Morgunblaðið - 11.07.1998, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1998
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Athugasemd frá
Æðarræktarfélagi Islands
Enn af fenemali
AÐ UNDANFÖRNU hefur orðið
mikil umræða um þá ákvörun að
veita örfáum æðarbændum und-
anþágu til að nota svefnlyfið
fenemal í egg til að verjast ágangi
frá vargfugli. Ekki er ástæða til
að lengja þá umræðu mikið og
æskilegra væri að hún ætti sér
stað beint milli þeirra aðila sem
málið varðar fremur en í fjölmiðl-
um. Hins vegar verður ekki hjá
því komist að leiðrétta villandi
ummæli og rangfærslur.
í Morgunblaðinu 10. júlí sl. er
athugasemd frá Náttúruverndar-
samtökum íslands (NÍ), þar sem
vitnað er í grein mína í Mbl. frá 9.
júlí sl. um fenemal.
I athugasemd NI segir m.a.:
„I síðustu viku hófust í Montreal
samningaviðræður um alþjóðlegan
sáttmála er lýtur að takmörkun og
banni við notkun og framleiðslu líf-
rænna þrávirkra efna. Fenemal er
einmitt slíkt efni. í þeim samn-
ingaviðræðum leggja íslensk
stjómvöld ríka áherslu á að þróun-
arríkin finni hættuminni efni en
t.d. DDT til að draga úr skordýra-
plágum. A sama tíma leyfir um-
hverfisráðherra patentlausnir af
þessu tagi.“
Hér er einfaldlega farið rangt
með en staðreyndirnar eru þess-
ar: Fenemal er ekki lífrænt þrá-
virkt efni. Fenemal er skráð lyf
og var áður mikið notað sem
svefnlyf en hefur nú vikið fyrir
nýrri og betri lyfjum hin síðari ár.
Það er þó enn notað við meðferð á
flogaveiki og í blöndu með verkja-
stillandi efnum. Fenemal er á
engan hátt sambærilegt við DDT.
Eg trúi því að NÍ vilji hafa það
sem satt er í þessu máli fremur en
að rangtúlka staðreyndir eins og
þarna er gert og sá með því tor-
tryggni og óþarfa andúð í garð
ákveðinna manna. Slík vinnu-
brögð hæfa ekki samtökum sem
kenna sig við náttúruvernd.
Davíð Gíslason, yfirlæknir og
formaður Æðarræktarfélags ís-
lands.
Vestnorræna ráðið
Fjölmenn Æskulýðs-
ráðstefna í Reykjavík
ÆSKULÝÐSRÁÐSTEFNA
Vestnorræna ráðsins hófst í gær,
föstudag, og lýkur henni á morg-
un, sunnudag.
Markmið ráðstefnunnar er að
skapa ungu fólki á Vest-Norður-
löndum vettvang til umræðu og
skoðanaskipta, til að öðlast þekk-
ingu á högum hvert annars og síð-
ast en ekki síst veita þeim tæki-
færi til að kynnast og þannig
renna styrkum stoðum undir vest-
norrænt samstarf, segir í frétta-
tilkynningu.
Á dagskrá ráðstefnunnar verða
ýmis málefni og má þar nefna
framtíð vestnorrænu tungumál-
anna og framtíð dönskunnar sem
samskiptamáls landanna, nýja
samskiptatækni og samkennd,
menningu, náttúruvernd og nátt-
úruauðlindir.
Þátttakendur á ráðstefnuni eru
á aldrinum 18-23 ára og munu
rúmlega 130 ungmenni frá Vest-
Norðurlöndunum þremur, Is-
landi, Finnlandi og Grænlandi
taka þátt í ráðstefnunni.
Opna breska
meistaramótið
í Sjónvarpinu
IÞROTTADEILD Sjónvarpsins
hefur nýlega gengið frá samning-
um um beinar útsendingar næstu
þjú árin frá Opna breska meist-
aramótinu (British Open) í golfi,
sem er eitt helsta golfmót sem
fram fer ár hvert, segir í fréttatil-
kynningu frá Sjónvarpinu.
„Mótið í ár hefst í næstu viku
og má segja að einn stórviðburður
taki við af öðrum á sviði íþrótta í
sjónvarpinu, en heimsmeistara-
mótinu í knattspyrnu lýkur á
sunnudag. Sent verður beint alla
keppnisdagana, alls um 18
klukkustundir. Logi Bergmann
Eiðsson og Þorsteinn Hallgríms-
son lýsa.“
Jafnframt segir að Opna breska
meistaramótið í ár verði haldið á
Royal Birkdale-vellinum 16.-19.
ágúst. Mótið var fyrst haldið 1860
og er elsta og sennilega virtasta
golfmót í heimi. Þetta er tækifæri
kylfinga í Evrópu til að leika á
heimavelli því hin þrjú mótin í
risamótaröðinni fara öll fram í
Bandaríkjunum.
British Open á sér langa sögu
og mikla hefð, en það fer fram á
nokkrum völlum til skiptis, t.d. St.
Andrews og Royal Troon, þar sem
það var haldið í fyrra.
Allir bestu kylfingar heims taka
þátt í mótinu og það þykir einhver
mesti heiður sem kylfmgi getur
hlotnast að sigra á „The Open“,
sem nú er haldið í 127. sinn.
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
www.mbl.is/fasteignir
VELVAKAJVPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Álagning á
áfengi
í MORGUNBLAÐINU 5.
júh' sl. er viðtal við for-
stjóra ÁTVR um álagning-
armál á áfengi. Forstjór-
inn segir að meðalaáiagn-
ing síns fyrirtækis sé lægri
en hjá sambærilegum aðil-
um í Norgegi og Sviþjóð,
eða 11% hér á landi en
11,5% til 12,5% hjá þeim.
Það hefur alltaf þótt
ljótt að ljúga til um tölur,
en í þessu tilfelli hefði
Höskuldur átt að segja frá
því að grunnurinn sem
álagning hans byggist á er
miklu hærri en t.d. í Sví-
þjóð. Sé tekið dæmi um
rauðvínið Mouton Cadet
kostar slík flaska hér á
landi 1000 kr. en í Sviþjóð
666 kr. (SEK 74 x 9)
Höskuldur fær þvi 79 kr.
fyrir að selja þessa flösku
en Svíarnir taka aðeins 57
kr. fyrir sömu þjónustu.
Álagning Höskuldar er því
ekki lægri en Svíanna,
heldur nær 40% hærri!
Þetta er staðreynd og rétt-
ar tölur, miðað við 24,5%
VSK hér og 25% í Svíþjóð.
í nýlegum fréttum kom
fram að lækka ætti áfeng-
isgjald á léttvínum hér á
landi. Lækkun þessi er
samt svo lítil að hún er að-
eins örfáar krónur. Það er
samt staðreynd að þótt
þessi gerð af rauðvíni yrði
lækkuð um heil 33% væri
þetta vin samt dýrast hér á
landi í öllum heiminum! Er
það furða þótt heimaiðnað-
ur blómstri þegar rauðvín
og ekki verra kostar að-
eins um 150 kr. flaskan.
Noregur á heimsmet í
sölu eimingartækja, Sví-
þjóð á heimsmet í áfengis-
smygh, við heimsmet í sölu
bryggbúnaðar. Árangur
þessa kemur hvergi fram í
tölum um drykkju t.d. á
íbúa.
Er ekki kominn tími til
að léttvín verði lækkuð
einu sinni verulega hér á
landi svo að ríkissjóður fái
auknar tekjur?
Örn Johnson.
Verðlaunapeningar í
Jónsmessuhlaupinu
23. JÚNÍ sl. var Jóns-
messuhlaup og mætti
fjöldi manns og hljóp 10
eða 3 km. Eg, amma og
mamma hlupum 3 km og
kom ég undan þeim í
mark. Nokkrum mínútum
síðar kom mamma, þá
fengum við báðar verð-
launapeninga en þegar
amma kom í mark var okk-
ur sagt að verðlaunapen-
ingar væru búnir og að
þeir hefðu týnst í flutningi
frá Spáni. Þeir sem ekki
fengu verðlaunapening
máttu skrá sig og sækja þá
í Reykjavíkurmaraþonið í
ágúst. Það voru nokkrir
peningar eftir og ég ætlaði
að sækja einn handa
ömmu, þá sagði konan sem
afhenti verðlaunapening-
ana með leiðinlegum tóni:
„Þú ert með pening og
farðu."
Aldrei er gert ráð fyrir
fjöldanum. I hlaupinu í
fyrra vantaði boli og nú
vantar peninga handa
þátttakendum.
11 ára óánægður
hlaupari.
Hvar er gosbrunnur-
inn í Reykjavikur-
tjörn?
LESANDI sagðist ekki
hafa orðið var við gos-
brunninn í Reykjavíkur-
tjörn í sumar og spyr
hvort ekki sé ástæða í góða
veðrinu til að láta hann
gjósa.
Tapað/fundið
Gullhringur fannst á
veitingastað Ikea
GULLHRINGUR með
steini fannst á veitingastað
Ikea í Holtagörðum, laug-
ardaginn 4. júlí. Inni í
hringum er áletrun. Eig-
andinn getur haft sam-
band í síma 567 1671 eða
896 4242.
Svört dúnúlpa tapaðist
SVÖRT fullorðins dúnúlpa
tapaðist á ættarmóti Bæja-
rættar á Hólmavík um síð-
ustu helgi. Finnandi vin-
samlega hringið í síma
557 3503.
Dýrahald
Læðan Freyja týnd
FREYJA er ljósgrá með
hvítan háls og hvítar lopp-
ur. Hún er fjögurra mán-
aða Qg á heima í Skipa-
sundi 85. Hún fór að heim-
an sl. mánudag og hefur
ekki skilað sér heim úr
ferðalaginu. Hennar er
sárt saknað og þeir sem
hafa orðið hennar varir
vinsamlega hringið í síma
568 7939.
í LEIKHERBERGINU
Morgunblaðið/ Ásdís
Víkverji skrifar...
FYRIR stuttu sá Víkverji vegg-
spjald um sýningu Norræna
hússins á verkum „Islandsdætra í
myndlist". Veggspjaldið var á ís-
lenzku og sænsku. Islenzki textinn
reyndist kórréttur en sænskan full
af villum. Sízt átti Víkveiji von á
svona mistökum af hálfu Norræna
hússins, sem ætti að hafa nóg af
góðu sænskufólki á sínum snærum.
xxx
YÍKVERJA finnst þjónustan í
verzluninni Byggt og búið í
Kringlunni hafa hríðversnað að
undanfomu. Það heyrir til undan-
tekninga ef hægt er að koma auga
á afgreiðslumann til að aðstoða við-
skiptavini og viðmót afgreiðslu-
fólksins er ekki alltaf upp á það
bezta. Þannig benti Víkverji af-
greiðslustúlku kurteislega á það
fyrir stuttu að á skilti, sem sett
hefur verið upp við afgreiðslukass-
ana, úði og grúði af stafsetningar-
og málvillum. „Já, já,“ var svarið
sem hann fékk og augljóst var á
öllu að konunni gat ekki verið
meira sama. Fyrirfram hefði Vík-
verji búizt við að ábendingum við-
skiptavina um það, sem betur
mætti fara, yrði vel tekið. Þessi
þjónusta er ákaflega ólík því, sem
gerist í öðrum verzlunum Byko,
sem er eigandi Byggt og búið.
XXX
OFT er kvartað undan því að
vont mál sjáist og heyrist á
opinberum vettvangi; í blöðum,
sjónvarpi, útvarpi, á skiltum og
veggspjöldum o.s.frv. Er þá yfir-
leitt átt við vonda íslenzku. En
slæm enska, franska, þýzka,
danska og sænska sést ekki síður
og jafnvel enn frekar. Þetta er sér-
staklega áberandi á ferðamanna-
stöðum, þar sem villurnar í skilt-
um og tilkynningum á erlendum
málum eru stundum svo ámátlegar
að Víkverji er löngu hættur að
trúa rausi stjórnmálamanna um
það hversu vel menntaðir íslend-
ingar séu, einkum og sér í lagi í
tungumálum. Hinir erlendu ferða-
menn taka eftir þessu og hafa orð
á því.
xxx
YÍKVERJI mælir með veitinga-
húsinu Lindinni á Laugar-
vatni. Hann snæddi þar ásamt ís-
lenzkum og erlendum vinum og
kom fólki saman um að matseðill-
inn hefði verið íslenzkur og alþjóð-
legur í senn, þjónustan góð og per-
sónuleg og umhverfið þægilegt.
Lindin er í hópi aðlaðandi lítilla
veitingahúsa, sem sprottið hafa
upp víða um land á síðustu árum,
oft í gömlum húsum, og eru
ánægjuleg tilbreyting frá skóla-
mötuneytum, sem breytast í veit-
ingasölu á sumrin, og plastklædd-
um hamborgarasjoppum.