Morgunblaðið - 07.11.1998, Síða 76

Morgunblaðið - 07.11.1998, Síða 76
>76 LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM * sviði, enda hafa þeir félagar Jóhann og Pétur víða farið og leikið. Sara Guðmundsdóttir hefm’ aftur á móti minna sungið opinberlega. Upphaf tónleikanna var bráð- gott, byrjað á skemmtilegri dans- stemmningu í Peeping Tom og næst þar á eftir kom afbragðs lag, Missile, sem maður óskaði helst að væri helmingi lengra. Leikið var á ýmsa strengi á tónleikunum og sveitin renndi sér yfir tilfinninga- skalann, allt frá ysta myrkri í létta froðu. Mesta hrifningu vakti eðli- lega lagatvennan Losing Hand og Bogus, enda þekkja flestir þau lög mjög vel. Sveitin stóð sig mjög vel á sviði og hljómur til fyrirmyndar. Pétur fór á kostum á gítarinn, Guðni fim- um höndum um bassann og Arnar er í fremstu röð íslenskra trymbla. Mátti heyra á köflum að sveitin var ekki búin að spila sig fyliilega sam- an, en þegar allt small saman var keyrslan pottþétt og mögnuð; minnti á Funkstrasse-fönk, sem vonlegt er því hrynparið Arnar og Guðni eru einmitt þaðan ættaðir og gott ef þeir fé- Lagalisti Peeping Tom Missile Take Me Away More to Life Darkness Calling Me BEM A Day Lasts Forever Losing Hand Bogus (I Don’t Want to Know) Uppklapp Silfurskotturnar hafa sungið fyrir mig Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Sara Guðmundsdóttir, söngkona Lhooq. lagar eru ekki allir með fónkið í blóðinu. Sara Guð- mundsdóttir er skemmtileg söngkona með góða rödd og stóð sig vel. Hún þyrfti þó að bæta sig í sviðsframkomu og fjölga hreyf- ingum, enda er hún andlit sveit- arinnar og mæðir mikið á henni. Allt fór vel fram og var vel flutt, en helst saknaði maður þess að enginn lífsháski var á svið- inu, enginn liðsmanna sleppti sér og í löngum köflum mátti sjá fólk geispa. Kannski voru allir bara að vanda sig of mikið, en fáir fara á tónleika til að heyra fagmennsku og fínheit, það verður að vera eld- ur og eimyrja. Árni Matthíasson Skáld heimsveldis og dauðinn ÞEGAR breska heimsveldið var á dögum og í fullum blóma á nítj- ándu öld og fram yfir fyrra stríð, átti það sína persónugervinga, menn eins og Cecil Rhodes, Rudy- ard Kipling og Agöthu Christie. Svo nokkur kunn nöfn séu nefnd. Segja má að fyrrgreindir þrír aðil- ar hafi skipt löndum á milli sín. Rhodes fór um Suður-Afríku og stofnaði helsta gimsteina fyrirtæki heimsins og síðar Rhódesíu, Kipling orti um „byrðar“ hvíta mannsins í Austurlöndum, þai’ sem morgnarnir skutust upp á himininn „like thunder across“ Manilla flóann og svo kom Agatha Christie, sem skrifaði um dularfult morð á Níl, en á öllum þessum svæðum gætti heimsveldisins breska og raunar víðar. Heima á Englandi þóttu þetta sjálfsagðh’ hlutir, en þótt þjóðh- hafi bæði fyrr og síðar færst i tölu heimsvelda, töldu skáld þeirra ekki sjálfsagt að fylgja í kjölfarið, nema þá sem leiðigjam- ar uppblásnar nýlendur gáfu- mannahópa, em skildu lítið efth’ sig sem nýlendur. Aðrar þjóðir æddu yfir löndin og foringjar þeirra stóðu upp að öxlum í mann- drápum. Það voru hins vegar ein- staklingar eins og Kipling, Rhodes og Christie sem vörpuðu nokkrum ljóma á heimsveldi Breta. Við sáum nokkurn afrakstur fyrrgreinda heimsveldisbók- mennta á Sýn á föstudagskvöld í fyrri viku, þegar sýnd var myndin Dauðinn á Níl eftir Christie með stórleikarann Peter Ustinov, sem mig minnir að hafi komið til ís- lands, en hlaut ekki virðulegri móttökur en þær, að menn nefndu hann Peter ,just enough“. Hann fór í myndinni með hina kunnu persónu Hercule Poh’ot, sem Christie kom sér upp til að leysa morðgátur, sléttgreidda með vax- borið skegg og svo breska í hátt- um að Bretar máttu vel við una, þótt persónan sjálf héldi því fram í tíma og ótíma að hún væri belgísk. Myndin er ágætlega gerð og klæðnaður og fas fólksins fellur vel að þeim hugmyndum, sem maður lærði að hafa um Breta fyrir seinna stríð. Þarna er sem sagt hópur á ferð upp Nil að skoða frægar lend- ur Egypta, en af því Christie ræður ferðinni þá er auðvitað framið morð, sem Poirot leysir úr. Islensku þættirnir eru fai’nir að segja til sín í ríkiskassanum. ...þetta helst er komið vikulega á skjáinn og stendur vel undir vænt- ingum. Allar horfur eru á því að þetta verði langlífur þáttur því til hans hefur valist fólk, þ.e. til þess að stjórna og til aðstoðar, sem hef- ur reynst starfi sínu prýðilega vax- ið og er mátulega alvörugefið. Einnig skal enn nafnd Enn ein stöðin, sem verður að þola misjafn- lega gott gengi, en er yfirleitt alltaf í toppi. Fleiri innlendir þætt- ir em komnir. Þeir eru ekki miklir til áhorfs nema hjá þeim, sem eru ósköp stuttir til hnésins eða með gen úr 68-kynslóðinni. En allir þurfa sína prívatþætti, og þeir sem vilja sinna prívatþörfum aldurs- hópa eiga auðvitað að gera það, sbr. fótboltann. Sjónvarpsefni sem valið er eftir þörfum samkvæmt mati sérfræðinga býr við hættuna af því að allt hið nýstárlega, ferska og skemmtilega eigi í vök að verj- ast. Og hvai’ eiga mörkin að vera. Sérfræðingar þurfa nefnilega að spyrja sig að ýmsu. Á t.d. að velja efni handa börnum áður en búið er að venja þau af koppnum, eða á að bíða til sex ára aldurs og svona mætti lengi spyrja. Það kom þægilega á óvart þegar fréttist að Logi Bergmann Eiðs- son hefði verið ráðinn til að spyrja í spumingakeppni framhaldsskól- anna. Hann er mætur fjölmiðla- maður og stjórnaði um nokkurn tíma útvarpsþáttum á meðan hann beið eftir að komast á sjónvarpið, þar sem hann er nú. Ekki er að efa að Loga fer verkið vel úr hendi, en það hefur gengið heldur brösulega með spyrlana. Þeir hafa ýmist set- ið þarna og látið eins og þeir segðu: Sjáið mig, eða gert tilraun til að grínast. Nemendunum er þátttakan dauðans alvara og því ber að koma fram við þá af alvöru og láta kaffihúsafasið eiga sig. Indriði G. Þorsteinsson SJONVARPA LAUGARDEGI FRANSKA fyrirsætan Laeticia Casta sýnir hér þennan stutta jakka sem borinn er við þröng ar stuttbuxur. Fagmennska og fínheit TONLIST Tónleikar LOFTKASTALINN Hljómsveitin Lhooq Iék á tónleikum í Loftkastalanum á fímmtudagskvöld. Hljómsveitina Lhooq skipa Pétur Hallgrímsson gftarleikari, Sara Guð- mundsdóttir söngkona og Jóhann Jó- hannsson hljómborðsleikari. Þeim til aðstoðar á tónleikunum voru Guðni Finnsson bassaleikari og Arnar Geir Ómarsson trommuleikari. HLJÓMSVEITIN Lhooq er í hópi þeirra sveita íslenski’a sem náð hafa því markmiði að koma sér á framfæri ytra, er samningsbundin breskri útgáfu og sendi frá sér prýðilega breiðskífu samnefnda sveitinni fyrir skemmstu. Þó það hafi verið fyrsta breiðskífan er Lhooq ekki ný af nálinni; sveitin kom fyrst fram á Uxa-hátíðinni austur á Klaustri íyrir rúmum þremur árum. Þrátt fyrir það má telja á fingrum annarrar handai’ þá tónleika sem hljómsveitin Lhooq hefur haldið og í því ljósi voru tón- leikar sveitarinnar í Loftkastalan- um sl. fimmtudagskvöld veruleg tíð- indi, en þeir voru kynntir sem eins- konar útgáfutónleikar áðumefndrar breiðskífu. Ekki var þó að merkja að sveitin væri óvön að standa á Sportleg í hvítri golftreyju, gráum beinsniðnum buxum. Frum- leg baðföt með hand- klæði í stfl. ►Á DÖGUNUM var haldin í Hvítur og blár teygju- kjóll með hatti í stfl. París tískusýning breska tísku hönnuðarins Vivienne Westwood. Fatnaður Westwood hefur átt miklum vinsældum að fagna hjá yngri kyn- slóðinni enda þykja fötin bæði smart og klæðileg. Eins og myndirnar bera með sér er vor- tíska Westwood fjöl- breytt að vanda og ættu flestir að geta fundið sér eitthvað við hæfi. Tískusýning Vivienne Westwood
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.