Morgunblaðið - 11.07.1998, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
MARGMIÐLUN
LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1998 33<
Barist um olíu
LEIKJAFYRIRTÆKIÐ Acti-
vision gefur út á næstunni leikinn
Vigilante 8, bílaleik þar sem mark-
miðið er að eðileggja alla mótherja
sína eins fljótt og mögulegt er. I því
minnir leikurinn óneitanlega talsvert
á Interstate 76, vinsælan leik sem
Activision gaf út fyrir nokkru fyrir
PC tölvur.
í Vigilante 8 eru er hægt að velja
um átta leikmenn, 4 „vonda“ og fjóra
„llgóða". Þeir góðu og þeir vondu
standa í endalausri baráttu því þeir
vondu (Coyotes) vilja eyðileggja af-
ganginn af olíulindum heimsins og
ná þannig algjörum yfirráðum á olíu-
markaði. Þeir góðu
(Vigilantes) vilja hinsvegai-
ekki hafa það að heimabæir
þeirra þurfi að líða fyrir
græðgi Coyotes.
Hver persóna í leiknum þarf
að ganga í gegnum lítinn hluta af
leiknum, fjögur borð í senn en
átta borð eru í honum. Þegar tvær
persónur hafa klárað fjögur borð
hver er hægt að velja læsta persónur
sem enda svo með því að berjast um
yfirráðin.
Fimm stöðluð vopn eru í Vigilante
8, eldflaugar sem leita ekki upp skot-
mark sitt, eldflaugar sem leita uppi
skotmark sitt, fallbyssa sem skýtur
sprengjum upp í loftið sem reka svo í
áttina að skotmarkinu, fallbyssa sem
skýtur sprengikúlum í átt að skot-
markinu og jarðsprengjur. Hver
persóna hefur svo sitt sérvopn sem
veldur mjög miklum skaða.
Bílarnir í leiknum eru átta plús
fjórir sem eru
læstir og er hver
um sig mismunandi
hvað varðar hraða,
styrkleika og hversu erfitt er að
hitta þá.
Tónlistin í leiknum er greinilega
frá árunum 1970-80 og er þar komið
annað atriði sem minnir talsvert á
Interstate 76.
Hægt er að keppa við annan leik-
mann og skiptist þá skjárinn til
helminga og hægt að velja
hvort hann skiptist lárétt eða
lóðrétt.
Borðin í leiknum eru afar mis-
munandi, frá skíðastað í Colorado
til Las Vegas í Nevada.
Hægt er að gera við bílinn í leikn-
um með þvi að finna skiptilykla sem
bæta orkuna, einnig er hægt að fá
skjöld, radar truflara og aukinn
styrk á vopnin.
Þegar keppandi rekst á umhverfi
leikjarins kemur vanalega ekkert fýr-
ir en vegna galla í leiknum er ekki
óvanalegt að bíllinn skjótist hátt í loft
upp við minnsta árekstur sem verður
það afar hvimleitt á endanum.
Vigilante 8 er frábær akursbar-
dagaleikur sem minnir um margt á
Interstate 76 og ekki leiðum að líkj-
ast.
Ingvi M. Árnason
LEIKUR
Vigjlante 8, Ieikur fyrir PlayStation
frá Activision.
Islandsmót í Quake 2
FÁTT JAFNAST á við það að
vega mann og annan yfir Netið,
þá helst í Quake eða Quake II.
Þúsundir manna keppa daglega í
þeim leik á Netinu, þar af fjöl-
margir hér á landi. Nú er
framundan íslandsmót í Quake II
á vegum félags tölvuffkla sem
nefnir sig Skjálfta.
Keppt verður í einstaklings og
liðakeppni (5 manna lið) á Islands-
mótinu 25. júlí nk. í Tónabæ.
Keppt verður á staðameti (LAN)
og þurfa keppendur að koma með
eigin tölvu. Netþjónar og netbún-
aður svo sem kaplar og tengi
verða á staðnum en keppendur
þurfa sjálfir að kaupa netspjald sé
það ekki til staðar í tölvum þeirra.
Að sögn Björns Hjaltasonar,
sem kallar sig Happycat í Quake-
netleikjum, er Skjálfti hópur
stráka sem hefur komið saman og
nettengt tölvur sínar síðan á tím-
um Doom (um 1993-4). „Við erum
fimm talsins og eigum það sam-
eiginlegt að hafa allir verið í
Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Slyálfti hét upphaflega Sixpack,
en það nafn varð til þegar við vor-
um að setja upp Windows 3.11 og
vildum annað nafh en „work-
group“, en nú þegar við stöndum í
framkvæmdum þá vildum við
hafa fslenskt nafn sem allir gætu
kennt sig við og notuðum það
fyrsta sem okkur datt í hug.“
Björn er einn stofnmeðlima en
hinir eru Sigurður Ingi Ævarsson
„Flumph“, Björn Guðjónsson
„Xanthos", Guðmundur Ingi
Gunnarsson „Iliactive" og Högni
Þór Gylfason „Akira“.
Keppt verður í Tónabæ 25. júh'
næstkomandi eins og getið er og
hefst keppni klukkan 14. Keppt
verður í Capture the Flag, eða
náðu veifunni, með fimm manna
liðum sem keppendur geta annað-
hvort komið sér saman um fyrir
keppnina eða á staðnum. Líka
verður keppt í venjulegu Deat-
hmatch, allir á móti ölium. I veifu-
leiknum er stefnt að því að öll lið-
in mætist og gefin stig. Verði ein-
hver lið jöfn að því loknu er farið
í bráðabana. I Deathmatch er
stefnt að því að keppa nokkra
leiki og þeir tíu efstu keppi sfðan
úrslitaleik.
Björn segir að verðlaun séu
óljós sem stendur, en þeir félagar
hafi fengið fyrirheit um áritað
veggspjald frá starfsmönnum hjá
Id Software sem búið hafa til leiki
eins og Wolfenstein, Doom og qu-
ake, „en sökum einhverra innri
átaka hjá þeim er enn óvíst hvort
gripurinn berst. Önnur verðlaun
eru Netáskriftir hjá Landssíman-
um sem styrkir mótið og lánar
okkur tækjabúnað."
Quake II er mikið spilaður yfir
Netið en Björn segir að þeir fé-
lagar hafi ákveðið að halda
keppnina á staðarneti því þeir
vildu sjá manninn bak við músina.
„Við viljum hitta þetta fólk sem
situr heima hjá sér um helgar og
spilar Deathmatch þar til augun
verða rauð og þrútin. Við viljum
leiða saman fólk með lík áhuga-
mál. Við viljum sjá gleð-
ina/gremjuna þegar einhver
drepur/er drepinn. Framhaldið
ræðst af keppendum okkar, ef
viljinn er fyrir hendi þá munum
við skipuleggja fleiri mót, í fleiri
leikjum, skipuleggja íslenska Clan
deild, halda Lan-partí, o.fl.“
Hægt er að skrá sig í mótið á
heimaslóð mótsins, http://qu-
ake.simnet.is.
AÐSENDAR GREINAR
Islenskt mál og
ósannindi - IV
í ÞESSARI fjórðu
grein um orðanotkun í
tengslum við sjávarút-
vegsmál, langar mig að
fjalla um orðið þjóð. Áð-
ur hef ég rætt um orðin
eignatilfærsla, sægreifi
og gjafakvóti. I orða-
bókum segir að orðið
þjóð standi iyrir stóran
hóp fólks sem eigi sér
að jaftiaði sameiginlegt
tungumál og menningu
og búi oftast á sam-
felldu landssvæði. Þetta
er hátíðleg skilgreining
og á tyllidögum erum
við þjóð samkvæmt
henni.
Upp í hugann kemur
17. júní með fjallkonu og lúðrasveit,
sól og sunnan andvara. Andi Jóns
Sigurðssonar svífur sjálfgefinn yfir
vötnum. Þetta er þjóðin sem „Þjóð-
vaki um þjóðareign" er alltaf að tala
um í áróðrinum gegn kvótakerfinu,
Við erum fyrirmynd,
segir Bjarni Hafþór
Helgason. Þegar and-
stæðinga kvótakerfis-
ins þrýtur rök, tala þeir
um þjóðina.
þjóðin sem fær ekki að njóta af-
raksturs af auðlindinni. Sautjánda-
júní-þjóðin. Veruleikinn að baki
áróðrinum er hins vegar allt annar.
Þegar talað er um veiðigjald eða
breytt íyrirkomulag á meðferð afla-
heimilda í þágu þjóðarinnar, er í
raun ekki verið að tala um sautj-
ánda-júní-þjóðina. Það er verið að
tala um ríkissjóð. Ríkissjóður er
hins vegar ekki þjóðin þótt hann sé
notaður til að innheimta peninga og
borga fyrir tiltekna starfsemi. Þjóð-
in gerir ótalmargt fleira með líf sitt,
en sem nemur vinnudegi ríkissjóðs.
Og það er oft deilt um ríkissjóð.
Þeir sem tala hæst um að þjóðin
eigi að fá auðlindina í hendur, gagn-
rýna ríkissjóð mest. Þeir segja að
spilltir stjórnmálamenn og
kerfiskarlar ráði þar ríkjum og raði
gæðingum sínum í feit embætti.
Þeir segja helming þjóðarinnar
svíkja undan skatti. Þeir segja fötl-
uðum og lasburða hent út á guð og
gaddinn. Þeir segja allt of litlum
fjármunum varið til menntamála á
meðan embættismenn ferðist með
mökum sínum á tilbúnar ráðstefnur
í útlöndum. Þeir segja valdaklíkur
stjórnmálaflokka skipta á milli sín
sukkinu. Allt þetta og fleira segir
„Þjóðvaki um þjóðareign" um starf-
semi ríkissjóðs á íslandi. Um leið er
talað um veiðigjald og aflaheimildir
til handa þessum sama ríkissjóði. í
áróðrinum heitir hann þjóðin. Sautj-
ánda-júní-þjóðin. Hjá þeirri þjóð er
enginn kolkrabbi, enginn smokk-
fiskur, ekkert Hag-
kaupsveldi, ekkert
bankasukk og enginn
ríkissjóður. Bara blöðr-
ur og litlir fánar í sunn-
an andvara; þjóðin sem
fær ekki arð af auðlind-
inni sinni. Þetta er
blekkingin um lands-
byggðarskattinn veiði- mr
gjald, sett fram í nafni
þjóðarinnar. Undir
niðri vita flestir að ís-
lenska kvótakerfið er að
leggja grunn að fram-
tíðarvelmegun þessa
samfélags. Aðrar þjóðir
hafa tekið okkar kerfi
upp að hluta eða eru í
þann veginn að innleiða
það. Islenskir sérfræðingar hafa
verið fengnir til ráðgjafar í þessum
efnum, m.a. fyrir milligöngu Al-
þjóðabankans. Við erum fyrirmynd.
Þegar andstæðinga kvótakerfisins
þrýtur rök, tala þeir um þjóðina.
Þeir segja að þjóðin þoli ekki rang-
lætið. Þeir segja að sætta verði’*'
þjóðina. Þeir segja að þjóðin muni
rísa upp. Þeir segja að þjóðin verði -
að fá arð af auðlindinni. Það er ein-
kennilegt þegar tilteknir menn
byrja allt í einu að tala í umboði
þjóðarinnar, mæla fyrir hennar
munn, lýsa líðan hennar og afstöðu
til einstakra mála. Hvemig sækir
maður sér svona umboð? Blekkj-
andi orð hafa einkennt umræðuna
um kvótakerfið og þjóðina; eignatil-
færsla, sægreifi, gjafakvóti og
fleiri. Menn fullyrða hitt og þetta
um vilja þjóðarinnar sem enginn
getur sannað eða afsannað. Til að
rökstyðja fullyrðingamar em birt-
ar hlægilegar skoðanakannanir þar
sem fólk er spurt hvort það vilji
ekki lifa ókeypis? Sautjánda-júní-
þjóðin er öll í einni þjóðskrá. Þar
eru tvöhundrað og sjötíu Jjúsund
persónur færðar til bókar. I „Þjóð-
vaka um þjóðareign“ eru rúmlega
tvö þúsund einstaklingar á nafna-
lista. Þeir tjá sig um vilja þjóðar-
innar. Lífið sjálft er þó ekki leikur
að orðum.
Höfundur er framkvæmdasljóri lJt-
vegsmannafélags Norðurlands.
Vöggusængur,
vöggusett.
Shólwartfcmtea Storf5514(>}» Ktykjmfk.
Bjami Hafþór
Helgason
Góður ATX-LX tum j
300 mhz Pentium II örgjörvi |
64 MB SDRAM vinnsluminni
4.3 GB Ultra DMA harður diskur
15’ hágæða skjár
32 hraða geisladrif
8MB Matrox Productiva skjákort
16 bita hljóðkort
280 Watta hátalarar
33.6.K BPS mótald m/ fax og símsvara
4 mánaða internetáskrift hjá Islandia
Windows lyklaborð
Logitech PS/2 mús V4I
WINDOWS 98 stýrikerfi VV
G rafískur skjár
Léttur og nettur:
137 gr. & 19mm þykkur
60 mínútur frítt* (
TALhólf \
SMS textaskilaboð
*60 mín.
fylgja öllum
þjónustu-
leiðum TALS.
Frlmlnút-
urnar gilda
til 14.08 /
Motorola SlimLite
GSM TALkort
BT • SKEIFAN 11 • SIMI 550-4444 • POSTKROFUSIMINN 550-4400
IHb'i'iTiT*
k
>
9 L - *°