann, að samningurinn leyfði
kjarnorkuveldunum fimm,
Bandaríkjunum, Bretlandi,
Frakklandi, Kína og Rússlandi,
að fullkomna sín kjarnavopn en
byndi hendur annarra.
ftreka stuðn-
ing við Tævan
BANDARÍSKA öldungadeildin
samþykkti í gær með miklum
mun að ítreka stuðning Banda-
ríkjanna við Tævan en
repúblikanar sögðu, að það væri
nauðsynlegt eftir yfirlýsingar
Bills Clintons forseta í Kína-
ferðinni. Er ályktunin ekki
bindandi íýrir Clinton en hann
er hvattur til að fá Kínverja til
að hafna valdbeitingu gegn
Tævönum.
Kynþáttamis-
munun í Osló
LÖGREGLAN í Ósló hefur nú
til rannsóknar mál dyravarðar á
veitingahúsi, sem sakaður er
um að mismuna mönnum eftir
kynþætti. Hefur hann með öðr-
um orðum reynt að útiloka fólk
úr ýmsum minnihlutahópum í
Noregi og en það biýtur í bága
við norsk lög. Hafa raunar fleiri
dyraverðir verið kærðir fyrir
það sama en ákveðið var að
birta aðeins einum þeirra
ákæru og aðeins honum en ekki
veitingastaðnum.
Ráðgjafí Blairs í vanda
London. Reuters, The Daily Telegraph.