Morgunblaðið - 07.11.1998, Síða 40
40 LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
HÁGÆÐA TÖLVUSKJÁIR
CTX hágæða tölvuskjáir eru í
verðflokkum sem henta
einstaklingum jafnt sem stórum
fyrirtækjum. CTX tölvuskjáir
hafa hlotið lof virtustu
gagnrýnenda í heimi fyrir lága
bilanatíðni, skýra skjámynd
og litla útgeislun. CTX
tölvuskjáirnir eru framleiddir
samkvæmt ISO 9002 stöðlum
og uppfylla kröfur Evrópu-
sambandsins um orkunotkun,
endurnýtingu og vistvæni.
TÆKNIBÆR
Skipholt 50c - 105 Reykjavík
Sími: 551 6700 - Fax: 561 6700
Netfang: pantanir@tb.is - www.tb.is
MARGMIÐLUN
HELSTI vaxtarbroddur í tölvu-
tækni á næstu árum er að margra
mati í lófa- og vasatölvum. A því
sviði hefur þróunin líka verið ör
og flestir ef ekki allir helstu fram-
leiðendur tölvubúnaðar í heimin-
um eru með í smíðum eða í undir-
búningi að framleiða lófa- eða
vasatölvur, aukinheldur sem ýms-
ir raftækjaframleiðendur hugsa
sér gott til glóðarinnar. Markaðs-
ráðandi á þessum vettvangi eru
tölvur tveggja framleiðenda,
hvors á sínu sviði, en miklar svipt-
ingar framundan.
Undanfarin ár hafa verið ráð-
andi á vasa- og lófatölvumarkaði
tölvur sem keyra sérstakt stýri-
kerfi hannað fyrir þær. Þar eru á
ferð annars vegar Psion-tölvurn-
ar bresku sem haft hafa yfirburði
á vasatölvumarkaði, og svo Pal-
mPiIot sem hefur haft lófatölvu-
markaðinn í vasanum. Þessar
vélar eru ólíkar um margt; Psion
stærri um sig með lykla-
borði og hugbúnaði í
stíl, en PalmPilotinn
lyklaborðslaus tölva
með stíl til að skrifa inn
texta kjósi menn svo.
Notagildi þeirra er og
ólíkt, án þess að farið
verði frekar út í það
hér, og þær eru viðmið-
un flestra þeirra sem
stefna inn á markaðinn,
þar á meðal Philips, sem
sett hefur á markað
tvær öflugar tölvur,
Velo, sem er vasatölva,
og Nino, sem er fyrir
lófann.
Eins og getið er
keyrðu þær tölvur sem
mestra vinsælda njóta á
vasa- og lófatölvumark-
aði eigið stýrikerfí og
það þótti Microsoft-
sljórum eðlilega hið
versta mál. Fór svo að
sérstök útgáfa var sett saman af
Windows, Windows CE, sem er
öllu minni um sig en hinar útgáf-
urnar sem allir þekkja. Hollenski
raftækjarisinn Philips var með
þeim fyrstu til að setja á markað
lófatölvu sem byggðist á
Windows CE, en Phiiips hefúr áð-
ur gert tilraunir til að komast inn
á einkatölvumarkaðinn. Fyrsta
vélin hét Velo 1, kom á markað
1996 og var tvímælalaust besta
vél sinnar tegundar á þeim tíma.
Philips-stjórar höfðu greinilega
lært af markaðsreynslu annarra
og lögðu mikið í vélina, vélbúnað-
ur var öflugri en tíðkaðist á þeim
tíma í slíkum vélum, og útlit tölv-
unnar einkar glæsilegt. Vissulega
var vélin ekki gallalaus; frægt
varð hversu lamirnar á loki henn-
ar voru lélegar, en hún bar höfuð
og herðar yfír keppinautana í
flestu. Fyrr á þessu ári kom svo
út ný gerð Velo, Velo 500, svona
rétt til að undirstrika muninn á
tölvunum tveimur, og tekin var
til kostanna í nokkra daga fyrir
skemmstu.
I tölvunni sem skoðuð var er
16MB EDO DRAM minni og 16MB
ROM. Hægt er að stækka minnið
með því að bæta við vélina sér-
stökum minniskortum. Or-
gjörvinn er 75MHz, 32-bita MIPS
Philips PR31700 RISC, tvöfalt
hraðvirkari en örgjörvinn í Velo
Sannköll-
uð fyrir-
myndarvél
Mikil gróska er á vasa-
tölvumarkaði og á eftir
að verða enn meiri á
næstu mánuðum. Arni
Matthíasson skoðaði
Velo 500, sem er að
hans mati fyrir-
myndarvél.
100 og tryggir Philips hraðafor-
skotið enn um sinn.
Glæsilegt útlit
Velo 500 er ekki síðri útlits en
100-gerðin, heldur glæsilegri
reyndar og þykkari um sig. Skjár-
inn er stærri en var á 100-gerð-
inni og öllu skýrari. Upplausnin á
skjánum er 640x240, 16 gráskalar
og punktastærð 0,23 mm. Philips-
menn segjast ekki munu taka upp
litaskjá sem stendur þar sem þeir
eyði of miklu rafmagi og rýri fyr-
ir vikið notagildi tölvunnar til
muna. Gráskalaskjárinn er vel
læsilegur, sérstaklega með bak-
lýsingu, en hún spænir upp raf-
hlöðurnar. Annars duga þær
ágætlega og tekur ekki langan
tíma að hlaða.
Lykaborðið er sérstakt, svo
ekki sé meira sagt , og ýmist þola
menn það ekki eða fínnst frábært.
Hnappaborðið er allstórt miðað
við slíka vél, en hnapparnir sjálfir
litlir og langt á milli þeirra. Það
þarf því að venjast því, en tekur
ekki langan tíma. Tölvan gefur
frá sér smelli þegar slegið er á
hnappana og gott að hafa það á
því svörun er ekki mikil. Vel má
nota lyklaborðið til að skrifa stutt
skilaboð eða færa inn nöfn og
upplýsingar, en ekki er gott að
nota vélina fyrir almenna rit-
vinnslu, sem vonlegt er, hún er
alls ekki ætluð fyrir slíkt. Galli er
að ekki sé komið á markað ís-
lenskt lyklaborð fyrir Windows
CE, en tölvan getur birt íslenskt
letur eins og kom í ljós þegar
nöfn og símanúmer voru lesin á
milli. Víst er hægt að skrifa ís-
lensk sértákn með því að slá inn
ASCII-gildi táknanna; halda niðri
ALT-hnappi og slá 0243 til að
skrifa ó til að mynda, en ekki
gera menn það til lengdar.
Smækkuð Word,
Excel, PowerPoint
og Internet Explorer
Með Windows CE fylgja
minnkaðar útgáfur af Word,
Excel, PowerPoint og Internet
Explorer, en einnig er dagatal og
símanúmeraskrá. Oll eru forritin
samhæfð Office-pakkanum og
þannig má flytja skjöl á milli með
sérstökum hugbúnaði sem fylgir.
Með tölvunni fylgir tengihulstur
sem hún er sett í og
síðan tengt við PC-sam-
hæfða tölvu. Fljótlegt
er að tengja vélina og
þegar Windows á PC-
vélinni verður vart við
að Velo-tölvan sé kom-
in í hulstrið fer í gang
hugbúnaður sem sér
um að samhæfa dag-
bókina á milli véla.
Innbyggt er í tölvuna
mótald en þarf til sér-
stakan tengil sem fylgir
ekki. Einnig er inn-
byggður hljóðnemi og
hátalarar og hægt að
hljóðrita á vélina
minnispunkta eða
lengra spjall. Hægt er
að taka upp eins og
rúmast í minni tölvunn-
ar, 16 mínútur á hvert
megabæti, og má taka
upp með vélina lokaða.
Hljómgæði eru eðlilega
ekki ýkja mikil, en gott
hefði verið ef á vélinni væri tengi
fyrir heyrnartól.
Velo 500 er mjög nett vél og
skemmtileg, þægileg að hafa á sér
á ferð og flugi. Ekki tókst að
prófa nettenginguna, en sam-
kvæmt umfjöllun erlendra blaða
er hægur leikur að senda og
sækja tölvupóst eða vafra um net-
ið, þó eðli málsins samkvæmt falli
fæstar vefsíður vel að 640x240 16
gráskala-skjá.
Velo 500 kostar rétt innan við
70.000 krónur með tengihulstri,
straumbreyti, 16 MB minni og áð-
urnefndum hugbúnaði, þ.e. hug-
búnaðinum sem fylgir Windows
CE og síðan hugbúnaði fyrir PC-
samhæfða tölvu til að tengjast
Velo-tölvunni og flytja gögn á
milli. Velo 500 er 9,4x17x2,5 cm
og 425 g.
Eins og getið er nýtur Psion-
tölvan breska mestrar hylli lófa-
tölvunotenda, en það á örugglega
eftir að breytast; erfítt verður
fyrir Psion-menn að standast sam-
keppnina frá Windows, ekki síst í
Ijósi þess að tiltölulega einfalt er
að aðlaga Windows-hugbúnað að
Windows CE. Stýrikerfíð eitt ræð-
ur þó ekki úrslitum; þar kemur
margt meira til, ekki síst búnað-
ur, verð og notagildi. Velo 500-
tölva þeirra Philips-manna stend-
ur vel að vígi í þeim slag, sann-
kölluð fyrirmyndarvél.
Þráðlaus
sími frá
Microsoft
MICROSOFT er með mörg járn í
eldinum, ekki er bara að fyrirtækið
sé einn helsti hugbúnaðarframleið-
andi í heimi heldur hefur það snúið
sér að framleiðslu á jaðarbúnaði
fyrir tölvur í æ ríkari mæli. Það
framleiðir mýs, stýripinna og stýri
með góðum árangri og hefur nú
tekið upp framleiðslu á þráðlausum
símum.
Snemma í mánuðinum kynnti
Microsoft nýjan þráðlausan síma
sem tengja á heimilistölvunni. Sím-
inn nýi er 900 MHz og tengist
heimilistölvunni, sem verður
þannig símstöð með símsvara, auk-
inheldur sem hægt verður að stýra
símanum með röddinni einni sam-
an.
Sérstakur hugbúnaður,
Microsoft Call Manager, fylgir
símanum og breytir tölvunni í full-
komna símstöð með símsvara sem
getur svarað í símann eftir því hver
er að hringja, hleypt fyrirfram
ákveðnum símtölum í gegn eða úti-
lokað, segir frá hver sé að hringja
áður en svarað er og svo má telja.
Einnig má gefa símanum munnleg
fyrirmæli, segja honum að „hringja
í vinnuna“ til að mynda eða segja
honum að svara eða eyða skilaboð-
um svo dæmi séu teldn. Hve fjöl-
skyldumeðlimur getur haft sinn
eigin símsvara og tekið við skila-
boðum fyrir sig inn á tölvuna sem
hægt er að hlusta á síðar, hvort
sem er í símanum eða með því að
hringja og gefa upp leyninúmer.
Þúsundir skilaboða má geyma á
tölvunni og fer magnið aðeins eftir
rými á tölvunni þar sem skilaboðin
er vistuð í samþjöppuðu formi.
Fyrstu símamir koma á markað
vestanhafs um miðjan nóvember,
en áætlað smásöluverð er í kring-
um 15.000 kr.
Crash Bandieoot
kynning1
ÞEGAR Spyro the Dragon
bytjar og komið er að skjánum þar
sem stendur Press Start er hægt að
fá að sjá kynningu á næsta stóra
borðaleiknum fyrir PlayStation:
Crash Bandicoot III. Nóg er að ýta
á L1 og þríhyrninginn samtímis og
þá kemur upp áður óútgefíð borð í
Crash III þar sem þú spilar Coko,
systur Crash, í afar flottu og
raunverulegu sjávarborði á þotu.
Tveggja hraða DVD
mynddiskadrif frá
Creative. MPEG-2
afspilunarkort. Tveir
frábærir leikir fylgja;
Claw og Wing íýT
Commander4 \ #1
Ef þú kaupir DVD spilara, stakan eöa í
tölvu, býðst þér frábært tilboð. Þú
greiðir fyrir einn disk en færð
þrjá! Þu getur valið
hvaða diska sem er frá
Warner Bros og Disney.
Skeifunni 11 • Rvk • Sími:550-4444 og Reykjavíkurvegi 64 • Hafnarf. • Sími 550-4020