Morgunblaðið - 30.07.1998, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1998
UR VERINU
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Loðnuveiðin hefur verið léleg undanfarna daga
Morgunblaðið/Sigurgeir
NORSKA loðnuskipið Kristian Ryggefjord, sem kyrrsett var í Vestmannaeyjum í fyrrasumar,
landaði í síðustu viku 700 tonnum af loðnu hjá Vinnslustöðinni.
Islensku skipunum
fækkar á miðunum
AÐEINS 10-15 íslensk loðnuskip
voru í gær á miðunum rétt sunnan við
lögsögumörkin norður af Siglufírði, en
lítil sem engin loðnuveiði hefur verið
undanfama daga og hafa mörg skip-
anna haldið í land. Tuttugu norsk
loðnuskip voru á miðunum í gær, en
það er sá fjöldi sem má veiða innan ís-
lensku lögsögunnar.
Ottó Ottósson, stýrimaður á Þor-
steini E A sem ennþá er á loðnumiðun-
um, sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að nánast ekkert hefði veiðst upp
á síðkastið og mörg íslensku skipanna
væi-u farin í land.
„Þetta er bara ömurlegt. Við erum
komnir með sáralítið, en Hólmaborgin
vai- að fá eitthvað smáræði í nótt en
það gekk ekkert hjá okkur þá. Það
hefur ekki verið nein veiði að heitið
geti síðustu vikuna. Það er mikið af
Islendingunum farið heim og ég held
að allir Vestmannaeyingamir séu
famir til að undirbúa sig fyrir þjóðhá-
tíð. Við verðum hins vegar áfram
héma þar til við verðum kallaðir í
land,“ sagði Ottó.
Samkvæmt upplýsingum frá Sam-
tökum fiskvinnslustöðva var í gær bú-
ið að landa samtals tæplega 271 þús-
und tonnum af loðnu á sumarvertíð-
inni sem hófst 20. júní síðastliðinn.
Þar af höfðu íslensk skip landað tæp-
lega 200 þúsund tonnum og erlend
skip 71 þúsund tonnum, en loðnuveið-
ar íslenskra skipa verða óheimilar frá
og með 16. ágúst næstkomandi til og
með 30 september. Mestu hefur verið
landað hjá SR-mjöli á Siglufirði, eða
samtals rúmlega 35 þúsund tonnum,
en hjá Síldarvinnslunni hf. Neskaup-
stað hefur verið landað rúmlega 26
þúsund tonnum og hjá Hraðfrystihúsi
Eskifjarðar tæplega 25 þúsund tonn-
um. Alls hafa 19 loðnuverksmiðjur á
landinu tekið á móti loðnu á sumar-
vertíðinni.
Bráðabirgðakvóti á loðnuvertíðinni
er 950 þúsund lestir og af því magni
koma rúmlega 680 þúsund lestir í hlut
Islands, auk þess sem íslensk skip fá
8.000 lestir af kvóta Grænlands sem
endurgjald fyrir veiðiheimildir græn-
lenskra skipa á síðustu loðnuvertíð.
Nú eru eftirstöðvar útgefins loðnu-
kvóta sem í hlut íslensku skipanna
kemur því rúmlega 488 þúsund tonn.
Bráðabirgðakvótinn miðast við að
endanlegur leyfilegur heildarafli verði
1.420.000 lestir og kemur mismunur-
inn á bráðabirgðakvótanum og endan-
legum kvóta allur í hiut íslands.
Kristian Ryggefjord
landaði í Eyjum
Meðal norsku skipanna sem era við
veiðar í íslensku lögsögunni er loðnu-
skipið Kristian Ryggefjord og landaði
það um 700 tonnum af loðnu hjá
Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum í
síðustu viku. Skipið var kyrrsett í
Vestmannaeyjum í fyrrasumar þar
sem talið vai' að veiðidagbækur þess
væra falsaðar. Skipstjórinn var
dæmdur í sekt fyrir að rita rangar
staðsetningartölur í tölusetta afladag-
bók skipsins og leyna henni fyrir yfir-
völdum er hann kom til Vestmanna-
eyja, en hann var hins vegar sýknaður
af brotum á reglugerð sjávanitvegs-
ráðuneytisins um veiðar erlendra
skipa í lögsögu Islands þar sem dóm-
urinn taldi reglugerðina ekki eiga sér
stoð í lögum.
I sumar
göngum við í lið
með. úiivmarfóm,
10-25%
• ••
66*N MAX
Verslanir Reykjavík, Akureyri, Vestmannaeyjum.
Reuters
Batnandi samskipti
Indlands og Pakistans
FORSÆTISRÁÐHERRAR Ind-
lands og Pakistans hittust á
óformlegum fundi í gær og
ákváðu að efna til leiðtogafund-
ar um samskipti landanna, sem
hafa verið í lægð síðan hvorir
tveggju sprengdu kjarnorku-
sprengjur í tilraunaskyni í maí
sl. Atal Behari Vajpayee, forsæt-
isráðherra Indlands, og Nawaz
Sharif, starfsbróðir hans frá
Pakistan, sitja báðir ráðstefnu
leiðtoga um samvinnu í Suður-
Asíu (SAARC)í Colombo á Srí
Lanka. Vajpayee segir þá báða
„viðurkenna nauðsyn þess að
vinsamleg samskipti landanna
byggist á trausti og trúnaði". í
fyrra slitnaði upp úr samninga-
viðræðum um frið í Kasmír en
Pakistan og Indland hafa háð
tvö stríð um yfírráð yfir Kasmír
frá því þau fengu sjálfstæði frá
Bretum fyrir hálfri öld.
Á myndinni sést Nawaz Sharif
rétta starfsbróður sínum, Atal
Behari Vajpayee, glasamottu á
fundinum í Colombo.
Aróðurssigur fyrir
Verkamannaflokkinn í Israel
Stjórnarþing-
menn snúast
gegn Netanyahu
ÍSRAELSÞING krafðist þess í
gær, að þing yrði rofið og efnt til
nýrra kosninga í landinu. Var að-
eins um að ræða fyrstu atkvæða-
greiðsluna af fjórum en þótt ólík-
legt þyki, að tillagan nái endanlega
fram að ganga, þá er niðurstaðan í
gær mikill álitshnekkir fyrir
Benjamin Netanyahu forsætisráð-
herra.
Þingmenn Verkamannaflokksins
báru fram tillöguna og var ástæðan
þráteflið í friðarviðræðunum við
Palestínumenn en þeir kenna fyrst
og fremst Netanyahu um það. Var
tillagan samþykkt með 60 atkvæð-
um gegn sex en á þinginu sitja 120
menn. Flestir þingmenn stjórnar-
flokkanna voru fjarverandi.
Þingið í frí
Fjórir stjómarþingmenn studdu
tillögu Verkamannaflokksins, þrír
þingmenn lítils miðflokks, Þriðju
leiðarinnar, og Dan Meridor, fyrr-
verandi fjármálaráðherra, sem lét
af embætti á síðasta ári eftir að í
odda skarst með honum og Net-
anyahu.
Talsmaður Verkamannaflokks-
ins sagði, að úrslit atkvæðagreiðsl-
unnar sýndu þá miklu óánægju,
sem væri með Netanyahu, en til-
lagan á eftir að fara fyrir nefnd og
síðan í þrjár atkvæðagreiðslur. Þar
við bættist, að gærdagurinn var sá
síðasti fyrir þinghlé.
Netanyahu gerði lítið úr at-
kvæðagreiðslunni í gær og fyrr í
vikunni stóð stjórn hans af sér
þrjár vantrauststillögur. Úrslitin
eru þó áfall íyrir hann og gefa
þeim áróðri andstæðinga hans byi’
undir báða vængi, að honum hafi
mistekist allt nema að halda í völd-
in.
Þegar tillagan um að krefjast
kosninga var rædd á þingi í gær
talaði Netanyahu minnst um frið-
arviðræðurnar eða efnahagsmálin,
Netanyahu Orr
heldur um viðtal, sem dagblaðið
Ha’aretz birti í gærmorgun við
einn þingmanna Verkamanna-
flokksins, Ori Orr, fyrrverandi
hershöfðingja. Þykir hann hafa
haft þar mjög móðgandi ummæli
um þá gyðinga, sem komu til ísra-
els frá öðrum Miðausturlöndum og
Norður-Afríku.
„Vandræðahópur" frá Marokkó
„Þegar ég tala um „mizrahi“ (gyð-
inga frá fyrmefndum löndum) á ég
fyrst og fremst við gyðinga frá
Marokkó. Þeir eru stærsti og mesti
vandræðahópurinn og það versta er,
að þeir hafa engan áhuga á að vita
hvers vegna,“ sagði Orr í viðtalinu.
Yaron Dekel, pólitískur frétta-
skýrandi ísraelska útvarpsins,
sagði í gær, að með þessum um-
mælum hefði Orr stórskaðað
Verkamannaflokkinn og ýtt undir
grunsemdir um, að forystumenn
hans litu ekki sömu augum á alla
gyðinga. Forysta Verkamanna-
flokksins hefur áður beðist afsök-
unar á því hvernig komið var fram
við svokallaða sephardim-gyðinga,
fólk frá arabaríkjunum, á fyrstu
árum Israelsríkis en stofnendur
Verkamannaflokksins voru fyrst
og fremst ashkenazy-gyðingar,
fólk frá Austur-Evrópu.
Ehud Barak, fyrrverandi hers-
höfðingi og leiðtogi Verkamanna-
flokksins, fordæmdi í gær ummæli
Orrs og hvatti hann til að taka þau
aftur.