Morgunblaðið - 11.07.1998, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 11.07.1998, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1998 39 MINNINGAR + Ingólfur Snorri Ágústsson fæddist í Reykjavík 2. júlí 1917. Hann lést á heimili sínu 7. ágúst 1997 og fór útfór hans fram frá Dómkirkjunni 15. ágúst. Sjá Tíminn, það er fugl, sem flýgur hratt, hann flýgur máske úr augsýn þér í kveld. Svo hefur nú farið. Tíminn hefur flogið, bráðum heilt ár frá að aldavinur minn Ingólfur Agústsson var til hinstu hvílu lagður og nú fyrst kem ég í verk að minnast hans með nokkrum einföldum lín- um. Leiðir okkar lágu saman í Vá- sterás í Svíþjóð 1941 þegar Ingi stundaði nám við Tekniska háskól- ann í Stokkhólmi. Á þeim árum var þess krafíst að stúdentar í raf- magnsverkfræði við TH skyldu starfa ákveðinn tíma hjá ASEA í Vásterás, en hagur þess fyrirtækis stóð með miklum blóma þessi ár. Ekki greiddi stórfyrirtækið nemendum stórar summur fyrir störf þeirra, en yfirlýsingu máttu þeir undirrita, þess efnis, að ef svo færi að þeir gerðu ein- hverja nýja uppgötvun eða einhverjar tækni- legar endurbætur þá tilheyrði það fyrirtæk- inu. Tímakaup nema mun verið hafa 1,25 kr. Þetta var sumar- vinna milli náms við háskólann og var því pyngja margra námsmanna jafnan næsta létt. Það atvikaðist svo um þessar mundir að ég átti heima í Vásterás og bjó í garðhúsi í stórum trjá- garði sem ég sá um. Þetta var snoturt hús og yfir það breiddi voldugur hlynur sína miklu krónu. Þetta var ágæt íbúð með flestum þægindum og tilvalinn bústaður fyi-ir tvo. Eg gat því boðið Inga húsnæði meðan hann vann hjá ASEA og við gátum haft allt eins og okkur líkaði og undum okkur hið besta. Um helgar hjóluðum við út um sveitir og sáum mikið af landinu. Einu sinni leigðum við okkur tveggja manna (tandem) hjól og héldum til Uppsala, drukk- um fornan mjöð úr hornum í Gamla Uppsala og skoðuðum haugana, sem talið er að séu orpn- ir yfir fornkonungum. Við tjölduð- um í skógarlundum, skoðuðum frægar fornminjar og reyndum okkur við að lesa á rúnasteina. Við vorum góðir bræður og varð aldrei sundurorða, ávörpuðum hvor ann- an sem bróður, bæði í ræðu og riti. Ég leit, á þessum árum, mikið upp til þeirra, sem höfðu stúdents- menntun, en Ingi gerði góðlátlegt grín að og hvatti mig til að halda áfram mínu utanskólanámi. Vel má vera að sú hvatning hafi haft meiri þýðingu en mig grunaði. Ég treysti mjög á dómgreind Ingólfs og tók mikið tillit til þess, sem hann sagði. Ingólfur var frábært prúðmenni til orðs og æðis, glögg- skyggn á menn og málefni, orð- var. Ein jól héldum við saman í garð- húsinu okkar, sem mér eru minnis- stæð. Úti var kyrrð, snjór og 30 stiga frost svo við sátum fyrir framan aringlóðina, horfðum á birkiviðinn taka eld, glóa og loks hrynja saman í glóandi eisu með óteljandi, hverfulum, flöktandi myndum. Það var jólafriður, sem gott er að minnast. Svo hvarf Ingi heim til mikil- vægra starfa, en mörg bréf fóru okkar á milli og geymast mörg þeirra enn. Loks kom svo að því að ég flytti heim. Eru mér í minni þær viðtökur, sem ég fékk hjá foreldr- um Ingófls þeim Ágústi og Sigríði í Rafstöðinni við Elliðaár. Það var eins og að koma tfl foreldra og í systkinahóp. Upp frá því átti ég, um árabil, athvarf í „Stöðinni" hjá þeim mætu hjónum þegar ég var í sumarvinnu hjá RR í bænum eða austur við Sog. Eftir að ég og fjöl- skylda mín fluttum heim og ég með langþráða háskólagráðu, til sér- fræðistarfa, urðu fundir okkar færri en báðir vildu - svona bara verður einhvern veginn af sjálfu sér. Nú er hann horfínn, minningin lifír um góðan dreng, tryggan vin, heilsteyptan persónuleika. Ég er forsjóninni þakklátur fyrir að hafa veitt mér það lán að hafa átt Ingólf Ágústsson að vini. Jón Jónsson. Skila- frestur minning- argreina EIGI minningargi-ein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist gi-ein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingar- degi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær birtist innan hins tiltekna skilafrests. INGOLFUR SNORRI ÁGÚSTSSON A O UGLÝ5INGAR ATVINIMU- AUGLÝSINGAR Kennarar athugið! Enn vantar kennara næsta skólaár við Grunn- skóla Austur-Landeyja. Skólinn er einsetinn, fámennur grunnskóli, staðsettur um 120 km suðausturfrá Reykjavík. Nemendur eru 34 í 3 deildum og þeir eru einstaklega áhugasamir og skemmtilegir starfsfélagar. Hvernig væri nú að skella sér í sveitina og kenna þar, þið sjáið ekki eftir því. Frekari upplýsingar gefurskólastjóri, Svanhild- ur Ólafsdóttir, í síma 487 8503 eða 487 8582. Loftræsti- og hitakerfi Óskum eftir starfskrafti til að kynna og selja loftræstikerfi og hitakerfi, stjórn og stýribúnað. Hæfniskröfur: Þarf að vera skipulagður, geta unnið sjálfstætt og eiga auðvelt með mannleg samskipti. Tæknifræði eða önnur sambærileg menntun æskileg. Vinsamlegast skilið inn umsóknum fyrir 20. júlí 1998, merktum: „6211". Viðskiptasambönd óskast til að kynna fjölmargar vörutegundir frá Kanada og Bandaríkjunum. Vinsamlega hafið samband við Lorne Urqu- hart, netfang: cxna@netcom.ca eða skrifið á heimilisfang 12 Dawn Drive, Dartmouth, Nova Scotia, Canada B3B 1H9. Bílstjórar og traktorsgröfumenn Vantar vana bílstjóra og traktorsgröfumenn strax. Mikil vinna framundan. Upplýsingar í símum 852 1137 og 565 3140. Klæðning ehf. TILKYNNINGAR Handverksmarkaður Handverksmarkaður verður á Garðatorgi í dag 11. júlí, frá kl. 10.00-18.00. Milli 40 og 50 aðilar sýna og selja muni sína. Kvenfélagskonur sjá um kaffisölu. Vinningshafar í happdrætti Lífshátta- og neyslukönnunar Félagsvísindastofnunar Háskóla íslands. 1. vinningur: Miði nr. 128. 2. vinningur: Miði nr. 20. 3. vinningur: Miði nr. 1187. Lokað vegna sumarleyfa Skrifstofa og verslanir í Reykjavík verða lokað- arfrá og með 20. júlí—17. ágúst vegna sumar- leyfa. Sala varnarliðseigna, Umsýslustofnun varnarmála. Lokun vegna sumarleyfa Skrifstofa og verslun Slysavarnafélagsins verður lokuð vegna sumarleyfa frá 13. júlí til 10. ágúst nk. Sala minningarkorta er í síma 562 7000. Slysavarnafélag íslands. ATVINNUHÚSNÆÐI :S2r FASTEIGNAMIDSTÖDIN SKIPH0I7150B - SÍMI552 6000 - FAX 552 6005 Verslunarhúsnæði Til sölu um 100 fm verslunarhúsnæði á götu- hæð við fjölfarna verslunargötu. Ýmsir mögu- leikar, t.d. fyrir söluturn eða myndbandaleigu o.fl. Verðhugmynd 7,0 millj. 9307. Veitingasala Sundakaffi í Sundahöfn ertil sölu eða leigu. Áhugasamir leggi inn nafn og heimilisfang á afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir 16. júlí nk., merkt: „E - 5296." FUNDIR/ MANNFAGNAÐU'R Aðalfundur Félags Sameinuðu þjóðanna á íslandi verður haldinn þriðjudaginn 21. júlí kl. 17.30 á Hótel Esju, Þerney, II. hæð. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF e« ; R iV.V/ =3 Hallucigarstig 1 • sími 561 4330 Dagsferðir sunnudaginn 12. júlí. Frá BSI kl. 10.30 Kóngs- vegurinn 5. áfangi. Gengið frá Þingvöllum að Laugarvatnsvöll- um. Komið við í Skógarkoti, Vell- ankötlu, Stelpu(steins)helli, Tintron, og Laugarvatnshelli. Verð 1500/1700. Frá Select Vesturlandsvegi kl. 9.00. Hjólaferð, Vigdisarvellir, Djúpavatn til Grindavíkur. Farið í BÍáa lónið og tekin rúta til Reykjavíkur. Verð 1700/1900. Hálendishringurinn 25. júlí—2. ágúst. Skemmtileg ferð um hálendið. Ekin Gæsa- vatnaleið, farið í Herðubreiða- lindir o.fl. Fararstjóri Ágúst Birg- isson. Undirbúningsfundur verð- ur mánudag 20. júlí kl. 20.00. Spennandi sumarleyfisferðir með jeppadeild Útivistar. 18.—25. júlí. Lónsöræfi. Ekið í Lónsöræfi. Dvalið á öræfunum nokkra daga og skoðaðir áhuga- verðir staðir. Fararstjóri Erla Guðmundsdóttir. 1.—8. ágúst. Gæsavötn. Ekið í Nýjadal, Gæsavatnaleið, farið í Kverkfjöll og að Snæfelli. Farar- stjóri Haukur Pareiíus Finnsson. Dalvegi 24, Kópavogi. Almenn samkoma í dag kl. 14.00. Allir hjartanlega velkomnir. FERÐAFÉLAG # ÍSLANDS MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533 Sunnudagur 12/7 Kl. 8.00 Þórsmörk, dagsferð eða til lengri dvalar. Minnum á mið- vikudagsferðirnar. Kl. 10.30 Esja: Kistufell að austan — Gunnlaugsskarð. Kl. 13.00 Esjuhlíðar: Kögunarhóll — Mógilsá, fjölskylduganga. Verð 1.000 kr. Brottför frá BSÍ, austanmegin og Mörkinni 6. Netfang: fi@fi.is TILKYNNINGAR Dagskrá helgarinnar 11.-12. júlí 1998 Laugardagur Kl. 11.00 Leikur er barna yndi Barnastund fyrir alla krakka í Hvannagjá. Sögur, leikir og helgi- hald. Hefst við þjónustumiðstöð og tekur 1 — Vh klst. Munið að vera vel búin. Kl. 14.00 Lögbergsganga Gengið um hinn forna þingstað í fylgd sr. Heimis Steinssonar. Lagt verður upp frá hringsjá á Haki, gengið um Almannagjá á Lögberg og endað í Þingvalla- kirkju. Gangan tekur um 1 klst. Kl. 15.00 Skógarkot — Ijóð og sögur frá Þingvöllum Gengið verður inn í Skógarkot og farið með sögur og Ijóð frá Þing- völlum, auk þess sem spjallað verður um það sem fyrir augu og eyru ber. Þetta er létt ganga en þó er gott að vera vel skóaður og að taka með sér nestisbita. Gang- an hefst við Flosagjá (Peninga- gjá) og tekur u.þ.b. 3 klst. Sunnudagur Kl. 14 00 Guðsþjónusta í Þingvallakirkju Prestur sr. Heimir Steinsson, sóknarprestur, organisti Ingunn Hildur Hauksdóttir. Kl. 14.30 Umgjárað Öxarárfossi Gengið verður frá þjónustu- miðstöð um Tæpastíg í Snóku, að Öxarárfossi og til baka um Fögrubrekku. Á leiðinni verður fjallað um náttúrufar og aðkomu- leiðir til þingstaðarins forna. Nauðsynlegt er að vera vel skóaður og gjarnan má hafa með sér nesti. Gangan tekur 2V5—3 klst. Kl. 15.00 Litast um af lýðveldisreit Sr. Heimir Steinsson tekur á móti gestum þjóðgarðsins á grafreit að baki kirkju og fjallar um náttúru og sögu Þingvalla. Allar nánari upplýsingar veita landverðir í þjónustu- miðstöð þjóðgarðsins, sem er opinn frá kl. 8.30—20.00, sími 482 2660.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.