Morgunblaðið - 07.11.1998, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998 19
Kirkjustarf
AKUREYRARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli á morgun kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14, sr. Kjartan
Jónsson, framkvæmdastjóri
Sambands íslenskra kristni-
boðsfélaga, predikar. Sr. Birgir
Snæbjörnsson þjónar fyrir alt-
ari. Samskot tekin til kristni-
boðsins. Eftir messuna verður
kaffisala til styrktar kristniboð-
inu í sal KFUM og K í Sunnu-
hlíð. Fundur æskulýðsfélagsins
kl. 17. Biblíulestur verður á
mánudagskvöld kl. 20.30 í um-
sjá sr. Guðmundar Guðmunds-
sonar. Sálmur 95 lesinn og
íhugaður með yfírskriftinni:
Játning trúar á Guði sem kon-
ungi. Mömmumorgunn í Safn-
aðarheimili á fimmtudag frá kl.
10 til 12. Kristín Unnsteinsdótt-
ir spjallar um bamabókmennt-
ir.
GLERÁRKIRKJA: Barnasam-
vera og guðsþjónuta kl. 11 á
morgun, sunnudag. Sameigin-
legt upphaf. Foreldrar hvattir ti
að mæta með börnunum. Æðru-
leysisguðsþjónusta kl. 20.30 á
sunnudagskvöld. Sr. Jónína
Elísabet Þorsteinsdóttir predik-
ar og þjónar ásamt sóknar-
presti. Bent verður á tengsl
milli biblíunnar og reynsluspora
AA-samtakanna. Tónlist annast
Snorri Guðvarðarson, Viðar
Garðarsson og Inga Eydal
ásamt Hirti Steinbergssyni org-
anista. Molasopi á eftir. Fundur
æskulýðsfélagsins verður kl. 20.
Kristniboðskaffi kl. 15 í sal
KFUM og K í Sunnuhlíð. Bibl-
íulestur og bænastund kl. 20 á
mánudagskvöld og náttsöngur
kl. 21. Kyrrðar- og tilbeiðslu-
stund kl. 18.10 á þriðjudag. Há-
degissamvera kl. 12 á miðviku-
dag, orgelleikur, altarissakra-
menti og fyrirbænir. Léttur há-
degisverður á vægu verði. Opið
hús íyrir mæður og börn á
fimmtudag kl. 10 til 12.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
Sunnudagaskóli kl. 11 á morg-
un, almenn samkoma í umsjá
ungs fólks kl. 17. Heimilasam-
band kl. 15 á mánudag, æsku-
lýðssamkoma kl. 20 á þriðju-
dag, krakkaklúbbur fyrir 6-10
ára á miðvikudag kl. 17,11 plús
mínus fyrir 10 til 12 ára á fostu-
dag kl. 17. Flóamarkaður frá 10
til 17 á föstudögum.
IIVÍTASUNNUKIRKJAN:
Verkleg þjálfun fyrir unglinga
kl. 14 á laugardag. Bænastund
frá kl. 20 til 21 í kvöld. Sunnu-
dagaskóli fjölskyldunnar á morg-
un kl. 11.30. Biblíukennsla fyrir
alla aldurshópa. Jean Baptiste
Oudrago frá Burkina Faso
predikai’. Léttur hádegisverður
á vægu verði á eftir. Samkoma
sama dag kl. 16.30, Jean
Baptiste Oudrago predikar.
Fjölbreyttur söngur. Bamapöss-
un fyrh' yngri en 6 ára. Ath.
breyttan tíma. Heimasíða er
www.gospel.is og Vonarli'nan,
sími 4621210, símsvari með upp-
örvunarorðum úr ritningunni.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Basar
á morgun, sunnudaginn 8. nóv-
ember kl. 15 í Eyrarlandsvegi
26.
KFUM og K: Kristniboðssam-
koma kl. 20.30 í kvöld, ræðu-
maður er sr. Kjartan Jónsson
kristniboði. Kristniboðsþáttur,
allir velkomnir. Kaffisala verð-
ur í Sunnuhlíð kl. 15 til 17 á
sunnudag, til ágóða fyrir
kristniboðið. Kristniboðssam-
koma kl. 20.30 á sunnudags-
kvöld, ræðumaður er Kjartan
Jónsson kristniboði.
LAUGALANDSPRESTA-
KALL: Hátíðarmessa í tilefni af
150 ára afmæli Möðruvalla-
kh-kju og hefst hún kl. 21 í
kirkjunni. Sr. Bolli Gústafsson
vígslubiskup predikar, sr. Sig-
urður Guðmundsson vígslubisk-
up emerítus og sr. Birgir Snæ-
bjömsson prófastur þjóna fyrir
altari. Formlegum hátíðahöld-
um verður síðar fram haldið.
AKUREYRI
Vetrarstarf Tónlistarfélags Akureyrar að hefjast
••
Orn Magnússon leikur píanó
verk í Akureyrarkirkju
VETRARSTARF Tónlistarfélags
Akureyrar hefst með tónleikum í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
annaðkvöld kl. 20.30.
Örn Magnússon flytur tvær pí-
anósónötur eftir Beethoven ópus 27
og er önnur þeirra Tunglskins-
sónatan. Einnig flytur hann tvö
verk eftir Debussy, Images eða
Myndir og Eyju gleðinnar sem sum-
ir telja fegursta verk tónbókmennt-
anna.
Öm er fæddur í Ólafsfirði, eftir
tónlistamám á Akureyri stundaði
hann nám í Manchester, Berlín og
Lundúnum og hefur farið í tónleika-
ferðir um Bretland, Norðurlönd,
meginland Evrópu og Japan. Áður
en verkin verða flutt kynnir Öm
þau.
Þetta em fyrstu tónleikar Tónlist-
arfélags Akureyrar á þessu stai-fsári
en tónleikar verða mánaðarlega í all-
an vetur. Meðal þeirra sem fram
koma em Arnaldur Amarson gítar-
leikari, Þorsteinn Gauti Sigurðsson,
píanóleikari, Jóhann Smári Sævars-
son söngvari ásamt Helgu Bryndísi
Magnúsdóttur píanóleikara og Finni
Bjamasyni söngvara við undirleik
Jan Willem Nelleke. Þá heldur Daní-
el Þorsteinson píanótónleika og loks
má nefna að Björg Þórhallsdóttir
sópransöngkona kemur fram á
Kirkjulistaviku næsta vor.
Allir tónleikar Tónlistarfélags
Akureyrar verða haldnir á sunnu-
dagskvöldum í Safnaðarheimili
Akureyrarkirkju.
Hársýning
Medullu
HÁRSNYRTISTOFAN
Medulla fagnar tíu ára afmæli
sínu með sýningu í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju í dag,
laugardaginn 7. nóvember kl.
17.
Um 60 módel taka þátt í sýn-
ingunni, en auk þess sem allt
það nýjasta í hárgreiðslu verð-
ur sýnt verður sett á svið brúð-
kaup og sýnt allt það sem því
tilheyrir. Breakpar sýnir og
þjálfarar á Bjargi koma fram.
Kynnir verður Árni Steinar Jó-
hannsson umhverfisstjóri á
Akureyri.
Nóvemberkaktus
TILBOÐ
Opnum NÝTT KERTAHÚS
Hvergi MEIRA ÚRVAL.
Opnunartilboð:
VANILLUKERTI 30% AFSL
IO KERTI í PK. KR. 199,-