Morgunblaðið - 30.07.1998, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Hópur franskra krabbameinssjúklinga hjólar kringum landið
Ferðin hefur gengið vel
„FERÐIN hefur gengið afskaplega
vel,“ sagði Monique Vanbelle, for-
maður samtakanna „Au del’a du
cancer" eða „handan krabbameins“,
og Léon Pani, bæjarstjóri í Gra-
velines, tók í sama streng. „Það hef-
ur allt gengið upp, allar tímaáætlan-
ir staðist," sagði hann.
Hópur krabbameinssjúkra
Frakka staldraði við á Akureyri í
gær, en þaðan var haldið til Sauðár-
króks. Rúm vika er síðan hópurinn
hóf hjólreiðaferð kringum landið, en
í honum eru m.a. tíu franskir
krabbameinssjúklingar frá Dunker-
que-svæðinu í Norður-Frakklandi
auk um 30 manna fylgdarliðs, að-
standenda og lækna. Bæjarstjórinn
í Gravelines er einnig með í för, en
bærinn er vinabær Fáskniðsfjarðar
og þar var hópurinn viðstaddur
Franska daga um liðna helgi.
Þau Monique og Léon sögðu að
veðrið hefði leildð við hjólreiðafólkið
alla leiðina og ætti það sinn þátt í
því hve vel hefði gengið. „Það hefur
hjálpað okkur mikið, veðrið hefur
verið stillt, enginn vindur eða rign-
ing, svo allt hefur gengið að ósk-
um.“ Þau sögðu ökumenn sýna
hópnum tillitssemi og margir köst-
uðu kveðju á mannskapinn. „Það
vita margir af ferð okkar hér og
vilja heilsa upp á okkur og heyra
hvernig gangi.“
Anæg með ferðina
Samtökin „handan krabbameins"
skipulögðu ferðina, en tilgangur
hennar er m.a. að sýna fram á að
unnt sé að lifa eðliiegu lífi þótt fólk
hafi fengið krabbamein. „Með þess-
ari ferð getum við sýnt og sannað að
krabbameinssjúklingar geta gert
ýmislegt, tekið þátt í lífinu með
ýmsum hætti,“ sagði Monique. „Við
erum afar ánægð með ferðina, allt
hefur gengið að óskum. Fólk er
heillað af landinu, stórbrotinni nátt-
úrunni og dýralífinu."
Skálað í kampavini
í Grímsey
Nokkrir þátttakenda áttu sér
þann draum að komast norður fyi'ir
heimskautsbaug og rætist hann í
dag, en þá er ferðinni heitið til
Grímseyjar. Þar finnst frönsku
ferðalöngunum tilvalið að opna
kampavínsflösku og skála.
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra tekur á móti fólkinu og
býður til hádegisverðar á Akranesi
á laugardag, en hringnum verður
lokað í Reykjavík á sunnudag og
haldið heimleiðis á mánudag.
, Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
FULLTRUAR frá samtökunum „handan krabbameins" fylgjast grannt með hjólreiðagörpunum, en hér má
sjá tvo þeirra á fleygiferð um götur Akureyrar í gærdag.
Dagskrá í Deiglunni
Dag’ar unga fólksins
LISTADAGAR unga fólksins hefj-
ast í Deiglunni, Grófargili, á morg-
un, föstudaginn 31. júlí, kl. 17.30 en
þeir standa í eina viku, til föstu-
dagsins 7. ágúst.
Opnuð verður listsýning í Deigl-
unni og efnt til tónleika, en fram
koma hljómsveitirnar 200.000 nagl-
bítar og Rat Pfink a Boo Boo.
Einnig sýna nemendur í Dansskóla
Sibbu break-dans.
Á laugadag, 1. ágúst, verður dag-
skrá sem nefnist Gjörningar og ljóð
og hefst hún kl. 17.30. Listsýning
verður opin á sunnudag frá 14 til 18
og á mánudag, 3. ágúst, verður per-
sónuleikasýning, úrtak akureyrskra
ungmenna og hefst hún kl. 20.30. Á
miðvikudagskvöld verður dagskrá í
Deiglunni og þá er listsýning opin,
sem og einnig aðra daga.
Á föstudag í næstu viku verður
opnuð Ijósmyndasýning og söng-
tríóið Ekkó leikur.
Til sölu við Ráðhústorg 1 á Akureyri
Til sölu við Ráðhústorg á Akureyri, verslunar- og skrifstofu-
húsnæði í hjarta bæjarins. Um er að ræða 48,6 fm á jarð-
hæð og 127 fm á 2. hæð. Ásett söluverð er kr. 12.500.000.
Allar frekari upplýsingar er að fá hjá fasteignasölunni
Byggð.
FASTKKIVmi.AV
BYGGD
IIKFkkl lillTI I
Símar 4621744 og 462182, fax 4627746.
Sölumenn Ágústa Ólafsdóttir
og Björn Guðmundsson.
Lögmaður Jón Kr. Sólnes hrl.
Skiptum
lokið í
þrotabúi
Kaldbaks
SKIPTUM er lokið í þrotabúi
frystihússins Kaldbaks á Greni-
vík, sem varð gjaldþrota í mars
árið 1994.
Upp í veðkröfur og lögveð á
fasteignum þrotabúsins greidd-
ust um 44,6 milljónir kr. Upp í
forgangskröfur, sem voru að
upphæð rúmar 19 milljónir kr,
greiddust um 14,4 milljónir kr.
eða um 75 af hundraði. Ekkert
fékkst upp í almennar kröfur,
sem samtals námu 121,3 millj-
ónum kr.
AKSJÓN
Fimmtudagur 30. júlí
13.00^-Halló Akureyri Aksjón og
Frostrásin senda beint frá Ráðhús-
torgi.
21 .OO^Sumarlandið Þáttur fyrir
ferðafólk á Akureyri og Akureyi'inga
í ferðahug.
21.35Þ-Halló Akureyri Aksjón og
Frostrásin senda beint frá Ráðhús-
torgi.
---------------
Ný göngubrú
NÚ STYTTIST í að gönguleið úr
Glerárhverfi að Háskólanum á
Akureyri eða upp í Gerðahverfi
opnist, en unnið við að setja upp
nýja göngubrú yfir stífluna á
Glerá. Rafveita Akureyrar kost-
aði gerð brúarinnar.
Morgunblaðið/Björn Gíslason
Halló ruslapoki
FORSVARSMENN hátíðarinn-
ar Halló Akureyri hvetja
kaupmenn og aðra sem starf-
semi stunda í bænum til að
hreinsa umhverfi sitt um helg-
ina, en það var einnig gert á
síðasta ári og tókst vel. Þá var
kaupmönnum færður þar til
gerður kústur að gjöf til að
auðvelda þrifin, en nú er sér-
merktum ruslapokum dreift
vítt um bæinn. Fyrstu pokarn-
ir voru afhentir í gær, en þá
tók Jóna Sighvatsdóttir, kaup-
maður í Borgarsölunni, við
pokum úr hendi þeirra Hólm-
fríðar Jóhannsdóttur og Egils
Níelssonar. Þau eru í Vinnu-
skólanum á Akureyri en
krakkarnir höfðu það verkefni
með höndum í gær að dreifa
ruslapokum.
Sumartónleikar á Norðurlandi
Margrét Bóasdóttir
með þýsku dúói
SÍÐASTA tónleikahelgi Sumartón-
leika á Norðurlandi fer nú í hönd.
Að þessu sinni eru flytjendur dúóið
Lewark-Portugall frá Rheinland-
Phaltz héraði í Þýskalandi, en það
skipa þeir Egbert Lewark trompet-
leikari og Wolfgang Portugall org-
elleikari. Margrét Bóasdóttir sópr-
an syngur með á tveimur íyrstu
tónleikunum.
Fyrstu tónleikarnir í röðinni
verða í Grenivíkurkirkju fimmtu-
dagskvöldið 30. júlí kl. 21. Þá verða
tónleikar í Reykjahliðarkirkju við
Mývatn, 1. ágúst kl. 21. Á efnisskrá
þessara tónleika eru verk eftir
Scheidt, Handel, Buxtehude,
Strachowicz, Bach, Torelli, Jón
Leifs og Mozart.
Á sunnudag, 2. ágúst, kl. 17 verða
tónleikar í Akureyrarkirkju þar
sem Lewark-Portugall dúóið kemur
fram. Þetta er önnur ferð þeirra fé-
laga til íslands.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
Gönguferð um
Fjörður og
Látraströnd
FERÐAFÉLAG Akureyrar efnir
til gönguferðar um Fjörður og
Látraströnd um verslunarmanna-
helgina.
Gengið verður með allan útbúnað.
Lagt verður af stað frá skrifstofu fé-
lagsins við Strandgötu kl. 17 á föstu-
dag og ekið í Hvalvatnsfjörð, en
þaðan er gengið í Þönglabakka. Á
laugardag verður gengið í Keflavík
og á sunnudag í Látur. Á mánudag
verður gengið inn Látraströnd og
verður hópurinn sóttur í Svínámes.
Upplýsingar um ferðina og
skráning er á skrifstofu félagsins
sem opin er frá kl. 16 til 19 virka
daga.
Krossgötur í
Ketilhúsinu
KROSSGÖTUR er heiti á sýningu
sem opnuð verður í Ketilhúsinu í
Grófargili laugardaginn 1. ágúst kl.
14.
Þrjár myndlistarkonur efna til
sýningarinnar, þær Hrefna Harðar-
dóttir, Sólveig Baldursdóttir og
Guðrún Pálína Guðmundsdóttir.
Hrefna og Sólveig hafa báðar feng-
ist við höggmyndir en Guðrún Pá-
lína notar fyrst og fremst pensilinn.
Með sýningunni vilja þær leggja
áherslu á þær krossgötur sem hver
listamaður jafnan stendur á í lífi
sínu.
Sýningin er opin frá kl. 14 til 18
alla daga og stendur hún til 16.
ágúst næstkomandi.
Morgunblaðið/Björn Gíslason