Morgunblaðið - 07.11.1998, Síða 60
^60 LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR/PRÓFKJÖR
Skólaskip og
grunnskólinn
Kostir sveigjanlegs
fæðingarorlofs
ÞEGAR við foreldrar
leitumst við að koma
bömum okkar til
manns er mörgum efst
í huga hvaða menntun-
ar er þörf og hvernig
búið er að skólunum til
að sinna henni sem
best. Abyrgð okkar að
þessu leiti er mikil og
■‘vneiri en nokkru sinni í
þeim flókna heimi sem
við búum við í dag þar
sem hraði breytinga er
meiri en nokkru sinni.
Hér áður fyrr var það
merki um mikla mann-
kosti að vera duglegur
sjómaður og kunna að
taka til hendinni. Fátt taldist vinna
nema að gera að fiski, bæta net
eða splæsa vír og þá helst berhent-
ur. Þessi tími er liðinn og í dag er
sjómennskan mun margþættari en
áður var þó grunnvinnsla aflans sé
svipuð. Tækjavæðing er orðin
feikilega mikil á íslenska fískveiði-
*»flotanum og mörg af okkar
stærstu fiskiskipum eru eins og
fljótandi frystihús þar sem fram
fer flókin matvælaframleiðsla
beint á disk neytandans.
Allt er þetta orðið annað og
meira en var fyrir aðeins 20 árum
og möguleiki unglinga til að gægj-
ast inn í þessa veröld lítill. Það er
því mikilvægt að í menntakerfi
okkar séu leiðir fyrir ungt fólk til
að sjá og kynnast þessari veröld
sjómannsins þó ekki sé nema í
—‘gegnum lítið gægjugat.
Þetta er hugmyndin á bak við
það að rekið sé skólaskip, skip sem
bjóði grunnskólanemendum upp á
ferðir, skoðun tækja og tóla, láta
úr höfn og kynnast sjóara.
Að opna heima hafsins
Þessi hugmynd hefur verið
reynd áður við miklar vinsældir og
skal þar fyrst nefnt skólaskipið
Mímir sem hafði á að skipa frá-
bærum sjómönnum og hugsjóna-
mönnum. Ferð með Mími var
toppurinn á námi sjóvinnunem-
enda í grunnskólunum og skoðun-
arferðir með heilu bekkina afskap-
lega vinsælar. Nokkrum árum eft-
*'ir að Mímir fórst kom til skjalanna
hugsjónamaðurinn Karel Karels-
son úr Hafnarfirði með bát sinn
Haftind. Hóf hann samstarf við fé-
lagsmálastofnanir á SV-horninu og
réri með ungu fólki á þeirra vegum
á Haftindi. Karel fór
það einstaklega vel úr
hendi að koma ungum
mönnum til manns.
Karel fór einnig í sjó-
vinnuferðir og skoðun-
arferðir með skólabörn
við miklar vinsældir.
Það starf sem nú er
unnið með Dröfn á
þessu sviði er í raun
framhald af rekstri
þessara báta nema að
hann er mikið stærri
og býður upp á mun
fleiri möguleika til
kennslu. Dröfnin er
150 tonn meðan Mímir
var aðein 15 tonna
skip og Haftindur um 50 tonn. Að
flestra áliti var talið nauðsynlegt
að hafa stórt skip við þessa
kennslu sem nú er um borð í
Dröfninni og hef ég lagt áherslu á
það í tillöguflutningi mínum á Al-
þingi. Það sem af er reynslutíma á
Dröfninni hefur reksturinn gengið
vel og bömin fengið að kynnast líf-
Pað er mikilvægt að í
menntakerfi okkar séu
leiðir fyrir ungt fólk til
að sjá og kynnast ver-
öld sjómannsins, segir
Kristján Pálsson, þó
ekki sé nema í gegnum
lítið gægjugat.
inu um borð í tæknivæddu skipi.
Þetta kalla ég að gæjast inn í sjó-
mannslífið eins og það er í dag. Eg
vona að þessi tilraun verði til að
vekja áhuga foreldra og skólayfir-
valda á rekstri slíks skips til fram-
tíðar og er ég vongóður um að það
takist. Það vil ég þakka ekki hvað
síst því brautryðjendastarfi sem
þeir sýndu á Mími og Haftindi og
starfsmenn Fiskifélags Islands.
Að mínu áliti er fátt sem getur
tengt betur saman sjóinn og
grunnskólann en rekstur á skipi
eins og Dröfnin er, þar sem sjó-
maðurinn og vísindamaðurinn frá
Hafró mætast og opna heima hafs-
ins fyrir unglingnum.
Höfundur er alþingismaður.
Kristján
Pálsson
www.mbl.is/fasteignir
FÆÐINGARORLOFS-
mál hafa verið í deigl-
unni að undanfömu, nú
síðast í tengslum við
stjórnmálaályktun
Landssambands sjálf-
stæðiskvenna, en þar em
stjómvöld eindregið
hvött til að koma sjálf-
stæðu fæðingarorlofi á
fót fyrir báða foreldra,
auk sameiginlegs fæð-
ingarorlofs sem foreldr-
ar geta skipt með sér eft-
ir þörfum og í samvinnu
við vinnuveitendur sína.
Réttur en ekki skylda
Það er höfuðatriði í
þessari umræðu allri, að
fæðingarorlof er og verður réttur en
ekki skylda. Það er jafnframt mikil-
vægt að fram komi að sveigjanleiki,
þ.e.a.s. réttur tii að skipta orlofinu
upp eftir þörfum foreldra, er mikið
framfaramál, bæði fyrir foreldrana
sem og vinnuveitendur þeirra.
Skyldan spyr ekki um skoðun
Að skylda fólk í fæðingarorlof,
konur eða karla, er sambærilegt við
að skylda alla til að taka strætó í
vinnuna á morgnana, eða til að ferð-
ast eingöngu um á reiðhjóli á mið-
vikudögum. Staðreyndin er einfald-
lega sú að réttindi eru eitthvað sem
við nýtum okkur, standi hugur okkar
til þess. Skyldan spyr hins vegar
ekki um skoðun okkar.
Ósveigjanleiki nú-
gildandi kerfis
Núverandi fæðingar-
orlofskerfi, sem tryggir
báðum foreldrum sam-
tals sex mánaða fæðing-
arorlof og fóður sjálf-
stæðan hálfsmánaðar
rétt, er fremur ósveigj-
anlegt. Annaðhvort tek-
ur þú þitt fæðingarorlof
eða ekki! Jafnframt er
það útbreiddur mis-
skilningur að þessir sex
mánuðir séu bundnir
móðurinni. Með því að
tryggja báðum foreldr-
um sjálfstæðan rétt og
síðan sameiginlegan rétt sem þeh-
geta skipt, eða annar aðilinn nýtt sér
að fullu, erum við að veita foreldrum
og vinnuveitendum svigrúm til að
„púsla“ saman mismunandi útgáfum
af fæðingarorlofi.
Kostir sveigjanleikans
í nágrannalöndum okkar er
reynslan af sveigjanlegra kerfi góð,
ekki hvað síst sú reynsla sem snýr að
atvinnulífinu. Með sveigjanleika er
hér fyrst og fremst átt við svigrúm
foreldra til að skipta fæðingarorlof-
inu niður eftir þörfum sínum og
vinnuveitendans; t.d. svigrúm til að
lækka starfshlutfallið sitt tímabund-
ið í 50% eða 75%. Þetta auðveldar,
Höfuðatriði í þessari
umræðu allri er, segir
Helga Guðrún Jónas-
dóttir, að fæðingarorlof
er og verður réttur en
ekki skylda.
sérstaklega smæn-i fyrirtækjum, að
brúa það bil sem myndast getur
vegna fæðingarorlofsmála.
Styrkjum bæði íjölskylduna
og atvinnulífíð
Þai-fir okkar og áherslur eru mis-
jafnar, hvort heldur um heimili eða
fyrirtæki er að ræða. Með því að
gera fæðingarorlof sveigjanlegra en
nú er, fá foreldrar svigrúm til að
laga þann viðburð, sem fæðing nýs
einstaklings er, að þörfum sínum og
vinnuveitanda síns. Ósveigjanleiki
núgildandi kerfis getur kostað unga
foreldra verulegt tekjutap, svo að
ekki sé minnst á óhagræðið sem því
fylgir fyrir atvinnulífíð í heild. Með
auknu frelsi einstaklinganna til að
velja veitum við fjölskyldunni svig-
rúm til að laga þarfír sínar að at-
vinnulífmu og atvinnulífinu svigrúm
til að laga þai'fir sínar að fjölskyld-
unni.
Höfundur er sljórnmálafræðingur
og tckur þátt í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjaneskjördæmi.
Manneskjulegra
skattakerfí
ÞAÐ Á að fara vel með
peninga, og það á að fara
alveg sérstaklega vel með
peninga sem teknir eru af
fólki með skattlagningar-
valdinu. En teknanna á
líka að afla þannig að
skaðlegar aukaverkanir
skattheimtunnar verði í
lágmarki. Skattar eru til-
tölulega lágir á íslandi
miðað við það sem gerist í
grannlöndunum og skatt-
kerfið jafnar tekjur trú-
lega meira en víðast hvar.
Enn eru alvarlegir gall-
ar í skattakerfinu. Sums
stáðar í frumskógi skatta,
bóta, lífeyris og hlunninda
verða jaðaráhrifin ósæmi-
leg. Þá hirða tekjutengingar hverja
krónu, sem fólk bætir við með vinnu
eða úr lífeyrissjóði, því lífeyrir eða
bætur frá ríkinu lækka á móti og af-
slættir hverfa. Einkum snýr þetta að
öldruðum, sem eiga sér enga undan-
komuleið, að bamafólki, sem á þann
mótleik að draga úr
vinnu og að þeim ör-
yrlgum sem hafa
nokkra vinnugetu og
eiga sama kost og
barnafólkið. Annars
vegar er gerðui’ upp-
tækur spamaður þein*a
sem lagt hafa fyrir í líf-
eyrissjóði. Hins vegar
eru eyðlögð tækifæri
fólks til að bæta kjör sín
með vinnu og dugnaði.
Ég vil bjálpa til við að
draga úr tekjutengingu
og misfellum í samspiii
skatta og bóta, og ég
hef reynslu og þekkingu
til að koma að gagni við
það verk. Auðvelt verð-
ur það ekki, því annars væri löngu bú-
ið að berja í brestina. Það er nefnilega
óhætt að bóka að stjómmálamenn
gera það ekki að gamni sínu að baka
vandræði þótt það hendi þá ef þeir sjá
ekki úrræði.
Vandinn við að eyða tekjutenging-
Markús
Möller
unni er að fyrir hvem einn sem tekst
að losa úr verstu gildrunum er líklegt
að þrír eða fjórir fljóti með sem vand-
inn brennur ekki nærri eins illa á.
Þess vegna myndu tekjur ríkisins
Ég vil hjálpa til við að
draga úr tekjutenging-
um, segir Markús Möll-
er, og ég hef reynslu
og þekkingu sem koma
að gagni við það verk.
lækka mjög mikið ef einfóldustu leið-
um væri beitt til að eyða telquteng-
ingum. En ef menn leita af atorku og
þekkingu og gera sér grein fyrir að
endurbætur fást ekki ókeypis, þá má
ná árangri.
Ég vil koma að þeirri leit og skal
styðja það með ráðum og dáð, að
næsta svigrúm sem finnst til að lækka
skatta verði notað til að draga úr
tekjutengingu gagnvart barnafólki,
öldruðum og öryrkjum. Ef svigrúm
finnst ekki, verður að búa það til.
Höfundur er hagfræðingur og sæk-
ist eftir 2. sætinu í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins á Reykjanesi.
Ficus Parasol
180 cm
(Tré með tveimur brúskum)
Cypress Cone í Moonrock vasa (L)
145 cm
(Tré á kúlu)
Podacarpus
210 cm
(Suðurlandatré)
Citrus Topiary
120 cm
(Appelsínutré)
OpiÖ:
mén.-fös. kl. 12-18
lau. kl. 11-14
Slml: 661 2040