Morgunblaðið - 26.09.1998, Side 64

Morgunblaðið - 26.09.1998, Side 64
64 LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Ljóska l/t'Léu Lz\A/eJ, ta/y l/f&fiáan) ■f&L'eitthvttf) éa er\ oktcjr. að bor&a/íú/>ua^t fy&aað i “fcristin. \ bo&a J 7 n'-mr m-n)Y3f\\v'%mTín £g uíssi ab manma. f>in. ser um teislur en }g !//ssi ekb/aBpaM þi/Ui „ -----gw ■pg^Je/óiþab L/teg- - Ja.-Jcannski gerir hanru] ; /bao-er> barw. hefar / \ aieins ei/i/t i/iBskiph)/' Ferdinand Smáfólk /HOW 5HOOLP I \ ( CHEER FOR VOUR TEAM) XTODA1/, CHARLE5?/ 5H0ULPI YELL,"60,REDSÍ'' OR "GO,BLUE5!" OR * 60,6REEN5/"ORU)HAT? r pon't knou), RERUN ..YELL ANVTHIM6 ^ YOU U)ANT..___^ O 1 í G0' 'N (t-shirts\) . cr -f*L m c I œ (/) ijm jL 8 LÁ W Hvernig á ég að hvetja lið- Ætti ég að hrópa: „Áfram Ég veit ekki, Rabbi... Áfram stutt- ið þitt í dag, Kalli? rauðir!“ eða „áfram bláir! eða hrópaðu hvað sem þú ermabolir! „áfram grænir! eða hvað?“ vilt. BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Frumkvæði og sköpun - skyldunám í skólum Frá Benóný Ægissyni: Þegar amma mín var lítil stúlka í Fljótunum um síðustu aldamót var hesturinn fljótasta farartækið sem hún þekkti. Alexandir mikli, grískur unglingur sem lagði undir sig meiri- hluta þess heims er menn þá þekktu, var uppi u.þ.b. 23. öldum á undan ömmu minni. Fljótasta farar- tækið sem hann þekkti var hestur. Þegar amma mín lést á áttunda ára- tug þessarar aldar höfðu menn gengið á tunglinu. Þessi litla dæmisaga sýnir okkur hve ör þróunin á öldinni hefur verið; 10.000 ára siðmenning en stað- reyndin er að flestar tækniframfar- ir mannkyns komu fram á tuttug- ustu öldinni. En hefur þessi öra þróun breytt hugsunarhætti okkar? Erum við fær um að takast á við til- veru okkar með vitsmunalegum hætti? Heimspeki okkar er frá Fomgrikkjum, samtímamönnum of- annefnds Alexanders, trúarbrögðin eiga 2000 ára afmæli bráðlega (nú ku páfínn loksins hafa viðurkennt að það gæti eitthvað verið til í þró- unarkenningunni), stjórnunarað- ferðir margra fyrirtækja minna á helst á lénsskipulagið sem vor mannúðlega samtið telur liðið undir lok og skólakerfíð er arfur 19. aldar og má að mörgu leyti rekja aftur til Upplýsingarinnar sem hófst á 16. öld. Nei, hugsunarháttur okkar hef- ur ekki breyst að neinu marki á síð- ustu öldum eða árþúsundum, þrátt fyrir að umhverfi okkar og tilvera verði sífellt flóknari. Það sem hefur gerst er að raunvísindin hafa borið hugvísindin ofurliði; við höfum ekki borið gæfu til að feta í fótspor vís- indamanna fyrri alda sem lögðu áherslu á jafnræði hugar og handar. Framtíðarspámenn sjötta og sjö- umda áratugarins miðuðu gjarnan við árið 2000 í spádómum sínum. Flestir gengu út frá því sem vísu að þá hefði mannkynið komið sér upp nýlendum í geimnum og að til yrðu tölvur og vélmenni sem hefðu meiri greind en maðurinn. Allir vita að þetta er fjarri sanni, nýlendur utan okkar sólkerfis eru ekki á teikni- borðinu nema fram komi nýjar óþekktar aðferðir til að ferðast langar vegalengdir og æðsti draum- ur vísindamanna nútímans er að gera tölvur sem hafa jafnmikla vits- muni og skordýr. Framtíðarspá- menn fyrri áratuga sáu hins vegar ekki fyrir þá miklu byltingu sem orðið hefur í samskiptum og upplýs- ingatækni nema e.t.v. samsæris- kenninga-mennirnir sem reiknuðu með að ríkisvaldið myndi nota þessa tækni til að kúga þegna sína. Fram- tíðarspádómar eru um margt líkir borgarskipulagi í Reykjavík 1 gegn- um tíðina: Þeir rætast sjaldan. Heimurinn skreppur saman, fjar- lægðir minnka, samgöngur verða greiðari, samskipti fljótvirkari. Samkeppnisaðilinn er ekki lengur hinum megin við götuna eða í næsta þorpi heldur hinum megin á hnett- inum. Við erum ekki lengur ein- angruð lítil þjóð lengst í norðri heldur í þjóðbraut og þurfum að búa okkur undir að keppa við þjóðir sem hafa eldri menningu, lengri hefð og aldalanga reynslu í viðskipt- um við aðrar þjóðir. Það sem meg- inmáli skiptir í samkeppnisþjóðfé- lagi næstu aldar er frumkvæði, framtíðarsýn, nýjungar, betri lausn- ir og aukin gæði. Við þurfum því að ala upp kynslóðir sem eru skapandi í starfi, sem kunna að virkja hugvit sitt til að skapa verðmæti. Við þurf- um að auka þeim færni til að takast á við óvissa framtíð. Þó fyrirsögn þessarar greinar feli í sér mótsagn- ir vísar hún okkur á þá leið sem við þurfum að fara. BENÓNÝ ÆGISSON, rithöfundur. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Barnarúm Rauðarárstíg 16, sími 561 0120. Leitin að réttu eigninni hefst hjá okkur www.mbl.is/fasteignir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.