Morgunblaðið - 30.07.1998, Síða 1

Morgunblaðið - 30.07.1998, Síða 1
STOFNAÐ 1913 170. TBL. 86. ÁRG. FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Clinton ber vitni fyrir rannsóknarkviðdómi 17. ágúst Lewinsky og Clinton „ræddu yfirhylmingu“ Washington. Reuters. BILL Clinton Bandaríkjaforseti mun 17. ágúst nk. bera vitni fyrir rannsókn- arkviðdómi sem óháði saksóknarinn Kenneth Stan- hefur kallað saman til að rannsaka Lewinsky-málið. Clinton mun flytja vitnisburð sinn á myndbandi, sem tekið verður upp í Hvíta húsinu. Lögmaður forsetans, David Kendall, skýrði frá þessu í gær en hann mun verða viðstaddur vitnaleiðsluna. Reuters Götubardagar í Ríó Ríó de Janeiró. Reuters. Erlendir sendimenn fá ekki að hitta Suu Kyi Manila, Bangkok. Reuters. STJÓRNYÖLD í Burma höfnuðu í gær óskum erlendra stjórnarerind- reka sem farið höfðu fram á að fá að eiga fund með stjómarandstöðuleið- toganum Aung San Suu Kyi. Neita þau einnig fregnum þess efnis að Suu Kyi verði brátt matarlaus í mót- mælastöðu sinni, og segja að stjórn- völd muni sjá henni fyrir næringu ef þess gerist þörf. Ohn Gyaw, utanríkisráðherra Burma, sagðist þakka erlendum ríkj- um þann áhuga sem þau hefðu sýnt, en að ekki myndi reynast nauðsyn- legt að svo stöddu að fulltrúar Jap- ans og Bandaríkjanna ættu fund með Suu Kyi, því yfirvöld í Burma hefðu sjálf fullan hug á að leysa mál- ið farsællega. Suu Kiy hefur setið í bifreið sinni síðan á föstudag í síðustu viku, til að mótmæla því að hermenn stöðvuðu för hennar er hún hugðist halda á fund stuðningsmanna sinna, og ein- ungis yfirgefið hana stuttan tíma í senn til að liðka limina. Hún hefur nú farið fram á fullt ferðafrelsi, en hafði áður neitað að ræða við samninga- menn stjómarinnar. Bandarískir fjölmiðlar greindu frá því í gær að Monica Lewinsky, fyrr- verandi starfsstúlka í Hvíta húsinu, myndi segja Starr frá því að hún og Clinton hefðu m.a. rætt um hvemig þau gætu haldið ástarsambandi sínu leyndu. Forsetinn hefði hins vegar ekki beinlínis beðið hana að segja ósatt í eiðsvarinni yfirlýsingu. Rannsókn Starrs, sem staðið hefur í rúmlega hálft ár, beinist einkum að því hvort Clinton hafi átt í ástai-sam- bandi við Lewinsky og síðan reynt að fá hana til að ljúga til um það er hún NÝJA stjórnin í Færeyjum stefnir að því að eyjarnar verði fullvalda ríki með sama hætti og um samdist milli íslendinga og Dana árið 1918. Kom þetta fram hjá Anfinn Kallsberg, lögmanni Færeyja, er hann setti nýtt lögþing í gær. Anfmn sagði í ræðu sinni, að flokkarnir, sem stæðu að stjórninni, Fólkaflokkurinn, Þjóðveldisflokkur- inn og Sjálfstýriflokkurinn, væro sammála um að stefna að því á kjör- tímabilinu, að eyjamar yrðu full- valda ríki með fulla ábyrgð á eigin málum. Með því væri ekki átt við, að bar vitni í tengslum við málshöfðun Paulu Jones gegn forsetanum fyrir meinta kynferðislega áreitni. Því máli hefur verið vísað frá dómi. Dagblöðin Washington Post og New York Times hafa eftir lögmönn- um, sem sagðir eru „nákunnugir mál- um Lewinsky“, að hún vilji ekki bera vitni um að Clinton hafi beðið sig að ljúga í yfirlýsingunni í tengslum við mál Jones gegn forsetanum. Hún muni ennfremur segja fi'á því að hún hafi rætt við forsetann um hvemig hún gæti komist hjá því að bera vitni í máli Jones og hvernig gefa mætti trúverðuga skýringu á heimsóknum hennar í Hvíta húsið eftir að hún hefði látið af störfum þar. ■ MikiIvægasta/28 öllu samstarfi við Dani yrði hætt, heldur, að það yrði á nýjum gmnni. Anfinn skýrði frá því, að teknar yrðu upp viðræður við dönsku stjórnina um nýjan samstarfssátt- mála, sem yrði þá á milli tveggja full- valda ríkja eins og milli íslands og Danmerkm1 1918. Ætlar stjórnin að láta semja stjórnarskrá fyrir Fær- eyjar, sem síðan vei'ður borin undir þjóðaratkvæði. Sagði hann í ræðu sinni, að í raun væri þegar hafinn nýr tími í Færeyjum, sem fælist í því, að landsmenn bæru nú fulla ábyrgð á efnahagsmálunum. GÖTUBARDAGAR brutust út á milli lögreglunnar og hundraða manna, sem mótmæltu einkavæð- ingu Telebras, hins ríkisrekna landsímafyrirtækis Brasilíu- manna, fyrir utan verðbréfahöll- ina í Ríó de Janeiró í gær. Mót- mælendur reistu götuvirki og hentu múrsteinum í lögreglu- menn, sem svöruðu af fullri hörku með því að sprauta á þá vatni, varpa táragassprengjum og berja fólk með kylfum. Skot- hvellir heyrðust en ekki er ljóst hvort lögreglan notaði gúmmí- kúlur eða ekki. Sala hlutafjár í Telebras telst mesta sala ríkiseigna í sögu Suð- ur-Ameríku. Ferdinand Henrique Cardoso, forseti Brasilíu, hefur lagt allt undir til þess að einka- væða Telebras, en almennar kosningar verða haldnar í land- inu innan tveggja mánaða. Ríkis- sljórnin sagði í gær að sala 51,8% hlutafjár í Telebras hefði aflað rfldssjóði tekna að jafnvirði um 1.350 milljarða íslenskra króna. Anfínn Kallsberg, lögmaður Færeyja Stefna að fullveldi á kjörtímabilinu Reuters Olífubændur mótmæla á Italíu ÍTALSKIR ólífubændur fá sér hefðbundinn suðrænan morgun- verð, brauð með ólífuohu, fyrir framan ítalska þinghúsið í Róm. Þeir mótmæltu í gær sölu á ólífuolíú frá öðrum löndum, sem merkt er sem ítölsk fram- leiðsla. Þingið samþykkti á þriðjudag lög sem kveða á um að standa skuli vörð um orð- spor hinnar rómuðu ítölsku jómfrúrólífuolíu. Hæstiréttur Spánar kveður upp „óhreina stríðs“-dóma Fyrrverandi ráðherr- ar fá tíu ára fangelsi Madríd. Reuters. HÆSTIRÉTTUR Spánar dæmdi í gær fyrrverandi innanríkisráðherra úr Sósíalistaflokknum og staðgengil hans í tíu ára fangelsi fyrir þátt þeirra í „óhreina stríðinu" svokallaða gegn skæruliðum aðskilnaðarhreyf- ingar Baska, ETA, á níunda ára- tugnum. Joaquin Delgado hæstaréttardóm- ari sagði við dómsuppkvaðninguna í Madríd að dómurinn hefði komizt að þeiri'i niðurstöðu, að José Barrionu- evo, Rafael Vera og Julian Sancri- stobal, fyrrverandi sýslumaður, væru allir sekir um misnotkun opin- bers fjár og mannrán. Glæpirnir sem mennirnh voru dæmdir fyrir tengjast brottnámi baskneska kaupsýslumannsins Seg- undo Marey árið 1983, sem var upp- hafið að leynilegri herferð spænskra yfirvalda gegn meðlimum ETA- hreyfingarinnar. Þegar mannránið átti sér stað var Barrionuevo innan- ríkisráðherra í stjóm Felipe Gonza- lez, en Vera fór með ráðuneyti inn- anríkisöryggismála, sem heyrir und- ir innanríkisráðuneytið. Báðir héldu þeir fram sakleysi sínu og neituðu því að hafa komið nálægt „óhreina stríðinu". Sancristobal var á sama tíma sýslumaður Vizkaya, einn- ar af þremur sýslum hins spænska hluta Baskalands, en þar vai' Marey haldið föngnum í tíu daga þar til ræn- ingjum hans varð ljóst að hann væri í raun ekki meðlimur í ETA. Gonzalez verst ásökunum Sancristobal, sem einnig hlaut tíu ára fangelsisdóm, viðurkenndi við réttarhaldið að hann hefði verið við- riðinn brottnám mannsins, en hélt því fram að fyrirmæli um það hefðu komið frá æðstu stöðum. Felipe Gonzalez, þáverandi forsætisráð- herra, sór af sér fyrir réttinum að hann hefði veitt heimild fyrir hinni leynilegu herferð, en margir stjórn- málamenn segja að óhugsandi sé að innanríkisráðherra hleypi slíkri að- gerð af stað án vitundar forsætisráð- herrans. Sumir stjómmálaskýi-endur fóru jaínvel fram á að Gonzalez drægi sig í hlé frá stjórnmálum, en hann hefur verið talinn líklegur eftirmaður Jacques Santers í embætti forseta framkvæmdastjórnai' Evrópusam- bandsins. Gonzalez sagði um helgina að réttarhaldið væri allt liðm- í póli- tískum ofsóknum gegn sér, sem lengi hefðu staðið yfir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.