Morgunblaðið - 11.07.1998, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1998 41
FRÉTTIR
Lánasjóður
landbúnaðarins
1. verðlaun í hug-
myndasamkeppni
GUÐRÚN J. de Fontenay í Hafn-
arfirði fékk fyrstu verðlaun í hug-
myndasamkeppni um merki fyrir
Lánasjóð landbúnaðarins. Stjórn
sjóðsins hefur ákveðið að gera til-
lögu Guðrúnar að merki fyrir
sjóðinn.
Lánasjóðurinn fékk 40 tillögur
að merki frá tólf aðilum. Að feng-
inni umsögn fagfólks valdi stjórn
sjóðsins þijár bestu tillögurnar.
Guðrún hlaut fyrstu verðlaun,
Birgir Björnsson í Reykjavík fékk
2. verðlaun og Eiríkur Brynjólfs-
son í Vínlandi fékk 3. verðlaun.
Merki sjóðsins, samkvæmt til-
lögu Guðrúnar J. de Fontenay,
birtist hér með.
Ættarmót
Gunnlaugs-
staðaættar
ÆTTARMÓT afkomenda Jóns Þór-
ólfs Jónssonar og Jófríðar Asmunds-
dóttur verður haldið helgina 24.-25.
júlí á Þórisstöðum í Hvalfirði. Þau
hjónin bjuggu á Gunnlaugsstöðum í
Stafholtstungum frá árinu 1902 til
dauðadags. Þau eignuðust 16 börn
og afkomendur þein-a eru nú ríflega
300.
Skipulögð dagskrá hefst á laugar-
deginum. Nánari upplýsingar veitir
Þórdfs Wiencke.
HJÓNIN Jón Þórólfur Jónsson
og Jófríður Asmundsdóttir.
Ssmanburður á f|ðld* frétlavlðtafs f Hlklaijónvarpfnu vfð
Inglbjörgu Sólrúnu Gfsladótfur cg Árna Slgfússon
koaningavsfurfnn 97-98
Samanburður á fjðkfa fráftaviðtala f Rfklaútvarplnu vfð
Ingibjörgu Sólrúnu Gfsladóttur sg Áma Slgfússon
koanlngavaturlnn 97-98
ÚtonptUifi* * *ww*l**to***>
M, 1220 •
ftfónv*fp*U6tiít A **j#**s tðvúr <v
W 2Ú-00 • **-**«*»
UvyvpHiSí.tfjriAtmiktbSO
iL.L.nu.J
Segja fréttastofunni hafa
verið beitt í þágu R-listans
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá Sjálfstæðisflokknum:
„Á undanförnum vikum hefur
umfjöllun fréttastofa Ríkisútvarps-
ins, hljóðvarps og sjónvarps, um
borgarstjórnarkosningamar í
Reykjavík í maí sl. verið rædd mikið
bæði á opinberum vettvangi og í út-
varpinu. Laugardaginn 4. júlí sl.
birtist í Morgunblaðinu grein eftir
starfsmann Reykjavíkurborgar þar
sem reynt er að bera blak af ríkis-
fréttastofunum í þessu efni.
Sannleikurinn er hins vegar sá að
báðar fréttastofur Ríkisútvarpsins
höfðu mánuðum saman með kerfis-
bundnum hætti mismunað borgar-
stjórnarframboðum R-listans og
Sjálfstæðisflokksins. Þetta sýna
hjálagðar myndir glöggt. Leiðtogar
meirihluta og minnihluta í borgar-
stjórn em aðaltalsmenn framboða
og flokka sinna. Yfirlit yfir viðtöl við
leiðtogana í fréttatímum Ríkisút-
varpsins gefur því gleggstu mynd-
ina af því hvernig þessum tveim
fréttastofum hefur grímulaust verið
beitt í þágu Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur og R-listans. Það tíma-
bil sem er hér til skoðunar sýnir að
leiðtogi R-listans kemur meira en
tvöfalt oftar fram í fréttum Ríkisút-
varpsins en leiðtogi borgarstjórnar-
flokks Sjálfstæðisflokksins, Árni
Sigfússon. Þess er síðan gætt að í
maímánuði, kosningamánuðinum
sjálfum, sé nánast jafnvægi milli
leiðtoganna tveggja enda var þá ár-
angri mismununar kjörtímabilsins
náð. Hjálagt eru myndir sem sýna
hversu oft var rætt við Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur og Árna Sig-
fússon í fréttatímum Ríkissjón-
varpsins í september 1997 til maí
1998, kosningaveturinn, svo og hvar
í röð frétta viðtölin voru. Upplýsing-
ar þessar erú úr fjölmiðlakönnun
Miðlunar.“
Ljósmynd/Magnús Ver
VESTFJARÐAVÍKINGURINN Reginn Vaagdal og sterkasti maður
íslands 1998, Gunnar Þór Guðjónsson.
Gunnar Þór sterkasti
maður Islands
GSM í Hval-
fjarðar-
göngunum
LANDSÍMINN mun bjóða upp
á GSM-þjónustu í Hvalfjarðar-
göngunum. Undanfarið hefur
verið unnið við að setja upp
þann búnað sem til þarf svo
samband í þeim verði gott. Um
tímafrekt verkefni er að ræða
og þarf m.a. nýjan hátæknibún-
að sem ekki þarf að nota við
uppsetningu GSM-þjónustu of-
anjarðar.
Vinna við göngin hefur gengið
vel og þau verða opnuð fyrr en
áætlað var. Uppsetningu GSM-
þjónustunnar seinkar því lítil-
lega þar sem endurvarpar sem
setja þarf í göngin verða ekki
komnir upp þegar umferð um
þau verður leyfð. Um sérhæfðan
búnað er að ræða og afhendingu
frá framleiðanda seinkar frá því
sem áður var gert ráð fyrir.
GSM-samband verður þó komið
fljótlega eftir að göngin verða
opnuð, segir í fréttatilkynningu
frá Landsímanum.
Helgardag-
skrá þjöð-
garðsins á
Þingvöllum
STAÐARHALDARI og land-
verðir á Þingvöllum bjóða um
helgina upp á gönguferðir og
barnastund. Hefst dagskráin kl.
11 með barnastund við þjónustu-
miðstöðina. Kl. 14 hefst Lög-
bergsganga þar sem gengið
verður fram hjá hringsjá á Haki
um þingstað í fylgd Heimis
Steinssonar og endað í Þing-
vallakirkju. Kl. 15 verður svo
AFLRAUNAKEPPNIN Vest-
fjarðavíkingurinn, sem jafnframt
var keppni um titilinn Sterkasti
maður Islands, var haldin á
nokkrum stöðum á Vestfjörðum
dagana 2., 3. og 4. júlí. Urslit
urðu þessi:
I 1. sæti var Regin Vaagadal,
Færeyjum með 56 stig. 2. sæti
Gunnar Þór Guðjónsson, búsettur
í Danmörku með 52,5 stig. 3. sæti
var Torfi Ólafsson, Akureyri með
51,5 stig. 4. sæti Auðunn Jónsson,
Kópavogi, 48 stig, 5. sæti Unnar
Garðarsson, Reykjavík, með 40,5
stig, 6. sæti Vilhjálmur Hauksson,
gengið frá Flosagjá í Skógarkoti.
Á sunnudag hefst dagskráin kl.
14 með messu í Þingvallakirkju og
mun staðarhaldari taka á móti
gestum kl. 15 og litast um af lýð-
Reykjavík, með 30,5 stig. 7. sæti
Svavar Einarsson, Reykjavík, 25
stig í 8. sæti var Jens Fylkisson,
ísafirði, með 20 stig.
Reginn Vaagdal vann titilinn
Vestfjarðavíkingur 1998, en
Gunnar Þór Ólafsson vann titil-
inn Sterkasti maður Isiands og
sá titill veitir Gunnari Þór þátt-
tökurétt í keppninni Sterkasti
maður heims 1998 og Torfi
Ólafsson fær einnig þann þátt-
tökurétt.
Dómari á mótinu var fjórum
sinnum sterkasti maður heims,
Magnús Ver Magnússon.
veldisreit og verður gengið frá
þjónustumiðstöð um gjár og
sprungur að Öxarárfossi.
Þátttaka á dagskrá þjóðgarðs-
ins er ókeypis.
Harma ár-
sögn ungliða
úr Alþýðu-
bandalaginu
MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi fréttatilkynn-
ing frá Verðandi, samtökum ungs
alþýðubandalagsfólks og óháðra:
„Stjórn Verðandi fagnar
ákvörðun aukalandsfundar Al-
þýðubandalagsins um að stefnt
skuli að sameiginlegu framboði
Alþýðubandalags, Aþýðuflokks,
Samtaka um kvennalista og ann-
arra félagshyggjuafla í öllum kjör-
dæmum landsins í næstu kosning-
um til Alþingis.
Stjórn Verðandi mótmælir því
harðlega að Aþýðubandalagið sé
að færast til hægri og lýsir yfir
furðu sinni á tali um nýtt „vinstra“
framboð. Slíkt framboð yrði ein-
ungis til þess að sundra vinstri
mönnum einmitt nú þegar eitt
sameinað afl jafnaðar- og félags-
hyggjufólks á íslandi er í augn-
sýn.
Stjórn Verðandi lýsir yfir full-
um stuðningi við Margréti
Frímannsdóttur, formann Alþýðu-
bandalagsins. Hún hefur sýnt
mikla forystuhæfileika á undan-
fórnum mánuðum og er verðugur
forystumaður sameiginlegs fram-
boðs.
Stjórn Verðandi undirstrikar
að ungliðahreyfmg Alþýðubanda-
lagsins hefur verið mjög einhuga í
stuðningi sínum við sameiginlegt
framboð og má í því tilliti vísa í
stjórnmálaályktun síðasta lands-
fundar Verðandi þar sem segir
eftirfarandi: „I síðustu kosning-
um bauð Alþýðubandalagið kjós-
endum upp á vinstra vor. Það
gekk til kosninga með heildstæða
og góða stefnu í efnahagsmálum.
Það var bara ekki nóg. Kjósendur
refsuðu félagshyggjuöflunum fyr-
ir samstöðuleysi sitt og kusu yfir
sig kaldan vetur afturhaldsins.
Enn á ný tókst Sjálfstæðis- og
Framsóknarflokknum að deila og
drottna. Göngum ekki í sömu
gildruna aftur. Stöndum saman
og bjóðum Islendingum upp á
sameiginlegt framboð félags-
hyggjufólks í næstu alþingiskosn-
ingum.“
Stjórn Verðandi harmar að
nokkrir ungliðar hafi sagt sig úr
Alþýðubandalaginu. Stjórnin vill
þakka þeim samstarfið og vonast
til að leiðir liggi saman á ný þó
síðar verði.
Samþykkt á stjómarfundi
Verðandi þann 9. júlí 1998.“
Kvartett
Hauks Grön-
dal á Jóm-
frtínni
SJÖTTU sumardjasstónleikar
veitingahússins Jómfrúarinnar við
Lækjargötu verða laugardaginn
11. júlí kl. 16-18. Að þessu sinni
leika Haukur Gröndal á altó saxa-
fón, Árni Heiðai' Karlsson á píanó,
Ólafur Stolsenwald á bassa og
Steingrímur Óli Sigurðarson á
trommur.
Tónleikamir verða á Jómfrúr-
torginu, milli Lækjargötu, Póst-
hússtrætis og Austurstrætis, ef
veður leyfir, en annars inni á Jóm-
frúnni.
Átthagafélag
Héraðsmanna
ÁTTHAGAFÉLAG Héraðs-
manna býður upp á dagsferð í
Borgarfjörð sunnudaginn 12. júlí.
Lagt verður af stað frá BSÍ (aust-
anverðu) kl. 10 og ekið um Hval-
fjarðargöngin.