Morgunblaðið - 30.07.1998, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 30.07.1998, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1998 25 EYÞÓR Ingí Jónsson organisti frá Akranesi og Guðmundur Hafsteinsson trompetleikari leika á hádegistón- leikum í Hallgrímskirkju í dag. Orgel og trompet í Hallgrímskirkju GUÐMUNDUR Hafsteinsson trompetleikari og Eyþór Ingi Jónsson organisti frá Akranesi leika á hádegistónleikum í Haligrímskirkju í hádeginu í dag, fimmtudag, kl. 12-12.30. Efnisskráin er tvíþætt, ann- ars vegar fimm verk frá barokktímabilinu og siðan tvö frá þessari öld. Þeir leika saman „Trumpet Voluntary“ eftir Willi- am Boyce, „Erbarm ich mein, o Herre Gott“ BWV 721 eftir Jo- hann Sebastian Bach, 2 marsa úr „Heldenmusik" eftir Georg Phil- ipp Telemann og „Canon“ í D- dúr eftir Johann Pachelbel. Inn á miili leikur Eyþór „Tokkötu við fyrsta tónlag" eftir Pablo Nass- arre og á eftir „Fantasía 11“ úr „Sonntagsmusik“ eftir Tékk- ann Petr Eben. Tónleikunum lýkur með „The Prayer of St. Gregory" eftir Alan Hahaness. A laugardaginn leikur Sviss- lendingurinn Ulrich Meldau á hádegistónleikum í Hallgríms- kirkju, en hann er organisti við Enge kirkju í Ziirich. A efnisskrá hans verða nokkur þeirra verka sem hann mun siðan leika á aðal- tónleikum helgarinnar í Hall- grímskirlqu sunnudaginn 2. ágúst kl. 20.30. Zbigniew Herbert látinn Efínn, óttinn og örvæntingin EITT verka Elanor. Elanor sýnir í Galleríi Listakoti OPNUÐ hefur verið sýning á verkum skosku grafíklistakon- unnar Elanor Symms í Galleríi Listakoti, Laugavegi 70. Á sýningunni eru þrykk gerð með blandaðri tækni og æting- um. í myndum sínum leitast Elanor við að tjá hughrif sín af vatni og náttúru, sem birtist hér í björtum og lifandi myndum. Elanor er fædd í London 1963 en hefur búið í Skotlandi síðan 1971. Hún útskrifaðist frá Edin- borgarháskóla árið 1986 og hef- ur síðan starfað að list sinni og haldið einkasýningar og verið með í samsýningum víðsvegar um Bretland, Evrópu og Banda- ríkin. Sýningin stendur til 22. ágústs og er opin virka daga kl. 10-18 og laugardaga 10-16. Myndimar em allar til sölu. í HAFNARBORG eru tvær sýning- ar, annars vegar sýningin Hafnar- fjarðarmótív og hins vegar sýningin „Andlit bæjarins" í Apótekinu. Sýn- ingunum lýkur báðum 3. ágúst nk. og eru opnar frá kl. 12-18, alla daga nema þriðjudaga. ZBIGNIEW Herbert, eitt af kunn- ustu skáldum Pólverja, lést í gær í Varsjá 73 ára að aldri. Herbert var meðal þeirra skálda sem vöktu fyrst verulega athygli utan Póllands á sjötta áratugnum fyrir opna og beinskeytta ljóðlist sem snerist gegn stjómvöldum í Póllandi. Þessi skáld þekktu stríðið og pólitískar ofsóknir af eigin raun og lýstu reynslu sinni af því í ljóð- um sem þóttu óvenjulega opinská og áhrifarík. Fyrsta ljóðabók Herberts kom út 1956. Eftir langt hlé frá ljóða- gerð kom frjótt skáldskapartímabil hjá Herbert í fyrra. Arangurinn var bókin Eftirmáli stormsins sem kom út á þessu ári. Herbert var mikils metinn heima fyrir og er- lendis og þótti verðugur Nóbels- verðlauna. Þau runnu aftur á móti í skaut skáldsystur hans Wislöwu Szymborsku 1996. Hún sagði við fréttina um dauða hans að hann hefði verið „mikill listamaður og hugsuður“. Lögð er áhersla á mannúðar- stefnu Herberts og siðferðilegan boðskap, það fordæmi sem hann gaf með verkum sínum og lífi. Herbert var afar hljóðlátur maður og lítið fyrir sviðsljós. Hann ráð- lagði ungum skáldum að yrkja um efann, óttann og örvæntinguna, líf- ið var að hans mati flóknara, dul- arfyllra en flokkurinn, herinn og lögreglan. Meðal þeirra sem þýtt hafa Ijóð GUÐBJÖRG Lind Jónsdóttir sýnir þrettán olíumálvek í Norska húsinu í Stykkishólmi. Sýningin er opin frá kl. 11-17 og lýkur á föstudag, 31. júlí. Zbigniews Herberts á íslensku eru Jóhann Hjálmarsson og Geirlaug- ur Magnússon. ------------------- Nýjar bækur • BÓK um hvali og hvalaskoðun við Island er nýkomin út á ensku og þýsku og klemur innan skamms út á íslensku. Höfundurinn er M;irk Carwardine. I kynningu segir: „I bókinni er að finna margar stórbrotnar myndir af þessum risaskepnum sjávarins, kraftmikil og stílhrein bók. Þarna haldast í hendur einstakt myndefni og hnitmiðaður og fróðlegur texti um helstu tegundir hvala í okkar hafsvæði, einkenni þeirra og hegð- un. í bókinni eru myndir af þeim öllum og sumar mjög nýstárlegar. Hún er í miðlungsbroti og í hönnun er áhersla lögð á myndspennu og einfalda framsetningu, sem þjónar efninu vel.“ Á ensku heitir bókin „Whales and Whale Watching in Iceland, á þýsku ber hún titilinn Wale, Bei Island Hautnah Erleben. Innan skamms kemur hún einnig út á íslensku á vegum Vöku-Helgafells og ber heit- ið Hvalir við ísland Risar haf- djúpanna í máli og myndum. Höfundur bókarinnar, Mark Carwardine, er Breti sem er þekkt- ur fyrir náttúruþætti í útvarpi og sjónvarpi BBC, skrif um náttúru- efni í blöð svo og störf á sviði um- hverfismála á vegum Sameinuðu þjóðanna og fleiri samtaka. Hann hefur m.a. skrifað yfir 30 bækur um ferðamál, dýralíf og náttúruvernd. Þær hafa komið út á 21 tungumáli og selst í milljónum eintaka um all- an heim. Mark er hálft árið á ferðalögum og hefur farið til meira en 80 landa. Fyi-sta Islandsferðin hans var 1981 og síðan hefur hann komið hingað yfir 50 sinnum. Þessi nýja hvalabók í útgáfu Iceland Review kostar 1.992 kr. í bókabúð- um. Bókin er prentuð í Odda. Sýningum lýkur Hafnarborg Norska húsið, Stykkishólmi Daufír tónleikar TðNLIST llal I grfinski rkja ORGEL- OG TROMPETTÓNLEIKAR Egbart Lewark trompetleikari og Wolfgang Portugall orgelleikari fluttu verk eftir Torelli, Fr.Couperin, Krebs, Franck og Eben. Sunnudagur- inn 26. júlí 1998. TÓNLEIKARNIR hófust á konsert í D-dúr og eins segir í efn- isskrá „fyrir pikkalótrompet og orgel“, eftir Torelli. Piccolo- trompet var smíðaður á seinni hluta 19. aldar og var fyrst leikið á slíkt hljóðfæri í Eisenach 1884, þannig að nefndur konsert er ekki saminn fyrir „pikkaló" (á að vera með o), því slíkt hljóðfæri var ekki til, þá Torelli var uppi. Clarino- trompet kunnu barokkmenn að nota á mjög háu tónsviði en breyta mátti tónsviði þessara hljóðfæra með svo nefndum „krókum“. Fyrir nútíma trompetleikara er radd- skipan trompetraddanna á þessum tíma frekar einföld og svo gegnir með þennan „orgelkonsert", sem var hressilega og vel fluttur. Francois Couperin samdi tvær messur fyrir orgel og er sú fyrri byggð á „cantus firmus" þ.e. sléttsálma stefjum en í þá síðari, „convents" messuna, notar Couper- in ekki „cantus firmus", en úr þess- ari messu lék Wolfgang Portugall Gloria. Heldur var raddskipanin á köflum gróf en leikurinn að öðru leyti þokkalega framfærður. Tvö kóralforspil eftir Johann Krebs, nemanda J.S. Bach, voru næst á efnisskránni og voru sálm- hendingarnar leiknar í „venjuleg- an“ trompet og er það í raun afbök- un á þessu formi, sem sérlega er orðið til fyrir orgelið, því á meðan leikið er á trompetinn hverfur org- elið í skuggann af sterkri hljóman lúðursins og við það brenglast form verksins. Þriðji kórallinn, eftir César Franck, var í raun eina bita- stæða viðfangsefni tónleikanna og ekki óþekkilega flutt en það var í lokaviðfangsefninu, Gluggalýsinga- verki eftir Petr Eben, sem Wolf- gang Portugall sýndi töluverð til- þrif. Þrátt fyrir ágætlega útfærðan leik bjargaði það ekki aftaka leiðin- legu verki. Verkið er samsafn tæknilegra tiltekta, þar sem hver leiktæknihugmyndin rekur aðra og þó sumar þeirra séu áheyrilegar, er verkið í heild óttaleg samsuða og til að kóróna allt, endar það á rússnesku sálmalagi, sem hvað stíl verksins snertir, á þar ekki heima. I heild voru þetta daufir tónleikar enda efnisvalið snúið utan um trompetinn og því í raun aðeins eitt viðamikið verk fyrir orgel á efnis- skránni, nefnilega kórallinn eftir Franck. Jón Ásgeirsson - flott föt fyrir frábæra krakka bamaföt við hliðina i Hagkaup f Skeifunni. Laugavegi 20, Fjarðargötu 17 f Hafnarfirði og I Vestmannaeyjum www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.