Morgunblaðið - 26.09.1998, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 26.09.1998, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Kristinn ÞEIR André Bachmann og Kristján Sigurniundsson lofa landsmöiin- um ósvikinni gleði á nýja hljómdisknum Maður lifandi. SIGRÚN Hjálmtýsdóttir og Ómar Ragnarsson eru meðal flytjenda á diskinum. SALA á nýjum geisladiski ti! styrktar vangefnum hefst um helg- ina, en á honum koma sanian yfír 70 listamenn, sem allir hafa gefið vinnu sína vegna styrktarátaks, sem ber upp á 40 ára afmæli Styrktarfélags vangefinna. I kvöld, laugardagskvöld, kl. 22 verður síð- an haldinn dansleikur í Súlnasal Hótel Sögu þar sem flestallir lista- mennirnir kynna tónlistina á út- gáfutónleikum. Ágóðinn til sjúkra- og iðjuþjálfunar Titill disksins, sem hefur að geyma fjórtán í'slensk og erlend lög, er Maður lifandi og færir van- gefnum styrk, von og starf að sögn André Bachmanns tónlistarmanns, sem átti hugmyndina að útgáfunni. Agóðinn af sölu disksins fer til kaupa á tækjum til sjúkra- og iðjuþjálfunar fyrir vangefna vítt og breitt um Iandið. André segir að það sem standi á bak við styrk, von og starf sé styrkur til að efla van- gefna, von um betra líf þeirra og starf til að vangefnir geti verið til eins og aðrir í samfélaginu, þrátt fyrir fotlun sína. André segir að tími hafi verið til kominn að gefa málefnum vangefinna meiri gaum og fram að þessu hafi vonir hans ekki brugðist og vonar hann jafn- framt að landsmenn muni bregðast jafn vel við og þeir fjölmörgu tón- listarmenn sem lögðu málefninu lið. Hefur mætt góðum skilningi Hugmyndina að styrktarátakinu segist André hafa fengið er hann lá óvinnufær heima hjá sér eftir Tónlistarmenn leggj a van- gefnum lið bflslys í fyrra. Hann hefur starfað í sjálboðavinnu fyrir Styrktarfélag vangefinna og staðið fyrir jólaballi á Hótel Sögu síðastliðin tvö ár og segist hafa mætt góðum skilningi hjá þeim sem hann hafi leitað til vegna stuðnings við Styrktarfélag- ið, bæði vegna jólaballanna og disksins. Fljótlega eftir að André hugkvæmdist að ráðast í útgáfuna kynnti hann hugmyndina Styrkt- arfélaginu og í kjölfarið var stofn- uð framkvæmdanefnd. I henni áttu sæti André Bachmann, Árni Schev- ing tónlistarmaður, Þorgeir Ást- valdsson útvarpsmaður ásamt Hafliða Hjartarsyni formanni Styrktarfélags vangefinna og Krist- jáni Sigurmundssyni framkvæmda- stjóra þess. „Við tókum þá ákvörðun að semja við Þóri Baldursson tónlistar- mann um að útsetja lögin á diskin- um, annast hljómsveitarstjórn og stjórna upptökum," segir André. „Eftir að hann var kominn til sög- unnar fór hugmyndin að fá á sig raunveruleikablæ því hann fór að útsetja um leið og söngvararnir voru valdir af framkvæmdanefnd- inni. Skemmst er frá að segja að söngvaramir, sem alls em um 40, tóku með eindæmum vel í að leggja vangefnum lið.“ Meðal flytjenda eru Álftagerðisbræður, Stefán Hilmarsson, Hljómsveitin Casino og Páll Óskar, Móeiður Júníusdóttir, Ómar Ragnarsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir og KK. Björgunar- sveitir dreifa diskinum víða um land. Framhaldsskólanemar munu ennfremur ganga í hús á höfuð- borgarsvæðinu og selja diskinn. Markmiðið er að gefa diskinn út í 15-20 þúsund eintökum og fyrstu eintökin em þegar komin til lands- ins. „Lögin á diskinum eru heimilis- væn og útvarpsvæn og henta öllum aldurshópum, jafnt unglingum sem öfum og ömmum og öllum þar á milli.“ Brýnt að finna nýja tekjustofna Styrktarfélag vangefinna er líkn- arfélag sem rekið er á fjárlöguin og á aðild að Landssamtökunum þroskahjálp og Öryrkjabandalag- inu. Um 200 manns vinna hjá Styrktarfélaginu og segir Kristján Sigurmundsson framkvæmdastjóri að þjónustan sem veitt sé um 250 skjólstæðingum Styrktarfélagsins sé meiri en Styrktarfélagið fær greitt fyrir frá ríkinu. Því þurfi nokkurt sjálfsaflafé að koma til og á si'ðustu árum hafi fastir tekju- stofnar rýmað með vaxandi sam- keppni annarra félaga og stofnana. „Það er alltaf aukin samkeppni á þessum markaði, sérstaklega í sölu jólakorta og rekstri happdrætta, sem Styrktarfélagið hafði miklar tekjur af hér áður fyrr,“ segir Kristján. „Þegar tekjur af rótgrón- um tekjustofnum taka að minnka er mjög mikilvægt fyrir starfsemi okkar félags að fá gróskumikla hugmynd og framtakssama menn sem eru tilbúnir að leggja okkur lið. Með plötuútgáfunni nú er ekki verið að höfða eingöngu til fram- lags fólks heldur fær það eitthvað fyrir sinn snúð og það held ég að sé ti'manna tákn. Samtök sem okkar þurfa að vera í stöðugri leit að nýj- um fjáröflunarleiðum." Með þessum orðum á Kristján þó ekki við að Styrktarfélagið stökkvi á hvað sem er sem gæti orðið að gulli, því öll ævintýramennska á sviði Qáröflun- ar fyrir lfluiarfélög sé afar var- hugaverð. „Við erum að treysta á stuðning almennings og svona líknarfélög mega ekki við því að lenda í vafasömum hlutum því þá er orð- sporið fljótt að falla. Styrktarfélag- ið hefur starfað farsællega í 40 ár og aldrei lent í neinu misjöfnu við fjáröfiun. Það hefur ennfremur not- ið trausts almennings og okkur er mjög annt um að varðveita það traust.“ Fólk Doktor í stærðfræði •HÖSKULDUR Ari Hauksson varði doktorsritgerð sína í stærðfræði við Háskóla Kaliforníu í Santa Barbara (University of California at Santa Barbara) 4. september sl. Titill ritgerðarinnar er „The Basic Attractor of the Viscous Moore- Greitzer Equation“ sem gæti útlagst Grundvallar aðdragandinn fyrir Moore- Greitzer jöfnuna med seigju. Leiðbeinandi Höskuldar var Bjorn Birnir, prófessor vid stærðfræðideildina í Háskóla Kaliforníu í Santa Barbara. Moore-Greitzer jafnan lýsir flæði lofts í gegnum þotuhreyfla og í ritgerðinni er fyrst fjallað um langtímahegðun lausna á þeirri jöfnu. Þeim niðurstöðum er síðan beitt til þess að stjórna loftflæðinu á sem hagkvæmastan hátt. Höskuldur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1990. Vorið 1992 lauk hann sveinsprofi í trésmíði frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og vorið 1994 lauk hann B.S. prófi í bæði stærðfræði og eðlisfræði frá Háskóla Island. Höskuldur hóf doktorsnám sitt haustið 1994 og lauk því nú fjórum árum síðar. 1. október mun Höskuldur hefja störf hjá Olsen & Associates Ltd. í Zurich í Sviss. Þar mun hann stunda rannsóknir á hegðun alþjóðlegra gjaldeyrismarkaða og auk þess að stunda ráðgjöf fyrir marga af helstu bönkum í Evrópu. Foreldrar Höskuldar eru Haukur Björnsson og Kristín Jónsdóttir. Höskuldur á tvær systur, Agnesi Kristjónsdóttur og Herborgu Hauksdóttur, en sú síðarnefnda stundar nú doktorsnám við Háskóla Kaliforníu í Davis. Höskuldur er ógiftur og á engin böm. Tryggingafélög um FIB-tryggingar Kallar ekki á ráðstafanir 20 lækna vantar til starfa á landsbyggðinni Landlæknir í viðræðum við lækna á Norðurlöndum ÓLAFUR B. Thors, framkvæmdastjóri Sjóvár-Almennra, segir að athugun starfs- manna fyrirtækisins bendi ekld til þess að þeir þurfi af samkeppnisástæðum að gera sérstakar ráðstafanir vegna nýrra umsvifa FIB á tryggingamarkaðinum. „Skilmálar og verðlagning eru alltaf í ein- hvers konar endurskoðun hjá okkur og það er yfirlýst stefna félagsins að láta viðskipta- menn njóta þess ef afkoman er góð. Okkur sýnist hins vegar að þau iðgjöld sem langstærsti hluti viðskiptamanna okkar borgar, séu fyllilega samkeppnisfær við þessi iðgjöld og í mörgum tilfellum eru þau lægri,“ sagði Ólafur. „Auk þess eru skilmálar okkar yfirleitt hagstæðari neytendum en þeir skilmálar sem ég hef séð frá FIB. Sannleikurinn er sá að yfir 90% af þeim heimilum sem tryggja hjá okkur eru með af- sláttarkjör og menn verða að skoða heildar- pakkann. Hvað kostar þetta hjá okkur með þeim afsláttarkjörum sem Sjóvá-AImennar bjóða og hvað kostar þetta annars staðar? Það eru þau kjör sem á að bera saman við,“ sagði Ólafur og kvaðst telja að sá saman- burður sem FIB hefði gert væri ekki raun- hæfur að teknu tilliti til heildarafsláttarkjara og tryggingaverndar. „Vegna yfirlýsinga FIB manna vil ég segja að menn geta ugg- laust tekið hæsta verð hjá okkur borið það saman við eitthvert verð hjá þeim og fengið út að það sé lægra. En það er bara ekki verðið sem yfir 90% af okkar viðskiptavinum eru að borga.“ Þjónustuþátturinn Ólafur sagði að þegar gerður væri saman- burður á tvenns konar tryggingum þyrfti líka að taka inn í myndina að þjónustuþátt- urinn skipti miklu máli. Reynslan sýnir að ef það verður tjón í heimilis- eða húseigenda- tryggingum verða menn að geta treyst á góða þjónustu. „Félag eins og okkar býður viðskiptavinum aldrei annað en 24 tíma símavakt, hjálp við að útvega iðnaðarmenn og svo framvegis." Gunnar Felixson, framkvæmdastjóri Tryggingamiðstöðvarinnar, sagði að þar á bæ hefðu menn ekkli myndað sér ennþá skoðun á því hvort þeir ættu að bregðast sér- staklega við útspili FÍB. „Þetta verður til at- hugunar en það verða ekki teknar ákvarðan- ir á næstunni. Við höfum ekki haft tækifæri og tíma til að meta þetta. Þetta er eins og hver önnur samkeppni og það er ekkert um það að segja í sjálfu sér en mér sýnist ekki að þetta muni hafa mikil áhrif þar sem mér sýnist bótasvið, a.m.k. heimilistryggingar- innar, vera þrengra en bótasvið okkar trygg- ingar.“ ÓLAFUR Ólafsson landlæknir hefur ákveðið í samráði við heilbrigðisráðherra að fara til Noregs og Svíþjóðar og ræða við ís- lenska lækna sem þar eru við störf um hvort þeir séu tilbúnir til að koma heim og gegna lausum læknisstöðum á landsbyggðinni. Nú vantar 20 lækna til starfa á landsbyggðinni og segir Ólafur að staðan sé verri en hún hafi verið undanfarin ár. Ólafur sagði að mikið væri búið að reyna til að fá lækna til starfa í heilsugæslu á landsbyggðinni. Sú hugmynd hefði kviknað að fara sérstaka ferð til annarra Norðurlanda og ræða við íslenska lækna sem þar starfa um laus störf á Islandi. Heilbrigðisráðherra styddi þessa tilraun eindregið. Ólafur sagðist ætla að kynna læknunum starfsaðstöðu á íslandi og þær breytingar sem hefðu orðið í uppbyggingu heilsugæslunnar. Jafnframt myndi hann veita þeim upplýsingar um launakjör og fleira. Hann vildi einnig kynnast þeirra viðhorfum. Ólafur sagði að nú væru 20 læknisstöður á landsbyggðinni lausar, sem væri 17-18% af öllum stöðum í heilsugæslu á lands- byggðinni. Hann sagði að á fyrstu árum sín- um sem landlæknir fyrir aldarfjórðungi hefði mikill skortur verið á læknum, en með uPPbyggingu heilsugæslunnar hefði tekist að bæta ástandið. Nú væri ástandið aftur að versna. Los komst á lækna í kjaradeilunni 1996 Ólafur Oddsson, héraðslæknir á Norður- landi eystra, sagði að tvo lækna vantaði í sínu umdæmi, þ.e.a.s í N-Þingeyjarsýslu. Hann sagðist vonast eftir að búið væri að leysa þetta mál til bráðabirgða fram til áramóta, en framtíðarlausn væri ekki í sjón- máli þrátt fyrir að mikið væri búið að leita að slíkri lausn. Ólafur Oddsson sagði að í kjaradeilu ríkis- ins og heilsugæslulækna árið 1996 hefði komið nokkurt los á allmarga lækna á lands- byggðinni og nokkrir hefðu leitað eftir nýju starfi á höfuðborgarsvæðinu. Ekki hefði tek- ist að fá jafnmarga lækna til baka síðan. Hann sagði að talsvert væri búið að gera til að reyna að bæta starfsaðstæður lækna á landsbyggðinni. Áhugi væri á að sameina heilbrigðisstofnanir í meira mæli en þegar hefði verið gert, en með því móti yrðu lækn- ar hluti af stærri heild og vaktabyrði lækna minnkaði. \
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.