Morgunblaðið - 30.07.1998, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 30.07.1998, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Smári Örn Arnason UNGINN situr rólegur á öxl Guunlaugs Kárasonar. Albinóa- lóuungi fangaður áRifí HANN var sérkennilegur ung- inn sem var á vappi við veginn skammt íyrir ofan flugvöllinn á Rifi þegar Smári Öm Arnason, starfsmaður Nesvikurs ehf., átti leið þai- hjá í fyrradag. Hélt hann fyrst að þar væri kominn dúfuungi en við nánari athugun sá hann að svo gat ekki verið. Náði hann unganum, sem er alhvítur með svarta fiðurrönd, og fór með til vinnufélaga sinna. Olli heilabrotum Miklar vangaveltur urðu um hvaða tegund væri hér á ferð og fékkst ekki botn í þær fyrr en Trausti Tryggvason, fugla- áhugamaður í Stykkishólmi, skar úr um að hér væri kominn albinóa-lóuungi. Ljóst er þó að ekki er um hreinan albinóa að ræða þar sem hann hefur svört augu og rönd á baki. Að sögn Smára er unginn orðinn gæfur og hefur þegið vatn og brauð en ekki hefur tekist að fá hann til að þiggja orma. í nágrenni við staðinn þar sem unginn fannst hefur sést lóupar og er annar fuglinn sérkennilegur á lit og er talið líklegt að þar séu komnir for- eldrar ungans. Búið er að gefa honum nafnið Mjallhvít og er ráðgert að sleppa honum fljót- lega, en hann er svo til fleygur. Ævar Petersen fuglafræð- ingur þekkir ekki til þess að hvítar lóur hafi sést hér við land. Hann segir þó að albinóar séu þekkt fyrirbrigði hjá öðrum fuglum eins og skógarþröstum, hröfnum, æðarfugli og lunda en sjaldnast er þó um fullkomna albinóa að ræða. Ævar segir að þarna komi til samspil gena sem komi fram hjá einni og einni kynslóð. Mis- jafnt sé hvernig slíkum fuglum takist að spjara sig í náttúrunni en vaðfuglar standi sig oft ágætlega. Hjá öðrum fuglum eins og hrafni er hins vegar þekkt að þeir áreita þá sem bera annan litarhátt og hann hafi sjálfur séð teistur áreita al- binóa-kynsystur sína í Alaska á dögunum. Nýtt erfðafræðifyrirtæki verður stofnað eftir 2-3 vikur Hyggst greiða 8-10 þúsund krónur fyrir hvert lífsvni RÁÐGERT er að stofna hér á landi eftir 2-3 vikur nýtt fyrirtæki á sviði erfðafræðirannsókna sem mun sér- hæfa sig í krabbameinsrannsóknum og verður hlutafé þess í upphafi hátt í tuttugu milljónir dollara, eða 1,4 milljarðar íslenskra króna. Tryggvi Pétursson, einn stofnenda íyrirtækisins, segir að það muni greiða 8-10 þúsund krónur í sjóð fyrir hvert lífsýni sem tekið verður til rannsóknar. Sjóðurinn, sem Tryggvi segir að í geti safnast 100-900 milljónir dollara um síðir, verður notaður til stuðnings Há- skólanum, öðrum menntastofnunum og sjúkrahúsunum. Tveir íslenskir vísindamenn sem starfa í Bandaríkjunum, Bemharð- ur Pálsson, prófessor við Kalifom- íuháskóla, og Snorri Þorgrímsson, sem starfar við National Health Institute, era meðal stofnenda fyr- irtækisins. Bæði innlendir og erlendir fjár- festar taka þátt í viðræðum um fjár- mögnun fyrirtækisins. Guðmundur Frankh'n Jónsson, verðbréfasali í New York, er staddur hér á landi sem fulltrúi erlendra fjárfesta, en meðal þeirra innlendu er fiskútflutn- ingsfyrirtækið Sameinaðir útflytj- endur sem stofnað var í byrjun þessa árs með sameiningu fjögurra minni fyrirtækja. Sameinaðir útflytjendur velta um 4,5 milljörðum króna og em í eigu fjögurra einstaklinga, þar á meðal Tryggva Péturssonar. Stórt erlent lyfjafyrirtæki hefur einnig sýnt áhuga á áætlununum að sögn Tryggva en verður þó ekki á meðal eigenda fyrirtækisins. Stefnt að sem stærstum eignar- hlut fslendinga „Bernharð var á fundi lyfjafyrir- tækis í Bandaríkjunum og var að ljúka samningi í sambandi við verk- efni sem hann vann að. Fulltrúar lyfjafyrirtækisins spurðu hann þá hvort rétt væri að selja ætti íslensk- ar erfðafræðiupplýsingar fyrir ekki meiri pening en 100 milljónir doll- ara. Hann hringdi í mig í framhaldi af þessu og eitt leiddi af öðm,“ segir Tryggvi. Tryggvi segir að stefnt verði að því að Islendingar eigi sem stærst- an hluta af fyrirtækinu, og helst allt hlutaféð, þrátt fyrir að erlendir fjár- festar taki þátt í viðræðunum nú. Með þessum hætti verði best tryggt að Islendingar haldi yfirráðum yfir þeim upplýsingum sem fyrirtækið afli. Tryggvi segist ekki telja að fyr- irtækið muni lenda í samkeppni við íslenska erfðagreiningu, starfs- sviðin skarist ekki, og nóg sé af hæfum íslenskum vísindamönnum sem hægt sé að fá til starfa. „Við sjáum fyrir okkur að í framtíðinni geti orðið pláss fyrir 5-10 fyrirtæki á þessu sviði á íslandi. Þetta er stórt rannsóknarsvið," segir Tryggvi. Nýja fyrirtækið verður í upphafi í samstarfi við íslenskar rannsóknar- stofur sem starfað hafa á sviði krabbameinsrannsókna, en stefnt er að því að síðar komi það á fót eig- in rannsóknaraðstöðu. Meðal ann- ars hefur verið leitað til Krabba- meinsfélags íslands. Sigurður Björnsson, stjómarformaður fé- lagsins, segir að viðræður um málið séu skammt á veg komnar. Félagið hafi verið að leita leiða til að halda áfram rannsóknarstarfsemi sinni, sem sé orðin félaginu sjálfu ofviða fjárhagslega. Tveir hópar fjárfesta hafa á und- anfómum mánuðum undirbúið stofnun erfðafræðifyrirtækis. Ann- ar þeirra fór af stað í nóvember í fyrra, og var Guðmundur Franklín fulltrúi erlendra fjárfesta í honum. Hinn hópurinn hefur starfað síðan fyrir fáeinum mánuðum. í síðustu viku náðist samkomulag milli fjár- festa í hópunum um að vinna sam- an. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins var sá hópurinn sem fyrr var stofnaður í sambandi við lyfja- fyrirtækið Glaxo-Wellcome. Það mun þó ekki vera fyrirtækið sem nú sýnir áætlununum áhuga. Islenskir unglingar í bandarískum sjónvarpsþætti Morgunblaðið/Árni Sæberg CARMEN og Haukur, fyrir miðju, ásamt hluta bandaríska tökuliðs- ins. Lengst til hægri er Helga Thorberg, leikkona og móðir Hauks. / Finnst Is- land ævin- týralegt FIMM manna tökulið frá banda- ríska kvikmyndafyrirtækinu Steve Rotfeld Productions kom til landsins í gær og hélt sam- dægurs til Vestmannaeyja ásamt tveimur íslenskum ungmennum, Hauki B. Sigmarssyni, 16 ára, og Carmen Jóhannsdóttur, 15 ára, en þau verða í aðalhlutverkum í sjónvarpsþætti fyrir unglinga sem tekinn verður upp á ísiandi næstu daga. Að sögn framleiðanda þáttar- ins á að taka upp ævintýri tveggja islenskra unglinga fyrir þáttaröð sem kallast Awesome adventures og hefur göngu sína í Bandaríkjunum í september. „Awesome adventures", sem gæti útlagst Hrikaleg ævintýri, er að sögn framleiðandans, Lauren Shulnen, hálftima langur þáttur sem verður sýndur viku- lega í 100 borgum Bandaríkj- anna. í New York t.d. mun sjón- varpsstöðin ABC hafa þáttinn á dagskrá. Þátturinn með íslensku krökkunum verður sýndur í október næstkomandi. Lauren sagði í samtali við Morgunblaðið að tökuliðið og kynnir þáttarins hefðu farið víða að undanförnu til að taka upp þætti. En afhveiju varð ísland fyrir valinu sem tökustaður? „Eg heyrði að Island væri æv- intýralegur staður,“ sagði Lauren. Hún sagði að þegar hefði hóp- ur hennar tekið upp sams konar þætti á Hawaii, í Bólivíu og Alaska og næsti áfangastaður á eftir Islandi væri Kosta Ríka. Aðspurð sagði hún að sér litist vel á íslensku táningana. „I þátt- unum sem við erum að gera eru alltaf tveir unglingar á aldrinum 12-16 ára sem fara með aðalhlut- verk og leituð eru uppi hin ýmsu ævintýri í heimalandi hvers og eins.“ I Vestmannaeyjum munu þau Haukur og Carmen meðal annars spranga í klettunum, gengið verður á eldíjall og einnig reyna þau fyrir sér í lundaveiði. Að loknu Vestmannaeyjaævintýrinu verður haldið til Hafnar í Horna- firði og þaðan verður farið í vélsleðaferð upp á Vatnajökul auk þess sem komið verður við í Jökulsárlóni. Síðasti tökudagur verður á sunnudaginn en þá verður farið á hestbak og í Bláa lónið. Lauren sagði einnig að Vest- mannaeyjaferðin yrði notuð til að gera annan þátt þar sem Keikó myndi koma við sögu. „Þetta eru dýraþættir sem heita Wild about Animals með kynninum Mariu Hartley. Þeir hafa verið á dag- skrá í þrjú ár á sömu sjónvarps- stöðvum og ævintýraþátturinn verður sýndur á. Við ætlum að mynda nýtt heimili Keikós og væntanlega nágranna hans, lundana," sagði Lauren Shulnen. Ferjuflugvélin fundin á Grænlandsjökli Flugmaður- inn látinn GRÆNLENSK leitarflugvél fann kl. 16.35 í gær flak litlu ferjuflugvél- arinnar sem leitað hefur verið síðan aðfaranótt laugardagsins 25. júlí sl. Flakið fannst uppi á Grænlands- jökli, u.þ.b. 40 sjómflur austur af flugvellinum í Narsarssuaq, í um 7.000 feta hæð. Flugmaður vélarinnar var látinn þegar að var komið. -------------- V erslunarmannahelgin Besta veðrið á laugardag Landsmenn eiga von á ágætisveðri um verslunarmannahelgina og gerir Veðurstofan ráð fyrir að allir lands- hlutar njóti sólar á laugardag. Að sögn Einars Sveinbjömssonar veðurfræðings verður hiti á bilinu 15 til 18 stig og þurrt á flestum stöðum fram á seinnipart sunnu- dags. A sunnudag lítur út fyrir að all- myndarleg lægð nálgist landið með austan- og suðaustanátt og rigningu um sunnan- og suðvestanvert landið en hlýindum á Norðurlandi, eða allt að 20 stigum. A mánudag er gert ráð fyrir áframhaldandi rigningu sunnan- lands og vestan en áfram verður hlýtt víðast hvar á Norðurlandi. 8SÍpUR VIDSIflPTIAIVlNNULÍF BÍLAR Sá hlær best Barátta BMW og VW um Rolls/C3 FYRIRTÆKI Kapp í KEA Sameiningar hugleiðingar/C4 Peninrabréf Stórglæsilegur rallbfll til landsins í næstu viku/ B8 Bæði ÍBV og ÍA féllu úr Evrópukeppninni / B4 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.