Morgunblaðið - 26.09.1998, Side 18
18 LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
RAGNAR Heiðar Sigtryggsson á Fremstagili hugar að marki á folaldi.
Stóðréttir í Skrapatungu
Blönduósi - Hrossaréttir voru
í Skrapatungurétt í utan-
verðum Laxárdal í A-Húna-
vatnssýslu um sl. helgi og var
margt um menn og hross.
Smölun gekk vel og tóku
margir aðkomumenn þátt í
smölun og réttarstörfum í
mildu síðsumarveðri.
Hrossasmölun og réttir eru í
hugum margra sambland al-
vöru og gleði. Haustið er nánd,
veturinn bíður handan við
hornið óræður sem fyrr. Eftir-
Margt um
manninn
og hestinn
væntingin er líka mikil. Hvem-
ig skyldi folaldið hennar Blesu
hafa dafnað í afréttinum í sum-
ar? Um hugann fer margt þeg-
ar stóðið rennur til réttar með
taktföstum, sefjandi skrefum
eftir að mesti móðurinn hefur
mnnið af mönnum og hestum.
Þegar til réttar er komið og
farið að „draga“ hrossin í dilka,
byrja átökin fyrir alvöru. Marg-
ur góðbóndinn kemur heim með
hófaför á bringu eða baki, húf-
ur og gleraugu skilja við eig-
endur sína og margur vasapel-
inn glatar notagildi sinu og
innihaldi á engri stundu. Einum
bónda í Langadal varð að orði
þegar tíu stæltar stóðmerar
pgjSg
STÓÐIÐ rennur með taktföstum skrefum út Laxárdal
á Ieið til réttar í Skrapatungu.
ættaðar úr sama dal þrýstu
honum með samstilltu átaki að
réttarveggnum með þeim af-
leiðingum að glerfleygur með
skosku kornvíni hrökk í sundur
og innihaldið lak niður í al-
menninginn: „Eg hef víst orðið
fyrir 1jóni.“
Morgunblaðið/Silli
NÝTT merki Borgar-
hólsskóla.
Nýtt_
merki
Borgar-
hólsskóla
Húsavík - Borgarhólsskóli á
Húsavík bauð til fagnaðar ný-
lega til að kynna þær bygg-
ingar sem nú er nýlokið við
skólann og úrslit samkeppni
sem efnt var til á sl. vori um
merki fyrir skólann.
Skólastjórinn, Halldór
Valdimarsson, sagði að fleiri
tillögur um merki hefðu borist
en búast hefði mátt við en aUs
bárust 70 tillögur frá 27 höf-
undum.
Dómnefnd skipuð valin-
kunnum mönnum hefði verið
vandi á höndum en hefði úr-
skurðað sigurvegarann Bald-
ur Kristjánsson frá Hólma-
vaði og voru honum veitt sig-
urlaunin.
Viðstöddum voru síðan
boðnar veitingar og sýndi
Halldór skólastjóri þeim skól-
ann. f honum eru alls 25
kennslustofur, góð vinnuað-
staða fyrir kennara auk sam-
komusalar. Aðeins væri ein
grein skólastarfsins ekki búin
að fá þá aðstöðu sem henni
væri ætluð en það væri verk-
menntunin. Gert væri ráð fyr-
ir að úr því yrði bætt á næsta
ári.
Þróunarverkefni í ísfírskum iðnaði
Hæfni fyrirtækja aukin
Ísafírði - Gengið hefur verið frá ráðningu Sig-
urðar Jónssonar, skipatæknifræðings og núver-
andi framkvæmdastjóra Skipasmíðastöðvarinn-
ar hf., á ísafirði á tæknideild 3X-Stáls ehf., á
ísafírði og mun hann hefja störf á hinum nýja
vinnustað um næstu mánaðamót.
Góð verkefnastaða hefur verið hjá 3X-Stál
ehf. frá því fyrirtækið var stofnað og að undan-
fömu hefur þeim fjölgað til muna. í kjölfar
stofnunar dótturíyrirtækis í Garðabæ,
Stálnausts ehf., hafa verkefnin enn aukist og
þá sérstaklega hvað varðar hönnunarvinnu.
Meðal verkefna fyrirtækisins í dag má nefna
smíði á fullkominni bolfisklínu fyrir togarann
Pál Pálsson ÍS, en sá búnaður verður settur í
skipið á næstu vikum. Að því verki koma ýmis
fyrirtæki á norðanverðum Vestfjörðum m.a.
Vélsmiðjan Mjölnir hf. í Bolungarvík og Póls
hf., Eiríkur og Einar Valur hf. og Skipasmíða-
stöðin hf. á Isafirði. Þá er undirbúningsvinna
við byggingu á nýrri rækjuverksmiðju í
Kanada vel á veg komin en það verkefni er eitt
það viðamesta sem 3X-Stál hf. hefur tekið að
sér til þessa.
Skipasmíðastöðin hf. og 3X-Stál ehf. hafa
undanfarin ár stundað umfangsmikla vöruþró-
unarvinnu, hvort á sínu sviði og hafa fyrirtækin
nú ákveðið að gera með sér samkomulag um
sérstakt þróunarverkefni sem miðar að því að
stórauka firamleiðni í þeim verkum sem þau eru
að vinna að, m.a. með aukinni notkun á tölvu-
studdri hönnun og framleiðslu. Tilgangur verk-
efnisins verður að auka hæfni fyrirtækjanna til
að taka að sér flóknari verkefni m.a. í tengslum
við fiskiskip, nýsmíði og breytingar. Markmiðið
er að byggja upp þekkingu og tækjabúnað til að
gera það Ideift að vinna samhliða ýmis verkefni
sem hingað til hefur þurft að vinna hvert á eftir
öðru. Með því ráðgera forsvarsmenn fyrirtækj-
anna að hægt sé að stytta verktíma að lágmarki
um 25% og lækka vinnukostnað um 20% að lág-
marki.
Það er sannfæring forsvarsmanna fyrirtækj-
anna að mikilvægt sé fyrir ísfirsk iðnfyrirtæki
að taka höndum saman um að innleiða nýjustu
þekkingu og tækni í hönnun og framleiðslu.
Þannig geti þau samnýtt krafta sína til að ná
samkeppnisforskoti, hvert á sínu sviði.
Endurbæt-
ur á „litlu
bryggj-
unni“
Stykkishólmi - Nú er verið að
byggja „litlu bryggjuna" í
Stykkishólmi upp í þriðja skipti
frá því hún var upphaflega
byggð, en hún er gömul stein-
bryggja. Hún hefur alltaf verið
með sama hallandi sniðinu enda
mikill munur á milli flóðs og
fjöru í Stykkishólmi.
Nú er verið að gjörbreyta
bryggjunni vegna breyttra
aðstæðna og krafna. Má segja
að verið sé að byggja nýja
bryggju, þar sem gamla bryggj-
an verður innan í þeirri nýju.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
MIKLAR hafnarframkvæmdir eru í Stykkishólmi. Verið er að endur-
byggja „gömlu bryggjuna" frá grunni, bæði að lengja hana, breikka
og hækka. Að framkvæmdum loknum mun öll aðstaða fyrir smærri
báta við löndun batna.
Þetta verður harðviðarbryggja
að mestu leyti auk þess er hún
hækkuð upp úr sjó, lengd og
breikkuð um helming. Bryggju-
kantar verða 115 m. Mesta
lengd bryggjunnar er 60 m og
breiddin 15 m.
Sem fyrr er bryggjan
aðallega hugsuð fyrir smærri
báta til löndunar. I tengslum
við endurbæturnar var farið
út í 1.500 fermetra landfyllingu
á milli „litlu“ og „stóru“
bryggju til að bæta athafna-
svæðið.
Framkvæmdin var boðin út í
tvennu lagi. Annars vegar land-
fylling og það verk var unnið af
Stefáni Björgvinssyni í Stykkis-
hólmi og hins vergar sjálf
bryggjusmíðin. Verktaki í þeim
áfanga er Guðlaugur Einarsson
frá Sauðárkróki. Reiknað er
með að verkinu Ijúki í lok októ-
ber og áætlaður kostnaður er
um 30 milljónir kr.