Morgunblaðið - 11.07.1998, Page 48
48 LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Allir leita síns Eldorado
HELDUR hefur verið dauflegt
yfir knattspyrnunni á spar-
krásinni og ekki þurft að fresta
tíðindum heimsbyggðarinnar um
klukkutíma alveg nýverið vegna
sparklistarinnar. Aftur á móti
hafa frásagnir ýmiskonar verið
vel stundaðar hjá RúV, en í þetta
sinn verður að geta fréttastofu
útvarpsins og fréttatengdra þátta
þess. Fréttastofa útvarps fær
nefnilega vissa teg-
und af pólitísku
krampakasti
hvenær sem Al-
þýðubandalagið
heldur fund, annað tveggja aðal-
fund eða framhaldsaðalfund eða
aukafund eða bara fund. Þá hvín
svoleiðist í ríkisútvarpinu, að DV
verður að birta frétt um hvaða
sjálfstæðismenn stjórna apparat-
inu. Þeir eru taldir þrír og eru
raunar fangar vinnustaðarins.
Þetta er svo sem ekkert nýtt hjá
útvarpinu, sem alltaf hefur fagn-
að fundum allaballa með sér-
stakri dagskrá. A laugardag var
þáttur milli 11 og 12 helgaður
kommúnistum og fundi þeirra og
aðeins minnst á Dag, sem er
týndur norðan heiða. Fréttatími
útvarpsins dró fram hvern
kommahaukinn af öðrum og
skipti ekki máli þótt þeir vissu
ekki hverju þeir ættu að lýsa yfír.
Jafnvel Ommi var að reyna að
finna viðeigandi yfirlýsingu en
gekk illa, þótt hann beitti hinu
venjulega handafli við sjálfan sig.
Svo kom þáttur á milli 1 og 2
sama dag, þar sem enn var róm-
aður hinn einlægi og alþýðuvæni
vilji allaballa til að sameinast,
þótt ekki væri nema sjálfum sér.
Það sérkennilega við sameining-
arþruglið var að ekki þurfti að
segja frá neinu hjá krötum, sem
héldu fund um sama leyti.
Kvennalistinn, nær alveg at-
kvæðalaus, fékk að senda mennt-
uðu konuna á vettvang. Þannig
lauk þessari miklu Alþýðubanda-
lagssýningu. Svo
halda menn að efn-
isofbeldið í RÚV sé
eingöngu bundið við
sparklistina.
Föstudaginn 3. júlí sýndi Sýn
kvikmynd um tilurð Hong Kong.
Mynd þessi er byggð á skáldsögu
sem er sannsögulegt verk að
hluta til og forvitnileg eins og
kvikmyndin. Fyrstir hvítra
manna þangað voru enskir sjó-
ræningjar og Portúgalar, sem
settust að í Macao. Fram að 1840
bjuggu einungis fáeinar sjó-
mannafjölskyldur í Hong Kong,
þar sem síðar byggðist bærinn
Victoria. En með ópíumstríðun-
um við Kínverja komust Bretar
yfir eyna sem síðar varð fríhöfn
með langar raðh' af vöruhúsum
fullum af varningi frá Kína sem
síðan var fluttur til Bretlands eða
annað á markað. Frá því fyrir
aldamót hafa mikil auðævi safn-
ast saman í Hong Kong, sem býr
við óbrigðula höfn frá fyrstu tíð
og mflt veðurfar. En fellibyljir er
algengir í Hong Kong eins og víð-
ar við suðvesturströnd Kína.
Myndin um tilurð Hong Kong
endar einmitt á fellibyl, sem legg-
ur byggingar og eigur fólks í rúst
og sviptir það lífi. En staðurinn
virðist svo vel settur, að allt
sprettur upp jafnharðan á milli
fellibylja. Sú er að minnsta kosti
saga Hong Kong.
Eldorado var mikið dýrðarríki
á dögum conquistadoranna
spænsku á sextándu og seytjándu
öld. Álitið var að Eldorado eða
Gulllandið væri í Mexíkó eða
norðar. Fjöldi leiðangra var gerð-
ur út til að leita að dýrðarríkinu
en það fannst aldrei. Aftur á móti
breytti þessi aldalanga leit mörgu
í ásýnd Ameríku. Talið er að upp
úr þessum leitum hafi indíanar
fengið hestinn og kristið trúboð
festi rætur í Kalíforníu. En
Eldorado fannst aldrei. Síðast
lögðu menn á það trúnað að
Eldorado mætti finna þar sem nú
er Colorado-fylki í Bandaríkjun-
um. Þessa er minnst hér af því
sýnd hefur verið mynd á Stöð 2
sem er vestri og nefnist Sil-
verado. Ekki óskylt nafni
Eldorado. Þetta var góður vestri
enda safn af góðum leikurum í
honum, m.a. Kevin Kline, Kevin
Costner (Dansar við úlfa) og
Danny Glover. Þótt sagan sé ekki
stórbrotin leikur hún sér að
mörgum myndskeiðum, eins og
því að fara á hestum yfir vatns-
fall, svo varla verður betur gert.
Leikur er ágætur og sannfærandi
en deiluefnin eru gamalkunn úr
vestrum.
Indriði G. Þorsteinsson
SJONVARPA
LAUGARDEGI
Fjáröflun
til Um-
hyggju
RAGNHEIÐUR Hansdóttir
svæðisstjóri Zonta á íslandi af-
hendir Dögg Pálsdóttur, for-
manni Umhyggju, nær 4 milljón
króna styrk til langveikra barna
og foreldra þeirra, sem Zonta-
klúbbarnir söfnuðu með sölu á
gulum rósum. Fyrir aftan þær
standa Anna G. Thorarensen,
Ragna K. Magnúsdóttir, Sigríð-
ur Guðmundsdóttir og Bryndís
Brynjólfsdóttir.
Morgunblaðið/Golli
r-r, u .... J.. 1
« ' 4 nJ|
Morgunblaðið/Jim Smart
RÁÐHERRARNIR Halldór Blöndal og Finnbogi Arge voru áhyggju-
fullir á svip á leik Leifturs og Valsmanna seni fram fór í fyrrakvöld.
Samgönguráöherra Færeyja
fylgist með frænda sínum í Leiftri
Afram Uni!
„ALLIR leika knattspyrnu," segir
Finnbogi Arge, samgönguráð-
herra Færeyja, um knattspyrnu-
iðkun landa sinna þegar blaðamað-
ur furðar sig á því að þar séu 5
deildir. Síðan sprettur hann eins
og fjöður úr sæti sínu og hrópar
hvatningarorð til frænda síns Úni
Arge sem er í fremstu víglínu hjá
Leiftri.
Finnbogi er á leik Vals og Leift-
urs ásamt Halldóri Blöndal sam-
gönguráðherra sem er stuðnings-
maður Leifturs í úrvalsdeildinni.
Báðir eru þeir með gular húfur og
Leifturstrefla og hafa miklar
áhyggjur af gangi leiksins - enda
Valsmenn einu marki yfir. I hvert
sinn sem Arge kemst í færi heyrist
hrópað úr stúkunni: „Afram Uni!“
Ekki má gleyma öðrum Færey-
ingi í liðinu sem stendur sig með
mikilli piýði hinum megin á vellin-
um, - markverðinum Jens Martin
Knudsen. „Hann var fimleika-
meistari í Færeyjum enda sérðu
hvað hann er liðugur í markinu,"
hvíslar Magni Arge, framkvæmda-
stjóri færeyska flugfélagsins Atl-
antic Airways, að blaðamanni.
„Svo var hann líka liðtækur í
handknattleik," bætir Petur Olivai-
í Hoyvik við. Arni Poulsen ráðu-
neytisstjóri brosir að öllu saman.
En er Finnbogi með knattspyrnu-
dellu? „Ég held að það sé óhætt að
segja það,“ svarar hann sposkur á
svip. „Ég æfði knattspyrnu til 16
ára aldurs og var í stjórn HB sem
er besta liðið í Færeyjum þar til ég
varð ráðherra."
En honum er fleira til lista lagt.
„Ég hafði meiri metnað í blaki og
keppti meðal annars með færeyska
landsliðinu gegn Islendingum,"
segir hann. Inni á vellinum seilist
dómarinn í vasa sinn og Finnbogi
verður hugsi. „Af hverju gefa dóm-
ararnir leikmönnum græna spjald-
ið?“ spyr hann og blaðamanni ve'rð-
ur svarafátt.
„Við erum að vinna,“ segir stolt-
ur Valsstrákur við ráðherrana í
gulu búningunum. Og ekki tekst
Uni Arge að skora í þessum leik
þótt hann hafi skorað þrennu í síð-
asta leik gegn Skagamönnum. En
Finnbogi veit vel að hann getur
skorað mörk. „Hann hefur skorað
hátt á annað hundrað mörk fyrir
HB og er markahæstur í sögu fé-
lagsins," segir hann og ekki er
laust við að stolti bregði fyrir í
svipnum yfir frænda „litla“.
íA(gtfurgalinn
Smiðjuvegi 14, %ppavofji, sími 587 6080
í kvöld leika Lúdó og Stefán
eldhressa danstónlist
Sjáumst hress
Hilmar Sverrisson
heldur uppi léttri og góðri stemningu
á Mímisbar.
MYNPBÖNP_______
Grimmsævintýri
Mjallhvít
(Snow White)__________________
Æ vintýramynd
•k'k'k
Framleiðendur: Tom Engelman.
Leikstjóri: Michael Cohn. Handrits-
höfundar: Tom Szollosi, Deborah
Serra. Kvikmyndataka: Mike Sout-
hon. Tónlist: John Ottman. Aðalhlut-
verk: Sigourney Weaver, Sam Neill,
Gil Bellow, Monika Keena, Brian
Glover. 97 mín. Bandaríkin. Háskóla-
bíó 1998. Myndin er öllum leyfð.
ÞAÐ muna eflaust allir eftir Dis-
ney-myndinni Mjallhvít og dverg-
anir sjö, sem var fyrsta teikni-
myndin í fullri lengd. Þar var allt
svart og hvítt, þeir vondu voru
virkilega vondir og þeir góðu voru
svo ljúfir og sætir að heimurinn í
kringum þá söng af kátínu. Með
þessari mynd hefur ævintýri
Grimmsbræðra verið komið aftur á
filmu og nú er sagan allt önnur.
Sætleikinn er horfinn og með hon-
um söngvarnir, sætu dýrin í skóg-
inum og hinir
krúttlegu dverg-
ar. í staðinn er
komin saga um
öfund, geðveiki,
angist, ræningja
og illsku. Vonda
drottningin í
teiknimyndinni
er orðin að stjúp-
unni sem reynir
hvað hún getur að öðlast ást Mjall-
hvítar, en Mjallhvít sem heitir
réttu nafni Lili Hoffman, sýnir
stjúpu sinni enga virðingu og spilar
hún stórt hlutverk í því að gera
grey konuna geðveika. Dvergarnir
hafa tekið stökkbreytingu og orðið
að námumönnum sem litla ást hafa
á aðlinum og er í byrjun sama
hvort Lili lifir eða deyr. Síðast en
ekki síst er riddarinn í silfurbrynj-
unni, sem kemur til bjargar, ekki
til staðar, heldur hefur hetjan orðið
svo djörf að neita því að gerast
riddari og þurft að líða fyrir það.
Þessi útgáfa af Mjallhvíti er mun
trúrri upprunalegu sögunni heldur
en Disney-útgáfan og er margt
virkilega gott við hana. Hún leggur
mun meira upp úr sálfræðinni og
hvernig stjúpan sekkur ofan í síki
geðveikinnar. Mjallhvít er ekki
lengur hin yndislega stúlka sem
vill ölium vel heldur er hún of-
dekraður krakki sem verður fúll
þegar önnur kona kemur inn í líf
föður síns. Leikaramir standa sig
prýðilega, þá sérstaklega Sigourn-
ey Weaver, sem hefur greinilega
mjög gaman af því að túlka hin
mörgu andlit stjúpunnar. Monika
Keena sem leikur Lili er einnig góð
í hlutverki sínu og er útlitslega full-
komin Mjallhvít. Tæknilega er
myndin virkilega - vel unnin og
myndataka Mike Southon stendur
þar upp úr. Ég mæli hiklaust með
þessari fullorðinsútgáfu af ævintýri
Grimmsbræðra.
Ottó Geir Borg