Morgunblaðið - 07.11.1998, Síða 1

Morgunblaðið - 07.11.1998, Síða 1
254. TBL. 86. ÁRG. LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS ð KARL Bretaprins ræðir við Petar Stoyanov, forseta Búlgaríu, í Sofíu. Kveðst ekki vilja að drottn- ingin víki London. Reuters. ENN ein deilan um bresku kon- ungsfjölskylduna blossaði upp í gær þegar Karl Bretaprins sá sig knúinn til að senda frá sér harðorða yfírlýsingu þar sem hann neitaði staðhæfíngum um að hann myndi kætast ef Elísa- bet drottning afsalaði sér krún- unni til að hann gæti orðið kon- ungur. Þessar fullyrðingar koma fram í heimildarmynd um prinsinn sem sjónvarpað verður í Bret- landi á sunnudag. „Þessar staðhæfingar eru ekki aðeins móðgun heldur einnig al- gjörlega rangar. Þær endm- spegla á engan hátt viðhorf mín,“ sagði prinsinn. Breski krónprinsinn var í Búlgaríu og kvaðst hafa hringt í móður sína til að fullvissa hana um að enginn fótur væri fyrir fullyrðingunni. „Eg er orðinn þreyttur á að þurfa að neita ósönnum fréttum um alls konar hugsanir sem mér eru gerðar upp.“ Tveir tilræðismenn bíða bana í spreng;juárás á útimarkað í Jerúsalem Israelsstjórn frestar stað- festinpu friðarsamninffs Jerúsalem, Washington. Reuters. ■' * ELDUR logar í braki bifreiðar sem notuð var í sprengjuárás á útimarkað í Jerúsalem í gær. Reuters STJORN Israels sleit í gær fundi sínum um hvort hún ætti að staðfesta samninginn um frekari brottflutning ísraelskra hersveita frá Vesturbakk- anum eftir að tveir Palestínumenn gerðu sprengjuárás á útimarkað í Jerúsalem. Tilræðismennirnir biðu báðir bana í sprengingunni og 21 særðist, þar af einn lífshættulega. Tsahi Hanegbi, dómsmálai'áðherra Israels, sagði í gærkvöldi að talið væri nánast öruggt að íslamska hreyftngin Jihad hefði staðið íyrir til- ræðinu. Tilræðismennirnir óku bíl hlöðnum sprengiefni á sölubás við inngang markaðarins í gærmorgun. Marg- menni var á markaðnum þegar sprengingin varð. „Ég sá rauðan bíl og í honum voru tveir menn,“ sagði 46 ára gyðingur, sem særðist lítil- lega. „Éftir nokkrar sekúndur sprakk bíllinn í loft upp og ég feykt- ist inn í einn af básunum.“ Arafat lofar baráttu gegn hermdarverkum Tilræðið varð til þess að Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Israels, sleit strax fundi í stjóminni þar sem rætt var um samning hans og Yass- ers Arafats, leiðtoga Palestínumanna, sem var undirritaður í Washington í síðasta mánuði. Talsmaður stjómarinnar sagði að hún myndi halda umræðunni um samninginn áfram „eftir að palestínsk yfirvöld fullvissa hana um að hafíð verði allsherjarstríð gegn hryðju- verkahreyfingunum". Hassan Asfour, samningamaður Palestínumanna, lýsti þeirri ákvörðun ísraelsku stjómarinnar að fresta um- ræðunni um samninginn sem „póli- tísku hermdarverki“. Hann sagði að með þessari ákvörðun hefði stjómin gengið í gildru öfgamanna úr röðum gyðinga og araba. „Netanyahu ætti að koma samningnum í framkvæmd í stað þess að vinna með þeim sem vilja ekki frið.“ Arafat fordæmdi tilræðið og sagði að Palestínumenn myndu standa við loforð sín um að skera upp herör gegn hermdarverkamönnum. Fyrir tilræðið benti flest tii þess að Netanyahu hefði tekist að tryggja að samningurinn fengi stuðning meiri- hluta ísraelsku ráðherranna. Sprengjuárásin setur hins vegar strik í reikninginn og er vatn á myllu ísra- elskra stjómmálamanna, sem leggj- ast gegn því að Israelar láti fleiri landsvæði af hendi og vilja að Net- anyahu rifti samningnum. „Ég get auðvitað ekki greitt a1> kvæði með samningnum eins og stað- an er nú. Ég ætla að bíða og sjá hvað Palestínumenn gera á næstunni," sagði Silvan Shalom vísindamálaráð- herra. Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, hvatti báðar þjóðirnar til að standa við samninginn. Hann lýsti tilræðinu sem „löðurmannlegum verknaði“ manna sem vildu leggja stein í götu samningamanna í friðarviðræðunum en kvaðst vonast til þess að skriður kæmist aftur á friðarumleitanimar. Gingrich segist ætla að láta af embætti Stjórn Chile mótmælir beiðni um framsai Pinochets Sendiherra Chile á Spáni kallaður heim NEWT Gingrich, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, tilkynnti seint í gærkvöldi að hann hygðist ekki sækjast eftir endurkjöri í embættið. Haft var eftir samstarfsmanni Gingrich að Uklegt væri að hann myndi einnig láta af þingmennsku þegar kjörtímabili hans lyki árið 2000, en hann hefði ekki enn tekið ákvörðun um það. Gingrieh tilkynnti ákvörðun sína skömmu eftir að Bob Livingston, formaður fjái-veitinga- nefndar fulltrúadeildarinnar, skýrði frá þvf að hami hefði ákveðið að bjóða sig fram í forseta- kjöri deildarinnar síðar í mánuðinum. Livingston, sem stendur hér við þinghúsið í Washington, lýsti Gingrich sem vini sínum og „sönnum byltingarmanni" og sagði að sú ákvörðun að rísa gegn honum væri sú erfið- asta sem hann hefði nokkurn tfma tekið. Hún hefði þó verið óhjákvæmileg vegna slæmrar útkomu repúblikana í kosningunum á þriðju- dag. Talsmaður Gingrich sagði að hann hefði tek- ið ákvörðun Livingstons nærri sér vegna „langrar og góðrar vináttu þeirra og mikillar virðingar hans íyrir Livingston formanni". Áður hafði Steve Largent, þingmaður frá Oklahoma, skýrt frá því að hann hygðist bjóða sig fram gegn Dick Armey, leiðtoga meirihluU ans í fulltrúadeildinni. Búist er við að fleiri gefi kost á sér í forystusveit repúblikana á næst- unni. Tveir þingmenn sögðust ætla að beita sér fyrir því að Henry Hyde, formaður dómsmála- nefndar fulltrúadeildarinnar, verði í framboði í forsetakjöri hennar. Madríd. Reuters. SPÆNSKA stjómin varð í gær við beiðni dóm- ara um að fara þess formlega á leit við bresk yf- irvöld að Augusto Pinochet, fyrrverandi einræð- isherra í Chile, yrði framseldur til Spánar til að hægt yrði að sækja hann til saka fyrir morð og pyntingar. Stjóm Chile mótmælti þessari ákvörðun og kallaði sendiherra sinn á Spáni heim en hafnaði kröfu hægrimanna um að hún sliti stjórnmálasambandi landanna. Talsmaður spænsku stjómarinnar sagði að hún hefði samþykkt að óska eftir framsali Pin- ochets að beiðni spænska dómarans Baltasars Garzons. Abel Matutes, utann'kisráðherra Spánar, sagði að ráðuneyti sitt væri að vinna að framsalsbeiðninni og kvaðst vonast til þess að hún yrði lögð fram ekki síðar en á þriðjudag. Bretar handtóku Pinochet 16. október að beiðni Garzons. Dómstóll í London úrskurðaði fyrr í mánuðinum að handtakan hefði verið ólög- mæt á þeirri forsendu að Pinochet nyti friðhelgi þar sem hann var þjóðhöfðingi þegar meintfr glæpir hans vora framdir. Urskurðinum var áfrýjað og dómarar í lávarðadeildinni, æðsta dómstigi Bretlands, tóku áfrýjunina fyrir fyrr í vikunni. Sendiherra beðinn um skýringar Matutes sagði að framsalsbeiðnin væri „við- kvæmt mál“ fyrir stjómina en hún vildi ekki taka fram fyrir hendur spænskra dómstóla. Stjómin hefrn- tekið mjög varfæmislega á mál- inu þar sem hún óttast að það skaði tengslin við Chile. Hægrimenn í Chile urðu ókvæða við ákvörðun spænsku stjórnarinnar. „Það er ómögulegt að halda stjórnmálatengslum við land sem neitar að viðurkenna lögsögu dómstóla í Chile,“ sagði Al- berto Cardemil, varaformaður Endurreisnar- flokksins. „Stjórn Chile verður annaðhvort að skjóta þessu máli til Alþjóðadómstólsins í Haag eða rjúfa stjómmálatengslin.“ Jose Miguel Insulza, utanríkisráðhema Chile, sagði að stjómin myndi ekki verða við þessari kröfu en hefði kallað sendiherrann í Madríd heim til að útskýra ákvörðun spænsku stjórnar- innar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.