Morgunblaðið - 23.09.1998, Page 18
18 MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Vinstriflokkurinn vill
langtímasamstarf
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
„VIÐ viljum langtímasamning við
stjórnina um samstarf," sagði Gudr-
un Schyman, formaður Vinstri-
flokksins, á blaðamannafundi í
Stokkhólmi í gær. Hún talar ekki
lengur um kröfur á hendur stjórn-
inni, eins og skilja mátti á henni fyr-
ir kosningar, en annars var hún fá-
orð um hvað hún ætlaðist fyrir.
Flokkarnir, sem illa urðu úti, eru nú
sem óðast að setja á stofn nefndir til
að ræða kosningarnar. Þegar farið
er yfir niðurstöðumar í ýmsum
landshlutum kemur meðal annars í
ljós að Jafnaðarmannaflokkurinn,
sem hefur haft um 60 prósenta fylgi
í Norður-Svíþjóð hefur nú aðeins um
47 prósenta fylgi þar. Lítil kosninga-
þátttaka vekur áhyggjur og skekur
sjálfsvitund Svía um jafnrétti, því
ljóst er að það eru helst þeir sem
verst eru settir, sem ekki sjá tilgang
í að kjósa.
Mjúkmál Gudrun Schyman
„Ég veit ekki hvort við getum
gert samning með stimplum og inn-
sigli, eða hvort stjómin getur yfir-
leitt gefið nokkra tryggingu fyrir
langtímasamstarfi, en við þurfum á
einhvern hátt að vera viss um að svo
verði,“ segir Gudmn Schyman. Orð
hennar era tilvísun til þess að eftir
kosningarnar 1994 studdist minni-
hlutastjórn jafnaðarmanna við
Vinstriflokkinn um hríð þar til tekið
var upp samstarf við Miðflokkinn.
Schyman vill reyna að útiloka að
stjórnin noti Vinstriflokkinn aðeins
sem tímabundna varaskeifu þar til
annað betra finnist.
Schyman var í kosningabarátt-
unni hörð á nokkram stefnumálum
eins og styttri vinnuviku, en var í
gær öllu mýkri í máli og ekki tilbúin
að tilgreina hvaða mál flokkurinn
setti á oddinn. „Við semjum ekki í
augsýn fjölmiðla," sagði hún og und-
irstrikaði að fyrst ætlaði hún að
ræða við Göran Persson forsætis-
ráðherra, formann Jafnaðarmanna-
flokksins. Ekki er ákveðið hvenær
það verður.
En jafnaðarmenn þurfa að hafa
fleiri með en Vinstriflokkinn, því
með stuðningi þeirra hafa þeir að-
eins 174 af 349 þingsætum og þá er
Umhverfisflokkurinn líklegasti sam-
starfsflokkurinn. Þar sem fleiri era í
vinnu hafa skatttekjur aukist, svo
ríkissjóður hefur úr meira að moða.
Þegar kemur að fjárlagagerðinni á
næstunni virðast flokkarnir þrír
ósammála um hámark rikisútgjalda.
Vinstriflokkurinn vill nýta svig-
rúmið til að hækka ríkisútgjöldin, en
Umhverfisflokkurinn ekki, heldur
leggja alla áherslu á að nýta tekjuaf-
gang til að greiða niður skuldir rík-
isins, eins og jafnaðarmenn hafa
haft í huga. „Það verður ekkert af
samstarfi á þessum forsendum,"
sagði Birger Schlaug, talsmaður
Umhverfisflokksins, þegar hug-
myndir Vinstriflokksins um aukin
ríkisútgjöld vora bornar undir hann.
En þótt jafnaðarmenn haldi í orði
við að hækka ekki ríkisútgjöldin og
greiða af skuldum hefur þeir á borði
bundið sig til aukinna útgjalda með
örlátum kosningaloforðum.
Jafnaðarmenn vanmátu
andstæðinginn
En hvernig samstarf stjórnarinn-
ar verður, um hvað og við hverja er
enn of snemmt að segja um. Svíar
eru enn að spá í niðurstöðurnar. Eitt
af því sem vekur athygli er fylgis-
hrun jafnaðarmanna í Norður-Sví-
þjóð, sem hingað til hefur verið eitt
sterkasta vígi þeirra. Þrettán pró-
senta fylgistap þeirra segir nú aðra
sögu.
Á þeim slóðum álíta bændur til
dæmis að jafnaðarmenn hafi vélað
þá til inngöngu í Evrópusambandið
og kvarta sáran yfir yfirgengilegu
skrifræði í samsldptum við ESB.
Þannig hefur ríkisútvarpið fylgst
með baráttu bóndakonu við ESB-
kerfið. Konan fyllti út skýrslu, heila
bók, með nákvæmum upplýsingum
um kúanytina og fleira, til að eiga
kost á dreifbýlisstyrk ESB upp á
tvær milljónir íslenskra króna, en
umsókninni var hafnað. Liturinn á
möppunni sem skýrslan var í var
blár en ekki grænn, eins og fyrir-
mæli ESB hljóða upp á. Konan fékk
undanþágu hjá sænskum yfirvöld-
um, en var ekki í vafa um að það
stafaði af athygli fjölmiðla. Nú á eft-
ir að koma í ljós hvort ESB verður
jafnliðlegt. Sögur af þessu tagi
ganga fjöllunum hærra þarna norð-
ur frá.
Almennt er einnig bent á að Jafn-
aðarmannaflokkurinn hafi misreikn-
að sig á hver væri hinn eiginlegi
andstæðingur flokksins. Öll barátta
flokksins hafi verið miðuð við að
berja á Hægriflokknum, en í raun
hafi andstæðingurinn verið Vinstri-
flokkurinn, sem höfðaði til þeirra er
hafa orðið fyrir þeim niðurskurði
bótakerfisins, sem stjórn jafnaðar-
manna hefur gripið til í baráttunni
við efnahagsvandann. Kosningabar-
átta flokksins var því barátta við
vindmyllur, ekki við hinn eiginlega
höfuðandstæðing, Vinstriflokkinn,
sem þar með hafði frjálsar hendur
til að herja á fyrrverandi kjósendur
jafnaðarmanna.
Lftil kosningaþátttaka áfall
„Á kosningadag era allir jafnrétt-
háir og hafa jafnmikið að segja,“ er
fullyrðing sem oft heyrist í sænskri
þjóðfélagsumræðu. Kosningaþátt-
taka er einn af hornsteinum í
sænskri jafnaðarhugmyndafræði.
Kosningaþátttaka í Svíþjóð hefur
löngum verið með því hæsta í öllum
heiminum, legið um yfir eða rétt
undir 90 prósentum. Nú náði þátt-
takan aðeins 80 prósentum og hefur
ekki verið minni. Þar sem mikil
kosningaþátttaka hefur í Svíþjóð
verið álitin dæmi um sterkt lýðræði
og almennan áhuga á þjóðfélagsmál-
um vekur lítil þátttaka nú áhyggjur
um að þetta sé að breytast.
Það hefur líka komið í Ijós í könn-
unum á kjördag að minnkandi kosn-
ingaþátttaka dreifist ekki jafnt á
alla þjóðfélagshópa. Það era þeir at-
vinnulausu og illa stæðu sem hirða
ekki um að kjósa. I Rosengárden,
úthverfi Málmeyjar, einu versta fá-
tækrahverfi í Svíþjóð, var kosninga-
þátttaka aðeins um 43 prósent. Þeg-
ar fréttamaður spurði íbúa þar
hvort þeir hefðu kosið, neituðu
margir því og ypptu margir öxlum
og sögðust ekki skilja hvað stjórn-
málamennirnir segðu.
Fellibylurinn Georges á Karíbahafí
yfir Haiti og síðan yfir Kúbu og suðaustanverð Bandaríkin.
Stefnir
á Haiti
og Kúbu
San Juan. Reuters.
FELLBYLURINN Georges
stefndi í gær á þéttbýl svæði á
Haiti og Dómíníska lýðveldinu og
hafði þá farið yfir Puerto Rico.
Þar olli fárveðrið dauða íjögurra
manna að minnsta kosti og mörg
hús eyðilögðust.
Vindhraðinn var stundum
meiri en 185 km á klukkustund
og óttast var, að hann gæti orðið
mjög skæður á Hispanjólu, eyj-
unni, sem Haiti og Dómíníska lýð-
veldið skipta með sér. I suðaust-
anverðum Bandaríkjunum er
einnig mikill viðbúnaður en þang-
að mun Georges líklega koma eft-
ir þrjá daga.
Mikill og djúpur hvinur heyrð-
ist í San Juan, höfuðborg Puerto
Rico, þegar miðja fellibylsins fór
þar framhjá í um 40 km fjarlægð
og ieitaði fólk skjóls í kjöllurum
húsa eða sérstökum skýlum.
Búist er við, nokkuð dragi úr
vindhraðanum í Georges þegar
hann fer yfir Hispanjólu en hann
mun líklega aukast aftur áður en
hann fer yfir Kúbu á morgun,
fimmtudag, eins og útlit er fyrir.
Bondevik
aftur til
starfa
Ósló. Reuters.
KJELL Magne Bondevik, for-
sætisráðherra Noregs, snýr aft-
ur til vinnu úr rúmlega þriggja
vikna veikindaleyfi á morgun,
að sögn talsmanns hans. Segir
hann að Bondevik líði betur og
að hann búist við þvi að læknar
telji hann færan um að snúa aft-
ur til starfa. I gær visaði forseti
norska þingsins, Kirsti Kolle
Grondahl, frá kröfu Carl I.
Hagen, formanns Framfara-
flokksins, um að Bondevik yrði
fyrirskipað að gera grein fyrir
sjúkdómi sínum. Hins vegar
gæti forsætisráðherrann ekki
vænst þess að sér yrði sýnd
nein linkind.
Bondevik tók sér veikindafrí
um síðustu mánaðamót vegna
þunglyndiseinkenna og hefur
framlengt leyfið tvisvar. Gron-
dahl sagðist ekki sjá neina þörf
á því að hann gerði þingheimi
grein fyrir veikindum sínum,
frekar en aðrir. Hins vegar er
ljóst að hann mun þegar hefjast
handa við fjárlagagerðina, sem
er líklega stærsta mál haustsins.
Afmæli
BRAUTARHOLTI SIMI 5800 800