Morgunblaðið - 23.09.1998, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1998 23
LISTIR
Blaða- og bókaútgáfa Æskunnar sameinaðar f eitt fyrirtæki, Æskuna ehf.
Nýtt útlit og
breytt efnisval
Æskunnar
Morgunblaðið/Ásdís
OLAFUR Loftsson framkvæmdastjóri, Karl Helgason, ritstjóri
Æskunnar, og Árni Árnason útgáfustjóri.
BLAÐA- og bókaútgáfa Æsk-
unnar hafa nú verið sameinað-
ar í eitt fyrirtæki, Æskuna ehf.
Barnablaðið Æskan hefur
fengið nýtt útlit og áherslum í
efnisvali verið breytt en nýver-
ið leit dagsins ljós fyrsta tölu-
blað 100. árgangs Æskunnar.
Unglingablaðið Smellur er nú
að slíta barnsskónum en það
hefur komið út í eitt ár.
Nýtt fólk hefur bæst í hóp
starfsmanna Æskunnar og ný-
lega var starfsemin flutt úr
Templarahöllinni við Eiríks-
götu í nýtt húsnæði Stórstúku
Islands við Stangarhyl. Öll
vinnsla blaðanna fram að
prentun fer þar nú fram undir
einu þaki og gerir það vinnslu-
ferlið mun auðveldara _og
markvissara, að sögn Ólafs
Loftssonar, framkvæmda-
stjóra Æskunnar.
„Við fáum til liðs við okkur
fólk sem er þekkt fyrir að
hafa staðið að uppbyggilegu
starfi með börnum eða miðlað
þörfu efni til barna og ung-
menna. Okkur er mikið í mun
að blaðið hafi trúverðugleika í
augum foreldra og það sé val-
kostur við allt annað sem er í
gangi. Við leggjum mikla
áherslu á að blaðið sé fræðandi
og hafi uppeldislegt gildi en sé
jafnframt skemmtilegt. Við
viljum auðvitað áfram stuðla
að hollri afþreyingu og heil-
brigðum lífsháttum, stuðla að
alhliða lífsleikni barna og ung-
menna með öflugri og íjörmik-
illi útgáfu sem tekur mið af
þörfum íslenskra barna,“ segir
Árni Árnason, útgáfustjóri
Æskunnar. Lesendur taka eft-
ir sem áður sinn þátt í að móta
blaðið, með því að senda inn
bréf og annað efni og taka
þátt í samkeppnum um greina-
skrif, sagnagerð og fleira.
Einnig verða kynnt verk
höfunda nýrra barna- og ung-
lingabóka.
Fólk með ólíka þekkingu
og hæfileika
Meðal þeirra sem eiga grein-
ar í nýútkominni Æsku eru þau
Ari Trausti Guðmundsson, sem
skrifar um loftsteina, Adda
Steina Björnsdóttir, sem segir
frá börnum í Malasíu, og Gísli
Þorsteinsson, sem fjallar um
nýsköpun og tækni. Þá segir
Jónína Vala Kristinsdóttir frá
skemmtilegum þrautum og
leikjum og Helgi Grímsson sér
um skátaþátt. „Þarna er sam-
ankomið fólk með ólíka þekk-
ingu og hæfileika og þannig
teljum við að við náum til fleiri
bama og heimila," segir hann
ennfremur.
Hvað bókaútgáfu Æskunnar
varðar er fyrst um sinn ætlunin
að einbeita sér að útgáfu
barna- og unglingabóka, ekki
síst fyrir allra yngstu lesend-
urna. „Við lítum á það sem
skyldu okkar að sinna byrjend-
unum, ungu lesendunum, sér-
staklega vel,“ segir Árni.
Reyðar-
íjarðarskóli
BÆKUR
Heimildarit
SKÓLASAGA REYÐARFJARÐAR
eftir Guðmund Magnússon. Reyðar-
fjörður 1998. 126 bls.
ÁRIÐ 1897 hófst samfellt skóla-
hald á Búðareyri við Reyðarfjörð.
Saga Reyðarfjarðarskóla spannar
því heila öld. Af því tilefni skoraði
skóla- og menningarmálanefnd
staðarins í ágúst 1996
á hreppsnefnd „að
hrinda af stað
rannsóknum og ritun
skólasögu Reyðar-
fjarðar, sem gæti í
framtíðinni orðið hluti
af stærra verki, sögu
Reyðarfjarðar". Rösk-
lega hefur verið við
brugðist því að rúmum
mánuði síðar var búið
að ráða Guðmund
Magnússon til að taka
þetta verk að sér og í
apríl 1998 ritar hann
formála að fullbúinni
skólasögu.
Eg hygg að vand-
fundinn hafi verið
hæfari maður til að rita þessa sögu.
Sjálfur er Guðmundur innfæddur
Reyðfirðingur, gekk þar í barna-
skóla og þekkti þvi skólann um sinn
sem nemandi. Eftir að hann lauk
kennaraprófi var fyrsta kennslu-
starf hans að vera skólastjóri á
Reyðarfirði í eitt ár. Löngu síðar
eftir farsælt kennara- og skóla-
stjórastarf í Reykjavík var hann
svo fræðslustjóri Austurlandsum-
dæmis í um tvo áratugi. Hann var
því vissulega öllum hnútum kunn-
ugur og ber bókin þess glögg
merki.
Að loknum stuttum aðfarakafla
hefst sjálf skólasagan. Lengi fram-
an af var við mikla erfiðleika að
etja. Þröngur var fjárhagur sveit-
arfélagsins, skilningur fremur tak-
markaður, skólinn á hrakhólum um
húsnæði og skortur á öllu sem með
þurfti. Reyndi því mikið á þolin-
mæði og ósérplægni kennarans,
sem lengi var einn. En smátt og
smátt fór að greiðast úr, og er sú
framfarasaga næsta fróðleg. Nú
virðist mér skólinn búa við allgóðar
ytri aðstæður og þar fer auðsæilega
fram gott og fjölbreytilegt uppeldis-
og fræðslustarf. Mér sýnist af þess-
ari frásögn að það hafi verið gæfa
Reyðarfjarðarskóla hversu ágætum
skólamönnum og mannvinum hann
hefur jafnan haft á að skipa. Skóla-
stjórar hafa ekki verið margir, því
flestir hafa enst lengi: Sæmundur
Sæmundsson 1919-1948, Sigfús
Jóelsson 1949-1962, en hann hafði
raunar kennt frá
áramótum 1934, Helgi
Seljan 1962-1971,
Kristinn Einarsson
1971-1987 og síðan hef-
ur Þóroddur Helgason
stýrt þessum skóla.
Skólasögu eins og
önnur sagnfræðirit er
auðvitað hægt að skrifa
með ýmsum hætti. Þó
að staðreyndir þurfi að
vera á sínum stað
hljóta áherslur alltaf að
mótast af höfundinum.
Guðmundur Magnús-
son er skólamaður og
uppeldisfrömuður í
fremstu röð. Viðhorf
hans einkennast af því
að skólinn eigi að stuðla að alhliða
þroska og vera mannbætandi stofn-
un, en ekki eingöngu fræðslustofn-
un. Þessi viðhorf ganga sem rauður
þráður í gegnum frásögnina og gera
hana eftirminnilega, aðlaðandi og
gagnlega.
Ekki er þetta bók sem lætur mik-
ið yfir sér. Sjálfur sögutextinn er
ekki nema um 85 bls. og þar í er
talsvert af myndum. Sagan er sögð
á látlausan hátt, án alls málski'úðs.
Höfundur heldur sér við staðreynd-
ir, en leggur engu að síður sitt eigið
mat á. Val hans á brotum úr skóla-
setningar- og skólaslitaræðum sýnir
vel hvað hann telur mikilvægast.
Að lokinni skólasögunni rekja
nokkrir gamlir nemendur minning-
ar sínar fi'á skólaárunum. Þá kemur
skrá yfir skólastjórn og starfslið svo
og kennaratal o.fl. Loks er nafna-
skrá. Mikill fjöldi mynda prýðir
þetta snotra og látlausa en vel
samda rit.
Sigurjón Björnsson
Guðmundur
Magnússon
PHILIPS
Há-gæðí
á lágu verði
PHILIPS
28" siónvarp
Philips 28" gæöa
sjónvarpstæki
á ótrúlegu verði.
• Nicam Stereo
• Blackline myndlampi
• Einföld og þægileg
fjarstýring
• íslenskur leiðarvísir
Gerðu hörðustu kröfur til
heimilistækja.
Fjárfestu í Philips!
PHIUPS _ _ .
myndbandstæki a
19.900
Tveggja hausa myndbandstæki frá
Philips á sérlega hagstæðu verði.
Einfalt í notkun og áreiðanlegt.
íslenskur leiðarvísir.
PHILIPS
Heimilistæki hafa veríð fulltrúar Philips á
Islandi í 30 árog það er takmark okkar að
Philips gæðavörvmar sóu hvergi á lægra
verði en hjá okkur.
0
Heimilistæki hf
SÆTÚN8 SÍMI 569 1500
http.//www.ht.is
Við ábyrgjumst góða þjónustu, gæði og verð sem stenst allan samanburð.