Morgunblaðið - 26.09.1998, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 26.09.1998, Blaðsíða 39
38 LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998 39 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. RÍKISSTYRKIR í SJÁVARÚTVEGI MISMUNANDI viðhorf ríkja í Evrópu til sjávarútvegs- mála kom skýrt fram í umræðum á þingi Evrópuráðs- ins í Strassborg í fyrradag. Þar var samþykkt tillaga portú- galsks þingmanns um að ekki mætti skera niður kvóta nema á móti kæmu félagslegir styrkir til sjómanna og eftir atvikum bætur til útgerðarmanna. Breytingartillaga Tómasar Inga Olrich alþingismanns var hins vegar felld naumlega. Tómas Ingi Olrich benti réttilega á í umræðunum að nið- urgreiðslur og styrkir væru vísasti vegurinn til að drepa blómlegan sjávarútveg. Þetta sjónarmið hefur hins vegar mætt litlum skilningi á vestanverðu meginlandi Evrópu. Þar er sjávarútvegurinn gjarnan í sömu skúffu og landbún- aðurinn; atvinnugrein, sem er niðurgreidd og ríkisstyrkt fremur til að varðveita ákveðna lífshætti en til að efla at- vinnulífið. Sú er t.d. ein meginástæðan fyrir því að íslend- ingar eiga bágt með að sætta sig við sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Annað dæmi um þennan skoðanamun íslendinga og meg- inlandsbúa mátti sjá fyrr í vikunni, þegar fundur Far- manna- og fiskimannasambandsins lagði til niðurskurð rækjukvótans vegna slæms ástands stofnsins - án þess að krefjast bóta fyrir. I ríkjum ESB reka samtök sjómanna yf- irleitt upp ramakvein þegar kvóti er minnkaður og fara ým- ist fram á að kvótinn verði hækkaður aftur eða þeim borg- aðar bætur og styrkir. Sá skilningur, sem íslenzkir sjómenn hafa öðlazt á að skynsamleg veiði úr stofnunum tryggir af- komu þeirra til lengri tíma, er víðsfjarri starfssystkinum þeirra víða í ríkjum meginlandsins. Ýmislegt bendir hins vegar til, að þessi ríkisstyrkja- stefna sé á undanhaldi. I fjrsta lagi fer aðhald í ríkisfjár- málum vaxandi í ríkjum Evrópu, ekki sízt vegna þeirra skil- yrða, sem sett eru fyrir aðild að Efnahags- og myntbanda- lagi Evrópu. í öðru lagi er sennilegt að vegna aðildar Aust- ur-Evrópuríkja að Evrópusambandinu neyðist núverandi ríki sambandsins til að draga úr styrkjum til landbúnaðar, vegna þess að eitt verður yfir alla að ganga í þeim efnum og alltof dýrt yrði að framkvæma núverandi landbúnaðar- stefnu ESB í nýju aðildarríkjunum. Líklegt má telja að þetta hafi einnig áhrif á ríkisstyrki til sjávarútvegs. Loks hafa íslendingar eignazt nýja bandamenn í þessari umræðu, þótt sumum kunni að þykja þeir koma úr óvæntri átt. Oflug umhverfisverndarsamtök hafa nú hafið baráttu gegn ríkisstyrkjum í sjávarútvegi og halda því fram, með réttu, að slík stefna leiði alltaf á endanum til of mikillar af- kastagetu flota og fiskvinnsluhúsa og þar af leiðandi til of- veiði. Krafa þeirra, sem vilja taka upp umhverfismerkingar á fiski, er til dæmis að vottað sé að merktar afurðir séu ekki framleiddar með ríkisstyrk, en þar stendur íslenzkur sjáv- arútvegur vel að vígi. Athyglisvert er að Halldór Asgrímsson utanríkisráðherra skyldi í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gærkvöldi vitna til þessara röksemda umhverfisverndar- samtaka. Tillaga ráðherrans, um að ríki Heimsviðskipta- stofnunarinnar semji sín á milli um afnám ríkisstyrkja í sjávarútvegi, er einkar þarft innlegg í umræður um sjávar- útveg og verndun auðlinda hafsins á alþjóðlegum vettvangi. BALDUR JÓNS LEIFS FRUMFLUTTUR FYRIRHUGAÐUR frumflutningur á dans- og tónverki Jóns Leifs á menningarborgarárinu 2000 sem sagt var frá í Morgunblaðinu í gær er mikið fagnaðarefni. Til stend- ur að setja verkið á svið með stórri hljómsveit, kór, ein- söngvurum, dönsurum og leikurum í öllum norrænu borg- unum þremur sem bera titilinn menningarborg Evrópu árið 2000, ■ verkið yrði frumflutt hér í Reykjavík og síðan í Helsinki og Björgvin. Stjórnandi yrði Finninn Leif Seger- stam og leikstjóri Kjartan Ragnarsson. Hér er um gríðarmikið verkefni að ræða eins og fram kom í viðtali í blaðinu í gær við Þórunni Sigurðardóttur stjórnanda menningarársverkefnisins hér á landi. Jafn- framt er ljóst að hér myndi verða um að ræða mikilvægan viðburð í tónlistarsögu Islendinga en Baldr hefur aldrei verið sviðsettur áður en hann var hljóðritaður af Sinfóníu- hljómsveit æskunnar undir stjórn Pauls Zukofsky. Framlag Jóns Leifs til íslenskrar tónlistar var ómetanlegt. Sennilega á gildi hans þó eftir að koma æ betur í ljós eftir því sem tónlist hans verður meira kynnt en nú er unnið að því á markvissan hátt með hljóðritunum á höfundarverki hans. ✓ Kynningarfundur Islenskrar erfðagreiningar á Selfossi Safnaðarheimili Hafnarfiarðarkirkju fullbyggt Markmiðið að búa til upp- lýsingar um hópa en ekki einstaklinga Beinið athyglinni að þeim tækifærum sem kunna að skapast við gerð miðlæga gagna- grunnsins og þið munuð sannfærast um að kostirnir eru mun fleiri en gallarnir. Þetta var megininntakið í málflutningi forsvars- 7 manna Islenskrar erfðagreiningar á opnum borgarafundi með fyrirtækinu sem Heil- brigðisstofnun Selfoss boðaði til síðastliðið fímmtudagskvöld á Hótel Selfossi. Hildur Einarsdóttir fylgdist með umræðum og fyr- irspurnum frá áheyrendum. KÁRI Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfðagreiningar, hóf mál sitt á því að rekja hugmyndir fyrirtækisins að baki miðlæga gagnagrunninum og það notagildi sem má hafa af honum. Sagði hann að síðastliðin tíu til fimmtán ár hefði verið mikið gert til að skera niður kostnað í heilbrigðis- þjónustu ekki aðeins á íslandi heldur víða um heim. Þetta hefði hægt á þróun í heilbrigðisþjónustu almennt og þróun í læknisfræði. Einnig hefði þetta haft þau áhrif að ójafnræði í aðgengi að heilbrigðisþjónustu hefði aukist. Breytir ekki erfðum Með tilkomu miðlæga gagna- grunnsins myndi skilvirkni heilbrigð- isþjónustunnar hins vegar aukast og hægt væri að leggja meiri áherslu á fyrirbyggjandi læknisfræði. „Erfðum sínum breytir maður ekki svo auð- veldlega, en við getum breytt um- hverfisþáttunum. Það hlýtur að ger- ast á grundvelli þekkingar á arfgeng- um þáttum vegna þess að allir arf- gengir sjúkdómar í okkar samfélagi, og ég geri mér grein fyrir að þetta er stór staðhæfing, eru annaðhvort al- gjörlega arfgengir eða hafa sterka arfgenga þætti,“ sagði Kári. „Annað stórkostlegt gagn sem má hafa af svona gagnagrunni er að auka skilning á því hvem- ig kostnaður verður til í heilbrigðis- þjónustunni. Heilbrigðisþjónustan er ekki bara eitt kerfi heldur samsafn margra flókinna kerfa sem vinna saman. Það hefur verið tilhneiging til að gleyma þessari samþættingu. Tökum dæmi frá Bandaríkjunum af því þegar reynt var að spara með því að auka eingreiðslu sjúklinga á lyfj- um sem síðan leiddi til þess að sjúk- lingamir tóku ekki lyfin. Þetta varð til þess að kostnaður af notkun slysa- varðstofa og legudeilda hefur aukist til muna. Slík aðgerð jók því kostnað- inn stórkostlega í stað þess að minnka hann. Gagnagrunnurinn býð- ur upp á möguleika á því að vinna að líkansmíð sem auðveldar yfirsýn yfir það hvemig kostnaðurinn verður til á hverjum tíma.“ Kári sagði að einn akkurinn í við- bót af gagnagrunninum væri sá að búa til skilning á því hvernig flókn- ustu erfðasjúkdómar verða til og auka þannig skilning á þáttum í arf- gengi heilsu og sjúkdóma. „Þar er ég ekki að tala um möguleikann á því að einangra erfðavísa heldur hvemig hægt er að skoða erfðaþætti í sam- spili við hina ýmsu umhverfisþætti. Island er kjörið til þess.“ Atvinnusköpun og bætt menntun „Atvinnusköpun og bætt menntun em einnig veigamiklar röksemdir með miðlæga gagnagrunninum," sagði Kári. „Mér hefur reiknast til að gerð gagnagmnnsins myndi skapa í kringum fjögur hundrað störf, þar af væra tvö hundrað inni á hinum ýmsu heilbrigðisstofnunum og tvö hundrað við það íyrirtæki sem setti gagna- grunninn saman. Þessar stöður yrðu mannaðar háskólamenntuðu fólki. Gagnagrannurinn yrði líka til þess að yfirvöld myndu ftnna sig knúin til að fjárfesta betur og meira í skóla- kerfinu auk þess sem gagnagrunnur- inn mun leiða til aukinnar samvinnu milli íslenskra og erlendra vísinda- manna. Hann mun einnig gefa Is- lendingum tækifæri til að starfa er- lendis og laða vel menntað fólk til Is- lands.“ En hver er áhættan við að setja svona miðlægan gagnagrann saman? „Eg tel áhættuna harla litla," sagði Kári. „Og þau vandamál sem nú þegar era til stað- ar hvað varðar varðveislu persónuupplýsinga í heil- brigðiskerfinu verða áfram til staðar þótt gagnagrannsfrumvarpið hverfi af þinginu." Aðgengishindrun mikilvægasta vörnin Kári ræddi um mikilvægi persónu- verndar en sagði að þótt friðhelgi einkalífsins væri mikilvæg væri hún ekki ósamrýmanleg öðram rétti á köflum. Því næst vék Kári að dulkóð- un persónuupplýsinga og hvemig hún gæti hindrað aðgengi að gagna- granninum. Sagði hann að hugmynd- in væri sú að dulkóða upplýsingar inni á þeim stofnunum þar sem þær yrðu til með flóknum kóða og dulkóða síðan aftur eftir að upplýs- ingarnar væra komnar inn á gagna- granninn. Það yrði einn aðili sem þjónustaði dulkóðunarkerfið þar og annar aðili þjónustaði það hjá ís- lenskri erfðagreiningu. Lykillinn að kóðanum sem væri notaður á stofn- ununum yrði hjá öðram aðila, til dæmis tölvunefnd, en lykillinn að Myndi skapa um fjögur- hundruð störf Morgunblaðið/Sigurður Fannar KÁRI Stefánsson kynnti Sunnlendingum þau tækifæri sem hann segir kunna að skapast við gerð miðlægs gagnagrunns. MÁLFLUTNINGUR talsmanna íslenskrar erfðagreiningar féll í frjóan jarðveg meðal fundarmanna á Selfossi í fyrrakvöld. kóðanum sem væri hjá fslenskri erfðagreiningu gæti verið til dæmis hjá heilbrigðisráðuneytinu eða öðr- um þriðja aðila. Þannig væri dulkóð- að á tveimur stöðum og enginn einn aðili hefði lykil að þeim kóða sem í þetta færi. „En mikilvægustu vömina tel ég hggja í aðgengishindranum vegna þess að dulkóðun má brjóta þó það sé alls ekki eins auðvelt og menn láta í veðri vaka ef vel er að staðið. Það má setja svona gagnagrunn saman á þann hátt að aldrei sé hægt að ná saman upplýsingum um minni hóp manna en tíu manns. En þá er ekki lengur hægt að nota þennan mögu- leika til að tengja upplýsingarnar einstaklingum." Kári fjallaði um aðgengi annarra vísindamanna að miðlæga gagna- granninum og hvernig aðgengi upp- lýsinga í heilbrigðiskerfinu væri nú háttað. „Staðreyndin er sú að sér- leyfið mun ekki minnka aðgengi vís- indamanna að upplýsingum á heil- brigðissviðinu heldur bæta aðgengi þeirra stórkostlega. Því búið verður að hagræða upplýsingunum þannig að það er miklu greiðari aðgangur að þeim. íslenskir vísindamenn hefðu því fullt og fijálst aðgengi að gagna- granninum með einni undantekn- ingu. Það er talað i frumvarpinu um aðgengisnefnd sem væri samansett af einum fulltrúa fi-á Háskólanum, einum frá heilbrigðismálaráðuneyti og einum frá sérleyfishafa. Hlutverk þeirrar nefndar var hugsað eingöngu til að koma í veg fyrir að eðlilegur viðskiptaaðili þessa gagnagranns gæti svindlað sér inn í gegnum ein- hvern lepp í íslensku samfélagi. Þeg- ar um er að ræða mjög miklar fjár- hæðir eins og þær sem menn greiða íyrir áskrift að svona gagnagrunni, þá fara menn, jafnvel meðal stærstu fyrirtækja, að leita sér aðferða til þess að svindla sér inn.“ Upplýsingar notaðar í áratugi Eignarhald á upplýsingum í heil- brigðiskerfinu varð Kára að umtals- efni. Hann velti því fyrir sér hvernig eignai-hald á upplýsingum úr heil- brigðiskerfinu samræmdust hefðum í íslensku samfélagi og siðferðisvitund okkar. Sagði hann að upplýsingar í heilbrigðiskerfinu hefðu verið notað- ar í áratugi til rannsókna og til að búa til heilbrigðisskýrslur og einnig til að búa til hin ýmsu gagnasöfn. Væra þessar upplýsingar nú undir kennitölu viðkomandi og gætt væri lágmarks leyndar. Sagði hann að það væri réttur okkar að nýta læknis- fræðina eins og hún væri í dag. Sá réttur kæmi með þeirri siðferðilegu skyldu að láta í té upplýsingar. „Eins og forfeður okkar leyfðu nýtingu sinna upplýsinga þá er það eins okk- ar skylda. Ef þeir hefðu ekki látið upplýsingamar í té væri ekki til nein læknisfræði." Samkeppni gæti leitt til undirboða Kostnaður og áhætta við sérleyfi á gagnagranninum kom einnig til um- ræðu. Sagði Kári að því væri haldið fram að einkaleyfi heyrðu fortíðinni til. En þegar litið væri á hugverks- iðnaðinn eins og til dæmis hugbúnað- argerð og líftækniiðnað þá ætti þessi iðnaður að öllu leyti tilvera sína að þakka því að búin vora til tæki sem gerðu það mögulegt að verja hug- verkin. Síðan greindi hann þær ástæður sem lægju að baki því að krafist væri sérieyfis. Sagði hann stofnkostnað afar háan og mikla óvissu í markaðssetningu. „Ég get sagt ykkur að ef á að setja saman gagnagrann sem á að ná til þeirra aðila sem nauðsynlegt er til þess að geta markaðssett granninn þá verður að búa til mjög góðan gagnagrann og það mun ekki kosta minna en tólf til tuttugu milljarða ís- lenskra króna. Annað er að stofnkostnaður þess sem fyrstur er væri miklu meiri en fyrir þá sem á eftir kæmu. Það yrði erfitt að byrja á því að þurfa að keppa við þá aðila. Samkeppnin gæti líka orðið til þess að íyrirtækin færa að undirbjóða hvert annað sem myndi leiða til þess að heildarverð- mætið sem kæmi inn í íslenskt sam- félag mundi minnka töluvert. Mark- aðssetning verður mjög erfið. Þú nærð ekki eyrum þeirra sem ráða ef þú veist ekki hvert verðið verður endanlega," sagði Kári. Hákon Guðbjartsson, yfirmaður tölvudeildar, fjallaði um persónu- vernd og ýmis tæknileg atriði. Hann útskýrði meðal annars hvemig tölvu- tækar dulkóðunaraðferðir era notað- ar og í hverju dulkóðunin felst. Þá fjallaði hann um hvernig tryggja mætti persónuvemd með takmörkun aðgangsheimilda. Það væri meðal annars hægt með því að þeir sem nota gagnagranninn hefðu einungis aðgang að þeim gögnum sem þeim væri leyft að hafa aðgang að. Hægt að takmarka fyrirspurnir Þá ræddi hann hvemig hægt væri að takmarka íyrirspurnir í gagna- granninn og hvernig hægt er að tak- marka niðurstöður upplýsinganna og aðskilnað gagna. Sagði hann að þess- um þætti mætti líkja við þá vinnslu sem mögulegt væri að framkvæma í hraðbanka. Þó viðskiptavinurinn væri beintengdur í tölvukerfi bankanna þá gæti hann ekki fengið gefna upp stöðu allra viðskiptavina bankans. Takmörkun fyrirspuma þýddi það hins vegar að notandi gæti ekki leitað upp einstaklinga eftir flókinni sjúkra- sögu þar sem aðeins yrði mögulegt að skilgreina hópa og einstaklinga sem verða ekki fleiri en tíu. „Engin nafntengd gögn verða held- ur leyfð í gagnagranninum, þar af leiðandi verður ekki mögulegt að út- búa fyrirspurnir með því að bera saman dulkóðun og nafntengd gögn. Þannig kemur dulkóðun og aðskilnað- ur gagna algjörlega í veg fyrir að mögulegt sé að misnota miðlæga gagnagranninn á stórtækan hátt eins og að keyra út lista yfir sjúklinga í ákveðnum áhættuhópi," sagði Hákon. Hvað heyrir undir persónuupplýsingar? Nokkur lögfræðileg og þjóðréttar- leg álitamál vora umræðuefni Jó- hanns Hjartarsonar lögfræðings. Jó- hann ræddi meðal annars um það hvenær mætti skrá persónuupplýs- ingar og hvað væra persónuupplýs- ingar en það síðastnefnda kvað hann geta breyst frá einum tíma til annars. I frumvarpinu væra persónuupplýs- ingar skilgreindar sem upplýsingar er varða einkamálefni, þar með taldar heilsufarsupplýsingar. Sagði hann að stærsta málið væri hvemig persónu- upplýsingar væra skilgreindar en í gagnagrannsframvarpinu stæði að einstaklingur skyldi ekki teljast per- sónugreinanlegur ef veija þyrfti veralegum tíma og mannafla til þess að persónugreining hans gæti átt sér stað. Sama gilti ef persónugreining gæti einungis átt sér stað með notkun greiningarlykils sem sá aðili er hefði upplýsingar undir höndum hefði ekki aðgang að. Jóhann vitnaði í tilskipun Evrópusambandsins og sagði að þeg- ar meta ætti hvort einstaklingur væri nafngreinanlegur skyldi litið til þeirra leiða sem líklegt mætti telja að skráarhaldari sjálfur eða einhver annar aðili gæti notað til að bera kennsl á viðkomandi. Á eftir framsöguerindum voru frjálsar umræður. Fundargestir lýstu yfir ánægju með starfsemi íslenskrar erfðagreiningar og fáar gagnrýnis- raddir heyrðust varðandi miðlæga gagnagranninn. Spurt var meðal annars um hversu langt aftur í tímann upplýsingar í grunninum ættu að ná. Kári varð fyrir svöram og sagði að þær myndu líklega ná tíu til fimmtán ár aftur í tímann. Þá var spurt að því hvort frjálst væri eftir tilkomu gagnagrannsins að fletta í aðgerðar- skrám ef verið væri að kanna faralds- fræðilega sjúkdóma eða hvort rann- sakandinn þyrfti að fara í gegnum eftirlit? Kári sagði að einkaleyfið hefði engin áhrif á slíka rannsókn nema hvað upplýsingamar yrðu betri eftir að búið væri að setja upp hina nýju upplýsingatækni. Þá var spurt hver myndi fjármagna gerð gagnagrunnsins? Sagði Kári að notaðar yrðu ýmsar leiðir. Hægt væri að fara með fyrirtækið á hlutabréfa- markað sem væri að mörgu leyti ágæt aðferð. Þá væri hægt að selja áskrift að gagnagranninum. Einnig væri mögulegt að leita til aðila sem sæju um að fjármagna verkefni af þessari stærð. „Þessir hlutir munu þurfa að ganga hratt fyrir sig þegar og ef til þeirra kemur,“ sagði Kári. Engin nafntengd gögn leyfð Hvetur til íjölbreytni í safnaðarstarfi Morgunblaðið/Kristinn ÞRÍR prestar starfa við Hafnarfjarðarkirkju, organisti, tveir kirkjuþjónar og aðstoðarfólk. Frá vinstri: Natalía Chow, sr. Þórhallur Heimisson, sr. Gunnþór Ingason og sr. Þórhildur Ólafs. FORSALUR Strandbergs er nefndur Ljósbrot en úr honum er gengið í aðrar vistarverur Strandbergs. Nú þegar lokið er framkvæmdum við safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju sem sambyggt er nýbyggingu Tónlistarskólans verða Hásalir blessaðir við sérstaka athöfn annað kvöld. Jóhannes Tómasson ræddi af þessu tilefni við presta og organista Hafnar- fjarðarkirkju sem ljúka öll upp einum munni um að aðstaða sé góð til gróskumikils safnaðarstarfs í Strandbergi. ÁSALIR í safnaðarheimili Hafnarfj arðarkirkju, Strandbergi, verða blessaðir við kvöldmessu í kirlqunni annað kvöld og er nýja safnaðarheim- ilið þar með allt komið í formlega notkun. Sóknarnefnd og bæjaryfir- völd sameinuðust um byggingu á sömu lóð sem þjónað gæti bæði kirkj- unni og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Reist var 1.100 fermetra húsnæði fyr- ir safnaðarheimilið og 1.400 fermetrar fyrir Tónlistarskólann. Byggingamar era samtengdar og fær Tónlistarskól- inn tiltekin leiguafnot af Hásölum og hvor aðili um sig getur fengið inni hjá hinum þegar svo ber undir í sérstök- um tilvikum. „Þessi samnýting og samvinna er báðum aðilum í hag, við fáum inni hjá Tónlistarskólanum þegar á þarf að halda og þeir hjá okkur. Trú og tón- list fara enda vel saman, trúin og list- in eiga sér sömu uppsprettu í skap- andi elsku Guðs og við njótum oft að- stoðar nemenda sem kennara Tónlist- arskólans við ýmsar kirkjuathafnir og fundi hjá okkur,“ segir séra Gunnþór Ingason sóknarprestur. Tveir aðrir prestar starfa við Hafnarfjarðar- kirkju, séra Þórhildur Ólafs og séra Þórhallur Heimisson, og greindu þau ásamt organistanum Natalíu Chow fi-á helstu þáttum í safnaðarstarfinu og hvernig nýja safnaðarheimilið hef- ur skapað aðstöðu til fjölbreyttara starfs. Óhlk hús en listræn einkenni sameiginleg Arkitektarnir Sigríður Magnúsdótt- ir og Hans Olav Andersen teiknuðu Strandberg en tillaga þeirra var valin úr 30 öðram frá yfir 100 arkitektum eftir samkeppni. Þá var efnt til sam- keppni meðal fermingarbama um nafn og átti Harpa Sæmundsdóttir vinningstillöguna. „Okkur finnst hafa tekist mjög vel til með bygginguna. Safnaðarheimilið er frábragðið kirkj- unni en þó era ýmis listræn einkenni sameiginleg," segja þau og benda á að bogadregnum útlínum Strandbergs svipi til rómverskra hálfboga kirkj- unnar að innan. Safnaðarheimilið tengist syðri hlið kirkjunnar með gler- gangi sem víkkar út og þaðan er síðan gengið í hinar mörgu vistarverar safn- aðarheimilisins. „Skipslaga byggingin sem vísar stefni sínu til sjávar minnir á að út á lífsdjúpin skal lagt í Drottins nafni og fengur þangað sóttur og það er hann sem stýra vill ferð kirkju og safnaðar til ríkis síns,“ segir séra Gunnþór. I safnaðarheimilinu era áðurnefndir Hásalir sem nota má sem einn sal eða skipta í tvennt, annar salur sem nefn- ist Vonarhöfn, kennslustofan Oddi, skrifstofur prestanna, kapellan Stafn, fundarherbergi og forsalurinn Ljós- brot þar sem aðstaða er fyrir kaffi- veitingar. Hægt er að nota hvern sal eða fundarherbergi óháð öðram vist- arveram og því geta mismunandi stefnumót verið í gangi á sama tíma án þess að nokkur truflun sé að. Séra Þórhildur segir safnaðarstarf- ið hafa vaxið að umfangi með þeirri stórbættu aðstöðu sem Strandberg býður uppá og að sóknamefndin hafi sýnt góðan skilning á því að reka fjöl- breytt kirkjulegt starf en ekki ein- göngu leggja fé í mannvirki. Sjá má af upptalningu í fréttabréfi Hafnarfjarðarkirkju að þar er boðið uppá fjölþætt starf: Tvær guðsþjón- ustur hvem sunnudag, íhugunar- stundir á þriðjudagskvöldum, kyrrð- arstundir í hádegi á miðvikudögum, margs konar fræðslufundir og fyrir- lestrar, málfundakvöld fyrir 16 til 20 ára, hjónakvöld fýrir foreldra ferm- ingarbarna, bamakór er starfandi svo og kirkjukórinn sem nú er að æfa Messías eftir Hándel en kórinn vantar einmitt nokkra viðbótarfélaga í verk- efnið. „Við ráðgerum að flytja Messías fyrsta sunnudag á aðventu og fáum liðsstyrk frá Karlakómum Þröstum og með okkur verður 18 manna kammersveit undir stjóm Hlífar Sig- urjónsdóttur," sagði Natalía Chow organisti. Hún segir kórinn síðan syngja við allar athafnir í kirkjunni og halda sérstaka vortónleika og jólatón- leika. Hún kveðst mjög ánægð með SÉÐ úr tengiganginum yfir að Hafnarfjarðarkirkju. Rögnvaldur Ólafsson teiknaði kirlquna en Sigríður Magnúsdóttir og Hans Olav Andersen safnaðarhcimilið. alla aðstöðu til tónlistarflutnings í söl- um Strandbergs. Allt að 300 manns á einu kvöldi Fyrir utan áðumefnt safnaðarstarf má nefna sunnudagaskóla, sem boðið er uppá í Hvaleyrar- og Setbergsskól- um auk kirkjunnar, og annað bama- og æskulýðsstarf en þar njóta prest- amir liðveislu ýmissa aðstoðarmanna. „Við getum nefnt sem dæmi að hingað geta komið jafnvel allt að 300 manns á einu kvöldi þau kvöld þegar mest er um að vera og dreifist þessi fjöldi í hinar ýmsu vistarverar saftiaðarheim- ilisins," segir séra Þórhallur og lýsir því nánar svo: „Hér getur ríkt nánast ringulreið um ldukkan átta þegar fólk er að koma á hina ýmsu fundi en fimm mínútum síðar er eins og hér sé ekki nokkur maður - fundir og æfingar era hafnar og engin truflun berst á milli salarkynna,“ sem hann segir að sé meðal annars merki um hvers vel hús- ið nýtist til ólíkra stefnumóta hverju sinni. Kostnaður við bygginguna nemur kringum 210 milljónum króna og hef- ur aðeins verið tekið lán á lokasprett- inum að upphæð um 36 miUjónir króna. Eins og fyrr segir verða Hásalir teknir formlega í notkun við athöfn sem hefst klukkan 20.30 á sunnudags- kvöld. Þá mun biskup íslands, herra Karl Sigurbjömsson, blessa hásali og prédika í messunni sem á undan fer en prestar kirkjunnar þjóna fyrir alt- ari. Þá flytur dr. Sigurbjöm Einars- son biskup helgunarbæn í Hásölum og forystumenn safnaðarins lesa ritning- arorð. Að lokinni helgistundinni býður Kvenfélagið til kaffidrykkju.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.