Morgunblaðið - 23.09.1998, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1998 13
Morgunblaðið/Kristján
DAVÍÐ sonur Sverris Haraldssonar í Skriðu í Hörgárdal var að garða
í gær en faðir hans var sjálfur með rúllubindivélina.
Bændur í Eyjafírði enn í heyskap
Eru að tína upp
síðustu stráin
EINSTAKA bændui' í Eyjafirði era
enn í heyskap, þótt langt sé liðið á
september. Að sögn Ólafs Vagnsson-
ar, ráðunautar hjá Búnaðarsambandi
Eyjafjarðar, sjást víða nýslegin tún á
svæðinu, þótt ljóst sé að menn era að
tína upp síðustu stráin á þessu sumri.
Ólafur sagði bændur hafa fengið
ágætis hey í sumar og að fóðurgild-
ið væri mun betra en á síðasta ári
og fyllilega í meðallagi. „Samkvæmt
AKSJON
Miðvikudagur 23. september
12.00^-Skjáfréttir
18.15^-Kortér Fréttaþáttur í
samvinnu við Dag. Endursýndur
kl. 18.45, 19.15, 19.45, 20.15,
20.45.
21 .OOÞ-Bæjarsjónvarp Harm-
ónikkuball í Iþróttahöllinni með
sænska tríóinu „Nya brödrarna
Farm“.
þeim efnagreiningum sem liggja
fyrir er efnamagn í heyi þó frekar í
lægri kantinum, bæði steinefni og
prótein og helgast það m.a. af tíðar-
farinu."
Bændur á svæði Mjólkursamlags
KEA hafa verið hvattir til að auka
mjólkurframleiðsluna og í því sam-
bandi skiptir fóðurgildið í hejd
miklu máli að sögn Ölafs og hefur
áhrif á samsetningu fóðurblöndunn-
ar sem bændur gefa.
Sverrir Haraldsson bóndi í
Skriðu í Hörgárdal var í heyskap í
gær ásamt sínum mönnum en hann
sagðist aðeins vera að tína upp síð-
ustu tuggurnar. Tíðarfarið gerði
bændum á Norðurlandi erfitt fyrir í
sumar en Sverrir sagði heyskapinn
hafa gengið ágætlega miðað við að-
stæður og að rúllubindivélarnar hafi
bjargað miklu. „Eg ætlaði nú samt
að hirða í sól í dag (í gær) en það
gekk ekki eftir,“ sagði Sverrir.
Sjávarútvegs- og Hlutabréfasjóður
Hlutafé aukið
STJÓRNIR Hlutabréfasjóðs Norð-
urlands hf. og Sjávarútvegssjóðs ís-
lands hf. hafa ákveðið að auka hluta-
bréf í sjóðunum. Fyrh'hugað er að
gefa út nýtt hlutafé að nafnvirði 10
til 200 milljónir kr. í hvorum sjóði.
Sölutímabilið er sex mánuðir og
hefst um leið og gengið hefur verið
frá skráningarlýsingu.
í fréttatilkynningu frá sjóðunum,
sem báðir eru vistaðir hjá Kaupþingi
Norðurlands hf. á Akureyri, kemur
fram að sölutími bréfanna er frá 1.
október 1998 til 1. apríl 1999, en þó
áskilja félögin sér rétt til að fram-
lengja tímabilið að sex mánuðum
liðnum um sex mánuði til viðbótar,
enda sé þá heimild til hlutafjáraukn-
ingar ekki fullnýtt.
Sölugengi bréfanna í Hlutabréfa-
sjóði Norðurlands er í upphafi 2,33
en í Sjávarútvegssjóði íslands 2,17.
Á útboðstímanum verður gengi sjóð-
anna reiknað út daglega.
Endurheimt
si álfstædis habköu„„
*F A AKUHEYFll
Saga og menning
Eystrasaltslandanna
Málstofa á vegum endurmenntunarnefndar
Háskólans á Akureyri fimmtudaginn 24. sept.
kl. 17.00-20.00 í stofu 25, Þingvallastræti 23.
Fyrirlesarar:
Arnór Hannibalsson prófessor - Litháen.
Guðni Jóhannesson sagnfræðingur - Lettland
Sigurður Einil Pálsson eðlisfræðingur - Eistland.
Fundarstjóri: Ragnheiður Kjærnested bókasafns-
fræðingur.
Fyrirlestrar og umræður - Allir velkomnir
Málstofan er haldin í samvinnu við ræðismenn
Eystrasaltslandanna á Islandi og Norrænu upplýs-
ingaskrifstofuna á Akureyri.
i 1 SMmMmE v
AKUREYRI
Enn vantar fólk í vinnu í sláturhúsi KEA
I athugun að fá erlent
vinnuafl til starfa
Morgunblaðið/Kristj án
HELGI Jóhannesson, forstöðumaður Kjötiðnaðarsviðs KEA í nýbygg-
ingu stórgripasláturhúss félagsins.
SAUÐFJÁRSLÁTRUN stendur
yfir hjá sláturhúsi KEA þessa dag-
ana og þar er slátrað um 1150-1200
fjár á dag. Hins vegar hefur gengið
erfiðlega að fullmanna allar stöður
við slátrunina og enn vantar um 10
manns í vinnu í sláturhúsið og 6-8
manns í kjötskurð hjá Kjötiðnaðar-
stöðinni. Helgi Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri Kjötiðnaðarsviðs
KEA, sagði menn þar á bæ vera
farna að velta fyrir sér að fá erlent
vinnuafl til starfa og hafi m.a. verið
horft til Póllands í því sambandi.
„Bændur hafa jafnan látið nokk-
uð að sér kveða í sláturtíðinni en nú
erum við með innan við 5 bændur í
vinnu. Það virðist vera lítið af fólki á
lausu til sveita og það virðist líka
eiga erfiðara með að fara frá bú-
skapnum. Við höfum fengið fólk til
vinnu sem er á skrá hjá Svæðis-
vinnumiðluninni en sumt af því fólki
hefur gert mjög stuttan stans hér.“
Helgi sagði nauðsynlegt að
skráning fólks á atvinnuleysisskrá
yrði tekin til endurskoðunar. „Við
höfum leitað töluvert eftir starfs-
fólki á atvinnuleysisskrá en sumt af
þessu fólki vinnur aðeins hálfan
daginn og annað getur ekki unnið
þessa vinnu.“
Um 80 manns starfa við slátrun-
ina sem er heldur færra en í fyrra
og sagði Helgi menn ekki vera
farna að hreinsa vambir en 6 manns
unnu við það í sláturtíðinni í fyrra.
„Samt vantar okkur fólk bæði á lín-
una, í frystana og innmatinn."
Meðalfallþungi dilka var 15,7 kg
fyrstu viku sláturtíðar, sem er svip-
aður þungi og í fyi'ra en Helgi sagð-
ist gera ráð fyrir heldur minni með-
alvigt í sláturtíðinni í ár en í fyrra.
„Við tökum eftir því að vigtin er lak-
ari hér austan við okkur, fé sem
rekið var í Flateyjardal og Fjörð-
ur.“
Fullkomið stórgripa-
sláturhús í notkun
Nýlega var nýtt og fullkomið
stórgripasláturhús tekið í notkun
hjá KEA. Byggð var tengibygging
milli sláturhúss og Kjötiðnarstöðvar
og gerðar miklar endurbætur á
stórgripahúsinu. Heildarkostnaður
við þennan fyrsta áfanga er um 60
milljónir ki'óna en ráðgert er að
fara í enn frekari framkvæmdir á
lóðinni á næstu 2-3 árum, rífa gömul
hús, gera upp önnur og byggja ný.
Að sögn Helga er stefnt að því að
færa sauðfjárslátranina í stórgripa-
sláturhúsið og byggja upp svokallað
þriggja lína sláturhús. „Það þýðir
jafnframt að við munum slátra
færri gripum á dag og treystum þá
á að lengja sláturtíðina, sem aftur
kallar á færra starfsfólk.“
Slátrað yfír lengri tíma
Helgi sagðist sjá fyrir sér að hefð-
bundin sláturtíð heyrði brátt sög-
unni til og í staðinn yrði slátrað yfir
lengri tíma, frá miðjum ágúst og
fram í lok október að staðaldri en í
minna mæli alveg til jóla. „Dilkakjöt
er að verða ósamkeppnisfært á
markaði og það hefur engin fram-
leiðniaukning átt sér stað síðustu ár,
hvorki hjá bóndanum né sláturhús-
unum og það er óásættanlegt."
AMERISKU UmAKREMIN
ÞAIIVIRKA!
ÁRANGURIIMN SÉST Á ÖRFÁUM DÖGUM!
• Amerísku undrakremin frá INSTITUTE-FOR-SKIN-
THERAPY græða, jafna, slétta, mýkja, næra, stinna,
hindra hrukkumyndun, minnka svitaholur, deyfa brúna
aldursbletti, varðveita raka, verja fyrir utanaðkomandi
áhrifum og veita húðinni heilbrigðan og ferskan blæ.
• Ótrúlegt en satt - árangur af notkun snyrtivara frá INSTI-
TUTE-FOR-SKIN-THERAPY er sýnilegur á örfáum
dögum, enda kremin framleidd í Hollywood, Kaliforníu
þar sem fólk hefur hvorki tíma til né áhuga á að bíða eftir
árangri, vill og verður að sjá hann STRAX!
• Snyrtivörur fyrir allar húðgerðir, ilmefnalausar, náttúrulegar, ofnæmisprófaðar, með og án
ávaxtasýru.
• Dagkrem, næturkrem, augnkrem, einstakt C-vítamín húðkrem, hreinsigel, bólumeðferð
fyrir unglingana og magnaðir andlitsmaskar, sem VIRKA!
Fást aðeins á völdum snyrtistofum í Kaliforníu og nú á
íslandi hjá:
Snyrtistofunni Maju, Bankastræti 14, R, s. 551-7762,
Snyrtistofunni Díu, Bergþórugötu 5, R, s. 551-8030,
Snyrtistofunni LaRosa, Garðatorgi 7, Garðabæ, s. 565-9120,
Snyrtistofunni Dönu, Hafnargötu 41, Keflavík, s. 421-3617 og
KOSMETU ehf, Síðumúla 17, R, s. 588-3630.
Sendum vandaðan, litprentaðan, íslenskan
upplýsingabækling ásamt verðlista ef óskað er!
Síðumúla 17 • 108 R • Sími: 588-3630 • Fax: 588-3731
Opið frá ki. 17:00-19:00 daglega.