Morgunblaðið - 23.09.1998, Síða 14

Morgunblaðið - 23.09.1998, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson ÞINGMENN, verktakar og aðrir gestir skoðuðu brúna yfír Gígjukvísl. V erklokafagnaður við Gígjukvísl Hnappavöllum - Lokið var við smíði nýrrar brúar yfir Gígju- kvísl á Skeiðarársandi og frá- gangi varnargarða fyrri hluta september. Þar með telst upp- bygging samgöngumannvirkja á Skeiðarársandi, sem skemmdust í hlaupinu stóra 5. nóvember 1996, að fullu lokið. Af því tilefni bauð Vegagerðin til verk- lokafagnaðar þann 17. septem- ber. Byrjað var á að skoða brúna á Gígjukvísl en þar mættist hópur fólks frá Vegagerðinni úr Reykjavík, Vík, Höfn og Reyðar- firði. Einnig mættu nokkrir af starfsmönnum þeirra verktaka sem að framkvæmdum hafa kom- ið. Þar voru einnig flestir þing- menn Austurlands og samgöngu- ráðherrann Halldór Blöndal. Síðan var haldið í Hótel Skaftafell, Freysnesi, þar sem menn þágu veitingar. Þar fluttu ávörp Helgi Hallgrímsson, vega- málastjóri, Einar Þorvðarðarson, umdæmisstjóri á Austurlandi, sem fór yfir stærðir og gerð mannvirkja, Halldór Blöndal, ráðherra, Jón Kristjánsson, Hjör- leifur Guttormsson, Egill Jóns- son, Arnbjörg Sveinsdóttir al- þingismenn, Jón Pálsson frá Ár- mannsfelli fyrir hönd verktaka. Kynnir var Hreinn Haraldsson. I máli ræðumanna kom fram mikil ánægja með mannvirkin, hversu fljótt og vel framkvæmdir gengu og mikið þakklæti til allra sem að verkum hafa komið á einn eða annan hátt. Góð nýt- ing heyja í Reyk- hólasveit Miðhúsum - Tíðarfar var þurrt og frekar kalt í sumar. Grasspretta var mjög góð og þurrkar miklir þannig að nýting heyja er með því besta. Allmikil umferð var í sumar. Berja- sprettan mikil en berin fremur smá vegan þuiTkanna í vor og sumar. Hótel Bjarkalundi var lokað um miðjan mánuðinn en umferð hefur verið allmikil. Þjónusta í Bjarka- lundi var til fyrirmyndar en hjónin Þorkell og Anna Aðalsteinsdóttir sáu um reksturinn. Farið er að síga á seinni hlutann með veginn yfir Gilsfjörð en hann er ótrúlega mikil samgöngubót. Ekki kæmi bréfritara á óvart að allir vildu Lilju kveðið hafa. Þörungaverksmiðjan hefur gengið vel í sumar og alltaf verið að brydda upp á einhverjum nýjungum. Ný sveitarstjórn tók við í vor og eru hjónin Jóna Valgerður Krist- jánsdóttir oddviti og bóndi hennar Guðmundur Ingólfsdóttir sveitar- stjóri. Nú eru smalamennskur og réttir í fullum gangi. Hins vegar er nú slátr- að allt árið í kring svo að réttir eru svipur hjá sjón frá því sem áður var. Dúntekja var yfirleitt í góðu með- allagi en vel viðraði á æðarvarpið í vor. Hins vegar bar dálítið á tófu og mink í vor en margir telja að þessi dýr komi frá friðlandinu á Vest- fjörðum. Morgunblaðið/Bemhard Jóhannesson Fólk og fé í Flj ót stungur étt Borgarfirði - Fyrstu leit á Amar- vatnsheiði lýkur með Fljóts- tungurétt í Hvítársíðu. Kalt var á leitarmönnum og var bæði snjó- koma og þoka. Smölun gekk vel og komu bændur með milli fimm og sex þúsund fjár af fjalli. Fjall- kóngur var Guðmundur Kristins- son á Grímsstöðum. Margt fólk var í réttunum þótt kalt væri. Fljótstungurétt er hlaðin úr hraungrjóti og er skammt frá veginum. Farið er að réttinni rétt við afleggjarann að Víðgelmi. Hlíðarendakirkja í Fljótshlíð 100 ára á þessu ári Hélt sína síðustu messu á af- mælishátíð Morgunblaðið/Steinunn Kolbeinsdóttir SÉRA Sváfnir Sveinbjarnarson hélt sína síðustu guðsþjónustu í Hh'ðar- endakirkju í sumar, en um leið var haldið upp á 100 ára afmæli kirkj- unnar, sem nú hefur verið gerð upp að utan. SÉRA Sváfnir Sveinbjarnarson prófastur, sem nú hefur látið af störfum sem prestur í Breiðabóls- staðarprestakalli, hélt sína síðustu guðsþjónustu í Illíðarendakirkju í Fljótshlíð hinn 30. ágúst sl., en þá var jafnframt haldið upp á hund- rað ára afmæli kirkjunnar. Hlíðar- endakirkja var byggð sumarið 1898 i kjölfar þess að ákveðið hafði verið að sameina Teigs- og Eyvindarmúlasókn í eina sókn og var kirkjan vígð 13. nóvember fyr- ir tæpum hundrað árum. Séra Sváfnir lét af störfum um síðustu mánaðamót fyrir aldurs sakir, en hann tók við embætti af föður sínum, séra Sveinbirni Högnasyni, árið 1963, sem þá hafði verið prestur á Breiðabólsstað frá árinu 1927. Þeir feðgar voru því prestar í sókninni í samtals sjötíu og eitt ár. Séra Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup í Skálholti, þjónaði einnig við afmælisguðsþjónustuna í Hli'ðarendakirkju ásamt séra Sváfni og voru flestir sóknarprest- ar Rangárvallaprófastsdæmis enn- fremur viðstaddir. Eftir guðsþjón- ustuna bauð sóknarnefndin til kaffisamsætis í félagsheimilinu Goðalandi þar sem kirkjukór Fljótshlíðar söng undir stjórn Mar- grétar Runólfsson í Fljótsdal og haldnar voru ræður. Að sögn séra Sváfnis eru upp- haflegar teikningar að Hlíðar- endakirkju ekki til og því ekki vit- að með vissu hver teiknaðj hana. Hins vegar var Sigurður Ólafsson frá Eyrarbakka yfirsmiður við byggingu hennar. Sváfnir segir að þegar Hlíðarendi var gerður að kirkjustað árið 1898 hafi ekki ver- ið kirkja þar í 96 ár, en eins og fyrr segir var kirkjan byggð í kjöl- far ákvörðunar árið 1886 um að sameina Teigs- og Eyvindarmúla- sókn og voru þá lagðar niður kirkjur í Teigi og í Eyvindarmúla. Fyrsti presturinn sem þjónaði í Hlíðarendakirkju var séra Eggert Pálsson. Nú hefur séra Önundur Björnsson tekið við sókninni af séra Sváfni. Kirkjan gerð upp að utan Að sögn séra Sváfnis hefur sókn- arnefnd Hlíðarendakirkju staðið fyrir gagngerðum endurbótum eða öllu heldur endurbyggingu kirkj- unnar að utan undanfarin þrjú ár, nánast frá grunni og upp í turn. Og lauk síðasta áfanganum í sum- ar. Kirkjan er því nú, að sögn Sváfnis, í ágætu ástandi. I ágústmánuði fyrir kirkjuaf- mælið var líka unnið við að fegra umhverfi kirkjunnar og segir Sváfnir að hjónin Svava Helgadótt- ir frá Hlíðarenda og Ingvar Þórð- arson hafi af tilefni afmælisins gef- ið nýtt sáluhlið að kirkjugarðinum til minningar um Kristínu dóttur þeirra sem lést fyrir nokkrum ár- um. Þá gáfu börn þeirra Dóra og Helgi kirkjunni ljósprentaða Guð- brandsbiblíu í tilefni af afmælinu. '

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.