Morgunblaðið - 14.11.1998, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.11.1998, Blaðsíða 1
260. TBL. 86. ÁRG. LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Morgunblaðið/Sverrir Vinafundir í Bonn Bonn. Morgunblaðið. GERHARD Schröder, kanzlari Þýzkalands, tekur á móti Davíð Oddssyni forsætisráðherra fyrir utan þinghúsið í Bonn í gær. Eins og sjá má voru endurfundir þeirra gleðilegir, en Davíð tók á móti Schröder í Ráðherrabústaðn- um í Reykjavík um sama leyti árs í fyrra, þegar hann kom í opin- bera heimsókn til Islands sem for- sætisráðherra Neðra-Saxlands. Schröder Ijáði fréttamönnum í þýzka þinghúsinu að hann sæi engin vandamál í samskiptum Is- lands og Þýzkalands. Davíð Odds- son sagði eftir fund þeirra að hann teldi fslendinga eiga góða bandamenn í hinum nýju valdhöf- um Þýzkalands, sem sýndu ís- lenzkum sjónarmiðum mikinn skilning. Með fundinum með Schröder lauk viðræðum Davíðs við ráðamenn í Bonn, en auk kanzlarans hitti hann Helmut Kohl fyrrverandi kanzlara og Wolfgang Schauble arftaka hans sem leiðtogi kristilegra demókrata. ■ Nýir valdhafar/4 Clinton semur við Paulu Jones Washington. Reuters. BILL Clinton Bandaríkjaforseti hef- ur fallist á að greiða Paulu Jones 850 þúsund dollara, eða um 60 milljónir íslenskra króna, fyrir að falla frá lög- sókn á hendur honum fyrir kynferð- islega áreitni. Robert Bennett, lögmaður Clint- ons, sagði í gær að forsetinn teldi ásakanir Paulu Jones tilhæfulausar, en vildi binda enda á þrætuna, sem staðið hefur í fjögur ár og leiddi til rannsóknar á sambandi forsetans við Monicu Lewinsky. „Forsetinn hefur komist að þeh-ri niðurstöðu að hann sé ekki reiðubúinn að eyða meiri tíma í þetta mál,“ sagði Bennett. Bill McMillan, einn af lögmönnum Paulu Jones, sagði að hún væri „afar ánægð að málinu væri loks lokið“, og að hún liti á niðurstöðuna sem sigur. Samkomulagið kveðui' á um að Clinton greiði Jones umsamda upp- hæð innan 60 daga, en felur ekki í sér afsökunarbeiðni eða játningu sektar af hálfu forsetans. Paula Jones heldur því fram að Clinton hafi boðið henni upp á hótelherbergi sitt í Little Rock og áreitt hana kynferðislega árið 1991, þegar hann var ríkisstjóri í Arkansas. Hún var þá ríkisstarfsmaður. Clinton hefur alla tíð neitað ásökunum Jones. Mál- inu var vísað frá dómi síðastliðið vor, en lögmenn Jones áfrýjuðu þeim úr- skurði. Sérskipaði saksóknai'inn Kenneth Stan' afhenti fulltrúadeild þingsins i gær frekari gögn um ásaknir Kathl- een Willey á hendur forsetanum um kynferðislega áreitni. Brazilía fær 2.900 milljarða Washington. Reuters. TILKYNNT var í gær, að Alþjóða- Miehel Camdessus, framkvæmda- gjaldeyrissjóðurinn (IMF) og ýmis stjóri IMF, sagði í gær, að vonast iðnríki ætluðu að veita Brazilíu um væri tii, að aðstoðin hjálpaði brazil- 2.900 milljarða ísl. kr. til að koma í ískum stjórnvöldum við að ná tökum veg fyrir fjármálahrun í landinu. á langvarandi halla á ríkisbúskapn- Fyrir utan alþjóðlegar lánastofn- um og auka tiltrú fjárfesta. Sagði anir leggja Bandaríkjamenn mest af hann, að stjórnin hefði heitið að mörkum, um 350 milljarða kr., en halda genginu stöðugu, sýna mikið Evrópusambandsríkin samtals um aðhald í fjármálum og auka almennt 530 milljarða. frjálsræði í efnahagslífínu. Saddam Hussein vekur máls á friðsamlegri lausn á fraksdeilunni Albright segir málamiðl- un ekki koma til greina Bagdad, Washington, Teheran, Moskvu. Reuters. SADDAM Hussein, forseti Iraks, sýndi í gær nokkur merki þess að hann væri reiðubúinn að sýna sveigjanleika í deilunni vegna vopnaeftirlits Sameinuðu þjóðanna, en Vesturveldin tóku dræmt í ummæli hans. Bill Clinton Bandaríkjaforseti og Madeleine Albright utanríkisráðherra tóku í gær skýrt fram að Bandaríkin væru reiðubúin að hefja loftárásir á írak, gæfi Saddam ekki tafarlaust eft- h'. Bandaríkjamenn héldu í gær áfram að auka herstyrk sinn við Persaflóa. Opinbera fréttastofan í Irak, INA, sagði frá því í gær að Saddam hefði greint sendiherra Rúss- lands í Bagdad, Nikoli Kartúsov, frá því að „írak- ar væru reiðubúnir að bregðast á jákvæðan hátt við tillögum sem kæmu til móts við réttmætar kröfur Iraks“. INA hafði jafnframt eftir Saddam að ákvörðunin um að hindra störf vopnaeftirlits- sveita Sameinuðu þjóðanna hefði ekki verið til þess ætluð að ögra öryggisráði SÞ. írakar eiga enn möguleika Bill Clinton Bandaríkjaforseti sagði frétta- mönnum í gær að Saddam „hefði enn möguleika á að binda enda á deiluna", með því að taka á ný upp fullt samstarf við vopnaeftirlitssveith' SÞ. Madeleine Albright, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, sagði i gær að allir óskuðu þess að frið- samleg lausn næðist, en málamiðlun kæmi ekki til Reuters TVEIR starfsmenn Sameinuðu þjóðanna í Bagdad flytja fóggur sínar í höfuðstöðvar samtakanna í borginni í gær. greina. Til að afstýra loftárásum þyrfti Saddam Hussein að falla frá ákvörðun sinni um að hindra störf vopnaeftirlitssveitanna. „Irakai' standa frammi fyrh' einföldu vali, að skipta um skoðun eða taka afleiðingunum," sagði Albright. Dmitri Jakúskín, talsmaður rússnesku stjórnar- innar, ítrekaði í gær að Rússar væru algjörlega mótfallnir beitingu hervalds gegn írak, en lagði þó áherslu á að írakar bæru fulla ábyrgð á deilunni, og hvatti Saddam til að sýna vopnaeftirlitssveitum SÞ samvinnu. Þeir fímmtíu starfsmenn Sameinuðu þjóðanna sem enn eru í Bagdad fluttu í gær í öryggisskyni af hótelum sínum í höfuðstöðvar SÞ í borginni. Mörg ríki hafa hvatt þegna sína til að yfírgefa Irak, og utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefíir hvatt Bandaríkjamenn um allan heim til að vera á varðbergi gagnvart hugsanlegum árásum vegna aukinnar spennu við Persaflóa. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, ítrekaði i gær að hann hygðist ekki fara til Bagdad til samningaviðræðna við Saddam Hussein. Hann átti í gær fund með öryggisráði SÞ um stöðu mála. íraski herinn í viðbragðsstöðu Samtök útlægra Iraka sögðu í gær að Saddam Hussein hefði skipað íraska hernum í viðbragðs- stöðu. I yfírlýsingu samtakanna segir að Saddam „hafí gefið öllum öryggissveitum og háttsettum yf- irmönnum í hernum skipun um að taka sér stöðu og framfylgja neyðaráætlunum". Um 300 bandarískar og breskar herflugvélar eru nú í viðbragðsstöðu eða væntanlegar til Persaflóa, auk 23 herskipa og kafbáta, sem bera yfir 300 langdrægar Tomahawk-stýriflaugar. Fundur APEC Deilt um tollamál Kuala Lumpur. Reuters. BANDARÍKJAMENN gagn- rýndu stjóm Japans í gær fyrir að ætla að hindra samkomulag um lækkun tolla á sjávar- og skógarafurðir á fundi leiðtoga aðildarríkja APEC, Efnahags- samvinnuráðs Asíu- og Kyi-ra- hafsríkja, sem haldinn verður í Malasíu á þriðjudag og mið- vikudag. Spennan í samskiptum Bandaríkjamanna og Japana magnaðist í gær þegar embætt- ismönnum aðildai'ríkjanna 18, sem undirbúa leiðtogafundinn, tókst ekki að ná samkomulagi í tolladeilunni. Ákveðið var þó að ráðherrar ríkjanna myndu reyna að leysa hana um helgina. Fer Clinton á fundinn? Útlit var fyrir í gær að Bill Clinton Bandaríkjaforseti hefði enn i hyggju að sitja leiðtoga- fund APEC, en vangaveltur voru uppi um að hann kynni að hætta við það vegna hugsan- legra hernaðaraðgerða gegn Irak. Akveði forsetinn að sitja ekki leiðtogafundinn yrði það mikið áfall fyrir APEC, sem hef- ur reynt að auka vægi sitt í Asíu. ■ Samtökin hvött/28
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.