Morgunblaðið - 23.07.1998, Side 52
52 FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FOLK I FRETTUM
• •
Frá A til O: Hvað er að gerast? Hverjir voru hvar? Hvað er í boði - á skemmtistöðum?
ANDRUMSLOFTIÐ á Kaffí Thomsen er seiðmagnað.
Morgunblaðið/Halldór
VEL fór um Þossa í
plötusnúðahorninu.
STEFÁN Ólafsson, Eva
Sturiudóttir, Ari Magn-
ússon og Árni Þór Vig-
fússon skemmtu sér
ágætlega.
Tónlistin
skiptir máli
Kaffí Thomsen heitir skemmtistaður í
Hafnarstræti, vinsæll mjög. ívar Páll
Jónsson kom þar við á lífsgöngu sinni,
þótt stoppið væri hlutfallslega stutt.
SKEMMTANALÍFIÐ er skrítin
skepna. Skemmtistaðir eru brokk-
gengir í vinsældum, misjafnlega þó,
en ganga má út frá því sem vísu að
hið minnsta einn þeirra sé ferskur á
hverjum tíma. Núna heitir sá staður
Kaffi Thomsen.
Þar er kjaftfullt um hverja helgi
og þangað fara allir sem einhvers
mega sín; náungarnir í Oz, Móeiður
Júníusdóttir og Mausmenn, svo ein-
hverjir sem undirritað-
ur hefur séð þar að und-
anfórnu, séu tíndir til.
Hvað er það sem ger-
ir stað vinsælan? Hvað
fær fólk til að velja einn
stað öðrum fremur,
þegar það fer út að
skemmta sér? I þessu
tilfelli er það sennilega
tónlistin. A föstudaginn
spilaði plötusnúðurinn
að minnsta kosti „al-
vöru“ tónlist. Tónlist
sem greinilega krafðist
meiri hæfileika en að
ýta á enter á tölvulykla-
borði. Til dæmis man
undirritaður eftir
geggjuðu gítarsólói í
einu laganna, en það er
ekki oft sem slíkar æf-
ingar eru stundaðar í
tónlist sem fólk á að
hrista skanka sína við. Það er nefni-
lega ekkert verra þótt tónlist á
skemmtistöðum komi hugsuninni
aðeins af stað; fái mann til að hugsa:
„Vá, þetta var vel gert!“ en því mið-
ur hefur undirritaður varla heyrt
slíka tónlist á skemmtistöðum hér-
lendis. Fyrr en nú.
Undirstöðuatriði, sem verður að
huga að ætli maður að skemmta sér
vel á Kaffi Thomsen, er að koma
nógu snemma til að fá borð. Blaða-
maður var heldur seinn til á laugar-
daginn; mætti um tvöleytið og þá
var allt gjörsamlega troðið. Satt
best að segja er ekki skemmtilegt
að vera á lausagöngu í slíkum troðn-
ingi. Bjórinn á það til að hellast nið-
ur og lendir þá sjaldnast á gólfinu.
Að því gefnu hins vegar að við-
komandi fái borð ætti hann/hún að
skemmta sér eins og best verður á
kosið á Kaffi Thomsen. Staðurinn er
sem ferskur andvari í íslensku
skemmtanalífi, hversu lengi sem sá
andvari nú endist.
DAVIÐ Sigursteinsson, Guðmundur Magn-
ússon og Ronald Christiansen fengu sér
kollu og spjölluðu saman.
HLJÓMSVEITIN tiltra leikur á Búðarkletti, Borgarnesi,
á laugardag. Hljómsveitina skipa Hekla Klemenzdóttir,
Anton Kroyer og Guðbjörg Bjarnadóttir.
■ ASTRÓ Á fimmtudagskvöld
leika Greifarnir órafmagnaða tón-
list en þetta er í fyrsta skipti sem
hljómsveitin gerir slíkt. Margmiðl-
unarfyrirtækið Xnet sendir tónleik-
ana út á netinu á slóðinni
www.xnet.is og útvarpstöðin FM,
957 útvarpar þeim beint. Tónleik-
arnir hefjast kl. 23. Eftir tónleikana
þeytir plötusnúðurinn Áki Pain
skífumar til kl. 1.
■ ÁLAFOSS FÖT BEZT Laugar-
dagskvöld verða tónleikar með
Bubba Morthens. Hann flytur öll
lögin af Konu ásamt því besta af
löngum ferli sínum.
■ BIÍÐARKLETTUR, Borgarnesi.
Á föstudagskvöld verður diskótek.
Laugardagskvöld leikur hljómsveit-
in tíltra.
■ CATALÍNA, Hamraborg 11.
Föstudags- og laugardagskvöld
skemmtir Ari Baldursson.
■ CAFÉ AMSTERDAM. Föstu-
dags- og laugardagskvöld skemmtir
hljómsveitin Sixties.
■ CAFÉ THOMSEN. Skýjum ofar
og breska útgáfufyrirtækið Proper
Talent verða með drum- & bass-
kvöld á laugardagskvöld. Plötu-
snúðar verða Special K og Bjarki.
■ CAFÉ RIIS, Hólmavík. Fimmtu-
dagskvöld skemmtir HÁS-söngl-
fíokkurinn. Laugardagskvöld
skemmta félagarnir í Mannakorn-
um, þeir Magnús Eiríksson og
Pálmi Gunnarsson.
■ CAFE ROMANCE Píanóleikar-
inn og söngvarinn Glen Valentine
skemmtir gestum næstu vikurnar.
Jafnframt mun Glen sþila matar-
tónlist fyrir gesti Café Óperu fram
eftir kvöldi.
■ FEITI DVERGURINN. Föstu-
dags- og laugardagskvöld skemmtir
hljómsveitin Sælusveitin.
■ FÉLAGSHEIMILIÐ HNÍFSDAL.
Hljómsveitin Sálin leikur laugar-
dagskvöld. Með í för verða hljóð- og
sjónlistamennirnir Ben og Gúríon.
■ FÓGETINN. Á fimmtudagskvöld
skemmta Maggi Einars og Tommás
Tommi. Föstudags- og laugardags-
kvöld skemmtir Blái fiðringurinn.
■ FJARAN. Jón Möller leikur róm-
antíska píanótónlist fyrir matar-
gesti.
■ GAUKUR Á STÖNG. Fimmtu-
dagskvöld skemmtir hljómsveitin
Papar. Föstdags- og laugardags-
kvöldið skemmtir hljómsveitin
Buttercup. Á sunnudagskvöld
kynnir hljómsveitin Skítamórall
dagskrá sína um verslunarmanna-
helgina. Mánudagskvöld leikur
fiðluleikarinn Dan Cassedy, ásamt
Ken, létt þjóðlagapopp. Þriðjudags-
kvöld verða tónleikar með Dead
Sea Apple. Þeir eru á förum til
Bandaríkjanna í tónleikaferð og
kynna dagskrána þar vestra. Auk
þess kemur hljómsveitin Ensími
fram og kynnir lög af væntanlegri
hljómplötu. Á efri hæð hússins er
aðstaða fyrir hópa og einstaklinga
til að fylgjast með hvers kyns við-
burðum í sjónvarpi.
■ GRAND HOTEL v/Sigtún.
Gunnar Páll leikur og syngur perl-
ur fyrir gesti hótelsins föstudags-
og laugardagskvöld kl. 19-23.
■ GRUNDARFJÖRÐUR. Sumar-
hátíð verður á laugardag. Hljóm-
sveitin 8-vilIt heldur útitónleika kl.
19. Stórdansleikur í félagsheimilinu
seinna um kvöldið.
■ HÓTEL SAGA. Á fóstudags- og
laugardagskvöld verður Mímisbar
opinn frá kl. 19-3. Þar skemmtir
Hilmar Sverrisson.
■ HM CAFÉ, Selfossi. Á laugar-
dagskvöld skemmta Guðlaug Dröfn
Ólafsdóttir og Vignir Þór Stefáns-
son.
■ INGHÓLL, Selfossi. Hljómsveit-
in Skítamórall skemmtir laugar-
dagskvöld. Úrslitakeppni um
Sumarstúlku Suðurlands.
■ KAFFI REYKJAVÍK. Hljóm-
sveitin Hálft í hvoru leikur fimmtu-
dags-, fóstudags og laugardags-
kvöld. Eyjólfur Kristjánsson
skemmtir sunnudags- og mánu-
dagskvöld. Grétar Örvarsson og
Bjarni Arason skemmta þriðju-
dags- og miðvikudagskvöld. Bubbi
Morthens skemmtir öll mánudags-
og miðvikudagskvöld frá kl.
21.30-23 fram til 17. ágúst.
■ KRINGLUKRÁIN. I aðalsal leika
Léttir sprettir, Geir Gunnlaugsson
og Karl H. Karlsson og Guðmundur
Rúnar og Hlöðver Guðmundsson
fimmtudags-, föstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld. I Leik-
stofunni föstudags- og laugardags-
kvöld skemmtir trúbadorinn Viðar
Jónsson.
■ LUNDINN, Vestmannaeyjum.
Hljómsveitin Blái fiðringurinn.
Hljómsveitina skipa Jón Kjartan
Ingólfsson bassaleikari og söngvari,
Björgvin Gíslason gítarleikari og
Jón Björgvinsson trommuleikari.
■ NAUSTKJALLARINN. Línu-
dans verður öll fimmtudagskvöld í
sumar kl. 21-1 á vegum Kántrý-
klúbbsins. Aðgangur er 500 kr.
Föstudags- og laugardagskvöld
skemmtir Skugga-Baldur.Reykja-
víkurstofa er opin frá kl. 18 alla
daga vikunnar.
■ NÆTURGALINN Föstudags- og
laugardagskvöld Ieikur Hilmar
Sverrisson. Gestasöngkona er Anna
Vilhjálmsdóttir.
■ RÉTTIN, tithlíð, Biskupstung-
um. Hljómsveitin Sóldögg leikur
laugardagskvöld. Frítt á tjaldstæð-
ið.
■ SJALLINN, Akureyri. Á fóstu-
dagskvöld og laugardagskvöld verð-
ur dansleikur með Stuðmönnum. 18
ára aldurstakmark er á föstudags-
kvöld en 20 ára á laugardag.
■ STRIKIÐ, Njarðvík. Föstudags-
kvöld leikur hljómsveitin Sóldögg.
■ VEITIN GASTAÐURINN Mun-
aðarnesi. Á laugardagskvöld
skemmtir Diskótekið Dísa frá kl.
3.30. Stiginn verður m.a. línudans.
■ VIÐ POLLINN, Akureyri.
Fimmtudagskvöld skemmtir PKK.
Föstudags- og laugardagskvöld
Ieika Ari Jónsson og tílfar Sig-
mundsson.
■ ÞJÓÐLEIKHIJSKJALLARINN.
Hljómsveitirnar Skítamórall og
Sálin hans Jóns míns skemmta á
FM-balli föstudagskvöld.
■ TILKYNNINGAR í skemmtan-
arammann þurfa að berast í síð-
asta lagi á þriðjudögum. Skila skal
tilkynningum til Kolbrúnar í
bréfsíma 569 1181 eða á netfang
frett@mbl.is